Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1990, Page 12
12
FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990.
Spumingin
Hvernig líst þér á snjóinn?
Glódís Gunnarsdóttir eróbikkkenn-
ari: Æðislega vel. Ég elska snjó.
Sigurður Gunnarsson lögregluþjónn:
Ágætlega.
Styrmir Böðvarsson nemi: Illa. Hann
kemur alltof snemma.
Gisli Gissurarson rafeindatæknifr.:
Ekki beint hrifmn af honum enda er
ég nýkominn úr sól og sumaryl.
Erlendur Á. Júliusson nemi: Mér líst
bara vel á hann.
Eysteinn Ólafur nemi: Alveg gríðar-
lega vel.
Lesendur
Er Stöð 2 í eigu Glitnis?
„Flest á betri veg í dagskrá Stöðvar 2 en vissulega er það markaðurinn og fjármálin sem eru viðkæmust," segir
hér m.a. - Fréttamenn á fundi.
Krístinn Einarsson skrifar:
Ég var að lesa í Morgunblaðinu
grein eftir útvarpsstjórann, Markús
Om Antonsson. Hann er að gera eins
konar úttekt á „veikindum" Stöðvar
2, eins og hann orðar þaö. Hann telur
ótrúlegt að málsmetandi forystu-
menn í verslun og viðskiptum, þ.á
m. hinir nýju eigendur Stöðvar 2,
æth að festa sig í vonlausri varnar-
stöðu og ævintýramennsku sem
dæmd er til að enda með skipbroti.
- Þetta vekur upp hjá mér spuming-
una um það hver eigi raunverulega
Stöð 2. Er það kannski fjármálafyrir-
tækið GUtnir, dótturfyrirtæki ís-
landsbanka?
Ég kasta þessu fram vegna þess að
ég las nýlega frétt um aö tekið hefði
til starfa á Stöð 2 nýr markaðsstjóri.
Einnig sérfræðingur, kona sem var,
að mig minnir, einn af framkvæmda-
stjórum eða markaðsstjórum GUtnis,
eða hins norska fyrirtækis Sleipnis
sem áður var svo samtvinnað þessu
fyrirtæki, í því skyni að vinna að
sérstakri fimm ára áætlun fyrir Stöð
2. Ef sá aðiU var áður starfsmaður
GUtnis er það þá kannski vegna þess
að Glitnir hf. er nú einn af eigendum
Stöðvar 2?
Ég veit að ég á engan rétt á að fá
skýr svör við þessum hugleiðingum
mínum en þar sem ég horfi mikið á
Stöð 2 hjá mínu fólki og talsvert hef-
ur verið rætt um málefni þessarar
sjónvarpsstöðvar þá finnst mér ekki
frágangssök þótt spurt sé. Ég er einn
þeirra sem hef verið því hlynntur að
önnur sjónvarpsstöð sé hér í gangi
tíl aö keppa við Sjónvarpið en ég er
ekki hlynntur því að verið sé, ef til
vill af ásettu ráði, að koma Sjón-
varpinu fyrir kattarnef. Ef rekstur
Stöðvar 2 getur gengið án þess að til
þurfi að koma stuðningur af opin-
berri hálfu þá er auðvitað ekkert við
því að segja þótt menn hætti sínu
fjármagni til rekstursins.
Það er hins vegar ekki á færi
neinna aukvisa að standa að rekstri
svo viðamikUs fyrirtækis sem sjón-
varps og þar hljóta að verða að vera
við stjóm sérfræðingar í fjármálum
jafnt sem tæknimálum. Ég get ekki
betur séð en flest sé á betri veg i
dagskrá Stöðvar 2 en vissulega er það
markaðurinn og fjármálin sem em
viðkvæmust. Þar kemur náttúrlega
til eignarhaldsfélag stöðvarinnar,
hvert sem það er.
Með skírskotun til hugleiðinga
bréfritara um Stöð 2 er eftirfarandi
upplýsingum, fengnum hjá fyrirtæk-
inu, komið á framfæri.
Stöð 2 er almenningshlutafélag þar
sem öUum er frjálst að kaupa og selja
sín hlutabréf, enda vettvangurinn
öllum opinn.
