Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1990, Blaðsíða 7
ULTRA
GLOSS
endist langt umfram hefð-
bundnar bóntegundir.
Utsölustaðir:
ESSO
Olíufélagiðhf
- stöðvarnar
’-ryjr sí -f' : ,1’í )/ 'í-:/ » , f
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
Bifreiðaskoðun Islands:
Gíf urleg hækkun
á gjaldskránni
Þau gjöld, sem Bifreiðaskoðun ís-
lands tekur fyrir þjónustu sína, eru
allt að 320 prósent hærri en fólk
þurfti að greiða fyrir tveimur árum
þegar Bifreiðaeftirlit ríkisins veitti
sömu þjónustu. Mesta hækkunin
jafngildir þrefoldun á föstu verðlagi
en að meðaltah er þjónusta Bifreiða-
skoðunar um 65 prósent dýrari en
hjá Bifreiðaeftirlitinu.
Þetta er algjörlega á skjön við yfir-
lýsingar stjórnmála- og embætt-
ismanna þegar Bifreiðaskoðun Is-
lands tók til starfa. Þá var sagt að
þessi breyting mundi leiða til lækk-
unar skoðunargjalda. Leifur Ey-
steinsson, deildarstjóri í fjárlaga- og
hagsýslustofnun, gaf til kynna í sam-
tali við DV í ársbyrjur 1988 að þessi
breyting gæti leitt til ain 25 prósent
lækkunar. Hann sagði sem svo að
rekstrarkostnaður Bifreiðaeftirlits-
ins væri um 120 milljónir en inn-
heimt gjöld hins vegar um 160 millj-
ónir. Samkvæmt því mátti ætla að
Bifreiðaskoðunin gæti lækkaö skoð-
unargjöld um allt að 25 prósent.
Síðar kom í ljós að greiða þurfti
virðisaukaskatt af skoðunargjöldum
og það eyðir þessum mun. Hins vegar
skýrir skatturinn ekki þá 65 prósent
raunhækkun sem orðið hefur á þjón-
ustu Bifreiðaskoðunar miðað við
gjaldskrá Bifreiðaeftirlitsins.
Starfsmenn fyrirtækisins eiga er-
fitt með að rökstyðja hvers vegna
Bifreiðaskoðunin þarf hærri skoðun-
argjöld.
„Þessi hækkun, sem kom strax
fyrsta árið, var óskiljanleg. Við héld-
um áfram að skoða á sama tjakkn-
um,“ sagði einn þeirra í samtali við
DV.
Engar breytingar hafa verið gerðar
á tíðni skoðunar hjá fyrirtækinu frá
því það tók við. Síðast voru gerðar
breytingar árið 1983. Hækkun á
gjöldum fyrirtækisins leggst því með
fullum þunga á bifreiðaeigendur.
Mesta hækkunin hefur orðið á
skoðun stærri bíla og tengivagna.
Skoðun á minni bifreiðum og
nýskráning hefur hækkað minna.
Eini liöurinn í gjaldskrá Bifreiða-
skoðunar, sem hefur lækkað frá því
fyrirtækið tók yfir starfsemi Bif-
reiðaeftirlitsins, er skráning eig-
endaskipta sem er um 11 prósent
ódýrari en áður.
-gse
Það þarf ekki mátunarklefa á útimarkaðnum I Austurstræti.
DV-mynd JAK
Drukknir íslendingar á Schipholílugvelli:
Könnumst ekki við
vandræðaástand
- segirblaöafulItrúiAmarflugs
„Eg held að þarna hljóti einhver
að gera úlfalda úr mýflugu. Drukkn-
ir íslendingar eru auðvitað alls stað-
ar til vandræða þar sem þeir eru og
það kemur fyrir í útlöndum eins og
annars staðar að einhver fær sér of
mikið í staupinu. Við könnumst hins
vegar ekki við að þetta sé neitt vand-
ræðaástand," sagöi Óh Tynes, blaða-
fuhtrúi Arnarflugs, en í DV í gær var
sagt frá vandamálum vegna drykkju-
skapar íslendinga á Schipholflugvelh
við Amsterdam. Amarflug er með
áaetlunarflug þangað.
Óli sagði að flugfélagið heíði ekki
afskipti af fólkinu nema þegar það
væri komið um borð í flugvélarnar.
Þar hefðu Arnarflugsmenn ekki orð-
ið varir við nein vandamál.
- Hafið þið heyrt kvartanir frá flug-
vaharyfirvöldum?
„Nei, alls ekki og það þó að við
séum í sambandi við þá daglega.“
- Það vom tiltekin ákveðin dæmi í
fréttinni. Kannist þið við þau?
„Það var þarna eitthvert rugl á ein-
um manni á sunnudagskvöldið.
Hann var ekki tékkaður inn vegna
þess að hann var ekki með réttan
miða og átti ekki að fara heim fyrr
en á þriðjudaginn,“ sagði Óh.
Óh sagði að hann færi sjálfur oft
um þennan flugvöll og heföi ekki
orðið var við nein vandræði.
-SMJ
Spennandi bíll á spennandi verði
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2,
sími 67-4000
\fau IKns\ ?
Kennslustaðir: Auðbrekku 17, Kópavogi og
„Hallarsel“ við Þarabakka 3 í Mjódd.
Kennum alla samkvæmisdansa: suðurameríska,
standard og gömlu dansana.
Einnig barnadansa fyrir yngstu kynslóðina.
Einkatímar eftir samkomulagi.
Innritun og upplýsingar mánud. - laugard.
kl. 10:00 - 19:00 dagana 1.-12. sept. í síma: 64 1111.
Kennsla hefst fóstud. 14. sept.
Kennsluönn er 15 vikur, og lýkur með jólaballi.
Hinir frábæru SUPADANCE skór fyrir dömur og herra
í öllum stærðum og gerðum.
FID Betri kennsla - betri árangur.
V/SA
Samkort
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar