Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Page 16
16
FÖSTUDAGUR 22. JÚNl 1990.
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990.
25
Iþróttir
Enska knattspymu-
sanibandiö tilkynnti
fyrir skönunu aö það
yrði Sunderland sem
myndi hreppa sæti Swindon
Town í l. deild næsta vetur og
Tranmere Rovers hlyti sæti i 2.
deild. Swindon, sem vann sér 1.
deildar sæti í fyrsta skipti nú í
vor, var fyrr í vikunni daemt nið-
ur í 3. deild fyrir að standa ekki
í skiium með laun til leikmanna.
Swindon hefur kært úrskurðinn
og því liggur ekki endanlega fyrir
hvort það veröur Sunderland eða
Swindon sem fer upp fyrir en það
mál hefur verið afgreitt.
Ingi formaður
hjá Njarðvík
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
Ingi Gunnarsson, sá
gamalkunni körfu-
knattleiksfrömuður,
hefur tekið að sér for-
mennsku í körfuknattleiksdeild
Njarðvíkur. Hann tekur við af
Gunnari Gunnarssyni sem mun
gegna embættí varaformanns.
Njarðvíkingar hafa gert skipu-
lagsbreytingar á deildinní en
undir hana heyra nú fjögur ráð,
íjáröflunarráð, framkvæmdaráð,
þjálfararáð og foreldra- og ungl-
ingaráð. Þá hafa Njarðvíkingar í
hyggju að gera samninga við sína
leikmenn fyrir næsta keppnis-
tímabil og feta þar með í fótspor
félaga í handknattleik og knatt-
spyrnu.
Guðmundur í bann
Guðmundur Baldurs-
son, miðjumaður úr
Fylki, hefur verið úr-
skuröaður í eíns leiks
&
bann af aganefnd KSÍ en hann
var rekinn af velli í leik gegn KS
á dögunum. Hann verður ekki
með Fylkismönnum þegar þeir
sækja Selfyssinga heim i 2. deild-
inni í kvöld.
Sindri vann Vai
Magnús Jónasson, DV, Egilsatöðum;
Sindri sigraði Val frá Reyðar-
firðí, 3-1, í F-riðli 4. deíldarinnar
í knattspymu um síðustu helgi
en leiknum haíöi áður verið frest-
að. Þrándur Sigurö'sson, Garðar
Jónsson og Gunnar Einarsson
skoruðu fyrir Sindra en Lúðvik
Vignisson fyrir Val. Sindri er
eina liöið i riðlinum sem ekki
hefur tapað stigi, er með 9 stig,
jafnmörg og Höttur, en Huginn
er í þriöja sæti með 7 stig.
Kvennaiandsliðið
í keppnisferð
Kvennalandsliðið í
handknattleik fer til
Portúgals og Spánar
þann 27. júní og tekur
%
þátt í tveimur alþjóðlegum mót-
um. í Portúgal verður keppt við
Portúgal, Angóla, ítaliu, Túnis og
Uruguay. Á Spáni verður keppt
við Spán, Rúmeníu og Hvíta-
Rússland. í íslenska liðinu eru
eftirtaldir leikmenn: Kolbrún Jó-
hannsdóttir, Hugrún Þorsteins-
dóttir og Ósk Víðisdóttir úr Fram,
Hjördís Guðmundsdóttir, Inga
Lára Þórisdóttir, Halla M. Helga-
dóttir, Heiöa Erlingsdóttir og
Matthildur Hannesdóttir úr Vík-
ingi, Guðný Gunnsteinsdóttir,
Herdís Sigurbergsdóttir og Helga
Sigmundsdóttir úr Stjömunní,
Laufey Sigvaldadóttir, Elisabet
Þorgeirsdóttir og Brynhildur
Þorgeirsdóttir úr Gróttu, Auöur
Hermannsdóttir frá Selfossi og
Svava Sigurðardóttir úr ÍR. Þjálf-
ari er dr. Slavko Bambir.
Iþróttir
Sigurjón ekki meira
með Val í sumar
Svo kann að fara að Sigurjón Kristj-
ánsson leiki ekki meira með Vals-
mönnum á þessu keppnistímabili.
