Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990.
49
Smáauglýsingar
Mazda 929 LTD, árg. '83 til sölu. Sjálf-
skiptur, með rafmagn í rúðum, central
læsingar. Skuldabréf koma til greina.
Uppl. gefur bílasalan Höfðahöllin í
síma 674840 eða 72648.
Saab 900i, árg. '87, dökkblár,
ekinn 56 þús., verð 960 þús., mjög góð-
ur bíll, skipti á ódýrari eða dýrari,
Saab 9000 ’87 eða MMC Pajero ’86-’87.
Uppl. í síma 93-61266.
Ford Sierra XR 4x4 , 5 dyra, árg ’85.
Ekinn 67.000. Sídrif, 2800 vél 155 Din
hestöfl, Abs bremsukerfi., sóllúga, lit-
ur svartur, central læsingar. Skipti á
ódýrari. Uppl. í síma 96-33119 og 985-
25419.
Subaru XT turbo, árg. '88, til sölu, ekinn
42 þús. km. Uppl. í símum 624808 og
611230.
Ford F-350 pickup 4x4 með húsi til sölu,
6,9 dísil, með mæli, árg. ’84, skoðaður.
Skipti, skuldabréf, góð kjör. Uppl. í
síma 673534.
Mazda Plus Cap '88, upphækkaður,
álfelgur, loftdæla, læstur að aftan,
kastarar, verð 1670 þús. Upplýsingar
í síma 91-672235.
BMW 318i, árg. ’88, vinrauður, 4ra
dyra, 5 gíra, ekinn 25 þús., skipti
möguleg. Uppl. í síma 91-622946.
Oldsmobile Delta Royale 88, árg. '86,
til sölu, ekinn aðeins 20 þús. m., lítur
út sem nýr. Uppl. í síma 91-740)6.
Einn með öllu. Eldrauður og glæsilegur
Golf GTi, 16 v., árg. 86, til sölu, skipti
á ódýrari möguleg. Uppl. í síma
91-72857 eftir kl. 16.
Chevrolet Monte Carlo,
Einnig til sölu Seat
Uppl. í síma 75120.
árg. ’86.
Afmæli
EybjörgD. Sigurpálsdóttir
Eybjörg Dóra Sigurpálsdóttir, mót-
tökustjóri á Hótel Holti, Jöldugróf
12, Reykjavík, er fertug í dag. Ey-
björg Dóra er fædd í Reykjavík og
lauk myndmenntakennaraprófi í
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1971. Hún var kennari í Heyrnleys-
ingjaskólanum 1971-1976 og kennari
í Barnaskóla Djúpárhrepps í Rang-
árvallasýslu 1978-1983. Eybjörg
vann við gestamóttöku á Hótel Holti
1986 og hefur verið móttökustjóri
þarfrájúníl988.
Eybjörg giftist 4. desember 1971
Ólafi Þorgeiri Guðmundssyni, f. 14.
nóvember 1950, pípulagningameist-
ara. Foreldrar Ólafs eru Guðmund-
ur Gíslason, f. 17. september 1910,
d. 6. mars 1973, og kona hans, Fann-
ey Jónsdóttir, f. 1. október 1916.
Börn Eybjargar og Ólafs eru Þór-
anna Rósa, f. 25. júlí 1971, nemi, sam-
býlismaður hennar er Hafsteinn
Ingibjörnsson, f. 17. október 1971,
nemi í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti; Þorgerður Steinunn, f. 10. júlí
1973, nemi í Fjölbrautaskólanum í
Ármúla; Guðmundur Páll, f. 9. fe-
brúar 1977, nemi í Réttarholtsskó-
lanum, og Þorbjörg María, f. 15.
september 1983. Bræður Eybjargar
eru Bjöm Vignir, f. 19. janúar 1946,
blaðamaður og ritstjóri á Morgun-
blaðinu, kvæntur Kristínu Ólafs-
dóttur bókmenntafræðingi, börn
þeirra eru Sigríður Hagalín nemi
og Kolbeinn Atli, og Jón, f. 4. ágúst
1954, myndlistarmaður og byggða-
safnsvörður á ísafirði, kvæntur
Margréti Gunnarsdóttur.píanó-
kennara í Tónlistarskóla Isafjarðar,
sonur þeirra er Gunnar.
