Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1990, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990.
3
dv Fréttir
Skemmdarverk
á veghefli
Lögreglan á Eskifiröi vinnur að
rannsókn vegna skemmdarverka
sem voru unnin á veghefli. Hefillinn
stóð bilaður í Eyrarbót sem er við
sunnanverðan Reyðarfjörð.
Allar rúður voru brotnar og einnig
speglar. Ekki er búið að finna þann
sem vann skemmdarverkin. Tabð er
að þau hafi verið unnin aðfaranótt
þriðjudags.
Lögreglan á Eskifirði vinnur einnig
að rannsókn vegna fleiri skemmdar-
verka sem hafa verið framin að und-
anfomu. -sme
Stakk af eftir
aftanákeyrslu
Lögreglan í Reykjavík óskar eftir
vitnum vegna aftanákeyrslu sem átti
sér stað við gatnamót hjá Suður-
hólum á móts við Arahóla klukkan
7.50 síðasthðinn fostudag. Ekið var
aftan á Fiat Uno og skemmdist bif-
reiðin töluvert mikið. Kvenmaður,
sem ók Fiatbíinum, fékk snert af
taugaáfalli við áreksturinn. Henni
tókst því ekki að gera sér grein fyrir
hver ók aftan á bíl hennar. Þeir sem
urðu vitni að árekstrinum eru beðnir
um að hafa sambandi við slysarann-
sóknadeildlögreglunnar. -ÓTT
Blaðaprent:
Oddi kaupir
vélar og tæki
Prentsmiðjan Oddi hefur keypt aU-
ar vélar og tæki Blaðaprents hf. Oddi
kaupir ekki húsnæði Blaðaprents og
yfirtekur engar skuldir. Jafnframt
hefur verið gerður verksamningm- á
miili fyrirtækjanna um að Oddi
prenti Alþýðublaðið, Þjóðviljann,
Tímann og Pressuna næstu fimm
árin. Langur aðdragandi er búinn að
vera að þessum kaupum.
-JGH
Nýr listi í Nes-
hreppi utan Ennis
Stefin Þór Sigurðsson, DV, Hellissandi:
Fram er kominn annar hsti til
sveitarstjómarkosninganna í Nes-
hreppi utan Ennis á Snæfellsnesi.
Það er hsti sem nefnist Framboð fyr-
ir betri byggð. Listann skipa:
1. Kristinn Jón Friðþjófsson, 2. Þor-
geir Ámason, 3. Drífa Skúladóttir,
4. Anna Þóra Böðvarsdóttir, 5. Hall-
grímur Guðmundsson, 6. Sigurlaug
G. Guðmundsdóttir, 7. Margrét
Ragnarsdóttir, 8. Guðbjörg Jónsdótt-
ir, 9. Hjörtur Ársælsson og 10. Ester
Friðþjófsdóttir.
Barnalán í
Bolungarvík
Hlynur Þór Magnússon, DV, Vestfjörðum:
Leikfélag Bolungarvíkur fmm-
sýndi á laugardag Blessað bamalán
eftir Kjartan Ragnarsson. Leikendur
em Þóra Hahsdóttir, Jarþrúður Ól-
afsdóttir, Helga Jónsdóttir, Elsa Jó-
hannesdóttir, Sigríður Jónsdóttir,
Sigurður Bjarki Guðbjartsson,
Gunnar Sigurðsson, María Ólafs-
dóttir, Örnólfur Guðmundsson, Þor-
björg Magrtúsdóttir, Gunnar Halls-
son, Óðinn Bigisson og Dohý frá
Minnihlíð (varphæna). Leikstjóri er
Sigurgeir Scheving.
