Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Page 23
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990. 35 „Lokast tjöldin nógu vel? Próf- aöu núna,“ segir maður í stiga á miöju sviöi við annan baksviðs. Tjöldin dragast frá og svífa fyrir aftur. Leikmunaverðir og tækni- fólk er á þönum með verkfæri og hluti í höndum. Ljósin bhkka og hljóðasúpa lekur úr hijómkerfinu. Klukkan er 19.00 og eftir klukku- tíma hefst aðalæfing á gamanleikn- um Örfá sæti laus. Það er Þjóðleik- húsið sem sýnir í íslensku óper- unni. Leikstjórinn, EgiU Eðvarös- son, situr poUrólegur á svip frammi í sal á hljóðskrafi við tæknimann. Allt virðist með kyrrum kjörum. Baksviðs eru leikarar að mæta í smink. Sigurður Siguijónsson situr í bekk og drekkur kaffi og rabbar við Gunnlaug Briem trommara. „Ha, við stressaðir? Kemur ekki til mála,“ segja þeir einum rómi en eirðarleysið kemur upp um Sigurð, enda er hann bæði höfundur og einn aðalleikara, auk félaga sinna úr Spaugstofunni, þeirra Karls Ágústs Úlfssonar, Randvers Þor- lákssonar, Pálma Gestssonar og Arnar Árnasonar. Eddie Skoller fórflatt Það er fremur þröngt um hópinn í kjallara Óperunnar. Menn verða að skáskjóta sér hver fram hjá öðr- um og olnboga sig að kaffikönn- unni sem beðið er eftir að sýni rautt ljós. Lofthæðin er ekki fyrir full- orðna og gildir bitar í loftinu eru klæddir með svampi svo stressaðir skemmtikraftar roti sig ekki af því að ganga á þá. „Menn hafa farið flatt á þessu,“ segir Siggi Sigurjóns. „Það er sagt að þegar Eddie Skoller var að skemmta héma þá hafi hann farið hálf- eða alrotaður upp á svið í framkallinu." Svo er Sigurður rok- inn. Klukkan tifar og flestir að verða mættir. Hópurinn er á stöðugri hreyfmgu í þessu þrönga rými eins og laxar í keri sem stöðugt synda í hringi. Menn rápa með kaffiboll- ana og ráðfæra sig við félagana um stikkorð og tæknibrellur. „Trommuhöggiö má koma miklu fyrr, um leið og ég er búinn að segja að ég sé farinn,“ segir Pálmi Gests- son við Gunnlaug trommara og Sigurður tekur undir: „Alveg um leið,“ og slær hendinni í lófann til áherslu. Hver er síðastur í klámgöngunni Karl Ágúst er mættur og skemmtir með sögum af viðureign sinni við þveran borgarstarfsmann sem vildi loka Hafnarstrætinu þeg- ar Karl var á leið til sýningar. Hvorugur vildi láta sinn hlut og fór svo að lokum að bílnum var rennt yfir tærnar á manninum með skilt- ið. „Hver á að vera síðastur í klám- göngunni,“ spyr Kristín sýningar- stjóri sem þýtur á ótrúlegum hraða um hópinn með blokk í hendi og merkir við eins og kennari. Hún fær ekkert svar en einhver fullyrð- ir að Rúrik sé að minnsta kosti aft- arlega. „Hyað ert þú aö skrifa," spyr Öm Árnason blaðamann en verður eins og fældur hestur á svip þegar hann fær að vita það og stekkur í burt og heilsar þjóðleik- hússtjóra sem var að koma í smink- ið. Á hæla hans kemur tónskáldið Gunnar Þórðarson og dettur hvorki né drýpur af því. Tíminn líöur eins og óð fluga Þegar hér er komið sögu líður tíminn eins og óð fluga og and- rúmsloftið í kjallaranum er farið að titra af spennu. Sigurður Sigur- jónsson æðir um eins og ljón í búri og lítur á klukkuna á 3 sekúndna fresti. Randver Þorláksson, félagi hans, virðist hins vegar pollrólegur