Foreldrar Eybjargar eru Sigurpáll
Ólafsson Jónsson, f. 4. janúar 1917,
fyrrv. starfsmaður Sjúkrasamlags
Revkjavíkur, og kona hans, Stein-
unn María Steindórsdóttir, f. 6. nóv-
ember 192, píanókennari í Tón-
menntaskólaReykjavíkur. Sigur-
páll var sonur Jóns, b. á Hálsi í
Grafningi, síðar verkamanns í Rvík,
og konu hans, Aðalheiðar Ólafs-
dóttur. Móðir Jóns var Margrét
Steindórsdóttir, b. í Sölvholti í Flóa,
Sæmundssonar, b. oghreppstjóra í
Auðsholti, Steindórssonar, b. í
Auðsholti, Sæmundssonar, ættföð-
ur Auðsholtsættarinnar. Móðir Sig-
urpáls var Aðalheiður Ólafsdóttir,
b. og formanns í Sogni í Ölfusi, Guð-
mundssonar, tómthúsmanns í Hliði
á Álftanesi, Ólafssonar. Móðir Ólafs
var Þóranna Rósa Natansdóttir, b.
og skálds á Illugastöðum á Vatns-
nesi, Ketilssonar, og Rósu Guð-
mundsdóttur skáldkonu, Vatris-
enda-Rósu. Móðir Aðalheiðar var
Ragnheiður Símonardóttir, b. í
Hallstúni í Holtum, Eyjólfssonar.
Steinunn er dóttir Steindórs leik-
fimikennara Björnssonar, búfræð-
ings í Gröf í MosfellSsveit, Björns-
sonar. Móðir Björns í Gröf var Sól-
veig, systir Árna, afa Bj örns Th.
Björnsson listfræðings. Sólveig var
dóttir Björns, prests á Þingvöllum,
bróður Einars, langafa Halldóru,
móður Örlygs Sigurössonar hstmál-
ara. Björn var sonur Páls prests á
Þingvöllum, Þorlákssonar, bróður
Jóns prests og skálds á Bægisá.
Móðir Björns var Sigríður Stefáns-
dóttir, prests á Breiöabólstað í
Fljótslúíð, Högnasonar „prestafoð-
ur“, prests á Breiðabólstað, Sigurðs-
sonar. Móðir Sólveigar var Þórunn
Björnsdóttir, systir Snæbjarnar,
langafa Haraldar Böðvarssonar á
Akranesi. Annar bróðir Þórunnar
var Benedikt, faðir Bjarna, langafa
Sturlu Friðrikssonar erfðafræðings
og Gunnars Bjarnasonar ráðunaut-
ar.
Móðir Steinunnar var Guðrún,
systir Vilborgar, ömmu Vigdísar
Finnbogadóttur. Guðrún var dóttir
Guðna, b. á Keldum í Mosfellssveit,
bróður Þorvarðar, langafa Margrét-
ar Sigurðardóttur, móður Bjargar
Sveinsdóttur myndlistarmanns.
Guöni var sonur Guðna, b. í
Saurbæ í Ölfusi, bróður Sigríðar,
langömmu Halldórs Laxness og
Guðna Jónssonar prófessors, fóður
Bjarna prófessors og Jóns dósents.
Guðni var sonur Gísla, b. í Reykja-
koti í Ölfusi, bróður Guðmundar,
afa Ólafs, afa Þórhalls Vilmundar-
sonar prófessors og langafa Ólafs
Ólafssonar landlæknis og Ustfræð-
inganna Gunnars Kvarans og Ólafs
Eybjörg Dóra Sigurpálsdóttir.
Kvarans. Annar bróðir Guðna var
Jón, langafi Konráðs, langafa Júl-
íusar Hafsteins borgarfulltrúa og
Kjartans Lárussonar, forstjóra
Ferðaskrifstofu ríkisins. Systir
Guðna var Ingveldur, langamma
Valgerðar, ömmu Guðmundar H.
