Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Page 28
36
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990.
-*
>»
Andlát Tilkyimingar
Sigfús Sigmar Magnússon fiskmats-
maður, Boðahlein 10, Garðabæ, and-
aðist á heimili sínu þriðjudaginn 19.
júní.
Ari Ingólfsson eðlisfræðingur,
Laugavegi 135, lést þriöjudaginn 19.
júní.
Gísli Sigurbjörnsson, Grund, Súða-
vik, lést á Sjúkrahúsi ísafjaröar mið-
vikudaginn 20. júní.
Jarðarfarir
Óskar Sigurþór Ólafsson frá Hellis-
hólum verður jarðsunginn frá Sel-
fosskirkju laugardaginn 23. júní kl.
13.30.
Halldór Laxdal verður jarðsunginn
frá Langholtskirkju þriðjudaginn 26.
júní kl. 13.30.
Guðjón S. Sigurjónsson lést 3. júní
sl. Hann fæddist í Reykjavík 20. nóv-
ember 1944. Foreldrar hans voru
hjónin Guðrún I. Jónsdóttir og Sigur-
jón H. Sigurjónsson. Guðjón fluttist
til Bandaríkjanna árið 1970 ogbjó þar
eftir það. Hann lætur eftir sig þrjú
börn. Útför hans verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Helga Tómasdóttir lést 15. júní sl.
Hún fæddist að Tröð í Fróðárhreppi
24. september árið 1908. Foreldrar
hennar voru hjónin Tómas Sigurðs-
son og Ragnheiður Árnadóttir, Eftir-
lifandi eiginmaður Helgu er Árni
Kristinn Hansson. Þau hjónin eign-
uðust þrjár dætur. Útför Helgu verð-
ur gerð frá Kópavogskirkju í dag kl.
13.30.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt verður
af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10. Mark-
mið göngunnar er samvera, súrefni og
hreyfing. Komið er saman á Digranesveg-
inum upp úr hálftíu til að drekka nýlagað
molakaffi og rabba saman. Púttvöllur
Hana nú á Rútstúni er öllum opinn. Kylf-
ur og kúlur á staðnum.
Sumarferð
Parkinsonsamtakanna
Laugardaginn 23. júní verður farið í sum-
arferð á vegum Parkinsonsamtakanna.
Lagt verður af staö frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 13. Ekiö verður um Kjósina og
Kjósarskarðsveg til Þingvalla og drukkið
kaffi í Valhöll. Síðan verður Nesjavalla-
virkjun skoðuð og farið heim um Grafn-
inginn meö viðkomu í Hveragerði. í fór-
inni verður vanur fararstjóri. Allar nán-
ari upplýsingar og þátttökutilkynningar
í símum 27417, Áslaug, 41530, Kristjana
Milia, og 79895, Steingrímur.
Landsmót skáta, Úlfljótsyatni
Landsmót skáta verður haldið að Úlíljóts-
vatni dagana 1.-8. júlí næstkomandi.
Landsmót skáta eru haldin fjórða hvert
ár og því mikið tilhlökkunarefni á meöal
allra skáta. Um fimmtán hundruð skátar
munu dvelja í skátabúðum yfir móts-
dagana og auk þeirra verða fjölmennar
fjölskyldubúðir. Starfsmannabúðir verða
einnig starfræktar á mótinu og er áætlað
að starfsmenn við mótið veröi um 200.
