Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1990, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 23. JÚLf 1990.
Fréttir_______________________________________________________________________________dv
Kosningaúrslit 1 Grímsnesi breyttust:
Efsti maður á F-lista
í sveitarstjórn
- kærði kosningamar í maí
„Þetta er ákveðinn sigur fyrir mig
fyrst ég fór út í það aö kæra kosning-
amar. Það sýnir þaö að einhverjum
hefur líkað það sem maöur gerði,“
sagði Helga Helgadóttir, efsti maður
á F-hsta. Helga kærði kosningaúrsht-
in í vor vegna þess að Böðvar Pálsson
oddviti, efsti maður á I-hsta, sá um
utankjörstaðaatkvæðagreiöslu jafn-
framt þvi að leiða einn framboðshst-
ann. Mun Helga nú skipa eitt af fimm
sætum í hreppsnefnd Grímsnes-
hrepps.
„Við Böðvar eigum eflaust eftir aö
starfa saman í sátt og samlyndi en
ekki held ég að við verðum endilega
alltaf sammála," sagði Helga.
Úrshtin nú urðu á þá leið að I-hst-
inn fékk 3 menn kjöma, H-hstinn 1
mann og F-hstinn 1 mann. Sæti það
sem kom í hlut E-hsta í kosningunum
í vor er nú í höndum F-hstans. I-
listinn hélt meirihluta.
„Ég er ánægður með að halda mín-
um þremur mönnum inni og vil bara
fyrst og fremst þakka mínum kjós-
endum fyrir að nenna á kjörstað því
ég óttaðist mest að þeir myndu ekki
skha sér,“ sagöi Böðvar Pálsson,
oddviti og efsti maður á I-hsta. „Ég
kann ekki skýringu á því af hverju
Helga jók fylgi sitt nema hún hafi
notaö vel þennan tíma til að telja
fólk á að kjósa sig. Það aö hún kærði
kosningarnar tel ég að ekki hafi haft
nein áhrif því hún gerði það ekki
fyrr en búið var að telja atkvæðin.
En ég vona að við eigum eftir að
vinna í sátt og samlyndi eins og við
höfum alltaf gert.“
E-hstinn tapaði 3 atkvæðum og
missti þar af leiðandi sinn mann úr
sveitarstjóminni. Helgi Jónsson,
efsti maður á hstanum, sagðist að
vonum vera svekktur en ætlaði þó
ekki að láta það á sig fá.
AUs voru það 180 manns sem kusu
að þessu sinni og voru þar af 16 sem
kusu utan kjörstaðar. Var kjörsókn
nú svipuö og í fyrri kosningunni en
þá voru 187 á kjörskrá. Færri kusu
utan kjörstaðar að þessu sinni, eða
16, en 44 í vor.
Urslit urðu þau að I-hstinn fékk 86
atkvæði en 87 áður. H-hstinn fékk 35
en 41 áður, F-listinn fékk 32 atkvæði
en 23 áður og E-listinn fékk 23 at-
kvæði í stað 26 áður.
-tlt
Þrefalt fleiri í sjúkraþjálfun:
Konum fjölgar
enn í háskólanum
- af nýskráðum eru þær 57,8% og af heildinni 55,9%
Konur eru nú í meirihluta í guöfræðideild, viöskipta- og hag-
flestúm deildum háskólans. Þær fræðideild, heimspekideild og fé-
eru í miklum meirihluta í lækna- lagsvisindadeild. Nýskráðum fjölg-
deild, lyfjafræði, sjúkraþjálflm, arhinsvegarhvergiveruleganema
heimspekideild og félagsvisinda- í sjúkraþjálfun. Þar eru nýskráðir
deild. Langfjölmennasta kvenna- 60 á móti 18 f fyrra.
deildin er þó sem fyrr hjúkruna- í heildina fækkar nýskráðum úr
rfræði. Þar verða 298 konur en 3 1965 í 1580. Það verður aö athuga
karlar. aðóvenjumargirskráöusigífyrra
Helstu vígi karlanna eru viö- vegna óvenjulegra aðstæðna.
skipta- og hagfræðideild, raunvís- Kennaraverkfallið geröi þaö að
indadeild og guðfræðideild aö verkum að menn fengu „ódýr“
ógleymdri verkfræðideíld þar sem prófskírteini.
240 karlar verða en 32 konur. -pj
Nýskráöum fækkar nokkuð í
Árlegur veiðidagur var haldinn i Meðalfellsvatni á laugardag. Var þátttaka góð en veiðin ekki mikil. Þó voru þar
nokkrir sem voru fisknir og voru þessir tveir stoltu drengir á innfelldu myndinni þeirra á meðal.
DV-mynd GVA
í dag mælir Dagfari_______________________
Ólafur með hreinan skjöld
Hörður Einarsson hjá Amarflugi
er að senda Ólafi Ragnari tóninn.
