Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1990, Side 27
: SEPTÖMBÉR 1990.
asta lögreglumann né lögreglubíl.
Og álíka undrandi varö ég á að sjá
aldrei áflog né ólæti af nokkrum
toga. Hins vegar bar margt skondið
fyrir augu, svo sem eins og einn mið-
aldra mann sem hafði fengið sér
heldur ríflega í stórutána og lá vínd-
auður flötum beinum fyrir framan
hóp af syngjandi Hjálpræðisher-
mönnum. Þetta líktist einna helst
útfór þar sem „líkið“ lá kistulaust
undir berum himni og engum duttu
í hug þau helgispjöll að hrófla við
hræinu.
Ferðir
Skattpíning og hátt
verðlag
íslendingar kvarta jafnan sáran
undan skattpíningu hérlendra yfir-
valda og bera sig aumlega undan
þungum álögum og verðlagi sem eigi
sér varla hhðstæðu. Skattlagning í
Færeyjum tekur þó út yfir allan
þjófabálk. Þar leyfa yfirvöld sér að
taka allt upp í 80% af brúttótekjum
manna í skatta og nú er svo komið
að margir yngri sjómenn hyggja
hreinlega á brottflutning frá eyjun-
um af þessum sökum og lái þeim
hver sem vill.
Svimandi háir tollar á flestum
varningi, þó ekki mat, gera það að
verkum að verðlag er hátt.' Sem
dæmi greiddi ég litlar sjö hundruð
krónur fyrir eitt sjampóglas.
Allra veðra von
Veðurfar í Færeyjum er hreint
ótrúlegt. Ef við hugsum okkur að viö
séum stödd við meðalstórt fjölbýlis-
hús þá gæti sem best verið sólskin
neðan við það, svartaþoka fyrir ofan
og hellirigning báðum megin. Veðra-
breytingarnar eru lyginni líkastar,
það jaðrar við að maður þurfi að
hafa með sér skjóöu með öllu tegund-
um af fatnaði ef maður bregður sér
af bæ, því þó ekið sé úr hlaði í glaða-
sólskini og undir skafheiðum himni,
er eins víst að komin verði súld eða
rigning innan nokkurra mínútna.
Þjóðlegur matur
Matur í Færeyjum er að mínum
dómi góður og heimilislegur þó ekki
hafi íslendingnum geðjast að ræsta
kjötinu þeirra, sem er úldið lamba-
kjöt, né heldur skerpukjötinu, sem
auk þess að vera úldið er búið að
hanga svo lengi að það er orðið þurrt
og þess vegna snætt hrátt. En þetta
þykir innfæddum hinn mesti spari-
matur og neyta hans með græðgi og
áfergju. Sjálfsagt er þetta hliöstætt
því þegar við úðum í okkur
rammkæstum hákarlinum og út-
lendingar standa álengdar, halda fyr-
ir vit sér og er öldungis ofboðið að
verða vitni að ofbjóðinum og villi-
mennskunni.
Happadrættir og bert
afgreiðslufólk
Færeyskan er stórskemmtilegt
tungumál, að minnsta kosti fyrir
okkur íslendinga, sem þreytumst
ekki á að grínast með orð sem líkjast
íslenskunni en virka sniðuglega af-
bökuð. Til dæmis rakst ég á skilti
utan á verslun sem á stóð Bert af-
greiðslufólk, útstillingu í verslun
sem sagði að þar væru seldir happa-
drættir, og svo mætti lengi telja.
Flestir hafa líka heyrt talað um gildu
limina í ríðingafélaginu í Færeyjum.
Eins er það margt í íslenskunni
sem kemur Færeyingum til að brosa.
Ég ráðlegg til dæmis íslendingum að
tala aldrei um að þeir æth að fara inn
og fleygja sér stundarkorn, né heldur
ættu þeir að nefna Moggann. Hvað
þetta þýðir á færeysku eftirlæt ég
lesendum að finna út á eigin spýtur,
ýmissa hiuta vegna.
Á að skjóta brúð-
gumann?