Dagskrá mótsins verður mjög flölbreytt
og er þvi víst að allir finna eitthvað við
sitt hæfi. Þrautabrautir, vatnasafarí,
rómantískar flekasiglingar eða knatt-
spyrna með risafótbolta er meöal þeirra
atriða sem sem þátttakendum gefst kost-
ur aö spreyta sig á. Einnig verður mikið
lagt upp úr þáttum sem snerta landiö
okkar, s.s. umhverfisfræðslu, náttúru-
skoðun, gróðursetningu o.fl. Laugardag-
inn 7. júlí verður sérstakur heimsóknar-
dagur þar sem öllum er boðiö að koma
austur á Úlfljótsvatn að fylgjast með
mótinu. Um kvöldið verður síðan hátíð-
arvarðeldur mótsins. Mikill fjöldi er-
lendra skáta hefur skráð sig á mótið og
má búast við því að þeir verði 350 tals-
ins, má þar nefna skáta frá Austurríki,
Bretlandi, Bandaríkjunum, Noregi og
Svíþjóð. Það ættu allir að finna eitthvaö
við sitt hæfi á landsmóti og eru alhr skát-
ar, fjölskyldur þeirra og aðrir hvattir til
aö mæta. Nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu Bandalags íslenskra skáta í síma
91-23190.
Stærðfræðiverðlaun á
stúdentsprófi
Svo sem tíðkast hefur um áratuga skeið
veitti íslenska stærðfræðafélagið nú í vor
nokkrum nýstúdentum sérstaka viður-
kenningu fjrrir ágætan námsárangur í
stærðfræði á stúdentsprófi. Við skólaslit
var hverjum þeirra afhent árituð verð-
launabók. Að þessu sinni hlutu eftirfar-
andi nýstúdentar verðlaun frá félaginu:
Gunnar Pálsson, Menntaskólanum á
Akureyri; Hrafnkell Kárason, Mennta-
skólanum við Sund; Hrund Ólöf Andra-
dóttir, Menntaskólanum við Hamrahlíð;
Kristján Leósson, Menntaskólanúm í
Reykjavfk; Sigurður Bjömsson, Fjöl-
brautaskólanum á Sauðárkróki, og Úna
Björk Ómarsdóttir, Verslunarskóla ís-
lands. Við brautskráningu stúdenta nú á
miðjum vetri hlaut einn nýstúdent bóka-
verðlaun frá félaginu, Þorsteinn Stefáns-
son, Menntaskólanum við Hamrahlíð. Til
að standa straum af kostnaöi við þessar
verðlaunaveitingar nýtur félagið styrks
frá þremur verkfræðistofum en þær em
Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns,
Verkfræðistofa Siguröar Thoroddsen hf.
og Verkfræðistofan Rafteikning hf.
Endurhæfingastöð hjarta-
og lungnasjúklinga færð gjöf
Lionsklúbburinn Eir færði nýlega End-
urhæfmgastöð- hjarta- og lungnasjúkl-
inga að gjöf tvö Monark þrekþjálfunar-
hjól. Á myndinni er formaðurinn, Jóna
Ólafsdóttir, t.v. að afhenda gjöfina Soffiu
Sigurðardóttir yfirsjúkraþjálfara að við-
stöddum Bjarteyju Friðriksdóttur, Ey-
rúnu Kjartansdóttur og Sigurþóm St.
Briem frá Lionsklúbbnum Eir, Magnúsi
Einarssyni yfirlækni og Haraldi Stein-
þórssyni frá HL-stöðinni.
Menning dv
Rómantík í Hafnarfirði
Sigríður Jónsdóttir og Nína Margrét Grímsdóttir héldu
ljóðatónleika í Hafnarborg í Hafnarflrði í gærkvöldi.
Á efnisskránni voru verk eftir Schumann, Schubert,
Debussy, Mahler og Wolf.
