Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Page 11
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990.
11
GoodFellas:
Kvikmyndir
Mafíumynd Martins Scorsese
fékk góðar viðtökur í Feneyjum
Ray Liotta og Robert de Niro sýna snilidartakta i GoodFellas og þykir Liotta meira að segja skyggja á de
Niro sem er nú ekki á færi margra leikara.
í erlendum blöðum má sjá að kvik-
myndahátíðin í Feneyjum hefur ver-
iö með heldur daufara móti í ár og
það hafi verið fáar myndir sem hafi
vakið athygli gagnrýnenda og engin
meistaraverk litið dagsins ljós.
Ein þeirra mynda, sem náði hvað
mestri athygli, var nýjasta kvikmynd
Martins Scorsese, GoodFellas. Það
endaði með því að hún hlaut silfur-
ljónið sem eru önnur æðstu verðlaun
keppninnar. Dómnefndin valdi
bresku kvikmyndina Rosenkrans
and Guildenstern, sem gerð er eftir
hinu þekkta leikriti Tom Stoppards,
sem einnig er leikstjóri myndarinn-
ar, bestu kvikmyndina og fékk hún
gullljónið. Þetta var umdeild verð-
launaveiting og var púað á Stoppard
þegar hann tók við verðlaununum.
GoodFellas fiallar um mafiuna og
er byggð á sönnum atburðum. Segir
þar frá ævi Henry Hill, sem Ray Li-
otta leikur. Henry er hálfírskur og
hálfítalskur drengur sem tekinn er í
fóstur af glæpamönnum í Brooklyn
og alinn upp í þeirri trú að allt hans
líf eigi að snúast um „fiölskylduna".
Robert de Niro leikur Jimmy Con-
way, mann sem er virtur af öllum í
mafíunni og sá sem Henry lítur mest
upp til. Er þetta er í sjötta skiptið sem
de Niro leikur í kvikmynd undir
stjórn Martins Scorsese. Þriðja aðal-
hlutverkið leikur svo Joe Pesci.
GoodFellas er byggð á bók Nicholas
Pileggi sem heitir Wiseguy og að
margra áliti er sú bók talin gefa iivað
besta mynd af því sem gerist í mafiu-
fiölskyldum í Bandaríkjunum. Nafn
myndarinnar og nafn bókarinnar
vísa til heita yfir „fiölskyldumeð-
limi“ sem þeir nota um sig sjálfa,
menn sem almenningur kallar
glæpamenn.
Martin Scorsese fékk áhuga á bók-
inni Wiseguy þegar hann var að
vinna að The Color of Money. Hann
hringdi í höfundinn og spurði hvort
hann hefði nokkuð á móti því að
hann gerði kvikmynd eftir sögunni.
Pileggi segir að hann hafi verið upp
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
með sér yfir beiðninni og svaraði á
þá leið að hann gæti ekki hugsað sér
neinn betri til að kvikmynda bókina.
Scorsese fékk til liðs við sig fram-
leiðandann, Irving Winkler en þeir
unnu saman að New York, New York
og Raging Bull. Þegar kom að kvik-
myndatökunni fékk hann til liðs við
sig sömu menn og hafa unnið með
honum að flestum myndum hans,
má þar nefna kvikmyndatökumann-
inn Michael Ballhaus. Eins og svo
margar kvikmyndir Scorsese var
myndin tekin aö langmestu leyti í
N.ew York.
Alltaf á dagskrá að
gera mafíumynd
Það hefur alltaf verið á dagskrá hjá
Martin Scorsese að gera mynd um
mafíuna og þá eins og hún er í raun-
veruleikananum en ekki sveipa sam-
tökin dularhjúp eins og svo oft er
gert í kvikmyndum. „Það sem fólk
skilur ekki,“ segir Scorsese, „er að
gangster gengur ekki um götur og
drepur fólk. Hans aðalvinna er að
afla peninga. Þegar einhver fer út
fyrir sitt svið verður hann að hverfa.
Þetta er reglan hjá mafíunni.“
Scorsese ólst upp í hverfi þar sem
mafían var valdamikil. Hann lýsir
viðhorfinu til mafíunnar með þess-
um orðum: „Ég man þegar ég var
drengur og ég og félagar mínir þurft-
um að fara í klippingu áður en við
fengum peninga fyrir bíó. Þá kom
það iðulega fyrir að þegar komið var
að okkur hjá rakaranum, þá kom
kannski einn úr „fiölskvldunni" og
spurði hvort það væri nokkur bið.
Rakarinn svaraöi að það væru aðeins
krakkarnir og bauð honum stólinn.
Og að sjálfsögðu urðum við alltof
seinir í bíó,“ segir Scorsese.
GoodFellas er löng kvikmynd, um
það bil 150 mínútur, og hefur henni
verið líkt við Goodfather kvikmynd-
irnar, en er samt talin mun raun-
særri. Ray Liotta er í aðalhlutverki
og þykir mjög góður og skyggir hann
jafnvel á sjálfan Robert De Niro sem
á þó skínandi leik. Myndin mun
verða sýnd í Bíóborginni í vetur en
verið er að taka hana til sýningar
vestanhafs um þessar mundir.
-HK
SJÁLFSBJÖRG
Þjóðfélag án þröskulda!
EITT LÍTIÐ MERKI
UM STUÐNING
HNN
Um þessa helgi fer fram blaða- og merkjasala Sjálfsbjargar um
land allt.
Með því að kaupa blað eða merki Sjálfsbjargar sem er að þessu
sinni endurskinsmerki getur þú sýnt stuðning þinn í verki og
stutt við baráttu fatlaðra. Allar tekjur af átaki þessu renna
óskiptar til eflingar aðstöðu fatlaðra m.a. til að koma upp end-
urhæfingaríbúð í Sjálfsbjargarhúsinu sem er nauðsynlegur
hlekkur í endurhæfingu fatlaðra.
________KRINGMN ,
Fyrirtækin í Kringlunni hafa stutt við blaða-
og merkjasölu Sjálfsbjargar.
Sjálfsbjörg minnir sérstaklega á að sölufólk
verður í Kringlunni í Reykjavík, en þar er að-
gengi fyrir fatlaða til fyrirmyndar.