Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÚNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SiMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð I lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Umbinn í ruslafötunni Framkvæmdavaldið í landinu telur sig vita betur en umboðsmaður alþingis um, hvort það hafi farið út fyrir lög í stjórnsýslunni. í flestum tilvikum ákveða ráð- herrar og ráðuneytisstjórar að taka ekki mark á niður- stöðum umboðsmannsins og svara ekki bréfum hans. Að þessu leyti er íslenzkt framkvæmdavald öðruvísi en framkvæmdavald á Norðurlöndum, þaðan sem upp- runnið er embætti umboðsmanns alþingis. Komið hefur fram, að þar þykir sjálfsagt að fara eftir niðurstöðum umboðsmanns, nema knýjandi nauðsyn beri til annars. „Það fer alveg eftir því, hvers eðhs álitið er, hvað við gerum. Það geta verið jafn margar ástæður til mismun- andi viðbragða og fjöldi álita. Við skoðum þau alltaf og reynum að bregðast við eins og við á og eftir því, hvað réttast er á hverjum tíma,“ sagði ráðuneytisstjóri. í þessum hrokafullu ummælum embættismannsins felst, að hann telur sig vita, hvað er „réttast". Hann er æðsti dómstóll um eigin gerðir og þarf ekkert á stofnun- um alþingis að halda. Þessi ummæli segja raunar allt, sem þarf að segja um ástand íslenzkrar stjórnsýslu. Hér á landi umhverfist ungmenni við að verða að hrossaræktaráðunauti. Hann temur sér á svipstundu framkomu átjándu aldar valdsmanns, sem talar niður til pöpulsins. Slíkt virðist loða við íslenzka stjórnkerfið, þótt menn hafi losnað við það í nágrannalöndunum. Enginn hefur dregið í efa hæfni umboðsmanns al- þingis eða vinnubrögð hans. Sérstaklega hefur verið tekið fram, að hann starfi á líkan hátt og starfsbræður hans á Norðurlöndum. Menn eru í stórum dráttum sam- mála um, að hann sé einn færasti lögfræðingur landsins. Samt er niðurstöðum hans í bezta falli svarað á þann hátt, að ráðherra og ráðuneytisstjóri panta andstætt áht frá lögfræðistrák viðkomandi ráðuneytis og er það látið gilda. Enda litu embættismenn átjándu aldar svo á, að þeir einir hefðu ahtaf rétt fyrir sér. Verst hefur framganga valdshyggjuráðherranna íjög- urra verið. Það eru fjármálaráðherra, landbúnaðarráð- herra, menntaráðherra og viðskiptaráðherra. Þeir hafa svo mjög hunzað niðurstöður umboðsmannsins, að ekki verður hjá því komizt að kalla það skipulega andstöðu. Fjármálaráðherra hefur lagt króka á leið sína til að reyna að fá dregið úr starfsemi umboðsmannsins með því að fá lækkaðar fjárveitingar til embættis hans. í þingræðu útskýrði ráðherrann þetta með því, að of mikill tími færi í að svara bréfum umboðsmannsins. Landbúnaðarráðuneytið hefur ekkert mark tekið á því, þótt umboðsmaður álíti búfjártalningu þess hafa verið ólöglega. Ráðuneytisstjórinn, sem hefur síðan misnotað gögn úr talningunni í óþökk bænda, segir bara, að talningin sé þegar „gerður hlutur“. Viðskiptaráðherra hefur tekið undir þá skoðun Seðla- bankans, að umboðsmaðurinn hafi rangt fyrir sér, þeg- ar hann sagði meðferð bankans á máh Ávöxtunar hafa verið vítaverða. Ráðherrann tók sérstaklega fram, að umboðsmaðurinn væri ahs enginn dómari. Menntaráðherra hefur nú í tæpan mánuð legið á