Frá tæknilegu sjónarmiði var framlag rómantísku
stefnunnar til tónlistarinnar merkilegast hvað varðar
hljómfræði og nýstárlega notkun hljóðfæra. Hljóm-
fallið er hins vegar oftast einfalt og á stundum ein-
hæft. í góðri rómantískri tónlist kemur þetta ekki að
sök þar sem af nógu öðru er að taka til að halda athygl-
inni vakandi. Alþekkt einkenni hins rómantíska anda
er eirðarlaus leit eftir því sem ekki finnst. Lýsir þetta
sér í tónlistinni gjarnan sem rótlaus flutningur milli
tóntegunda svo óskýrt verður bæði hvar menn eru
staddir og hvert halda skal. Hvað hljómfallið varðar
kemur það sama fram í tíðum hraðabreytingum og
er sem tíminn gangi í bylgjum. Þetta síðara býður upp
á vissar hættur í flutningi. Hljómfall er í eðli sínu af-
stæðara en tónar. Þótt tónar hljómi misjafnlega eftir
samhenginu sem þeir birtast í þá hafa þeir engu að
síður fast gildi í vestrænni tónlist. Tónninn a hefur
sömu sveiflutíðnina hvað sem á gengur. Lengd nótu
er hins vegar afstæð. Hún ræðst eingöngu af saman-
burði við aðrar nálægar nótur. Þetta þýðir að í hraða-
breytingum veröur innbyrðisafstaða lengdargildanna
að haldast þótt hending teygist eða þjappist saman í
annan endann. Annars verður útkoman formlaus
grautur. Því miður er það algengt í flutningi ró-
mantískra verka að fólk sýni þessum atriðum ekki
nægilega alúð og ein meginástæða fyrir því hvaö oft
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
er þreytandi að hlusta mikið á rómantík.
Nú má ekki svo skilja að þær stöllur Sigríður og
Nína Margrét hafi staðið sig sérlega illa í hljóðfallsmál-
um. Hins vegar hefðu verk þeirra Schumanns, Ma-
hlers og Wolfs öll skilað sér betur með meiri hryn-
rænni ögun. Lög Debussys og Schuberts komu best
út. Debussy vegna þess hve stíll hans er frábrugðinn
og litríkur. Schubert vegna hins klassíska anda sem
alltaf svífur þar yfir vötnum og bannar allt sjúsk með
hljóðfall.
Þær stöllur voru svolítiö óstyrkar framan af en góðu
sprettunum fjölgaöi fljótt er leið á. Sigríður hefur fall-
ega rödd, einkum á efri hluta tónsviðsins. Hljómurinn
er ekki mjög mikill en á trúlega eftir að vaxa. Hún
söng hreint, látlaust og stundum með tölverðum til-
þrifum. Píanóleik Nínu Margrétar skorti stundum
snerpu og nákvæmni en hann var á köflum blæbrigða-
ríkur og stundum mjög fallegur. Þær stöllur réðust
ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í verkefnav-
ali. Má segja að þær hafl sloppið móðar en lítt sárar
úr átökunum og reynslunni ríkari. Eru full efni til að
fylgjast með þeim í framtíðinni.
Rórill í Kramhúsi
Hver man ekki eftir honum Min Tanaka, Japananum
sem kom fram á Listahátíð fyrir nokkrum árum, dans-
aði þá á torgum meö umbúðir um leyndarliminn en
að öðru leyti nakinn?
Nú er hér staddur lærlingur hans, frönsk listakona,
Christine Quoiraud og stjórnar leiksmiðju í Kram-
húsinu en mun hafa flutt aðskiljanlega gerninga í
klúbbi Listahátíðar.
í fyrrakvöld flutti hún langan gerning með hljóðeff-
ektum í Kramhúsinu. Nefndist hann „Rannsóknarleið-
angur“. Gerningurinn var í nokkrum þáttum. Fyrst
stóð listakonan í kápu fyrir framan upplýstan vegg,
sem gerður var úr dagblöðum, horfði fjarrænum aug-
um til áhorfenda og krumpaði saman dagblað drykk-
langa stund í dauðaþögn. I næsta kafla stóð hún fyrir
aftan blaðavegginn og bjó til skuggamyndir sem virt-
ust tengjast flugi en á meðan bárust fuglahljóð úr
ýmsum áttum. Þarnæst tók listakonan til við að ausa
blaðavegginn vatni aftan frá uns hann varö nær gegns-
ósa, reif blöðin síðan í tætlur og hóf að hreyfa sig um
sviðið eins og í leiðslu, íklædd kápu sinni og háhæluð-
um skóm. Sviðsbúnaður var enginn, utan heyslæðing-
ur við veggi. Tónlist sveiflaðist millum endurtekinna
rokkfrasa og rafmagnshljóða.