Hörður krefst þess að Steingrímur
forsætisráðherra setji Ólaf í skam-
markrókinn fyrir aö feha ekki nið-
ur skuldir Amarflugs við ríkissjóð
eins og ríkisstjómin var búin að
lofa. Hörður sakar Ólaf um vald-
níðslu og er hinn versti.
Ólafur Ragnar Grímsson er ekki
vanur svona skömmum. Hann
þekkir ekki svona munnsöfnuð og
á hann ekki skihö. Ólafur Ragnar
er orðvandur maöur og grandvar
og leggur ekki í vana sinn að kveða
upp sleggjudóma um menn og mál-
efni. Satt að segja er það algjörlega
framandi fyrir fjármálaráöherra
að munnhöggvast við menn úti í'
bæ. Frægt er þegar Birtingarhðið
gekk til hðs við Nýjan vettvang í
borgarstjómarkosningunum í vor
og stihti upp lista gegn Alþýðu-
bandalaginu þar sem Ólafur er for-
maður. Þá var formaðurinn svo
orðvar að hann lét fréttamenn og
aðra ganga á eftir sér í margar vik-
ur án þess nokkum tima að gefa
upp hvom hstann hann hygðist
styðja. Það var ekki fyrr en
skömmu áður en gengiö var til
kosninga sem Ólafur lét þau orð
faha aö hann styddi báða hsta og
þá um leið hvorugan, af einskærri
tilhtssemi við frambjóðendur. Ólaf-
ur neitaði sem sé aö styöja sinn
eigin flokk af góðsemi sinni og vel-
vhja til alls og allra. Mun það vera
í fyrsta skipti í sögunni sem for-
maður í einum stjórnmálaflokki
situr hjá og lætur undir höfuð
leggjast að styðja sinn eigin flokk
í kosningum. Það eitt sýnir með-
fætt göfuglyndi Ólafs.
í þessu Amarflugsmáli vih Ólaf-
ur aht til vinna að gera upp skuld-
ir flugfélagsins. Það em hins vegar
flugfélagsmennirnir sjálfir sem
hafa verið aö þvælast fyrir ráð-
herranum og gera honum ómögu-
legt að strika út skuldina. Þeir hafa
alls ekki sent ráöuneytinu þau bréf
sem ráðuneytið vih fá, eða réttara
sagt, ekki hefur staöið það í bréfum
Amarflugs sem ráðherrann vih að
Amarflug hafi í bréfunum. Þetta
er auövitað ekki ráðherranum að
kenna heldur þessum ihmennum í
Amarflugi sem flækjast fyrir ráð-
herranum þegar hann ætlar að
standa við skuldbindingar ríkis-
stjómarinnar.
Þegar sú sérkennilega staða kem-
ur upp að Amarflug kemur í veg
fyrir að Ólafur Ragnar geri þaö sem
Amarflug vih að verði gert neyðist
náttúrulega ráðherrann til að
reikna dráttarvexti á skuldina sem
búið var að fella niður en fæst ekki
felld niður vegna tafa af hálfu Am-
arflugs. Það er auövitaö engin
sanngirni í þvi að ríkissjóður beri
kostnað af skuld sem ríkissjóður
hefur ákveðið að feha niður en get-
ur ekki losnað við vegna þess að
aðilinn sem skuldar þvæhst fyrir
því að skuldin sé felld niður.
Það er einkennileg afstaða hjá
Arnarflugi að vilja ekki skrifa þau
bréf og gefa þær skýrslur sem ráö-
herrann vill að gefnar séu og verð-
ur ekki skihð öðmvísi en svo að
þeir Amarflugsmenn vhji alls ekki
að skuldin sé fehd niður. Ólafur
Ragnar hefur sagt það og segir það
enn að hann vilji standi viö loforð
ríkisstjórnarinnar og hann er bú-
inn að segja Amarflugsmönnum
þessa afstöðu sína margsinnis. Þeir
vita vel að ráöherrann er allur af
vilja gerður og hvernig er þá hægt
að kalla það valdníðslu þegar ráð-
herrann hefur það eitt til saka unn-
ið að hækka vextina á skuldinni
sem hann fær ekki að greiða?
Það er andskoti hart að vera ijár-
málaráðherra og sitja uppi með
skuldir sem ekki má feha niður.
Og ekki má reikna vexti ofan á
vanskilavextina. Ólafur biöur um
það eitt að Amarflug geri grein
fyrir því hvaö félagiö ætlar gera
við skuldina sem fehd verður nið-
ur. Fjármálaráðherra getur ekki
feht niður skuldir bara si sona án
þess að viðkomandi geri grein fyrir
því hvað verður um félagið eftir að
skuldin hefur verið felld niöur.
Ráðherrann ber velferð Arnarflugs
fyrir bijósti og vih fá bréf um þaö
hver staða félagsins verður þegar
staða félagsins verður betri.
Þetta er ekki valdníðsla heldur
varfærni sem er Ólafi Ragnari í
blóð borin. Honum stendur ekki á
sama um flugfélög sem eiga ekki
fyrir þeim skuldum sem hann ætl-
ar að fella niður.
Dagfari