Blönduvirkjun:
Ellefu tilboð
Ehefu tilboð frá átta fyrirtækjum
bárust í starfsmannahús Blöndu-
virkjunar. Verkið felur í sér bygg-
ingu húss sem er alls 2.180 fermetrar
að grunnfleti. Einnig er í verkinu frá-
gangur lóðar og vegar. SH-verktakar
áttu þrjú dlboð í verkið og þar á með-
aí éru tvii'lægstú tillxrðin. -sme
LAUNAGREIÐENDUR
GÍRÓ - NÝLEIÐ
VIÐ SKIL Á STAÐGREIÐSLUFÉ
eWó-se^
ÍÍBÓ-SEÐILL
S2
"gSsmí™®
Kennitaia
fnimit'
ttm]*
—■*-
9920490
0a9se'n'n0
....^ 'w"*
_—-—■ tu<
3ÖtU 900
£yv
§S \ 09109“'“•
z4. . I
l!Ír'-“”Is5 GU0LAUG55ON
l||\ 5KÚLAGÖTU 100
II! \ 105 RLVKJAVIK
llll __________________
51
Staðgrelðsla
með gíróseðli
Um mánaðamótin apríl/
maí 1990 var tekin í notkun
sérstök gíróþjónusta fyrir skil
á staðgreiðslufé. Þetta nýja
fyrirkomulag er til hagsbóta
fyrir launagreiðendur þar sem
greiðslustöðum fjölgar til
muna.
Tvœr tegundir
gíróseðla
Um tvenns konargíróseðla
er að ræða vegna skila á stað-
greiðslufé:
• Gíróseðill S1: „Skila-
grein vegna launa-
greiðslna.“ Þennan gíró-
seðil nota launagreiðendur
þegar skilað er- stað-
greiðslufé sem haldið hefur
verið eftir af launagreiðsl-
um til starfsmanna.
• Gíróseðill S2: „Skila-
grein vegna reiknaðs
endurgjalds.“ Þessi gíró-
seðill er eingöngu notaður
þegar skilað er stað-
greiðslufé vegna reiknaðra
launa launagreiðandans
sjálfs.
Fyrirfram árltaðir
gíróseðlar
Launagreiðendum berast
fyrirfram áritaðir gíróseðlar
með upplýsingum um greið-
anda og greiðslutímabil. Ef
áritaðir gíróseðlar berast ekki
má nálgast skilagreinar hjá
innheimtumönnum stað-
greiðslu og greiða þar.
Hvar má greiða?
Með gírókerfi staðgreiðslu
er launagreiðendum gert kleift
að standa skil á greiðslu í öll-
um bönkum, sparisjóðum og
pósthúsum. Þessar greiðslu-
stofnanir taka þó aðeins við
gíróseðlum sem eru fyrirfram
áritaðir af skattyfirvöldum en
að öðrum kosti verður að inna
greiðslu af hendi hjá inn-
heimtumönnum staðgreiðslu.
Gírókerfi staðgreiðslu
nýtist ekki þegar misræmi
er á milli greiðslu og þeirrar
upphæðar sem tilgreind er
á gíróseðlinum og það
sama gildir ef gera þarf upp
eldri skuld. í slíkum tilvik-
um ber að snúa sér til inn-
heimtumanna staðgreiðslu.
Skilá
sundurliðunum
Auk innheimtumanna stað-
greiðslu taka bankar, spari-
sjóðir og pósthús á móti fylgi-
gögnum með gíróskilagrein-
um, þ.e. sundurliðun á stað-
greiðslu launamanna. Launa-
greiðendur eru jafnframt
hvattir til að kynna sér kosti
þess að skila þiessum upplýs-
ingum í tölvulæsu formi, þ.e. á
gagnamiðli.
Gjalddagi
- elndagi
Gjalddagi staðgreiðslufjár
er 1. hvers mánaðar og ein-
dagi 15. hvers mánaðar.
Munlð að gera skil tímanlega!
RSK
. RÍKISSKATTSTJÓRI
i it|»!j1ifilH1I SJ.fi ItSC Líl
HVÍTA HÚSIÐ / SÍÁ