Gestir, sem koma til Færeyja, geta
átt von á að lenda í ýmiskonar
skemmtilegum atburðum. Einn
þeirra sem höfundur þessa pistils
lenti í var að vera boðinn í brúðkaup
í Kollafirði. Þegar viö höfðum lokið
aö búa okkur í viðhafnarfötin og
vorum að leggja af stað til kirkju tók
færeyskur félagi minn heljarmikla
haglabyssu og gerði sig liklegan til
að hafa hana meðferðis. Ég varð að
Innritun í prófadeild (öldungadeild)
Grunnskólastig:
Aðfaranám - igildi 7. og 8. bekkjar. Ætlað þeim sem
ekki hafa iokið þessum áfanga eða vilja rifja upp.
Fornám - igildi 9. bekkjar. Foráfangi á framhaldsskóia-
stigi.
Framhaldsskóiastig:
Sjúkraliðabraut - forskóli sjúkraliða.
Viðskiptabraut - 2 vetra nám sem lýkur með verslunar-
prófi.
Menntakjarni - þrír áfangar kjarnagreina, islenska,
danska, enska og stærðfræði. Auk þess þýska, félags-
fræði, efnafræði, eðlisfræði o.fl.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og Laugalækjarskóla.
Skólagjald fer eftir kennslustundafjöida og greiðist fyrir-
fram í upphafi annar eða mánaðarlega. Kennsla hefst
17. september.
innritun fer fram í Miðbæjarskóianum, Fríkirkjuvegi 1,
þann 10. og 11. sept. ki. 17.-20. Nánarí fyrirspurnum
svarað I síma 12992 og 14106. Skrífstofa Námsflokk-
anna er opin virka daga kl. 10-19.
39
Lífsstm
Skotið til heiðurs brúðhjónum.
1
m m ]
m i
[ m m i
vonum undrandi og spurði í hálf-
gerðu fáti hvað hann hygðist fyrir
með vopnið. Hann hefur að líkindum
séð áhyggjusvipinn á sviðunum á
mér því hann glotti fólslega og sagöi:
„Sko, ef ég fæ hana ekki þá fær hana
enginn!" Síðan hló hann hjartanlega
og útskýrði fyrir mér þann sið í Fær-
eyjum að þegar brúðhjónin koma út
úr kirkjunni að vígslu lokinni standa
menn i hóp fyrir utan og skjóta upp
í loftið, brúðhjónunum til heiðurs.
Ég verð að viðurkenna að mér létti.
Hjónavígslan fór svo fram í gam-
alli og ákaflega fallegri kirkju, og síö-
an var boðiö til mikillar matarveislu
þar sem saman voru komin um þijú
hundruð manns. Mikið var um létt
ræðuhöld og söng, ég varð að vísu
svolítið hissa þegar ég heyrði í einu
kvæðinu, sem byrjaði mjög sakleys-
islega, að ráðsett og roskið fólk var
að syngja um „tittlinga og snípur“.
En við nánari eftirgrennslan reynd-
ust þetta vera færeysk fuglaheiti, svo
frjálslyndi samkomunnar var ekki
eins algert og ég af málakunnáttu-
leysi mínu hafði ályktað í fyrstu, og
ekki var laust við að ég skammaðist
min ofurlítið fyrir þankaganginn.
Tvö skref til hægri...
Að borðhaldi loknu var svo stiginn
dans fram undir morgun við undir-
leik tveggja ungra manna sem léku
eins og fimm manna hljómsveit.
Færeyingar dansa þó yfirleitt ekki
nema tvær tegundir af dönsum, og
gildir þá einu hversu gamalt eða
ungt fólkið er. Annar þeirra er fær-
eyski dansinn, sá sem áður er getið,
og hinn er svonefndur enskur dans.
Hann er þannig að tekið er upp
„hald“ og stigin tvö skref áfram og
eitt afturábak. Alveg er sama hvaða
takt lagið hefur, hvort verið er að
spila sveitatónlist, sem er vinsælasta
tónlist í Færeyjum, eða lambada,
diskó eða rokk. Tvö skref áfram og
eitt afturábak skal það vera sam-
kvæmt reglunni, út af því er ekki
brugðið og ekkert kjaftæði!
Tveggja vikna ógleymanlegt frí í
Færeyjum leið alltof fljótt og eftir
nokkra daga heima var ég strax farin
að skipuleggja næsta sumarfrí. -
Hvar? - í Færeyjum að sjálfsögðu!
Helga Guðrún
•Í.I.O. .
z 0
%. S'
imRITUNÍALLA
FLOKKA HAFIN!
Skírteinaafhending laugardaginn
8. sept. frá kl. 12-14.
Iletskóli Báru
Símar 83730 og 679988.