Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Qupperneq 8
MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 1990.
8
... FRIR
BÍLALEIGUBÍLL
í HEILA VIKU
27.880
Uflönd
Andstæðingar Ion Iliescus, forseta
Rúmeníu, efndu á ný til mótmælaað-
gerða í miðborg Búkarest í gær-
kvöldi. Nokkur hundruð manns
hindruðu umferð um Magherubreið-
strætið þar sem mótmæli andófs-
manna voru kæfð í síðustu viku.
í nótt héldu flestir mótmælend-
anna heim og umferð um breiðstræt-
ið varð eölileg á ný. Aðeins nokkrir
tugir þeirra höföust við á gangstétt-
inni nálægt háskólanum er líða tók
á nóttina.
Fjöldi óeirðalögreglumanna stóð
vörð í nokkur hundruð metra fjar-
lægð en lét ekki til skarar skríða
gegn stjómarandstæðingum. Þegar
mótmælin stóðu sem hæst hvatti
innanríkisráðherrann, Dorel Ursu,
menn til að sýna stillingu og bauð
þeim til viðræðna.
Á þingfundi í dag er búist við að
stjómandstæðingar mótmæli að-
gerðum námumanna í miðborg Búk-
arest í síðustu viku er þeir réðust
gegn mótmælendum og bmtu allt og
brömluðu á skrifstofum stjómarand-
stæðinga. Diescu forseti hafði beðið
námumenn um hjálp gegn bylting-
artilraun fasista, eins og hann orðaði
það. Að sögn yfirvalda í Rúmeníu
iétu sex manns lífið í átökunum og
hundmð slösuðust. Yfir eitt þúsund
manns vom handteknir.
Einnig er búist við því að utanríkis-
ráðherrar Evrópubandalagsríkjanna
bregðist harkalega við og ákveði á
fundi sínum í dag að fresta undirrit-
un nýs viðskiptasamnings við Rúm-
eníu vegna ofbeldisins gegn stjómar-
andstæðingum.
Reuter
Mótmælandi í Búkarest, sem barinn var af námumönnum í siðustu viku,
hrópar slagorð gegn yfirvöldum i gærkvöldi.
Símamynd Reuter
Ný mótmæli
í Búkarest
Umbótasinnar innan sovéska kommúnistaflokksins:
- ný málamiðlunartillaga í sjáifstæðisbaráttu Litháa
Róttækir umbótasinnar innan so-
véska kommúnistaflokksins hafa
hótað því að segja sig úr flokknum
og stofna eigin stjórnmálaflokk verði
ekki gengið aö kröfum þeirra um
víðtæka endurskoðun og uppstokk-
un á markmiðum og stefnu komm-
únistaflokksins í Sovétríkjunum á
komandi flokksþingi í næsta mán-
uði. Það var Bandalag lýðræðissinna,
hópur umbótasinna er nýtur mikils
stuðnings meðal kommúnista, sem
setti fram þessa úrslitakosti á fundi
þess um helgina.
Það kom fram á fundinum að félhst
þing ekki á samþykkt Bandalagsins
um breytingar innan flokksins
myndi hópurinn vinna að þvi að
koma á nýju stjórnmálaafli í Sovét-
ríkjunum í september eða október
næstkomandi. Sumir fundargesta
töldu að ekki væri eftir neinu að bíða
og vildu setja upp stjórnmálaflokk
óháðan kommúnistaflokknum án
tafar. En það var ekki samþykkt og
var ákveðið að bíða flokksþingsins.
Einn forystumanna Bandalags lýð-
ræðissinna, Ivan Lysenko, hvatti
Gorbatsjov, Sovétforseta og leiðtoga
sovéska kommúnistaflokksins, til að
segja af sér forystuembætti flokks-
ins. Lysenko sagði að undir stjóm
kommúnista væri landið komið fram
á hengibrún hruns. ;,Tími sannleik-
ans er ranninn upp,“ sagði Lysenko
við blaðamenn að loknum fundinum.
í samþykkt fundarins er hvatt til
þess aö uppbygging flokksins verði
gerð lýðræðislegri, að endir verði
bundinn á áhrif og völd kommúnista-
flokksins yfir KGB, leyniþjónustu
Sovétríkjanna, hernum og dómskerf-
inu, að fallið verði frá kommúnisma
sem endanlegu takmarki stefnu
flokksins og að fasteignir í eigu hans
verði gerðar upptækar. Fullvíst er
talið að fulltrúar á komandi þingi,
þar sem íhaldsmenn verða í meiri-
hluta, hafni þessum kröfum.
í Litháen, lýðveldinu sem lýsti yfir
sjálfstæöi í mars síöasthðnum, Gor-
batsjov til mikils ama, má búast við
að nýrri málamiðlunartihögu verði
hafnað á þirigi, að því er háttsettur
embættismaður skýrði frá í gær. Á
morgun munu þingmenn að öhum
líkindum ganga tU atkvæða um til-
lögu stjórnar Litháen sem gerir ráð
fyrir að fresta beri gildistöku sjálf-
stæðisyfirlýsingarinnar tímabundið
á meðan viðræður Litháa og
Moskvuvaldsins fara fram. Algi-
mantas Cekuohs, sem sæti á í mið-
stjórn hins sjálfstæða kommúnista-
flokks Litháen, segir að mikið van-
traust ríki meðal Litháa í garö
Moskvu og aö hkur séu á að tillagan
hljóti ekki samþykkt þings.
Reuter
Ivan Lysenko, einn forystumanna Bandalags lýræöissinna, hefur hvatt til
þess aö Gorbatsjov, leiðtogi kommúnistaflokksins, láti af embætti.
Símamynd Reuter
Hóta úrsögn úr flokknum