Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1990, Page 10
10
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
í Reykjavík vegna sveitarstjórnarkosninga 1990 flyst
í Ármúlaskóla laugardaginn 5. maí nk. og verður
opið þann dag frá kl. 14-18.
Síðan verður opið alla virka daga kl. 10-12, 14-18
og 20-22, en sunnudaga og helgidaga verður opið
kl. 14-18.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Konuri
Reykjaneskjördæmi
Félagsfundur í Hamraborg 20 A, Kópa-
vogi, fimmtudaginn 3. maí kl. 20.30.
Kosningaskrifstofa Kvennalistans í Kópa-
vogi, Hamraborg 20 A, er opin frá kl. 15-19
virka daga, laugardaga kl. 11-14. Sími
42943 og 42944.
Allir velkomnir
Utlönd
OB9Q NTBXAICNAL CCPTHGHT BY CAHTOOMEWS K1 NY.C. USA
''MiWlii
Þrátefli í ísrael
Teikning Lurie
Shamir reynir stjómarmyndun í ísrael:
OPIÐ HÚS
verður í félagsheimili SVFR föstudaginn 4. maí. Hús-
ið opnað kl. 20.30.
Dagskrá:
• Sérstakur gestur kvöldsins, Jim Hardy,
tekur til máls, og sýnt verður mynd-
bandið „The art of rod and reel manufac-
turer".
• Guðni Guðbergsson á Veiðimálastofnun
spáir í laxveiðina sumarið 1990.
• Píanóvígsla: Jón Stefánsson organisti
vígir píanó félagsheimilis SVFR.
• „Footloose" verðlaunaafhending.
• Jón Stefánsson stjórnar fjöldasöng.
• Stórglæsilegt happdrætti.
Fræðslu- og skemmtinefnd SVFR
ÚTSALA
Ödýr gróðurhús
Europa 86, stærð 2,58x1,96, verð 34.268 2 stk.
Universal 88, stærð 2,60x2,57, verð 42.351 2 stk.
Magnum 108, stærð 3,22x2,57, verð 52.964 1 stk.
Surprime 66, stærð 1,95x1,93, verð 31.800 1 stk.
Vermireitir, stærð 1,29x63, h.38, verð 4800.
Gróðurhús við vegg, verð 13.224 4 stk.
Öll húsin eru með gleri
ATHUGIÐ, AÐEINS NOKKUR HÚS
Páll Emil Beck, Kársnesbraut 112, sími 641644
Snurða hlaup-
in á þráðinn
Snurða hefur hlaupið á þráðinn í
stjórnarmyndunartilraunum Sham-
irs, forsætisráðherra bráðabirgða-
stjómarinnar í ísrael. Fram-
kvæmdanefnd eins smærri ílokk-
anna á ísraelska þinginu hefur hvatt
til að mynduð verði samsteypustjórn
með aöild beggja stóm flokkanna,
Likud-flokks Shamirs og Verka-
mannaflokksins, í stað þess að lýsa
yfir skilyrðislausum stuðningi við
stjórnarmyndun undir forsæti
Shamirs án aðildar Verkamanna-
flokksins. En flokkurinn, Þjóðarlegi
trúarflokkurinn, hefur þó sett á lagg-
irnar nefnd sem skal ræða við full-
trúa Likud um hugsanlegt stjórnar-
samstarf. Nokkrir félagar í Trúar-
flokknum vildu hefja samstarf við
Shamir án nokkurra skilyrða en það
hefði tryggt Likud meirihluta stuðn-
ing á hinu 120 sæta þingi.
Það eru nokkrir smáir flokkar á
ísraelska þinginu sem hafa úrslita-
vald varðandi stjórnarmyndun í
landinu. Þeir ráða alls yfir átján sæt-
um á þingi en hvor stærri flokkanna
fyrir sig hefur tryggt sér stuðning
sextíu þingmanna.
Bráðabirgðastjóm hefur verið við
völd í ísrael síðan slitnaði upp úr
samstarfi Likud og Verkamanna-
flokksins vegna ágreinings um frið-
arviðræður við Palestínumenn fyrir
nokkmm vikum. Verkamanna-
flokknum mistókst stjórnarmyndun
og fyrir viku var Shamir veitt stjóm-
armyndunarumboð.
Reuter
Baiidaríkin:
Nýjar afvopnunartillögur?
Bandaríkin hyggjast fækka
kjarnorkuvopnum sínum í Evrópu
innan skamms og vilja að sovésk
stjómvöld samþykki að eyða öllum
kjarnorkuvopnum sem staösett eru
á landi á meginlandi álfunnar.
Þetta kom fram í frétt bandaríska
dagblaðsins Washington Post í
morgun.
Blaðið skýrði frá því að Banda-
ríkjaforseti hafl tekið þessa
ákvörðun á fundum með háttsett-
um ráðgjöfum sínum nýlega. í frétt
blaðsins var haft eftir háttsettum
embættismanni að utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna myndi leggja
fram þessar tillögur á fundi utan-
ríkisráðherra aðildarríkja Nato,
Atlantshafsbandalagsins, í Brussel
í dag. Ekki höíðu fengist viðbrögð
á þessari frétt hjá embættismönn-
um bandaríska forsetaembættisins
í morgun en blaðiö hafði það eftir
ónefndum embættismönnum að
forsetinn kynni að skýra frá þess-
um tillögum á fundi með blaða-
mönnum síðar í dag. Reuter
Sveitarstjómarkosningar í Bretlandi í dag:
Búist við tapi íhaldsins
Milljónir manna ganga aö kjör-
borðinu í bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningum í Bretlandi, Wales og
Skotlandi í dag. Þá mun fyrst reyna
fyrir alvöru á stöðu og vinsældir
íhaldsflokksins, eða stjórnarflokks-
ins, meðal almennings. Aldrei fyrr
hefur flokkurinn og leiðtogi hans,
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra, verið eins óvinsæl og einmitt
nú, ef marka má niðurstöður skoð-
anakannanna. Samkvæmt nýjum
könnunum hefur Verkamannaflokk-
urinn allt að 23 prósenta forskot á
íhaldsflokkinn. Slíkar kannanir
benda og til að íhaldið muni horfast
í augu við mikinn ósigur í kosning-
unum í dag en þá verða fimm þúsund
fulltrúar í bæjar- og sveitarstjórnir
kosnir.
íhaldsmenn telja aö þeir kunni að
missa allt að þrjú hundruð sæti í
kosningunum í dag. Tapi þeir fleiri
sætum munu íhaldsmenn líta það
alvarlegum augum að sögn heimild-
armanna. Fréttaskýrendur segja
þessar kosningar fyrsta raunveru-
lega prófsteininn á vinsældir íhalds-
flokksins síðan árið 1987 þegar al-
mennar þingkosningar fóru fram.
Þetta er einnig fyrsta tækifærið sem
kjósendur fá til að láta í ljósi álit sitt
á stjórn Thatchers frá því að nef-
skatturinn óvinsæli kom til fram-
kvæmda, þann 1. apríl.
Margir íhaldsmenn óttast að óvin-
sældir nefskattsins kunni að kosta
flokkinn sigur í næstu almennu þing-
kosningum sem boða verður til eigi
síðar en um mitt ár 1992. í skoðana-
könnunum kemur fram að allt að 75
prósent aðspurðra eru andvíg skatt-
inum.
Reuter
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands og leiðtogi íhalds-
flokksins. Simamynd Reuter