Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1990, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1990, Side 7
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990. 7 Fréttir Landsframleiðsla miðað við vinnuframlag og verðlag: Lífskjör á Islandi eru þau f immtu verstu á Vesturlöndum - aðeins Portúgal, írland, Grikkland og Tyrkland fyrir neðan okkur íslendingarerunúbyrjaðiraöfalla frá Efnahags- og framfarastofnun- niður listann yflr ríkustu þjóðir inni í París (OECD) var landsfram- heims. Miðað við nýjar upplýsingar leiðsla á mann á Islandi sú sjötta Höfum við það svo gott? Landsframleiðsla OECD-landanna að teknu tilliti til vinnuframlags og verðlags* 1. Bandaríkin 2. Ástralía 3. Kanada 4. Lúxemborg 5. Noregur 6. Sviss 7. Ítalía 8. Holland 9. V-Þýskal. 10. Svíþjóð 11. Bretland 12. Frakkland 13. Spánn 14. Belgía 15. Finnland 16. Nýja-Sjál. 17. Austurríki 18. Danmörk 19. Japan 20. fsland 21. Portúgal 22. írland 23. Grikkland 24. Tyrkland 0 400 800 1.200 1.600 * / þúsundum króna á mann Saumastofan sýnd á M- hátíð í Stykkishólmi Valdimar Hreiðaisson, DV, Stykkiahólmi: M-hátíð á Vesturlandi var nýlega haldin í Stykkishólmi Mikil hátíð- ardagskrá var haldin í félagsheim- ilinu. Lúðrasveitin lék í upphafl en síðan fluttu Sturla Böðvarsson bæjarstjóri og Svavar Gestsson menntamálaráðherra ræður. Ronald W. Turner söng nokkur lög við undirleik Erlends Jónsson- ar og einnig söng barnakór grunn- skólans. Ásgeir Ásgeirsson sagn- fræðingur, sem nú vinnur að ritun sögu Stykkishólms, flutti erindi sem hann kallaði Saga bæjarins. Nemendur í 8. og 9. bekk grunn- skólans fluttu leiklestur undir stjórn Guðjóns Inga Sigurðssonar leikstjóra og dagskránni í félags- heimilinu lauk með því að kór Stykkishólmskirkju söng undir stjórn Ronalds W. Turner. Síðar um daginn opnaði Ellert Kristinsson, forseti bæjarstjórnar, sýningu í grunnskólanum, sem unnin var af nemendum skólans undir handleiðslu Gunnars Gunn- arssonar og nefndist Friður á jörð. Lionessur úr Hörpu aðstoðuöu. Menningardeginum lauk með frumsýningu leikfélagsins Grímnir í Stykkishólmi á Saumastofu Kjart- ans Ragnarssonar undir stjórn Guðjóns Inga Sigurðssonar. Góður rómur var gerður að frammistöðu leikara, leikstjóra og annarra sem að sýningunni stóðu. Egilsstaöir: Félagsaðstaða fyrir aldraða Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egflsstöðum: Sumardaginn fyrsta var tekin í notk- un ný félagsaðstaða aldraðra á Egils- stöðum að viðstöddum um 90 gestum. Hún er í kjallara íbúðablokkar eldri borgara sem byggð var á sl. ári. Hér er um að ræða rúml. 100 m2, sem skiptist í tvo sah, auk eldhúss og snyrtiaðstöðu. í þessari fallegu íbúðablokk eru 18 íbúðir frá 50 til 60 ferm að stærð. Hún er í daglegu tali kölluð Jónshús eftir Jóni Sigurðssyni, fyrrum bónda í Kirkjubæ í Hróarstungu og þar áður leigubílastjóra í Reykjavík, en hann var einn af helsti hvatamönnum að byggingu hennar. mesta í heimi. Þau lönd sem voru fyrir ofan ísland voru Sviss, Finn- land, Japan, Svíþjóð og Noregur. í upphafi níunda áratugarins voru íslendingar hins vegar í þriðja sæti. Finnland, Japan og Noregur hafa nú skotist upp fyrir okkur. Miðað við spá um hagvöxt á næstu árum má búast við að íslendingar falli enn niður þennan lista, eins og komið hefur fram í DV. Lækkum á listanum vegna verðlagsins Þó þessum samanburði hafi mikið verið hampað af ráðmönnum á ís- landi og