Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990. 11 Sviðsljós Borg með annarri eiginkonu sinni, ítölsku poppsöngkonunni Loredana Berte. Fjarmal Bjöms Borg: N auðungarupp - boð Húseignir Bjöms Borg í Stokk- hólmi eru komnar á nauðungarupp- boð. Fjármögnunarfyrirtæki hefur sett honum stólinn fyrir dymar og gaf greiðslufrest til 17. apríl sl. en ekkert var greitt. Þess vegna stendur til að selja íbúð Björns í Stokkhólmi og villu hans fyrir utan borgina á uppboði vegna skuldar sem samsvar- ar um 70 milljónum íslenskra króna. Skuldin er til komin vegna þess að Borg skrifaði upp á lán fyrir (fyrrver- andi) félaga sinn, Lars Skarke. Lars er ekki borgunarmaður fyrir þessari skuld. Björn situr því í súpunni og þarf að borga fjármögnunarfyrirtæk- inu. Fógeti reyndi fyrir nokkrum dög- um að skrifa upp eignir Björns en enginn var heima. Uppboðið nær bæði til húseignanna sjálfra og þess vofir sem inni í þeim er. Ákveðinn hefur verið annar dagur til uppskriftar á eignum og verður það fljótlega. Þýðir það að eignirnar verða seldar á upp- boði stuttu eftir það. Fjármögnunar- fyrirtækið hefur ekki heyrt neitt frá Birni og ætlar nú að taka hart á málinu. Umboðsmaður Borg segir að ekki komi til uppboðs á eignunum. „Senda þarf peningana frá Ítalíu og það tekur allt sinn tíma. Björn treysti á að Lars mundi borga og sendi pen- ingana því ekki strax til Svíþjóðar. Við ætlum svo að fá þetta aftur greitt frá Lars þó við þurfum að senda hann í gjaldþrot," sagði umboðsmaðurinn. Skuldin hvílir persónulega á Birni Borg og tengist ekki skuldum fyrir- tækis hans. Skuldir fyrirtækis Björns við sama fjármögnunarfyrir- yfir tæki eru um 120 milljónir íslenskra króna. Margoft hefur því verið hótað að ósk um gjaldþrotaskipti á fyrir- tæki Borg verði lögð fram ef ekki verður greitt en ekki hefur komið til gjaldþrots enn. Björn á í miklum vandræðum því ekki hefur allt gengið eins og til var ætlast. Eftir að hafa slegið í gegn sem tennisstjarna sneri hann sér að snyrtivöru- og tískuiðnaði. Það gekk hins vegar ekki upp og eftir á að hyggja sér Björn að betra hefði verið að einbeita sér áfram að tennis og láta tískuna lönd og leið. Mikið hefur lika gengið á í einkalífinu og Björn hefur verið tíður gestur skemmti- staða. Hann býr nú á Ítalíu og sögu- sagnir herma að Borg hafi lifað hátt en hann hefur meðal annars verið bendlaður við eiturlyf. Kvikmyndin Dick Tracy: Líkleg til stórræða Beatty setur hér fingraför eða handaför i steinsteypu fyrir utan Disney kvik- myndaverið í tilefni frumsýningarinnar. Fyrstu helgina sem kvikmyndin Dick Tracy var sýnd í Bandaríkjun- um komu um 1.350 milljónir ís- lenskra króna í kassann. Þetta er það mesta sem Disney kvikmyndaverið hefur fengið í kassann á jafnlöngum tíma við frumsýningu myndar. Teiknimyndin um Rogger Rabbit, sem frumsýnd var fyrir tveimur árum, halaöi ekki inn nema rúmlega helming þessarar upphæðar. Bat- man kom hins vegar tvöfaldri þess- ari upphæð í kassann á einni helgi. Er það skýrt með því að lengra var liðið á sumarið þegar frumsýningin fór fram og skólakrakkar í Banda- ríkjunum komnir í frí. Búist er viö að kvikmyndin Dick Tracy slái í gegn í sumar og margir spá henni efsta sæti á lista yfir best sóttar myndir vestanhafs. Framleið- andi, leikstjóri og annar aðalleikar- inn er Warren Beatty. Madonna leik- ur hitt aðalhlutverkið og er hún þar í hlutverki heimskrar ljósku. Margir bíða í ofvæni eftir að sjá myndina sem hlaut góða dóma við frumsýninguna. Vonandi þurfum við hér á Fróni ekki að bíða þess lengi. STUÐf^ÆENN | Miðnæturhljómleikar i á eftirtöldum stöðum I aKRjtffiSV. íöstudagskvold I -VBS-KR. i.snn NJÁLSBÚÐ: iaugardagskvöld I I ;i»n fT ó N ,CD I H O T H E L U Æ T U R L £ I K A R Z < Q CD I I I I I 5221 rqNKTÓNLEIK^ ^EQ^MNGHÓLlsÚMÍudagskvöíd ^ Sætaferðir frá Borgarnesi föstudagskvöld, frá Selfossi laugardagskvöld I I I I STUDPMENN 0 T H E L 0 O 05 05 M , Ð N Æ T 0 R < tónleikar ^ < IJiMilfl NÓtt o z> ROKKTÓNLEIKAR cö Hljómsveit allra landsmanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.