Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1990, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1990, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990. Lesendur Endurmat örorkubóta Sighvatur hringdi: Mig langar til að taka undir skoð- anir Ólafs Gíslasonar, sem skrifaði í DV fimmtudaginn 13. þ.m. undir fyr- irsögninni „Eru of margir öryrkj- ar?“. Ég held að hann geti sér rétt til þegar hann heldur því fram að hér á landi séu alltof margir sem geri sér upp veikindi til að fá greiddar bætur frá hinu opinbera. Hér er oft um fólk að ræða sem getur fullvel unnið ein- hver störf og þótt ekki sé um fulla vinnu að ræða þá hluta úr degi eða eitthvað í þá veru, til aö létta hina sameiginlegu fjárhagsbyrði sem heil- brigðiskerfið krefst. Og það gera ein- mitt margir þeirra nú orðið sem búa við raunverulega örorku. Þeir eru virðingarverðir þjóðfélagsþegnar. Það er náttúrlega fuhkomið kæru- leysi ef hið opinbera fylgist ekki bet- ur með en svo að stór hópur fólks beinlínis stundi það að taka greiðslur frá hinu opinbera eftir að hafa með einhverjum ráðum svikist inn á kerf- ið, ef svo má að orði komast, og þá kannski með aðstoð eða vitund þeirra sem tekið er mark á - kannski læknum eða öðrum sérfræðingum. Hér hlýtur að þurfa til að koma end- urmat á aðstæðum allra þeirra sem örorkubætur þiggja til að sanna eöa afsanna þetta. Ég hefði búist við snöggum og hörðum viðbrögöum við skrifum Ól- afs í bréfi hans í síðustu viku.En það er kannski ekki við því að búast ef stór hópur í þjóðfélaginu er einmitt viöriðinn það að gera sig að öryrkj- um að ástæðulausu. Það sannar þetta best ef málið verður kveðið niöur með þögninni. En mikið má þessi þjóð vera úr sér gengin og mikil má niðurlægingin vera hjá því fólki sem gerir sig bert aö því að komast á ör- orkubætur til þess eins að þurfa ekki að vinna eins og aðrir og taka þátt í Margir þeirra sem búa við raunverulega örorku gegna nú orðið ýmsum störfum i þjóðfélaginu, segir hér m.a. þjóðfélagsbaráttunni með þeim kost- maður og leggja sitt af mörkum til um og agnúum sem því fylgir að vera samfélagsins. Jaf nrétti á »æðri“ stöðum Margrét Guðmundsdóttir skrifar: Þótt ýmsir telji að flest hafi þokast hérlendis til aukins jafnréttis og minnkandi stéttamunar, má nefna margt sem bendir til annarrar áttar, einkum á „æðri“ stöðum. Nýlega var vakin athygli á því í blaðagrein að alþingismenn og ráð- herrar hafa nú í seinni tíð ekki talið við hæfi að starfsfólk Alþingis sitji svonefndar þingveislur sem haldnar eru árlega á kostnað skattgreiðenda. Sú hafði þó verið venjan um áratuga skejð en þessu var breytt í tíð einnar vinstri stjórnarinnar sem ekki taldi sér sæma að sitja við sama borð og „almúginn“. Þá má benda á aö starfsmenn Al- þingis gengu löngum um sömu dyr og þingmenn og ráðherrar inn í þing- húsið og út úr því, þ.e.a.s. um dyrnar Austurvallarmegin. Reglum þar að lútandi var breytt því aö landstjórn- endur töldu slíkt ekki sæmilegt. - Og enn var það vinstri stjórn sem þessu breytti. Loks er við þetta að bæta að starfs- fólk þings og stjórnarráðs hefur sagt mér að öll fordild og hégómaskapur hafi stóraukist í tíð núverandi „fé- lagshyggjustjórnar", einkum þó eftir inngöngu borgaraflokksmanna, en margir telja framgöngu þeirra ein- kennast af hroka og drýldni sem vafalaust á sinn þátt í því að flokkur þeirra virðist orðinn ein rjúkandi rúst. Bókhalds- í haust og vetur mun Tölvuskóli Reykjavíkur bjóða áfram upp á bókhaldsnám fyrir fólk sem ______vill ná töícum á bókhaldi fyrirtækja.__ Markmið námsins er að þátttakendur verði fullfærir um að starfa sjálfstætt við bókhaldið og annast það allt árið. Deim sem ekki hafa kynnst bókhaldi gefet kostur é sérstöku grunnnémskeiði. - A námskeiðinu verður efdrfarandi kennt: * ítarleg bókhaldsverkefni * Launabókhald * Virðisaukaskattur * Vixlar og skuldabréf * Bókhaldslög og reglugerðir * Afstemmingar * Raunhæf verkefni * Tölvubókhald Námskeiðið er 72 klst. Tölvuskðli Reykiavíkur Borgartúni 28. S:68759ð ÍSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN, sem nú er haldin í þriðja sinn í Laugardalshöll, hefur fest sig í sessi sem alþjóðleg stórsýning á sviði sjávarútvegs. Sýningin í ár verður glæsilegri en nokkru sinni fyrr og er von á þús- undum gesta hvaðanæva að úr heiminum. Á 10 þúsund fermetra rými munu á fimmtahundrað íslenskra og er- lendr^ sýnenda kynna allar helstu nýjungarnar í veiðum, vinnslu og markaðssetningu sjávarfangs. Á meðan sýningin stendur yfir bjóða Flugleiðir sérstakan afslátt á innanlandsflugi fyrir sýningargesti utan af landi. Nánari upplýsingar fást hjá ferðaskrifstofum, sölumönnum og umboðsmönnum um land allt. FLUGLEIÐIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.