Garðarssonar alþingismanns og
Vals Valssonar bankastjóra. Ing-
veldur var einnig langamma Kol-
beins, föður Arinbjarnar læknis. .
Önnur systir Guðna var Þjóðbjörg,
langamma Guðmundar, föður
Eddu, konu Steingríms Hermanns-
sonar. Guðni var sonur Guðna, b. í
Reykjakoti, Jónssonar, ættföður
Reykjakotsættarinnar. Móðir Guð-
rúnar var Ástríður Finnsdóttir,
systir Guðjóns, afa Magneu Hjálm-
arsdóttur, kennara í Rvík.
Eyglo Gamalíelsdóttir
Eygló Gamalíelsdóttir, Sólvangi,
Hafnarfirði, verður áttræð á morg-
un. Eygló er fædd í Reykjavík og
ólst þar upp til tíu ára aldurs er hún
fluttist til Hafnarfjarðar. Hún giftist
og fluttist til Akraness 1932 en flutt-
ist aftur til Hafnarfjarðar 1968 og
hefur búið þar síðan. Eygló starfaði
mikið í Kvenfélagi Akraness á með-
an hún bjó þar, var m.a. í stjóm
þess. Einnig í Sambandi borgfirskra
kvenna. Eygló giftist 30. desember
1932 Finni Amasyni, f. 8. maí 1905,
d. 24. maí 1980, byggingameistara á
Akranesi og síðar eftirlitsmanni
með prestssetrum. Foreldrar Finns
voru Árni Árnason, f. 14. maí 1875,
d. 3. febrúar 1961, trésmiður á Akra-
nesi, og kona hans, Margrét Finns-
dóttir, f. 3. nóvember 1880, d. 31.
desember 1964. Börn Eyglóar og
Finns eru Ámi Grétar, f. 3. ágúst
1934, hrl. í Hafnarfirði, kvæntur Sig-
ríði Oliversdóttur, börn þeirra eru
Lovísa, f. 29. september 1959, gift
Viðari Péturssyni, framkvæmda-
stjóra í Hafnarfirði, börn þeirra eru
Sigríður Erla og Pétur, og Ingibjörg,
f. 21. nóvember 1972, nemandi; Finn-
ur, f. 12. september 1961, viðskipta-
fræðingur í Hafnarfirði, kvæntur
Önnu Maríu Urbancic, sonur þeirra
er Árni Grétar; Anna Sigurbjörg, f.
11. júní 1940, ritari í fjármálaráðu-
neytinu, gift Trausta Þorsteinssyni,
sonur þeirra er Finnur, f. 3. janúar
1964, málari í Rvík, og Trausti, f. 14.
apríl 1947, rafvirki í Rvík, kvæntur
Guðrúnu Stellu Gunnarsdóttur rit-
ara, börn þeirra eru Erla, f. 13. nóv-
ember 1965, sálfræðinemi, Eygló, f.
29. maí 1971, og Gunnar, f. 22. mars
1973. Bræður Eyglóar eru Kristján,
Eygló Gamalíelsdóttir.
f. 4. desember 1912, d. 26. mars 1986,
póstafgeiðslumaður í Hafnarfirði,
kvæntur Gunnþóru Björnsdóttur,
vistmanni á Sólvangi, og Lárus, f.
13. október 1915, starfsmaður Raf-
veitu Hafnarfjaröar, fyrri kona hans
var Sólveig Guðmundsdóttir, sem
er látin, en síðari kona hans er Jó-
hanna Loftsdóttir. Systir Eyglóar,
sammæðra, var Ingibjörg, f. 21. fe-
brúar 1907, d. 12. febrúar 1958. Faðir
hennar var Sigurður Þórðarson, b.
í Árdal í Andakílshreppi.
Foreldrar Eyglóar voru Gamalíel
Jónsson, f. 27. júlí 1885, d. 4. júh 1964,
sjómaður og verkamaður í Hafnar-
firði, og kona hans, Sigurbjörg Anna
Björnsdóttir, f. 3. október 1880, d. 19.
mars 1951.
85 ára
Sigrún Bjarnadóttir,
Höfðastíg 7, Bolungarvík.
