Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990.
Utlönd
„Hippar“ halda upp á sólstöður
Lögreglumenn við Stonehenge-mannvirkið en við sólstöður helur fólk
fjölmennt þangað og verið með alls kyns ólæti.
Simamynd Reuter
Hundruð lögreglumanna umkringdu Stonehenge-mannvirkið í Wilts-
hire í Englandi í gær. Ástæðan var sú að veriö var að koma í veg fyrir
að „hippar“ kæmu þangaö og héldu upp á lengsta dag ársins eða sólstöð-
urnar sem voru í gær.
Undani'arin ár hafa „hippar“ komið saman á þessum stað á þessum
degi til að komast í snertingu við hina fornu steina. Fólkinu hefur fylgt
ólæti og eiturlyf og því var lögreglan mætt á staðinn í gær til að hindra
að það kæmist þarna að.
IRA grunað um aðild að sprengjutilræði
Breskir lögreglumenn segjasthafa IRA, írska lýðveldisherinn, grunaðan
um að hafa komið fyrir sprengjunni sem sprakk á breskri herstöð í norð-
vesturhiuta London í gær.
Sprengjan, sem falin var í bakpoka, skemmdi tóma byggingu á svæði
herstöðvarinnar en olli ekki frekara ijóni eða mannskaða. Tveir menn
voru handteknir þar sem þeir keyrðu bíl nálægt herstöðinni. En þeim
var sleppt að loknum yfrrheyrslum.
Sífellt fleiri deyja úr eyðni
Frá mótmælendagöngu fyrir framan bygginguna þar sem alþjóólega
eyðniráðstefnan er haldin i San Fransisco. Símamynd Reuter
Samkvæmt nýjustu skýrslu bandarískra lækna, sem birt var í gær,
um dauðsföll af völdum eyðni deyja sífellt fleiri af völdum sjúkdómsins.
Úr hópi eyðnismitaðra einstaklinga, sem fylgst hefur verið með í nokkur
ár, hafa nú á síðustu tóif mánuðum 3 prósent bæst viö þann fjölda sem
þegar er látinn.
Skýrslan var birt á öðrum degi alþjóðlegrar ráðstefnu um alnæmi sem
haldin er í Los Angeles. Þar kemur einnig fram aö af þeim 489 kyn-
hverfu karlmönnum sem fylgst hefur veriö með á síðustu árum hefur 1
prósent fengið eyðni á lokastigi innan tveggja ára frá því að sjúkdómur-
inn hefur greinst í viðkomandi, 8 prósent innan fjögurra ára, 20 prósent
innan sex ára, 51 prósent innan tíu ára og nú 54 prósent innan 11 ára.
Mandela í Bandaríkjunum
Nelson Mandela, suður-afriski blökkumannaleiótoginn, veifar hér tii
mannfjöida sem safnast hafði saman fyrir framan Riverside kirkjuna i
New York í gær en þar hélt hann sína fyrstu aðalræðu i tólf daga heim-
sókn sinni til Bandarfkjanna.
Stmamynd Reuter
Margir lögðu hönd á ploginn við að grafa upp fólk sem hafði orðið undir rústum húsa sinna þegar jarðskjálftarn-
ir gengu yfir norðurhluta íran i gær.
Mjög harðir jarðskjálftar ganga yfir íran:
húsarústum nú þegar meira en sólar-
hringur er liðinn frá fyrstu skjálftun-
um. Miklar aurskriður fylgdu í kjöl-
far skjálftanna og ollu þær gífurlegu
manntjóni og skemmdum. Sjúkra-
hús í nærliggjandi héruðum eru yfir-
full af slösuðu fólki og hafa margir
verið fluttir til Teheran, höfuöborgar
irans.
Jarðskjálftarnir lögðu mörg þorp
og bæi í rúst meö þeim afleiðingum
að allir íbúarnir ýmist létust eða slös-
uðust alvarlega. Zanjan og Gilan hér-
uð urðu verst úti en þar búa um fjór-
ar milljónir manna. Skjálftahrinurn-
ar fundust í margra kílómetra f]ar-
lægð, allt til sovéska lýðveldisins
Azerbajdzhan.
Fyrri skjálftinn, sem reiö yfir um
klukkan níu að íslenskum tima að
kvöldi miðvikudags, rétt eftir mið-
nætti að staöartíma, mældist 7,2 á
Rictherkvarða. Upptök hans voru í
Kaspíahafi, um 200 kílómetra norð-
vestur af Teheran. Að sögn íranskra
yfirvalda stóð fyrri skjálftinn yfir í
eina mínútu. Síðari skjálftinn, sem
mældist 6,5 á Richter, reið yfir um
hálfum sólarhring eftir þann fyrri.
íranska sjónvarpið sýndi myndir
frá jarðskjálftasvæðunum í gær. Á
þeim mátti sjá rústir hruninna húsa
þekja kílómetra eftir kílómetra á
skjálftasvæðunum. Eftirlifendur
stóðu þögulir hjá rústunum, þúsund-
ir þeirra hafa misst fjölskyldur sínar
og allt sitt. Enn er margra saknað.
Talsmaöur sendinefndar írans hjá
Sameinuðu þjóðunum í New York
sagði í gær að fjöldi látinna væri nú
orðinn tuttugu og flmm þúsund. Fyrr
í gærdag skýröi íranska sjónvarpið
frá því að tíu þúsund hefðu týnt lífi.
Mjög erfitt er henda reiður á fjölda
látinna, ekki síst þar sem erlendum
fréttamönnum hefur ekki enn veriö
heimilað að ferðast til skjálftasvæð-
anna.
Forseti írans, Ali Akbar Rafsanj-
ani, hefur lýst yfir þriggja daga þjóð-
arsorg og hvatt írönsku þjóðlna til
að taka höndum saman í björgunar-
aögerðum. Mörg ríki hafa boöið fram
aðstoð sína, s.s. Bandaríkin og aðild-
arríki EB, Evrópubandalagsins.
Rcuter
Að minnsta kosti tuttugu og fimm
þúsund létu lífið og tugir þúsunda
slösuöust í öflugum jarðskjálftum
sem gengu yfir þéttbýl en afskekkt
landbúnaðarhéruð í Norður-íran að
kvöldi miðvikudags og í gærmorgun,
aö sögn íranskra yfirvalda. Búast
má við að tala látinna eigi eftir að
hækka þegar björgunarmenn kom-
ast á afskekktustu staði hörmung-
asvæðanna. Sveitir björgunarmanna
reyna nú að komast til hjálpar en er
erfitt um vik vegna þess hve fjöllótt
og afskekkt jarðskjálftasvæðin eru.
Þá hafa margir vegir farið alveg í
sundur og gerir það björgunarmönn-
um enn erfiðara að komast leiðar
sinnar. Veður hefur einnig verið
slæmt á þessum slóðum og hefur það
hamlað björgunaraðgerðum.
Ekki er enn ljóst nákvæmlega
hversu margir létust í þessum
snörpu jarðskjálftum. Þúsundir
fómarlamba eru enn grafnar undir
Björgunarmenn vinna við að bera látna og slasaða á brott frá jaröskjálfta-
svæðunum i íran. Simamyndir Reuler
Iranska sjónvarpió syndi myndir af skjalftasvæóunum í gær. Þessi mynd,
sem tekin er af sjónvarpsskjá, er frá Zanjan.
Grfurlegt
manntjón