Hann brákaðist á ökkla í leik Vals
gegn Þór í 1. deildinni síðasta þriðju-
dag, og eftir er að koma í ljós hvort
hðbönd séu hka slitin. Sigurjón er
annar markahæsti leikmaður 1. deild-
ar, hefur gert 5 mörk í fyrstu 6 leikjum
Vals í deildinni
„Það er ljóst að Sigurjón er úr leik
í langan tíma, jafnvel allt tímabilið,
brákaðist á ökkla í leiknum gegn Þórsurum
og það er að sjálfsögðu mikið áfall
fyrir okkur þótt ahtaf komi maður í
manns stað,“ sagði Ingi Björn Al-
bertsson, þjálfari Vals, í samtali við
DV í gærkvöldi.
Halldór skorinn upp í gær
Valsmenn hafa verið óheppnir með
meiðsli að undanfórnu. Halldór
Áskelsson var skorinn upp við
meiðslum á hásin í gær og leikur ekki
með liðinu fyrr en í fyrsta lagi eftir
mánuð. Ingvar Guðmundsson hefur
enn ekkert getað leikið eftir aðgerð í
vor en er á batavegi og Steinar Adolfs-
son meiddist líka á ökkla í leiknum
við Þór en ekki er talið að það sé alvar-
legt.
„Það er alltaf slæmt þegar margir
eiga við meiðsh að stríða en það er
mikill karakter í Valshöinu og ég er
sannfærður um að það á eftir að koma
fram í næstu leikjum," sagði Ingi
BjörnAlbertsson. -VS
Draumaleikur
Homfirðinga
fá KR-inga 1 heimsókn 1 bikarkeppninni
„Þetta er draumaleikur fyrir okk-
ur, við vonuðumst eftir að fá eitt af
stóru liðunum heim til Hornafjarð-
ar,“ sagði Garðar Jónsson, þjálfari
og leikmaður 4. deildar liðs Sindra,
sem í gær dróst gegn 1. deildar risum
KR í 16 hða úrslitum bikarkeppni
KSÍ, mjólkurbikarkeppninnar.
„Sindri hefur aldrei áður náð
svona langt í bikarkeppninni og þessi
leikur vekur án efa mikla athygli
fyrir austan. Við munum taka vel á
móti KR-ingum, innan vallar sem
utan, en berum enga virðingu fyrir
þeim þegar í leikinn sjálfan kemur,“
sagði Garðar.
Garðar er orðinn skeggprúður eins
og aðrir leikmenn Sindra. „Eftir sig-
urinn á Þrótti frá Neskaupstað í 2.
umferð ákváðum viö að raka okkur
ekki á meðan við værum með í bikar-
keppninni og það er því ljóst að við
mætum fúlskeggjaðir til leiks gegn
KR eftir hálfan mánuð!“ sagöi Garð-
ar.
KR-ingar hafa nú ekki fengið
heimaleik í bikar keppninni frá árinu
1986. Þeir drógust á undan Sindra en
reglur keppninnar segja að lið úr 3.
eða 4. deild fær ávallt heimaleik gegn
1. deildar hði í 16 liða úrslitum.
Stórleikur umferðarinnar verður
viðureign Vals og Fram á Hlíðarenda
en þetta eru tvö efstu hð 1. deildar í
dag. Þess má geta að Fram hefur
ekki fengið heimaleik í keppninni frá
árinu 1987.
Bikardrátturinn í gær fór annars
þannig:
Selfoss - ÍR
Keflavík - ÍBV
Akranes - KA
FH - Stjarnan
Breiðablik - Þór, Ak.
Sindri - KR
Valur - Fram
Víkingur - TindastóU/KS
Leikirnir fara alhr fram fimmtu-
daginn 5. júlí nema viðureign Vals
og Fram sem fer fram 6. júlí. -VS
Hateley og Kuznetsov
til Glasgow Rangers
Skoska knattspyrnustórveldið
Glasgow Rangers keypti í gær fyrr-
um miðherja enska landshðsins,
Mark Hateley, frá Monaco í Frakk-
landi, fyrir hálfa milljón punda eða
50 milljónir íslenskra króna.
Hateley, sem er 28 ára gamall og
hefur leikið 31 landsleik fyrir Eng-
land, hefur átt við þrálát meiðsli að
stríða síðustu tvö árin en hann stóðst
meiöslapróf hjá Rangers og skrifaði
að því loknu undir fjögurra ára
samning.