Nýráðinn forstöðumaður markaðs-
og þjónustsviðs er Baldvin Jónsson,
fyrrverandi auglýsingastjóri Morg-
unblaðsins. Sérstakur ráðgjafi, Edda
Helgason, var hins vegar ráðinn tU
að annast sérstakt verkefni, áætlana-
gerð fyrir Stöðina, og mun þvi senn
lokið.
Glitnir hf. sem er dótturfyrirtæki
íslandsbanka, er hins vegar ekki eig-
andi Stöðvar 2 heldur þeir sem
standa að almenningshlutafélaginu
sem rekur sjónvarpsstöðina.
Á Krisuvikursvæðinu. - Tvær kindur á beit og einn tindur Sveifluháls i
baksýn.
Fjárbúskapur á Reykjanesskaga:
Eyðilegging í frístundum
P.S. skrifar:
Eftir aUar umræðurnar um vanda
landbúnaðarins og þá sérstaklega
fjárbúskaparins, aUa þá umfram-
framleiöslu sem við erum látin borga
dýrum dómum og síðan hent á haug-
ana eða gefin útlendingum, hef ég
aldrei skilið að ekki megi hrófla við
frístundabændum hér á Reykjanes-
skaganum. - Mönnum sem eru með
þúsundir fjár á beit á niðurníddu
landi, svo illa fömu að það jafnast á
við glæpastarfsemi að beita landið.
Ég sendi hér með mynd sem ég tók
og sýnir vel hvemig „fjárbúskapur"
hefur leikið land á Suðurnesjum.
Bóndann sem alfarið lifir á fjárbú-
skap munar örugglega um minna en
þær kindur sem frístundakarlar
ráðskast með, öllum tU leiðinda og
landinu til tjóns. Nú er lag. Fyrst
draga á úr fjáreign bænda ætti fyrst
að taka fyrir fjáreign aUra frístunda-
karlanna.
Þetta er réttlætiskrafa. Þá sláum
við tvær flugur í einu höggi, gætum
friðað Reykjanesið allt og byijað á
uppgræðslu. Alvörabændur þyrftu
þá e.t.v. ekki að draga eins úr fjár-
eign og nú er áætlað.
Enn um her og vatn
Magnús Torfi Ólafsson skrifar:
Lengi er von á einum. í DV13. sept.
gefur Jóhann Guðmundsson sig fram
og sannar mitt mál um rúmfrekju
fáviskunnar í of mörgum lesenda-
bréfum. - Honum er ekki einu sinni
ljóst um hvað fyrri orðaskipti okkar
Sigurðar Gunnarssonar snerast.
Við vorum ekki að ræða hvað Jó-
hann drakk forðum eða aörir drekka
nú í loftkældum húsakynnum í Dan-
ang. Ágreiningurinn snýst um það
hvaða fyrirmæli um vökvaþörf
bandaríska herstjórnin lætur gefa
mönnum sínum úti í eyðimörkinni,
þar sem þeir hafast einatt við í tjöld-
um og era látnir stunda erfiðar æf-
ingar til að vera viðbúnir hernaði á
hverri stundu.
Fréttamönnum með bandaríska
hernum ber saman um hver þessi
fyrirmæli eru og frá þeim hef ég
greint, 15 til 23 lítra áætluð vatnsþörf
á sólarhring. - Þetta er staðreynd þar
syðra og hún breytist ekki þótt ein-
hveijir hér nyrðra telji sig hafa efni
á að berja höfðinu við steininn.
Kynlífsþættir á ljósvakamiðlum:
Aðalstöðin misstígur sig
Fjóla hringdi:
Ég hlýddi á nýjan þáttá Aöalstöð-
inni sl. sunnudagskvöld. Þessi þátt-
ur var auglýstur sem fróðlegur
þáttur um samlíf kynjanna, gott
kynlíf, hvað það væri og aðrar hlið-
ar kynlífsins. - Þetta reyndist þó
vera, að mínu mati, ein allsheijar
vitleysa þar sem fólk úti í bæ
hringdi inn til stöðvarinnar að
loknu nokkru spjalli og voru þetta
einstaklingar sem ýmist voru sam-
kynhneigðir eða áttu í erfiðleikum
í sínu ástarsambandi. Nokkuð sem
manni kemur lítið við.
