Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað ' FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990. Fjársvik: Tveggja ára fangelsisvist Hæstiréttur hefur dæmt mann í tveggja ára fangelsi fyrir fjársvik. Maðurinn var dæmdur fyrir aö falsa nöfn á víxla og skuldabréf. Hann falsaði nafn annars manns á fjögur sjálfskuldarábyrgðarbréf. Hann falsaði einnig nöfn tveggja bræðra sinna á átta víxla. Maðurinn hélt því fram að bræður sínir hefðu heimilað sér að skrifa nöfnin á víxl- ana. Bræðurnir neita að svo hafi ver- ið. Þá skrifaði maðurinn einnig nöfn foður síns og sambýliskonu á skulda- bréf. Þau hafa borið að honum hafi verið heimilt að gera það. Hæstiréttur dæmdi manninn til tveggja ára fangelsisvistar. Þá er honum gert að greiða allan sakar- kostnað. -sme Loödýrabændur: 110 milljónir felldar niður af vöxtum Stjórn Stofnlánadeildar landbún- aðarins hefur ákveðið að fella niður allar vaxtagreiðslur á lánum sínum tii loðdýrabænda frá miðju síðasta ári og fram á mitt ár 1992. Eins og fram hefur komið í DV er skuld loðdýraræktarinnar við Stofnlánadeild gifurleg eða um 1,8 milljarður. Niðurfelling vaxta á þeirri upphæð í þrjú ár jafngildir um 340 milljón króna styrk miöað við almenn vaxtakjör í landinu eða um 6 prósent vexti umfram verðbólgu. Loðdýrabændur, eins og flestir aðrir viðskiptamenn Stofnlánadeildar, hafa hins vegar árlega fengið hluta þessa styrks þar sem vextir til þeirra hafa ekki verið nema 2 prósent. Með ákvörðun sinni gefur stjórn Stofn- lánadeildar því eftir um 110 milljón króna vaxtatekjur á þriggja ára tíma- bili. Hér að ofan hefur verið reiknað með vaxtakjörum á almennum markaði og hjá Stofnlánadeildinni miðað við ný lán. Stór hluti lána deildarinnar til loðdýrabænda er hins vegar lán í vanskilum og skuld- breytingalán, það eru ný lán sem veitt hafa verið til að greiða upp lán í vanskilum hjá deildinni sjálfri og öðrum aðilum. Slík lán bera yfirleitt um 2 prósent álag á frjálsum mark- aði þar sem slíkir lánveitendur hafa sannað að áhætta lánveitenda er mikil. -gse LOKI Keflvíkingurinn var þó 28 milljónum ríkari í rúman klukkutíma! Björg hf. í Stykkishólmi gjaldþrota: Tapið talið um 110 milljónir króna Eigendur fyrirtækisins Bjargar er metiö á 110 milljónir. Jón treysti Þá er Ijóst að trillukarlar í Stykk- stærsta niðursuðufyrirtæki lands- hf. í Stykkishólmi fóru fram á að sér ekki til að segja til um skulda- ishólmi tapa töluverðu fé en þeir ins á því sviöi. 15 manns unnu hjá fyrirtækið væri tekið til gjaldþrota- stöðu fyrirtækisins að svo stöddu hafa nánast ekkert fengið fyrir afla fyrirtækinu þannig að þetta er enn skipta i gær en áður höfðu þeir en sagði að skuldir væru miklar. sinn síðan grásleppuvertíðin hófst eitt áfallið fjmir bágborið atvinnu- ákveöiö að hætta við aö biðja um Eftir er að sjá hvað fæst fyrir eign- i maíbyrjun. Er mikil reiði meðal ástand í Stykkishólmi. Þetta gjald- greiöslustöðvun. Að sögn Jóns ir fyrirtækisins en þær eru einn þeirra vegna þess hvernig fram- þrot, sem margir telja reyndar Steingrímssonar, stjórnarfor- bátur,vörubirgðir,semmeðalann- kvæmdastjóri fyrirtækisins hefur furðu stórt, cr talið lýsandi fyrir manns fyrirtækisins, var talið að ars felast í unnum og óunnum grá- staðið að málum. Eiga