og lætur fara lítið fyrir sér með sinn kaffibolla og tekur sér stööu við spegil og sminkar sig í róleg- heitum. Kliðurinn magnast og verður eins og vatnsniður en fáir virðast hafa eirð í sínum beinum til þess að. halda kyrru fyrir en stjákla um eftir því sem plássið leyfir, reykja og drekka kaffi sem er viðurkenndur streituvaldur og sýnist vart á bætandi. Allir sem syngja í leikritinu þurfa, að viðbættu sminkinu, aö festa á sig þráðlausa hljóðnema. Á síðustu mínútu er mörgum vöng- um velt yfir þessum tækniundrum sem hafa tilhneigingu til þess að bregðast illa við svita leikaranna og sumir í þessu verki svitna hrottalega. Margrét hárkollumeist- ari til 30 ára heldur ró sinni þar sem hún hengir barta Ragnars Reykáss á sinn stað þar sem þeir bíða tilbún- ir hjá augabrúnum Steingríms og skeggi Svavars. Allir í upphitun „Alhr í upphitun," þrumar Magnús Kjartansson hljómsveitar- stjóri og leikarar elta hann hlýðnir inn í afkima þar sem þeir standa í hring og syngja skala og baula ýmsar samstöfur í misháum tón- tegundum. Síðan er sungið halle- lúja að lokum af mikilli innlifun við píanóundirleik Magnúsar. Leikarar virðast taka upphitunina misalvarlega: Sumir standa með alvörusvip og syngja eins og röddin dregur en aðrir koma seint, lauma sér aftast í hópinn og opna munn- inn til málamynda. „Svo veit ég að þið gerið ykkar besta,“ segir Egill Eðvarðsson leik- stjóri að lokum við hópinn. „Ekki ærslast með sýninguna. Ekki keyra hraðann svo upp að hún kollsteyp- ist. Vandið framsögnina og hafið í huga að hljómburðurinn er ekki nógu góður aftast og efst.“ Allir kinka kolli. „Og munið að taka vel utan um söngtextana," bætir Magnús við, hvað sem þaö þýðir. Andrúmsloftiö er aö verða óbæri- legt þegar kallkerfið segir: „Það eru fimm mínútur,“ og fær andartaks- þögn. Hin síðasta hönd er lögð á bókstaflega allt. Það þarf að tylla börtum Rúriks aðeins betur til ör- yggis, laga hljóðnema Jóhanns og vita hvort rennilásinn á Tinnu er örugglega laus eða fastur. Egill áréttar við einstaka leikara inn- komur og útgöngur og tímasetn- ingar. Flestir eru þögulir og kall- kerfið fær gott hljóð sem það notar síðan til þess að segja: „Leikarar, dansarar og hljóðfæraleikarar á svið.“ Það er eins og losni örlítið um spennuna þegar hópurinn tín- ist upp og lágværar velfarnaðar- óskir fara eins og kliður um her- bergið. „Jón ívarsson, komdu strax, það vantar headsett ... Jón ívarsson, vOtu koma eins og skot,“ segir kall- kerfið og það er ekki frítt við að röddin skjálfi því klukkan er 19.58 og eftir tvær mínútur fer tjaldið upp fyrir fullum sal af gestum á aðalæfingu. Nafnið á leikritinu er tæpast við- eigandi lengur því samkvæmt orð- rómi baksviðs mun vera uppselt á fyrstu tólf sýningarnar. Það eru því ekki lengur Örfá sæti laus. -Pá „Ekki ærslast með sýninguna." Egill Eð- varðsson leikstjóri gefur síðustu skipanirnar. DV-myndir Hanna Sigurður, Randver og Rúrik hálfsminkaðir. Karl Ágúst og sýningarstjóri ráða ráðum sinum. „Ég skal hjálpa þér.“ Pálmi og Karl Ágúst á síðasta snúningi. Pálmi og Randver i upphitun. Steingrimur Hermannsson biður rólegur eftir Pálma. Örfá sæti laus: Á tauginni bakvið tjöldin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.