þeirri niðurstöðu umboðsmanns, að ólöglegt sé að taka efnis- og bókagjöld af nemendum í skyldunámi. Ráð- herrann hefur komið fram í sjónvarpi og sagzt hafa áht annarra lögfræðinga fyrir því, að gjaldheimtan sé í lagi. í andstöðunni við umba fer saman póhtísk ofbeldis- hneigð nokkurra ráðamikiha stjórnmálamanna og al- mennt átjándu aldar hugarfar æðstu embættismanna. Jónas Kristjánsson Sovétríkin einkavædd með 500 daga áætlun Ofan á aðrar hremmingar, sem þjaka sovéska neytendur, bættist í sumar sígarettuskortur. Varð hann dropinn sem fyllti mæhnn hjá mörgum nikótínfíknum Sovét- manni. Risabiðraðir við sölustaði snerust sums staðar upp í uppþot og óeirðir. Stjórnvöld gripu til þess ráðs að semja við tvo stórvirkustu tóbaks- vöruframleiðendur Bandaríkjanna um kaup á 34 miiljörðum síga- rettna og greiða í vöruskiptum með varningi sem eUa hefði verið auð- seldur fyrir reiðufé. Ber það vott um hvað við þykir liggja að metta tóbaksmarkaðinn með einhverjum ráðum, annar eins gjaldeyrisskort- ur og nú hrjáir sovéskan þjóðarbú- skap. Haft er eftir yfirmanni banda- rísks tóbaksfyrirtækis að ástæða sígarettuskortsins sé að 11 af 20 sígarettuverksmiðjum í Sovétríkj- unum hafi verið lokað samtímis tU viðgerða og viðhalds. Svo furðulegt uppátæki í miðstýrðu framleiðslu- kerfi vekur grunsemdir um að í áhrifastöðum sitji menn sem ekki er óljúft að valda æðstu stjórn erf- iðleikum með því að magna óánægju almennings með aðsteðj- andi vandræði. Fylgdi líka fyrstu fréttum af sígarettuskortinum að einhverjum aðstoðarráðherrum hefði verið vikið úr starfi. Samtímis því að tóbaksleysi bæt- ist við margs konar annan vöru- skort eru loksins horfur á að þing og stjórn séu í þann veginn að taka úrslitaákvarðanir um kerfisbreyt- ingar í því skyni að rétta efnahag- inn við til frambúðar. Er nú efst á baugi í þeim umræðum tímasett áætlun um fráhvarf frá ríkiseinok- un og miðstýringu til einkarekstrar og markaðskerfis, kennd við 500 daga, tímabihð sem henni er sett. Fréttamenn Washington Post í Moskvu hafa komist yfir eintak af áætluninni. Hún stefnir að blönd- uðu hagkerfi þar sem fjórir fimmtu hlutar atvinnulífsins verði einka- væddir fyrir lok áratugarins. Upphaf 500 daga áætlunarinnar má rekja til þess að í vor hafnaði Æðsta ráðið tillögum frá Nikolai Ryshkov forsætisráðherra, sem gerðu ráð fyrir stórfelldum niður- skurði á niðurgreiðslum neyslu- varnings úr ríkissjóði. Hlaust af birtingu þeirra hamstursæði sem magnaði enn vöruskort sem var ærinn fyrir. Hagfræðingahópur undir forystu Stanislavs Shatalíns, fulltrúa í for- setaráði Mikhails Gorbatsjovs Sov- étforseta, var settur á laggimar til að fitja upp á ný. í nefndina kom svo hópur ungra hagfræðinga úr ráðgjafaliði Borisar Jeltsins, for- seta Rússneska sambandslýðveld- isins. Kjarhi 500 daga áætlunarinnar eins og fyrri tillögu Ryshkovs er að fást við umframkaupmáttinn í sovéska hagkerfinu. En aðferðin er þveröfug. í stað þess að kostnað- urinn af að hemja verðbólgu komi beint á landslýðinn á ríkið að reiða fram eignir sínar. Rúbluhengjan, sem ógnar sov- éska hagkerfmu, er talin nema 200 milljörðum rúblna eða hálfum rík- isfjárlögum. Þennan umframkaup- mátt hyggjast höfundar 500 