Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Side 3
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990.
3
X
dv_______________________________________________________________________________________Fréttir
Sigríður Stefánsdóttir sem átti sveltu hrossin í Hafnarfírðí:
D
Í
i
>
I
Seldi hrossin foreldr-
um sínum og systur
Uppboði á sveltu hrossunum í
Hafnarfirði var sem kunnugt er fre-
stað þar sem fram komu afsöl, dag-
sett í mars síðastliðnum, sem sýndu
að Sigríður Stefánsdóttir hefði selt
hrossin. Guðmundur Sigurðsson
hrossaflutningamaður kom þar fram
sem umboðsmaður nýrra eigenda.
Nýju eigendumir eru foreldrar Sig-
ríðar og systir. Sigríður, sem hafði
hrossin í vörslu, hefur margoft verið
kærð fyrir slæma meðferð á dýrum.
Steinn Steinsson héraðsdýralækn-
ir hefur skoðað hrossin og úrskurðað
þau það frísk að þau þoh flutninga.
Guömundur mun þvi taka þau í sína
vörslu og flytja þau á býli móður
sinnar að Bíldsfelli 1 í Grafningi.
Þar verða þau í haga í sumar en
verður ráðstafað í haust. Þau eru
þegar orðin mun sprækari þó að enn
sé óvíst hvort eða hve mikinn varan-
legan skaða þau hafa hlotið. Ekki er
lengur inni í myndinni að lóga þeim.
„Lít á þetta sem hvern annan
flutning“
„Ég vil taka það fram að það sem
kom fram í fréttum sjónvarpsins að
ég væri eigandi hrossanna er ekki
rétt,“ sagði Guðmundur Sigurðsson.
„Mér er veitt umboð til að annast
hrossin í sumar eftir að dýralæknir
og fógeti hafa gefið samþykki sitt.
Ég mun hafa eftirlit með hrossunum
í fullu samráði við embættið og dýra-
lækni".
Aðspuröur um tengsl eigenda og
Sigríðar sagöi Guðmundur að þaö
væri ekki hans mál. „Mér er veitt
umboð frá ættingjum hennar til þess
að annast þessi hross. Þó ég hafi
keyrt fyrir Sigríði þekki ég hana ekk-
ert persónulega og vil því ekkert tjá
mig um hana. Ég lít á þetta sem
hvern annan flutning. Það stendur
til að ég hafi hrossin í einhveija
mánuði til þess að fita þau og koma
þeim í góð hold.“
„Hún mun svara til saka
seinna“
Sigríður Ásgeirsdóttir, lögfræðing-
ur Dýraverndunarsambandsins,
sagði að á meðan ekki hefði verið
reynt á lögmæti afsalanna væri óljóst
hver væri eigandinn. „Það sem við
höfum áhyggjur af er hvort allt sé í
lagi með hrossin. Við höfum lengi
vitað af þessari konu og fylgst með
henni. Hún mun svara til saka
seinna. Hún hefur verið uppvís að
illri meðferð á hrossum víðs vegar
um landið, m.a. í Borgarfirði, Þor-
lákshöfn, Mosfellssveit og Álftanesi.
Það sem fólk gerir vitlaust er að vera
henda í hesta hennar tuggu og tuggu
í stað þess að tilkynna það réttum
yfirvöldum að hrossin séu í svelti.
Guðmundur Sigurðsson hrossa-
flutningamaður er aðili sem bæði
fólk Sigríðar og við getum sætt okkur
við. Það sem skiptir mestu máli er
að höggvið sé á hnútinn og Sigríður
verði svipt leyfi til að hafa dýr.
Þetta með umboð Guðmundar og
afsölin er allt mjög undarlegt mál.
Sigríður getur ekki sannað eignar-
rétt á nema 3 hrossum og afsöhn
geta hafa verið gefin út hvenær sem
er og eru sýnilega málamyndagern-
ingar.
Við höfum reynt að ná sambandi
við fógeta á aðra viku en ekki tekist.
Þetta mál væri hægt að leysa ef menn
settust niöur og ræddu málin. Ef fóg-
eti ákveður að afhenda dýrin er það
á hans ábyrgð. Við vildum halda
dýrunum saman þar til þau yrðu
orðin nógu hraust. Það er engin
trygging fyrir því að dýrunum verði
ekki komið til Sigríðar aftur og því
mikilvægt að svipta hana leyfi til að
halda dýr sem fyrst.“
Áfram undir eftirliti
„Ástand hrossanna er allt að
batna,“ sagði Sigurður Siguröarson
héraðsdýralæknir. „Þau eldri og
sterkari voru í sæmilegu ástandi
enda gátu þau ýtt hinum frá þegar
lítið var til skiptanna. Sigurjón
forðagæslumaður hefur verið mjög
skynsamur við að koma þeim til aft-
ur. Mér sýnist þau vera öll að bragg-
ast núna og hafa góða lyst. Nú er
verið að venja þau smám saman á
sterkara fæði.
Ég hef haft samband' við lögreglu
og sýslumann á þeim stað sem hross-
in fara til og dýralæknir tekur á
móti þeim þegar þau koma. Það verð-
ur því áfram eftirlit með hrossunum
til haustsins en þá ætti að meta
ástand þeirra á ný. Það gat brugðið
til beggja vona með sum þeirra og
ekki útséð enn hvernig þeim farnast.
Það verður aö gæta þeirra vel og taka
þau á hús ef óveður skellur á.
Ég held og vona aö dýrin séu nú á
leið í góðar hendur. Þau fá þarna þaö
fijálsræði og þá víðáttu sem þau
þurfa til að braggast vel. Ég veit einn-
ig að vel verður litið eftir þeim.“
Systir Sigríðar vildi ekki láta hafa
neitt eftir sér um þetta mál og for-
eldrar hennar eru erlendis.
Már Pétursson bæjarfógeti er í
veikindafríi.
-pj
Framkvæmdasj óður:
Engin
ferð
Stjórn Framkvæmdasjóðs hefur
ákveðið að sleppa árlegri veiðiferð
sinni á kostnaö sjóösins vegna bágr-
ar afkomu sjóðsins í ár. Stjórnin hef-
ur farið í þessar veiðiferðir mörg
undanfarin ár og hefur einhverjum
erlendum bankastjóra vanalega ver-
ið boðið með.
Guðmundur B. Ólafsson, fram-
kvæmdasfjóri sjóðsins, vildi í sam-
tali við DV ekki segja til um hversu
dýrar þessar ferðir hefðu verið.
veiði-
í ár
Menn gætu reiknað það út sjálfir út
^frá verði veiðileyfa í laxveiðiár.
‘ Heimildir DV herma hins vegar aö
veiðiferðin í fyrra hafi kostað á aðra
milljón króna.
Eins og áður sagði er fyrirséð að
Framkvæmdasjóður verður rekinn
með tapi í ár. Sama staða var í raun
uppi á boröinu í ársbyijun í fyrra
þegar stjómin ákvað samt sem áður
að fara í veiðiferðina.
Guðmundur Sigurðsson, umboðs-
maður ættingja Sigríðar.
Hrossin voru mjög ilia farin, hrædd og köld, þegar ákveðið var að taka þau
af Sigríði Stefánsdóttur. Þau voru það veikburða að þau þorðu ekki að
vera innan um önnur hross. DV-myndir BG
venu meoi
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
-gse