Þá var thkynnt í gær að Rangers
hygðist kaupa sovéska landshðsmið-
vörðinn Oleg Kuznetsov frá Dynamo
Kiev fyrir 1,4 milljónir punda, svo
framarlega sem hann fái atvinnu-
leyfi í Skotlandi, Kuznetsov fer til
Englands að öllu óbreyttu strax að
lokinni heimsmeistarakeppninni.
-VS
Heimsmeistarakeppnin:
i Migel Michael, Spánn 1.
Lothar Mattháus,V-Þýskal.
S Rudi Völler, V-Þýskal.
HM-úrslit
A-riöill:
Lokastaöan:
• Ítalía...................3
• Tékkóslóvakía............3
Austurríki.................3
Bandaríkin.................3
3 0 0 4-0 6
2016-34
1022-32
0032-80
B-riðill:
Lokastaðan:
• Kamerún................3 2 o 1 3-5 4
• Rúmenía................3 1114-33
• Argentína..............3 1 1 1 3-2 3
Sovétríkin...............3 1 0 2 4-4 2
C-riðill:
Lokastaðan:
• Brasilía................3
• CostaRica...............3
Skotland...................3
Svíþjóð.................. 3
3 0 0 4-1 6
2013-24
1 0 2 2-3 2
0033-60
D-riöill:
Lokastaðan:
• V-Þýskaland.............3 2 10 10-3 5
• Júgóslavía..............3 2 0 1 6-5 4
• Kólumbía................3 111 3-2 3
Furstadæmin...............3 0 0 3 2-11 0
E-riðíll:
Spánn-Belgía...........................2-1
(1-0 Michel 27. (víti), l-l Patrick Vervoort 30.,
2-1 Alberto Gorriz 39. Ahorfendur 35.950)
Uruguay - Suður-Kórea..................1-0
(1-0 Daniel Fonseca 90. Ahorfendur 29.039)
Lokastaðan:
• Spánn..................3 2 1 0 5-2 5
• Belgía.................3 2 0 1 6-3 4
• Uruguay................3 1112-33
Suður-Kórea...............3 0 0 3 1-6 0
F-riðill:
Holland - írland..................,....1-1
(1-0 Ruud Gullit 10., 1-1 Niall Quinn 71. Áhorf-
endur 33.288)
England - Egyptaland...................1-0
(1-0 Mark Wright 58. Áhorfendur 34.959)
Lokastaðan:
• England................3 1 2 0 2-1 4
• íriand.................3 0 3 0 2-2 3
• Holland................3 0 3 0 2-2 3
Egyptaland...............3 0211-22
• merkir að viðkomandi líð sé komiö í 16 liða
úrslit.
• Daniel Fonseca kom Uruguay til bjargar á síðustu
stundu og skoraði sigurmarkið gegn Suður-Kóreu.
Símamynd/Reuter
• Niall Quinn (17) er fagnað eftir jöfnunarmark hans
gegn Hollandi í gærkvöldi. Símamynd/Reuter
• Mark Wright í sæluvímu eftir sigurmark sitt
fyrir England gegn Egyptum. Símamynd/Reuter
Riðlakeppninni lokið á HM á ítaliu:
Quinn kom
írum áfram
- og sendi Skota og Austurríkismenn heim
á sunnudags-
Niall Quinn, hinn hávaxni og bar-
áttuglaði miðherji frá Manchester
City, varð í gærkvöldi þjóðhetja á
írlandi. Hann skoraði jöfnunarmark
íra gegn Hollendingum í Palermo,
1-1, í lokaumferð F-riðhs heims-
meistarakeppninnar, og tryggði með
þvíírska hðinu sæti í 16 liða úrshtum
en írar eru nú með í lokakeppni HM
í fyrsta skipti.
Mark Quinns var ekki einungis
örlagaríkt fyrir íra - í Skotlandi og
Austurríki er honum vafahtið hugs-
uð þegjandi þörfm þvi mark hans
þýddi að þessar tvær þjóðir eru úr
leik í keppninni og halda heim á leið,
ásamt Egyptum og Suður-Kóreu-
mönnum sem einnig féllu úr keppni
í gær.
Ekkert samkomu-
lag um jafntefli
Hollendingar voru í þægilegri stöðu
eftir að Ruud Gullit skoraði fyrirþá
í byrjun leiks, en jöfnunarmark Ira
var fyllilega veröskuldað. Eftir það
voru bæði lið sátt viö jafntefli sem
kom báðum áfram, þar sem leik-
mennimir höfðu frétt að Englend-
ingar væru á sama tíma að vinna
Egypta í Cagliari.