látið í það skína að hann gæfi hugmynd um lífskjör hér á landi þá er það ekki svo. Til þess að fá slík- an samanburð hafa hagfræðingar borið saman landsframleiðslu hvers lands að teknu tilliti til verðlags. Framleiðsla lands þar sem verðlag er hátt (til dæmis Japan og Norður- löndin) lækkar þá þar sem almenn- ingur fær ekki jafnmikið af vörum fyrir peninga eins og í löndum þar sem vérðlag er lágt (til dæmis Banda- ríkin og Miðjarðarhafslöndin). Flest- ar þjóðir heims reikna landsfram- leiðslu sína á þessum grunni. Það hefur hins vegar ekki verið gert hér- lendis en sérfræðingar OECD hafa . áætlað hver landsframleiðsla íslend- inga er að teknu tilliti til þessa. Islands lendir ekki í sjötta sæti á þessum lista heldur í þvi ellefta. Lönd sem skjótast upp fyrir okkur eru Kanada, Bandaríkin, Ástralía, Lux- emborg og Bretland. Þessi niðurstaða, að íslendingar séu í ellefta sæti, kemur sjálfsagt betur heim og saman við tilfinningu íslendinga sem hafa ferðast erlendis og kynnst lífskjörum annarra þjóða. Vinnum okkur upp um ellefu sæti Annað sem gerir samanburð á landsframleiðslu á mann á milli landa varsaman er mismunandi at- vinnuþáttaka. Eins og kunnugt er er Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson atvinnuþátttaka á íslandi með því hæsta sem gerist og hvergi er unninn lengri vinnutími en hér. Ef landsframleiðsla allra OECD- landanna er hækkuð til samræmis við vinnuframlag íslendinga föllum við úr sjötta sætinu á listanum yfir landsframleiðslu á mann í það sautj- ánda á lista yfir landsframleiðslu á hverja vinnustund. íslendingar vinna sig með öðrum orðum úr sautj- ánda sæti í það sjötta. Þau lönd sem skiótast udd fvrir okkur eru Þýskaland, Bandaríkin, Danmörk, Lúxemborg, Holland, Ástralía, Kanada, Frakkland, Aust- urríki, Ítalía og Belgía. Framleiðni vinnuafls á íslandi er því aðeins skárri en í Bretlandi, Nýja Sjálandi, Spáni, írlandi, Grikklandi, Portúgal og Tyrklandi. Aðeins líttþróuð lönd fyrir neðan okkur Þegar þessu tvennu er blandað saman, það er vinnuframlagi og lífs- kjörum, fer hlutur íslands að verða æði svartur. Ef landsframleiðsla OECD-landanna er leiðrétt miðað við verðlag þannig að raunhæfur sam- anburður á lífskjörum fæst og henni deilt niður á vinnuframlag þjóðanna lenda íslendingar í tuttugasta sæti. Aðeins Portúgal, írland, Grikkland og Tyrkland fá verri útkomu. Lífs- kjör Bandaríkjamanna miðað við hverja vinnustund eru næstum tvis- var sinnum betri en íslendinga. Þessi samanburður er mun raun- hæfari en sá sem ráðmenn þjóðar- innar hafa viljað halda fram. Hann sýnir hvað íslendingar geta keypt hér innanlands og hvað þeir þurfa að hafa fyrir því. Sjötta sætið á listan- um yfir mesta landsframleiðslu á mann fæst annars vegar með mun meiri vinnu en tíðkast meðal ná- grannaþjóðanna og hins vegar með hærra verðlaei. ALLT í ÚTILEGUNA UM HELGINA TJALDVAGNAR FELUmÓLHÝSI SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJASLOÐ 7 - SIMI 62-17-80 LAUGARDAG KL. 11-16, SUNNUDAG KL. 12-16 Glæsilegt úrval ný- komið af plast-, 'furu- og járnhús- gögnum. Verð aðeins kr. 306.000 Innifalið í verði vagnsins er stórt fortjald, botn i for- tjald, eldavél með 3 hellum, gasjafnari, gardinur, borð, varadekk. Top Valume fyrir allar árstíðir, allur hugsanlegur útbúnaður i vagnin- um. Reistur á 15 sek. '90 MODEUN KOMfflí AF SÓIHÚSGÖGNOM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.