daga áætlunarinnar leitast við að þurrka upp með því að bjóða ríkis- fyrirtæki unnvörpum til sölu á fyrsta misseri áætlunartímabils- ins. Gert er ráð fyrir að bjóða til sölu 46.000 iðnfyrirtæki og 760.000 verslunarfyrirtæki. Hlutabréf í stærri fyrirtækjum verða boðin hæstbjóðanda á opn- um markaði, en starfsmenn hafa' forkaupsrétt á allt að tíunda hluta. Smærri fyrirtæki með 10 starfs- menn eða færri (sjö í matvæla- Magnús Torfi Ólafsson verslunmn) verða seld hæstbjóð- anda, hvort heldur einstakhngi eöa hópi. Gert er ráð fyrir að 150.000 fjölskyldubú verði mynduð við skiptingu ríkisbúa og samyrkjubúa sem rekin eru með halla. Engar hömlur verða á fjárfest- ingu erlendra aðila í sovésku at- vinnulífi og hömlum verður létt aF viðskiptum við önnur lönd. Mark- miðið er að gera rúbluna gjald- genga á alþjóðlegum peningamark- aði við fyrstu hentugleika. Þegar einkavæðingin væri komin í kring yrði ríkisrekstur við lýði á afmörkuðum sviðum. Ríkið ræki áfram hergagnaiðnaðinn, fjarskipti um langar leiðir, járnbrautimar, póst- og raforkuframleiðslukerfið. Þótt 500 daga áætlunin hafi ekki verið birt í heild í Sovétríkjunum hafa megindrættir hennar verið ræddir í Æðsta ráðinu. Gorbatsjov hefur lýst stuðningi við hana í meginatriðum, en Ryshkov forsæt- isráðherra finnur henni flest til foráttu. Fara kröfur um afsögn for- sætisráðherrans vaxandi, en Gor- batsjov reynir að vera honum bak- hjarl. Hefur aldrei komið ljósar fram en nú hve Gorbatsjof á erfitt með, vegna fastheldni sinnar úr löngu starfi í flokksforustunni við venj- una þaðan um sameiginlega loka- niðurstöðu, að kveða upp úr þar sem ósættanleg sjónarmið takast á og taka eindregna afstöðu. í umræðum í Æðsta ráðinu stakk forsetinn til að mynda upp á því að þjóðaratkvæði skæri úr um einkaeignarrétt og erfðarétt á landi. Shatalín, ráðgjafi hans, mót- mælti þegar, kvað engan tíma til að fresta ákvörðunum um grund- vallaratriði enda ekki háttur ábyrgra stjómmálamanna að skjóta sér undan ákvörðunum með þeim hætti. Annar hagfræðingur og ráðgjafi Gorbatsjovs um langan aldur, Abel Aganbegjan, komst svo að orði í umræðunum að atvinnulíf Sovét- ríkjanna væri í svo „skelfilegu" ástandi að engan tíma mætti lengur missa. Skorturinn, verðbólgan og ólgan, sem ríkti í landinu, væru „hrein skrítla miðað við það sem gæti gerst“. Þriðji af helstu ráðgjöfum Sovét- forsetans í efnahagsmálum, Ni- kolaj Petrakof, sagði við kynningu á höfuðatriðum 500 daga áætlunar- innar á fundi með fréttamönnum að ekki væri um að villast að skrif- ræðissinnar, sem komið hafa sér fyrir í miðstýrða fyrirskipanakerf- inu í atvinnulífinu, hefðu tekið upp „stefnu sviðinnar jarðar“ til að tor- velda efnahagsumbætur með kerf- isbreytingu. Hann kenndi skriffinnskukerfi ríkisins um hrun kaupmáttar rúbl- unnar. Þeir sem þar réðu vonuðu að skortur á algengustu neysluvör- um, eins og matvælum og sígarett- um, yrði til þess að upp kæmi krafa um að skömmtunarkerfi yrði kom- ið á. Magnús T. Ólafsson I hléi á fundi Æðsta ráðsins ræðir Gorbatsjov forseti (t.h.) við Stanislav Shatalín (í miðju), aðalhöfund 500 daga áætlunarinnar, og þingmanninn Nikolaj Travkin. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.