Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1990, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1990, Side 27
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990. 35 Lífsstm jT h PAPRIKA Nóatún B 450 646 TÓMATAR Hagkaup Bónus ll 410 585 SVEPPIR Mlkllgaróur Hagkaup I 512 1068 Enn eru tæpir fjórir mánuðir þangað til nýjar íslenskar kartöflur koma á markaðinn. DV kannar grænmetismarkaðinn: Ódýrari kartöflur Það eru kartöflurnar sem þessa vikuna hafa lækkað hvað mest í verði, eða um 23%. Þess ber þó að geta aö hér er um ódýrustu kartöfl- urnar á markaðnum að ræða og þær eru ekki endilega þær bestu. Bónus er með ódýrustu kartöflurn- ar á 61,60 kílóið í 5 kg pokum. Mikli- garður selur II. flokks gullauga í 5 kg pokum á 64,40 kílóið, en hér eru á ferðinni útlitsgallaðar kartöflur. Þar fást einnig I. flokks kartöflur í lausu á 95 krónur kílóið. Fjarðar- kaup selur 3 kg poka á 225 krónur, eða 75 krónur kílóið, og Nóatún er með 3 kg í poka á 83 krónur kílóið. Það er Hagkaup sem er með dýrustu kartöflurnar á 89 krónur kílóið en þar er einnig hægt að fá premiere kartöflur á 107 krónur kílóið. Verð- munurinn ájnilli kartaflna í Bónusi og Hagkaupi er því 44%. Meðalverð á tómötum þessa vik- una er örlítið lægra en í síðustu viku og munar þar 20 krónum á kílóið. Meðalverðið núna er 479 krónur kíló- ið. Bónus er enn með lægst verð, en þar er hægt að fá 1/2 kg poka á 205 krónur, sem gerir 410 krónur kílóið. Mikligarður selur kílóið á 468, Fjarð- arkaup á 487, Nóatún er með tómat- Sparigrís vikunnar: Verslunin BÓNUS ana á 545 og Hagkaup er enn dýrast með kílóið á 585, eða 43% dýrari en Bónus. Tómatarnir voru víðast hvar mjög fallegir og girnilegir. Verð á gúrkum fer enn lækkandi en kaupmenn áttu von á að það hækkaði hvað úr hverju því margar verslanir selja nú gúrkurnar á til- boðsverði. Meðalverð á gúrkum er nú 108,40 krónur. Bónus seldi kílóið á 93 krónur en Hagkaup á 120 krónur kílóið. Aðrar verslanir eru þar mitt á milli, en þetta verð er undir inn- kaupsverði og ætti að vera um 210 krónur. Talsverð hækkun er á sveppunum frá síðustu viku því erlendir sveppir eru inni í könnuninni og voru þeir víðast hvar seldir í 250 g bökkum. Mikligarður var með sveppabakkana á 1068 kilóið en þar var búist við að í dag yrðu þeir seldir í lausu á 798 krónur kílóið. í Nóatúni voru bakk- arnir á 828 krónur kílóið en þar var von á sveppum á 668 krónur kílóið. Hagkaup var með sveppina á 512 krónur kílóið og munar því þarna 109%. Hagkaup var einnig með ódýrustu grænu vínberin á 359 krónur kílóið, en þar fengust rauð vínber á 339 krónur kílóið og blá á 479 krónur kílóiö. Dýrust voru vínberin í Nóa- túni á 480 krónur kílóið og munar þarna 34%. Grænu vínberin voru víðast hvar fallegri í þessari viku en í þeirri síðustu. Græna paprikan var dýrust í Nóa- túni á 646 krónur kílóið en ódýrust í Bónusi á 450 krónur kílóið og mun- ar þarna 44%. Meðalverð á henni var 528,50. í Miklagarði var hún á 479 krónur kílóið, er DV leit þar inn, en átti eftir aö lækka niður í 448 krónur kílóið. Paprikan var á 599 í Hagkaupi. -GHK Sértilboð og afsláttur: - Kex, krydd og klósettpappír í Hagkaupum í Skeifunni má þessa dagana fá Neptuna túnfiskdós með 184 g á 79 krónur. Einnig Barnángen sápulög sem fæst með ilmi á 199 krónur, en vilji fólk vera laust við slíkt er hægt að fá sápulöginn án ilm- efna á 185 krónur. Hagkaup býður líka upp á 425 g af Sun Maid rúsínum á 89 krónur, 1/2 dós af FKC maís- korni á 69 krónur og 750 g af Skælskor appelsínumarmelaði á 99 krónur. Bónus í Faxafeni selur einn og hálf- an lítra af íscola á 73 krónur, Ritz kex pakkann á 69 krónur, Munksjös klósettpappír á 153 krónur fyrir átta rúllur og Papco eldhúsrúllur á 185 krónur fyrir fjórar rúllur. Mikligarðui' við Sund er með Knorr krydd á tilboösverði eða 106 krónur, einnig 450 g af Coco Pops á 79 krónur og 500 g af Cruncy Nut á 55 krónur, en síðasta dagsetning á þessum pökkum er júní 1990. Nóatún í Hamraborg var með sér- staka kynningu á vörum frá Sól. Sól- blóma kostaði þar 89 krónur, Ljómi 99 krónur, franskar Sólarkartöflur, 900 g, 259 krónur og Seltzer 49 krón- ur. Þar var einnig hægt að kaupa Royal léttbjór á 49 krónur, 0,331 dós- ina. í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði fæst einn og hálfur lítri af Egilsappelsíni á 165 krónur, tveir lítrar af Coca Cola á 159 krónur, Bugles pakki á 129 krónur og koníakshringir frá Panda á 299 krónur. Einnig græn vínber á 157 krónur kílóið, en þau voru ekki sérstaklega falleg en sjálfsagt æt. -GHK Tómatar Verð í krónum Okt.N6v.Dos. Jan.Fob.MarsApfllMal Vínber

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.