Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990. 5 x>v Viötalið Nám nauðsyn- legt heilanum Nafn: Sigurður Geirdal Aldur: 50 ára Starf: Bæjarstjóri í Kópavogi „Nýja starflð leggst vel í mig. Einhverjar breytingar verða í bænum því allt er jú breytingum undirorpið en búast má við aö áherslur færist á það sem setiö hefur á hakanum svo sem verk- legar framkvæmdir og gatna- gerð,“ sagði Sigurður Geirdal, nýráðinn bæjarstjóri í Kópavogi. Sigurður tók formlega við starf- inu þann 12. júni sl. Námshestur „Ég ólst upp í Grímsey og flutt- ist svo til Siglufjarðar. Svo fór maður á flakk milli skóla en í Kópavogi hef ég búið síðan 1962. Ég fór í Reykholt og svo i Sam- vinnuskólann á Bifröst og lauk þaðan samvinnuskólaprófi. 1980 varð ég svo stúdent úr MH en lauk viðsldptafræði i HÍ 1986. Maður þarf að fara í nám með vissu millibih því annars þornar upp í manni heilinn. Ég hafði hugsað mér að fara aftur í nám um síðustu áramót og læra tungumál, spönsku, þýsku og jafnvel rússnesku, en nú hefur þetta allt breyst svo námið verður að biða. Segja má að þetta sé hobbínám hjá mér en ég hef þessa venjulegu málakunnáttu úr skóla auk þess sem ég hef verið í Ðanmörku og Þýskalandi. Ég hef gaman af að ferðast og liitta innfædda en ég hef verið mikið á Kýpur. Þar er fólkið svipað okkur á íslandi, tal- ar um veðrið og hvaðan hver er ættaður,1' sagði nýi bæjarstjór- inn. Sigurður kveðst ekki hafa skipt oft um atvinnu. Hann var versl- unarstjóri KRON í 8 ár, fram- kvæmdastjóri UMFÍ í 16 ár og í 4 ár framkvæmdastjóri Frarnsókn- arílokksins. Út úr þessum tölum megi svo sjálfsagt finna formúlu um starfsaldur sem Sigurður kveðst láta stærðfræðingum eftir að reikna út. Æskulýðsmál hugleikin „Ég hef alltaf verið mikið í íþróttum og var keppnismaður í frjálsum íþróttum og fleiru. Auk þess er ég mikill útivistarmaður. Ég hef unnið mikið aö íþrótta-. og æskulýðsmálum og segja má að það sé bæði vinna og áhuga- mál. Mér finnst unga fólkið í dag skemmtílegt og það hefur minni fordóma en áður. Ég naut þess að fara í viðskiptafræðina með unga fólkinu sem var alveg stór- kostlegt og allir voru tilbúnir að hjálpa." Sigurður segist hafa þann sið að hugsa sig vel um áður en hann byrjar á verki því aðalatriðið er að klára það sem byrjað er á. Sem dæmi um það er hús sem Sigurð- ur byrjaði á og byggði að mestu sjálfur samhliða viðskiptafræði- námi. < Eiginkona Sigurðar er Ólafía Ragnarsdóttir og eiga þau saman börnin Ragnheiði sem er 22 ára, Gísla 20 ára, Ragnar 16 ára og Jóhann Örn en hann er 14 ára. Sigurður á auk þess son, Sigurjón (Sjón)semer27ára. -hmó ______________________________________________ Fréttir MeðaUaun, sem námsmönnum bjóðast, eru 50-60 þúsund á mánuði: Konur taka frekar illa launuð störf en karlar - segir Elsa Valsdóttir, framkvæmdastjóri Atvinnumiðlunar námsmanna Atvinnuástand skólafólks hefur verið mikið til umræðu síðustu vik- ur. Nú lítur út fyrir að þau skilyrði hafi skapast að ungt fólk geti ekki verið eins vandlátt og áður. Það virð- ast þó ekki allir vera á sama máli því komið hefur í ljós að af þeim 280 námsmönnum sem eru á skrá hjá Atvinnumiðlun námsmanna eru margir sem taka ekki hverju sem er. Launin eru það sem flestir setja fyrir sig en meðallaunin sem bjóðast eru á bilinu 50-60 þúsund. Það eru þær upphæðir sem hinn almenni launamaður í landinu fær í dag sam- kvæmt kjarasamningum. Velta menn því fyrir sér hvort námsmenn geri óraunhæfar kröfur. „Það er erfiðara að manna stöðurn- ar því lægri sem launin eru og taka konur frekar að sér illa launuð störf en karlmenn," sagði Elsa Valsdóttir, framkvæmdastjóri Atvinnumiðlun- ar námsmanna. Það vekur einnig furðu að kynja- skipting er áberandi meðal þeirra sem skráðir eru. 250, eða 89%, eru karlmenn en aðeins um það bil 30 eru konur. „Langmest framboð hefur verið á vinnu við afgreiðslu- eða skrifstofu- störf en það kemur mun minna inn af hefðbundnum karlmannsstörfum og því er auðveldara fyrir konur að ráða sig,“ sagði Elsa. „Einnig er tölu- vert um það að atvinnurekendur vilji eingöngu ráða kvenfólk. Möguleikar á að fá vinnu fara þó einnig eftir starfsreynslu viðkom- andi og svo er mikið um að fólk vilji starf sem tengist námi þess,“ sagði Elsa ennfremur. DV hafði samband við nokkra at- vinnulausa námsmenn og kannaði viðhorf þeirra. „Greinilega breyttir