75 ára
Gunnar Knútur Proppé,
Álfhólsvegi4A, Kópavogi.
Sigurþór Halldórsson,
Háaleitisbraut 20, Reykjavík.
70 ára
Ragnar Magnússon,
Keldulandi 11, Reykjavík.
Rebekka Jónsdóttir,
Tangagötu 8, Isafirði.
ÓlafurM. Magnússon,
Grænuhhð 18,Reykjavík.
60 ára
ÓIöfÞorbergsdóttir,
Hófgerði 26, Kópavogi.
Sigurlaug Stefánsdóttir.
ið 22. september
Sigurður Steindórsson,
Ljósheimum 16A, Reykjavik.
Halldóra Ingimundardóttir,
Bröttukinn 10, Hafnarfirði.
Guðlaug K. Ámadóttir,
Möðrufelli 11, Reykjavík.
Sigurbjörg Gísladóttir,
Birkihvammi 12, Kópavogi.
40 ára
Þuríður Kristjánsdóttir,
Hraunbæ 174, Reykjavík.
Sesselja Ingjaldsdóttir,
Safamýri 50, Reykjavík.
Jónina Sigurðardóttir,
Ægisgötu 14A, Ólafsfirði.
Ásgerður Björnsdóttir,
Birkihrauni9, Skútustaðahreppi.
Sigurgeir Aðalsteinssoh,
Sigtúni 7, Patreksfirði.
Gunnar H. Gunnarsson,
Aflagranda 38, Reykjavík.
Ásdís Gunnarsdóttir,
Ljárskógum 18, Reykjavík.
Linda Gill,
Norðurstíg 3, Reykjavík.
Sigurlaug
Stefánsdóttir
Sigurlaug Stefánsdóttir, V oga-
tungu 31A, Kópavogi, verður sjötíu
og fimm ára þriðj udaginn 25.9. nk.
Sigurlaug tekur á móti gestum í
Þinghóli, Hamraborg í Kópavogi,
laugardaginn 22.9. milli klukkan 16
og 19.
Andlát
Valborg Haraldsdóttir frá Kolfreyju-
stað, Langagerði 22, lést í Borgar-
spítalanum 20. september.
Alda ísafold Guðjónsdóttir frá Fagur-
hóli lést aðfaranótt 20. september í
sjúkrahúsi Vestmannaeyja.
Axel Davíðsson, Vesturgötu 40,
Keflavík, lést af slysförum 18. sept-
ember.
Tilkyimingar
Sinfóníuhljómsveit Æskunnar
Þegar haustar og skólamir byrja fer Sin-
fóníuhljómsveit Æskunnar á stjá. Nem-
endur hljómsveitarinnar æfa nú á hverj-
um degi í fullskipaðri sinfóníuhljómsveit,
þrjá til timm tima á dag og munu halda
þvi áfram næstu tíu daga. A námskeiðinu
er verið að æfa verk eftir Debussy, Duk-
as, Stravinsky og Satie. Stjórnandi hljóm-
sveitarinnar er nú sem endranær Paul
Zukofsky og mun þetta vera i tólfta skipt-
ið sem hann sækir Sinfóníuhljómsveit
Æskunnar heim síðan 1985. Tónleikar
hljómsveitarinnar verða sunnudaginn
30. september og hefjast kl. 14.
Félagarúr JC
Félagar úr JC munu í dag, 21. september,
hefla söluátak á „Nýju söngbókinni" en
hún er gefin út til styrktar Samtökum
áhugafólks um alnæmisvanda. í bókinni
eru yfir 320 söngvar, allt frá elstu til
þeirra nýjustu, má þar m.a. nefna Þjóð-
söng íslendinga, Áliheiði Björk, Eitt lag
enn og allt þar á milli.
A Capella kvartettinn
.Söngur og imdirleikur í Hallgrímskirkju
í dag, laugardag, kl. 16. Ókeypis aðgang-
ur. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á morg-
un, sunnudag, kl. 14 fijálst spil og tafl,
kl. 20 dansað.
t
Útför
Hjörleifs Diðrikssonar,
Hverfisgötu 87,
ferfram frá Bústaðakirkju mánudaginn 24. september
kl. 13.30.