Erum við íslendingar kannski
orðnir eins og þeir sem við erum
sjálfir að dæma, að vilja vera með
nefið niðri í hvers manns koppi og
hafa spumir af hveiju því sem af-
laga fer hjá hjónum eða ööru sam-
býlisfólki? Það varð fréttaefni þeg-
ar íslensk kona í Bandaríkjunum
var sögö hafa af því atvinnu að
svara í síma mönnum vegna ástar-
mála. Var aö ég held birt nafn þess-
ar konu og þótti landanum mikið
til um.
Ég heyri ekki betur en við séum
að komast á nákvæmlega sama stig
og aðrar þjóðir ef við ætlum nú að
fara að leggja eyrun að kynlífs-
þáttum á ijósvakamiðlum. Þetta
kemur kannski í stað annarrar
ónáttúru sem við köllum svo hjá
öðrum þjóðum, svo sem vændi og
þess háttar. Viljum við frekar hafa
eins konar vændi á ljósvakamiðl-
unum? - Mér er til efs að þjóðarsál-
in vilji fara að leggjast með út-
varpstæki sínu og fá allar sínar
þrár uppfylltar í vikulegum út-
varpsþætti.
En hvað getur ekki skeð hjá okk-
ur sem erum orðin svo víöförul og
heimsvön og tökum það besta frá
öðrum þjóðum. Við erum þó allténd
menningarþjóð! Konur og karlar
sem vilja fá kynlífsþætti í útvarpi,
ég skora á ykkur að láta heyra í
ykkur. - Ég skora líka á ykkur
konur - og karla - sem ekki viljið
að íslenskir ljósvakamiðlar verði
notaðir sem sívaxandi kynlífsvett-
vangur (en það verður raunin ef
þetta kemst á að einhveiju marki)
að láta frá ykkur heyra, í ræðu og
riti.
Dagsskrárrugl og dágóð bið
A. Björnsson skrifar:
Ég er einn af mörgum sem hefi
lagt mig eftir að hlusta á útsending-
ar Aðalstöövarinnar, einkum á síð-
kvöldum þegar maður er eitt og
annað að gera heimavið. Þá er gott
aö hlusta á góða tónlist í rólegri
kantinum og svo á þættina hennar
Inger Önnu Aikman, um lífið og
tilveruna, sem hún fer ágætlega
með. Henni virðist einkar lagið að
rabba viö fólk á venjulegum nótum
án þess að vera með uppskrúfaða
rödd eða tilgerð sem hæfir hvort
eð er útvarpi svo fádæma illa.
Nú, þar sem ég sat í gærkvöldi
(miövikud. 12. þ.m.) og beið eftir
að þátturinn í lífsins ólgusjó hjá
Önnu hæfist, fannst mér biðin orð-
in nokkuð löng. Og aldrei byrjaði
þátturinn. Enginn tilkynnti að
þátturinn félh niður. Og svo var á
meðan ég sat með opið tækið við
hlið mér. - Síðar var mér sagt að
seinna um kvöldið heföi svo verið
tilkynnt að þáttur Ingu Önnu Aik-
man félli niður vegna tækniörðug-
leika eða eitthvað í þá áttina.
Mér fannst að Aðalstöðin hefði
strax upp úr kl. 22 átt að tilkynna
að um seinkun gæti orðið að ræða
ef starfslið átti í erfiðleikum með
tæknina. Annars að tilkynna um
niðurfellingu þáttarins strax kl. 22.
Það má ekki koma fyrir öðru sinni
að þáttur falli niður án þess að um
það sé tilkynnt strax í upphafi.
Ég vona að Aðalstöðin eigi eftir
að halda sínu striki þótt nýr út-
varpsstjóri taki við stjórn og þá á
ég einkum við hina góðu tónlist
sem þar er leikin. - A morgnana
er hins vegar engin stöð betri en
Bylgjan, a.m.k. á meðan Eiríkur
Jónsson (Kaupmannahöfn) er þar
við hljóðnemann. Hann slær þeim
öllum við á hinum stöðvunum og
þeir komast ekki nálægt Eiríki í
umfjöllun um menn og málefni,
jafnvel að fletta blöðunum. Já, það
þarf alveg sérstakt lag við aö rabba
við hlustendur. - Og þess vegna
viljum við heldur ekki missa af
þáttunum í lífsins ólgusjó.