trillukarl- það ástand sem er í þessari at- greiðslustöðvunin breytti engu úr sleppuhrognum, vélar og húsnæði. arnir um 4 milljónír inni hjá fyrir- vinnugrein. Nú eru aðeins tvö fyr- þvi sem komið var. Sýslumaður Helstu kröfuhafar eru Búnaðar- tækinu og þegar loka átti því varö irtæki eftir sem fullvimia grá- tekur afstööu til gjaldþrotabeiðn- bankinn, en það er útibúið í Stykk- uppákoma í kringum það þegar sleppulmogn hér á landi en gjald- innarídag. ishólmi sem hefur amiast fyrir- þeir sóttu þangað tunnur sem þeir þrotBjargarhf.erþaðþriðjaíþess- Samkvæmt heimildum DV eru greiðslu við fyrirtækiö, erlent um- höfðu ekki fengið greitt fyrir. ari grein á einu ári. heildarskuldir fyrirtækisins varla búðafyrirtæki og erlent kaupleigu- Björg hf. vinnur kavíar úr grá- -SMJ undir 250 mifijónum króna og tapið fyrirtæki. sleppuhrognunum og er næst- Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson óskar Árna Sigfússyni til hamingju eftir að Árni var kjörinn í borgarráð með hlut- kesti. Anna K. Jónsdóttir situr milli þeirra félaga. DV-mynd BG Meirihlutinn hafði betur í hlutkestinu Meirihluti Sjálfstæðisflokks í borg- arstjórn Reykjavíkur styrkti enn stöðu sína á fyrsta fundi nýrrar borg- arstjórnar í gær. Kosið var í ráð og nefndir á vegum borgarinnar, Hlut- kesti varð að ráða í öllum þriggja og fimm manna nefndum. Meirihlutinn hafði betur í hlutkest- inu í þrettán skipti og minnihlutinn hafði betur sjö sinnum. Sjálfstæðis- flokkur átti örugga þrjá menn í borg- arráð og minnihlutinn einn. Meiri- hlutinn vann hlutkestið og fékk því fjóra menn. Magnús L. Sveinsson var kjörinn forseti borgarstjórnar með atkvæð- um meirihlutans. Páll Gíslason er fyrsti varaforseti og Katrín Fjel-dsted er annar varaforseti. Meirihlutinn kaus Davíð Oddsson sem borgar- stjóratilnæstufjögurraára. -sme Bóksala stúdenta: „Klaufalegt“ „Það má segja að þetta hafi verið afskaplega klaufalegt hjá mannin- um,“ sagði einn þeirra sem þekkir til fjárdráttarmálsins sem upp er komið hjá Bóksölu stúdenta og sagt var frá í DV í gær. Upp um svikin komst eftir að mað- urinn lét af störfum. Nýr starfsmað- ur sá strax og hann tók við að ekki var allt með felldu. -sme Getraunir: Fékk ekki 28 milljónir Keflvíkingur var nærri því að fá 28 milljónir í fyrsta vinning í get- raunum í gær. Keflvíkingurinn fer þó ekki auralaus frá „tippinu“ þar sem hann fékk rúmar 100 þúsund krónur. Hefði Hollendingum tekist að sigra íra hefði Keflvíkingurinn verið einn með þrettán rétta og fengið 28 millj- ónir króna. Þar sem leikurinn endaði með jafntefli missti Keflvíkingurinn af þeim stóra. Getraunaseðillinn, sem var svo nærri stóra vinningnum, kostaði tvö hundruð krónur og var keyptur með sjálfvali. -sme/ÆMK Veðrið á morgun: Allt að 18 stiga hiti sunnan- lands Á morgun verður norðaustan- átt á landinu. Skýjað og þoku- bakkar eða súld með norður- ströndinni, rigning á Austfjörð- um en viða bjart veður í öörum landshlutum. Hiti 6-10 stig norð- anlands og austan en allt að 18 stig sunnanlands. SKUIUJBÍIAR 25050 SENDIBÍLASTÖÐIN Hf opið um kvöld og helgar Kentucky Fried Chicken Faxafeni 2, Reykjavík Hjallahrauni 15, Hafnaríiröi Kjúklingar sem bragð er aó Opið alla daga frá 11-22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.