Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Side 11
MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 1990. 11 OPEL gm IVECTRA ilifl :r 1 , iBliiifflfiiN* .h".". " 1« 1 STANSLAUS SIGURFOR Opel Vectra hefur verið á stanslausri sigurför um Evrópu síðasta árið. Blaðamenn hafa hlaðið bílinn lofi og kaupendur hafa rifið bílana út jafnóðum og þeir voru framleiddir. EKKIBARA FARARTÆKI Skýringin er einföld. Opel Vectra er ekki bara farartœki, sem flytur fólk milli staða. Opel Vectra er nautn hins kröfuharða ökumanns, sem vill að allt fari saman, viðbragðssnerpa, frábœr stjórnsvörun, öryggi í akstri og þœgindi innan dyra. Öll tœkni, þekking og reyns/a General Motors, langstœrsta bílaframleiðanda heims, er á bak við hönnun og framleiðslu Opel Vectra, auk vestur-þýskrar nákvœmni og kröfuhörku. Komdu með fjölskylduna, reynsluaktu bílnum og leyfðu henni að finna nautnina að aka í Vectra. SNARPUR OG SPARNEYTINN Opel Vectra er framhjóladrifinn með 1,61 og 2,01 vél. Hann er 5 gíra eða sjálfskiptur, með aflhemlum, aflstýri og sjálfstœðri fjöðrun fyrir hvert hjól. Það tekur hann aðeins 8,5 sekúndur að ná 100 km hraða úr kyrrstöðu og í fjórða gír er hann aðeihs 14,5 sekúndur úr 40 km hraða á kiukkustund í 100 kílómetra. Þrátt fyrir kraftinn er hann ótrúlega sparneytinn. Samt er verðið frábœrt. Þú getur eignast Opel Vectra fyriraðeins 1.273.000 krónur. ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ Verð: Fjögurradyra,beinskiptur,1,6lvél kr. 1273.000,- Fimm dyra, beinskiptur, 1,61 vél kr. 1.353.000,- Fjögurra dyra, sjálfskiptur, 2,01 vél kr. 1.573.000,- Öll verð eru staðgreiðsluverð, bílarnir ryðvarðir og komnir ó götuna. mm mm SAMBAND ÍSLENSKRA SAMViNNUFÉLAGA Mlésú$fig HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000 OG 674300 Sviðsljós Stefanía hætt við að gifta sig Þessi mynd var tekin af Stefaníu og Jean-Yves á meðan allt lék í lyndi en skjótt skipast veður í lofti. Fregnir herma að Stefanía prins- essa frá Mónakó hafi slitið trúlofun- inni við unnusta sinn, Jean-Yves Le Fur. Hann er 25 ára Frakki sem starfað hefur sem fasteignasali. Náinn vinur fjölskyldunnar segir að sambandið sé runnið út í sandinn. Ekki er víst að Rainier fursti taki þessum fregnum vel því Stefanía dóttir hans hefur lengi gert honum lífið leitt með ftjálslegum lifnaðarháttum og er tíður gestur á Sviðsljóssíðum blaða. Furstinn var farinn að sjá fram á náðugri daga en ekki er víst að sú ósk hans rætist. Talsmaður furstafjölskyldunnar vildi lítið gera úr þessum fréttum og lét ekki hafa neitt eftir sér. Stef- anía og Jean-Yves hittust í sept- ember á síðasta ári og hafa verið saman flestum stundum þar til nýlega. Brúðkaupsdagurinn hafði ekki enn verið ákveðinn en gesta- listinn var í vinnslu. Líklegt er aö gestirnir megi afskrifa þá veislu. Parið sást síðast saman í maí á hraðaksturskeppninni miklu í Mónakó en fyrr í þessum mánuði sáust Jean-Yves og Albert prins á tennismóti í Frakklandi. Ekki fylg- ir sögunni hvernig hinn tilvonandi brúðgumi, sem hryggbrotinn hefur verið, tók höfnun Stefaníu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.