„Það var ekki um neitt samkomu-
lag milli leikmanna hðanna að ræða,
en eftir að tölurnar bámst frá Cagl-
iari voru allir á vellinum sáttir við
stöðuna eins og hún var,“ sagði Hans
van Breukelen, markvörður Hol-
lendinga.
Hollendingar mæta
Vestur-Þjóðverjum
Úrshtin þýddu að írar og Hollending-
ar urðu jafnir að stigum og marka-
tölu og því þurfti að varpa hlutkesti
í Rómaborg strax eftir leikinn um
hvort liðið hafnaði í öðru sæti riðils-
ins. írar unnu hlutkestið og mæta
því Rúmeníu á mánudag, en Hollend-
ingar mæta engum öðrum en ná-
grönnum sínum og erkióvinum,
Vestur-Þjóðverjum,
kvöldið.
Ruud Gulht, fyrirliði og besti mað-
ur Hollendinga í gærkvöldi, var síður
en svo óhress með að mæta Vestur-
Þjóðverjum. „Því ekki það, þetta ætti
að verða góður leikur. Ég er mjög
ánægður með frammistöðu okkar
gegn írum, þetta var allt annað en í
fyrstu tveimur leikjunum og við er-
um að ná okkur á strik,“ sagði Gullit.
írar ósigraðir
í sextán leikjum
„Ég er mjög stoltur af mínum mönn-
um. Þeir hafa legið undir gagnrýni
en sýndu í kvöld að þeir hafa rétta
baráttuandann, og kunna líka ýmis-
legt annað fyrir sér,“ sagði Jack
Charlton, þjálfari íra, en undir hans
stjórn hafa írar ekki tapað í 16 leikj-
um í röð eða frá því í nóvember árið
1988.
Fyrsta mark Wrights
Englendingum dýrmætt
I Cagliari var það miðvörðurinn stóri
frá Derby, Mark Wright, sem tryggði
Englendingum 1-6 sigur á Egyptum
og efsta sætið í riðhnum með góðu
skallamarki snemma í síðari hálf-
leik. Englendingar ollu vonbrigðum
í leiknum en gerðu þó nóg gegn
Egyptum sem mættu til leiks með
því hugarfari að halda jöfnu og
freista þess að komast á þann hátt í
16 liða úrslitin.
Wright skoraði þarna sitt fyrsta
mark fyrir enska landsliðið. „Það var
stórkostlegt að þaö skyldi koma í
svona mikilvægum leik,“ sagði varn-
armaðurinn efiir leikinn.
Robson hældi Egyptum
Bobby Robson hrósaði Egyptum fyr-
ir frammistöðu þeirra í keppninni
eftir leikinn. „Þeir gerðu riðilinn
hörkuspennandi og héldu öllu í járn-
um gegn okkur fram á síðustu mín-
útu og ég skil vel aö þeir hafi orðið
fyrir gífurlegum vonbrigðum með að
komast ekki áfram í keppninni,"
sagði Robson.
Varamaðurinn kom
Uruguay áfram
Daniel Fonseca, tvítugur varamaður,
kom Uruguaymönnum til bjargar
gegn Suður-Kóreu í lokaumferð E-
riðilsins í Udine í gær. Uruguay varð
að vinna leikinn til að komast í 16
liða úrsht, en aht stefndi í jafntefli
og heimför Suður-Ameríkuliðsins
þegar Fonseca tókst að skalla bolt-
ann í mark Asíuliðsins eftir auka-
spyrnu frá Alfonso Dominquez þegar
tvær mínútur voru komnar fram yfir
venjulegan leiktíma, 1-0. Uruguay
mætir gestgjöfunum, ítölum, í Róm
á mánudaginn.
Fonseca var níu mánaða gamall
þegar Uruguay vann síðast leik í
úrshtakeppni HM, gegn Sovétmönn-
um í Mexíkó árið 1970! „Sem betur
fer tókst mér að skora - ég var fullur
sjálfstrausts sem er nauðsynlegt þeg-
ar maður kemur inn á sem varamað-
ur,“ sagði Fonseca eftir leikinn.
Kóreumenn léku manni færri síð-
ustu 18 mínúturnar eftir að Yoon
Deuk-yeo var vísað af velli og þótti
það einkennilegur dómur.
