Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990. 13 Helgarpopp Eftirlitiö í æfingabúðum. Gunnar Erlingsson og Þorsteinn Magnússon eru tiltölulega nýgengnir til liös viö Gunnar Hilmarsson og Davið Frey Traustason. Þetta er eins og að synda í skyri - Eftirlitið gerir út með þolinmæðina að vopni Eftirlitið er komið á kreik að nýju. Davíð Freyr Traustason og Gunnar Hilmarsson hafa fengið Gunnar Erlingsson trommuleikara og Þorstein Magnússon gitarleik- ara til liðs við sig. Fjórmenningarn- ir héldu síöa fyrstu hljómleika á Duushúsi á flmmtudagskvöldið var og setja stefnuna á að leika að minnsta kosti einu sinni til tvisvar í mánuði frá og með október. Og helst eigið efni eingöngu. „Við erum með átta til tíu laga prógramm eins og er,“ segir Gunn- ar Hilmarsson. „Hins vegar höfum við prófað okkur áfram með ein fimmtíu. Eða grindina að einum fimmtíu lögum skulum við frekar segja. Mestöllu höfum við hent. Við verðum allir fjórir að vera sam- mála um hvaða lagi við höldum til haga. Greiði einn atkvæði á móti er því sleppt. Fyrir vikið spilum við ekki nema það sem viö erum hundrað prósent sáttir við.“ Fönkrokk Tónlistarstefna Eftirlitsins er fönkrokk. Gunnar Hilmarsson veit ekki hvort það á upp á pallborðið hjá fólki um þessar mundir en von- ar það besta. „Ég veit ekki einu sinni hvort við erum góðir, frábærir eða einfald- lega vondir. Ég veit þó að Steini er frábær gítarleikari, Gunnar er af- bragðsgóður trommari... Við hljótum að vera að gera eitthvað af viti.“ Gunnar Hilmarsson og Davíö Þór Traustason hafa unnið saman í á þriðja ár. Gunnar Erlingsson kom til leiks fyrir þremur til fjórum mánuðum og Þorsteinn hefur verið með í um mánuð. „Þeir tveir eru bestu menn sem við Davíð höfum unnið með hingað til. Nú fmnum við að við höfum verið að gera tóma vitleysu hingað til.“ Með réttum mönnum Davíð og Gunnar hafa verið af- kastamiklir þótt ekki hafi borið mikið á þeim. Þeir unnu til að mynda baki brotnu mánuðum sam- an í hljóðverum borgarinnar og Umsjón: Ásgeir Tómasson nágrannabyggðanna og hljóðrit- uðu lög sem nægðu á stóra plötu. Á elleftu stundu hættu þeir við allt saman. Öllu var hent. Ekkert stóð eftir nema skuldir fyrir afnot af hljóðverunum. „Við höfðum ekki efni á að koma plötunni út. Svo einfalt var það,“ segir Gunnar. „Enginn vildi gefa hana út svo að við hefðum orðið að gera það sjálfir. Mér finnst satt að segja að það sé kominn tími á okkur Davíð núna,“ heldur hann áfram. „Við eigum fullt erindi á markaðinn með réttum mönnum og við teljum okk- ur vera að leika með þeim núna. Við erum búnir aö lenda í nógu mörgum vitleysum og gera nógu mörg mistök hingað til. Að mínu mati hefur tónlistin verið í lagi en óheppnin hefur falist í því að velja ranga menn til að vinna með. Ætli við séum ekki búnir að æfa hátt í hundrað frumsamin lög á rúmum tveimur árum. Nú ætlum við hins vegar ekki að rasa um ráð fram heldur bíða og sjá hvort ekki smell- ur allt saman." Synt í skyri Gunnari Hilmarssyni líst ekki sérstaklega vel á áhuga fólks á hljómleikum um þessar mundir. Blúshljómleikar draga jú að sér fólk en aðrar stefnur virðast eiga undir högg að sækja. „Við verðum kannski að æfa upp annarra lög og fara að gera út á pöbbana í bland við hljómleika annars staðar," segir hann. „Mér líst ekki á það á þessari stundu en kannski er það eina leiðin til að koma lögunum sínum á framfæri. Aðalvandamálið, sem við stöndum frammi fyrir núna, er að fá fólk til að mæta á hljómleika. Raunar er tónlistarlífið í heild sinni þannig aö einna helst mætti líkja því við að synda í skyri. Viö verðum bara að keyra á þol- inmæöinni og bjartsýninni og sjá til hvernig okkur verður tekið. Fyrir liggur að leika á Litla-Hrauni von bráðar, fóngunum og okkur sjálfum til skemmtunar. Síðan ætl- um við að halda alvöru hljómleika á Hótel Borg þann 11. október. Eig- inlega má segja að allt sem við ger- um fram að þeim hljómleikum sé upphitun. Síðan verðum við bara að vera þolinmóðir og vona það besta.“ -ÁT Þýskukennsla fyrir börn 7-13 ára verður í Hlíðaskóla í vetur. Innritun fer fram laugardaginn 29. sept. kl. 10-12. Germanía 1.-4. nóvember og 14.-19. nóvember Flug og gisting í Trier, tvíbýli á Scandic Crown hótelinu: 1.-4. nóvember kr. 32.680. 14.-19. nóvember kr. 38.440. Flug, bíll og ibúð í Hostenberg, 20 mínútna akst- ur frá Trier, miðað vió 2 í hil og íbúó: 1.-4. nóvemher kr. 29.980. 14.-19. nóvember kr. 33.380. Flug, bíll og lúxushús í Hostenberg, mióaó vió 4 yj í húsi og bíl: 1.-4. nóvember kr. 28.580. 14.-19. nóvember kr. 30.770. Ofangreint veró er án flugvallarskatts, kr. 1.150. Takmarkaóur sxtajjöldi. L* M Ath. Allfir verslanir í Trier eru opnar allan laugardaginn 3. nóvember. -XV'. éf- llaínarsirxtí '■ SÝNING UM HELGINA Opið: Laugard. 10-16. Sunnud. 13-17. FALLEGAR OGVÁNDAÐAR ELDHUS- INNREITINGAR FRÁfóaSfó m BÆJARHRAUNI 8 SÍMI 651499 OPIÐ LAUGARD. 10-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.