tímar“ Fjóla Rún Björnsdóttir er við nám í Frakklandi og er nýkomin til lands- ins. Hún er 23 ára gömul, hefur mikla tungumálakunnáttu og er nemandi í andi við Fjölbraut í Breiðholti. En hvað um framtíðina? „Ég hef farið að hugsa til þess hvernig þetta verður í framtíðinni. Ég held að ástandið fari versnandi en aðalspurningin núna er að fá vinnu," svaraði hún. „Ætla í sjálfstæðan rekstur“ „Ég hefði getað komist í vinnu en mig langar til að starfa við eitthvað sem tengist náminu," sagði Ingimar Jónsson 26 ára gamall viðskipta- fræðinemi. „Ef það gengur ekki ætla ég að fara út í sjálfstæðan rekstur með kunningja mínurn og veita minni fyrirtækjum bókhaldsaðstoð. Miðað við það nám sem ég hef að baki tel ég mig eiga rétt á góðum tekj- um en eins og staðan er í dag er ég tilbúinn að taka nánast hverju sem er. Hvað er til ráða? Mér finnst það ekki rangt að at- vinnurekendur séu hættir að ráða of mikið af fólki eins og áður var gert þó svo að það komi niður á okk- ur, skólafólkinu. Við verðum að vera raunsæ. Mér finnst borgin hafa stað- ið sig mjög vel í sambandi við ungl- ingana og ég held að það þýði ekkert annað en að vera bjartsýnn á fram- tíðina." „Óþægilegt að vera peninga- laus“ Baldur Kristinsson er tvítugur nemandi í heimspeki við Háskóla ís- lands. „Ég hef fengiö upplýsingar um mörg heimilisföng en ekkert ákveðið hefur komið út úr því ennþá," sagði hann. „Mér finnst aðallega óþægilegt að vera peningalaus og ef ég fæ ekkert að gera á næstunni er ætlunin að skrifa greinar og selja til blaðanna." Baldur hafði ekki lent í erfiðleikum áður með að útvega sér vinnu en hann vonaði að úr málunum rættist nú á næstu dögum. -tlt eðlisfræði og stærðfræði. „Mér hefur helst dottið í hug að fara út aftur og nota tímann í stað þess að sitja heima með hendur í skauti. Ég er farin að sjá fram á það að vera atvinnulaus í sumar," sagði hún. Aðspurð hvernig hefði gengið að fá vinnu áður sagði Fjóla: „Það eru greinilega breyttir tímar en það er erfitt að átta sig á því að óreyndu." „Leiðinleg vinna og illa laun- uð“ „Það er alveg hægt að fá vinnu en það sem býðst er bæði leiðinleg vinna og illa launuð. Spurningin um launin er að sjálfsögðu mörgum mikilvæg. Margir stunda aukavinnu en hana er erfitt að fá á sumrin. Ef unnið er með skólanum á veturna til að drýgja tekjurnar kemur það niður á náminu og það finnst mér mjög slæmt," sagði Sigrún Sigurðardóttir 21 árs, nem- Elsa Valsdóttir, framkvæmdastjóri Atvinnumiðlunar námsmanna. Fjóla Rún Björnsdóttir: „Greinilega breyttir Ingimar Jónsson: „Ætla í sjálfstæðan rekstur." Baldur Kristinsson: „Óþægilegt að vera peninga- tímar.“ laus.“ Þýsk-íslenska mótmæltu ákærunum: Málið í bið til haustsins Ómar Kristjánsson og Guðmundur Þórðarson, sem eru ákærðir fyrir brot á lögum um tekjuskatt og eigna- skatt, mótmæltu ákærunum þegar þeir komu fyrir Sakadóm Reykjavík- ur. Ómar er forstjóri og aðaleigandi Þýsk-íslenska og Guðmundur Þórð- arson er fyrrverandi framkvæmda- stjóri fyrirtæksins. Þeim er gefið að sök að hafa gefið upp rangar tekjur á fyrirtækið. í ákærunni er munurinn sagður vera tæpar 92 milljónir króna. Þeir eru einnig ákærðir fyrir bók- haldsbrot. í ársreikningi fyrirtækis- ins eru meðal annars nefndar tvær langtímaskuldir við tvo banka. Þess- ar skuldir, sem eru samtals 38 millj- ónir, reyndust ekki vera til. Rannsóknardeild ríkisskattstjóra hóf rannsókn hjá fyrirtækinu í nóv- ember 1985. Sú rannsókn leiddi til frekari rannsókna og síðar ákæru. Forráðamenn Þýsk-íslenska fengu löggiltan endurskoðanda til að yfir- fara bókhalds- og reikningsgögn þeg- ar niðurstöður rannsóknar skatt- rannsóknardeildar lágu fyrir. End- urákvörðunin leiddi til hækkunar á tekjuskatti og eignaskatti um 45,6 milljónir króna. Samkvæmt rekstr- arreikningi nam hagnaður fyrir tekju- og eignaskatt 63,5 milljónum króna en í fyrra framtali var hagnað- urinn sagður vera 19,6 milljónir. Munurinn er um 44 milljónir króna. Auk þess kom fram óútskýrð eigna- aukning um 45,5 milljónir. Ríkissaksóknari krefst þess að báð- ir ákærðu og Þýsk-íslenska verði dæmt til að greiða sektir, allt að tíu sinnum þá íjárhæð sem svikunum nam. Þá er þess krafist að Ómar og Guðmundur verði dæmdir til refs- ingar og að Ómar og Þýsk-íslenska verði svipt verslunarleyfi. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.