Spánverjar kyrrir
Spánverjar tryggðu sér sigur í riðlin-
um með því að vinna Belga, 2-1, í
líflegum leik í Verona og verða því
kyrrir í Verona og mæta þar Júgó-
slövum í 16 liða úrslitum á þriðjudag-
inn, Belgar mæta hins vegar Eng-
lendingum.
Beigar léku án íjögurra fasta-
manna en voru óheppnir að ná ekki
stigi því Enzo Scifo skaut í þverslá
úr vítaspyrnu í síðari hálfleik. Öll
mörkin komu í fyrri hálfleik - Mic-
hel og Gorriz skoruðu fyrir Spán-
verja en Vervoort fyrir Belga með
fallegu skoti úr aukaspyrnu. Þeir
Scifo og Michel fengu mikið hrós hjá
þjálfurum sínum fyrir frammistööu
sína í leiknum. -VS
• Það hefur staðið yfir þjóðhátíð í Mið-
Ameríkuríkinu Costa Rica undanfarna
daga í kjölfar hins glæsilega árangurs
sem knattspyrnulið landsins hefur náð
á HM-keppninni. Hálfatvinnumennim-
ir frá Costa Rica hafa tryggt sér sæti í
16 liða úrslitunum og mæta þar Tékk-
um annað kvöld en þetta er í fyrsta
skipti sem landið kemst í lokakeppni
HM í knattspyrnu.
Erum með eitt af
bestu liðum heims
• Fyrir keppnina var Costa Rica talið
með eitt af fjórum lélegustu liðunum í
keppninni. „Þetta er ótrúlegt. Það er
eins og ótrúlegur draumur hafl orðið
að veruleika. Við eigum eftir að gera
enn betur og ætlum að sýna heiminum
að við emm með eitt af bestu hðum
heims,“ sagði varnarmaðurinn
Mauricio Montero. „Ég er hræddur um
fólkið heima því það hafa áreiðanlega
einhverjir fengið hjartaslag þegar við
skoruðum sigurmarkið gegn Svíum, “
sagði Juan Cayasso, sá sem skoraöi eina
markið gegn Skotum. „Ég held að allt
hafi frosið í kohinum á mér þegar ég
skoraði sigurmarkið gegn Svíum en það
var ólýsanleg tilfmning þegar boltinn
var á leið í netið,“ sagði hetjan Hernan
Medford, en hann skoraði sigurmarkið
gegn Svíum tveimur mínútum fyrir
leikslok.
Mark Baggio það
besta hingað til
• Hið frábæra mark Roberto Baggio
gegn Tékkum er besta mark HM-keppn-
innar hingað til að sögn brasilíska
knattspyrnusnilhngsins Pelé. Mark
Baggio, sem er nú dýrasti leikmaður
heims, vakti gífurlega hrifningu og þá
auðvitað sérstaklega á Ítalíu. Brasilíski
landsliðsþjálfarinn, Sebastio Lazaroni
tók undir orð Pelé og lýsti markinu sem
frábæru einstaklingsframtaki. Það kom
nokkuð á óvart að Baggio fengi að vera
í byrjunarliðinu gegn Tékkum þar sem
Gianluca Vialli var í stöðu hans í tveim-
ur fyrstu leikjunum. Baggio notaði hins
vegar tækifærið á fullkominn hátt og
verður að teljast ótrúlegt ef hann byrjar
ekki inn á í næstu leikjum ítala.
Léttir fyrir Agnelli
• ítalski auðkýflngurinn Gianni Agn-
elli, forstjóri Fiat-verksmiðjanna, er
sæll og glaður með frammistöðu Baggi-
os. Hann greiddi um 800 milljónir króna
fyrir Baggio, sem er hæsta upphæð sem
nokkru sinni hefur verið greidd fyrir
knattspymumann, þegar hann fékk
hann frá Fiorentina til Juventus í sum-
ar. „Við eigum eftir að sjá hvort Baggio
er peninganna virði en fyrstu merkin
um það sýndi hann gegn Tékkum,"
sagði Agnehi í gær.
• Spánverjinn Miguel Michel fagnar marki sinu gegn Belgum í gær. Mic- hel er nú markahæstur í heimsmeistarakeppninni með fjögur mörk.