Skipulegt æði
Hreyfingar listakonunnar náðu hámarki í skipulegu
æði, eins konar rykkjadansi. Þar á eftir sat hún í íhug-
unarstellingum nokkra stund og horfði tómlega út í
ljósvakann. Síöan rann á hana annað æði, velti hún
sér þá fáklædd um gólf eða örlaði sér um salinn með
ýktu fasi, settist svo aftur til íhugunar, nú enn fá-
klæddari. Lauk listakonan gerningnum með því að
mjaka sér gegnum áhorfendahópinn og grípa með sér
einn viðstaddra og bekk til að sitja á. Áhorfandinn
varð eftir á gólfmu en mublunni þeytti hún frá sér,
hvarf síðan bak við plasttjöldin.
Þegar um er að ræða blandað listform á við gerning-
Christine Quoiraud. DV-mynd BG
Dans/uppákornur
Aðalsteinn Ingólfsson
inn eru forsendur til mats nokkuð á reiki. Þegar upp
er staðið er sennilega best að reiða sig á brjóstvit og
tilfinningar. Þessi gerningur Christine Quoiraud
snerti mig ekki þann sem hér situr við tölvuskerm. í
hann vantaði framandleikann, nýja sýn á kenndirnar,
alvöru ástríður, je ne sais quoiraud. Þrátt fyrir smæð
er Kramhúsið engu að síður ágætur vettvangur fyrir
danstilraunir og gerninga á borð við þennan, kannski
sá eini meðan Nýlistasafnsins nýtur ekki við.
Fjölmiðlar
GamaH og gott
Þeir dagskrárliðir í útvarpi og
sjónvarpi sem vöktu mestan áhuga
hjá undirrituðum voru í eldri kant-
inum. Á rás 2 er vefið að endur-
flytja þáttaröðina Paul McCartney
og tónhst hans sem var á dagskr á
fyrir ári. í fyrstu þáttunum, sem nú
eru í gangi, er rakin saga og upphaf
frægustu hljómsveitar sem uppi
hefur verið, The Beatles, sem að
sjálfsögðu tengíst Paul McCartney
órjúfanlegum böndum.
Þótt fátt nýtt komi fram í viðtölun-
um við Paul þá er alltafjafngaman
að hlusta á elstu lögin og heyra sögu
íjórmenninganna frá því að þeir
hófu feril sinn í Liverpool og Ham-
borg. Það er Skuli Helgason sem sér
um þáttinn og þótt þreytandi sé til
lengdar að heyra hann endurtaka á
í slensku allt það sem Paul segir þá
verður það að viðurkennast að það
ernauðsynlegt.
Sjónvarpið er sá roiðill sem getur
þjónað kvikmyndaáhugamönnum
best. Sumar gamlar kvikmyndir
sjást ekki annars staðar. Og fátt
getur verið skemmtilegra en að sjá
góða gamla kvikmynd með úrvals-
leikurum. Sú var raunin í gærkvöldi
þegar Stöð 2 sýndi kvikmyndina
The Young Lions þar sem dáðustu
leikarar á sjötta áratugnum, Marlon
Brando og Montgomery Clift, léku
aðalhlutverkin og áttu stóran þátt í
að gera þessa kvikmynd jafneftir-
minniiega og raunin varð. Þessir
tveir stórleikarar náðu slíkum tök-
um á hlutverkum sínum, sérstak-
lega Brando, að nútímamaðurinn á
auðvelt með að skilja hið mikla lof
sem þeir fengu hjá gagnrýnendum
áþessumárum.
Þar sem hér er farið aö tala um
kvikmyndir þá má benda á ágætan
þátt Hilmars Oddsonar, Skuggsjá,
þar sem kynntar eru nýjar kvik-
myndir í kvikmyndahúsum Reykja-
víkur en hann var einmitt í Sjón-
varpinu í gærkvöldi.
' Hilmar Karlsson