.A, Heimsineistarakpnnnin!
|| CjgrfU : : ^
tlf lir^a lírslit
B1 Kamerún 23.6. ACD3 Kólumbía
*
A2 Tékkóslóvakía 23.6. C2 Costa Rica
C1 Brasilía 24.6. ABF3 Argentína
D1 V-Þýskaland 24.6. BEF3 Holland
F2 írland 25.6. B2 Rúmenía
A1 ítalía 25.6. CBE3 Uruguay
E1 Spánn 26.6. D2 Júgóslavía
'
F1 England 26.6. ö 1 Belgía
Islandsmótið 2. deild
SELFOSS—FYLKIR
í kvöld kl. 20.00.
Allir á völlinn
Knattspyrnudeild
• Einn stuðningsmanna enska
landsliðsins lést í bíislysi í gær,
skömmu fyrir ieik Englendinga
og Egypta í Cagliari á Sardiníu.
Tvær rútur á leið til vallarins,
fuilar af Englendingum, rákust
saman með þeirn afleiðingum aö
tvítugur piltur lét lífið og 33 aðrír
meiddust, enginn þó alvarlega.
Donadoni úrleik
• Roberto Donadoni, miðjumað-
urinn spjalh, verður nær örugg-
iega ekki með ítölum þegar þeir
mæta Uruguay í 16 liða úrslitun-
um á mánudaginn. Hann meidd-
ist á hné þegar hann rakst á Jan
Stejskal, markvörð Tékka, í leik
þjóðanna á þriðjudag. Gianluca
Vialli er enn meiddur en reynir
að æfa með ítalska liðinu í dag.
Breytingar hjá Kamerún
• Valeri Nepomniachi, þjáifari
Kamerún, sagði í gær að hann
myndi gera nokkrar breytingar á
liði sínu fyrir leikinn gegn Kól-
umbíu á morgun. Sovétmaðurinn
sagði að í leiknum við Sovét-
menn, sera tapaðist 0-4, hefðu
opinberast ýmsar veilur í liðinu
og þær yrði að lagfæra. Búist er
við að hinn 38 ára Roger Milla
verði í byrjunarliðinu í fyrsta
skipti en hann skoraði bæöi
mörkin í sigurleiknum fræga
gegn Rúmeníu.
Littbarski fyrir Hássler
• Miðjumaðurinn Thomas
Hássler getur ekki leikið með
Vestur-Þjóðverjum gegn Hol-
lendingum á sunnudaginn vegna
meiðsla. Franz Beckenbauer
landsliðseinvaldur sagði í gær aö
hinn þrítugi Pierre Littbarski
kæmi í hans stað, en Littbarski
kom inn á gegn Kólumbíu á
þriðjudaginn og skoraði mark
vestur-þýska liðsins. Þá er óvíst
um Stefan Reuter, sem einnig er
meiddur, og geti hann ekki leikið
kemur Júrgen Kohler í hans stað.
Zavarovtii Nancy
• Alexandr Zavarov, miðjumað-
urinn reyndi sem skoraði eitt
marka Sovétmanna gegn Kamer-
ún á dögunum, skrifaði í gær
undir þriggja ára samning við
Nancy, nýliða í frönsku 1. deild-
inni. Varaformaður Nancy er
enginn annar en Michel Platini,
landsliðseinvaldur Frakka, og
hann gekk frá samningum við
ítalska féiagið Juventus, en með
því hefur Zavarov leikið síöustu
tvö árin.
Tveír stórveldaslagir
• Úrslitin í gær þýða að íjórar
af mestu knattspyrnuþjóöum
heims leika innbyrðis í 16 liöa
úrshtunum. Brasilíumenn mæta
Argentínu og Vestur-Þjóðverjar
Hollendingum, en báðir þessir
ieikir fara fram á sunnudaginn.
Maradona svartsýnn
• Diego Maradona, fyrirhði Arg-
entínumanna, er svartsýnn fyrir
slaginn gegn nágrönnum sínum
frá Brasiiíu á sunnudaginn. „Við
þurfura á kraftaverki að halda til
að slá þá út því það verður spiiað
í Tórínó þar sem Brasiiíumenn
hafa leikið aha sína leiki til þessa.
Þeir eru með betra lið en við á
pappírunum, en við fórnum öllu
til að sigra þá,“ sagði Maradona,
sem á við meiðsli í ökkla aö stríða
og ekki er öruggt aö hann geti
spilað með heirasmeisturunum t
þessum mikilvæga leik.