Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Page 38
50 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990. Afmæli Stefán Jón Bjömsson Stefán Jón Björnsson, fyrrv. skrif- stofustjóri Skattstofu Reykjavíkur, til heimilis aö Úthlíð 3, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Stefán fæddist að Þverá í Hallár- dal í Vindhælishreppi í Austur- Húnavatnssýslu. Hann ólst upp í foreldrahúsum að Þverá og í Syðri-Ey í Vinhæhshreppi til átta ára aldurs en missti þá móður sína TEPPAÞURRHREINSUN SKÚFUR notar þurrhreinsikerfið HOST, sem yfir 100 teppaframleiðendur mæla sérstaklega með. HOST leysir upp, dregur og þerrar öll óhreinindi, alveg niður í botn teppisins. ÞAÐ RAUNVERULEGA DJÚPHREINSAR! Engin bleyta, teppið er tilbúið til notkunar strax að lokinní hreinsun. HOST-kerfið er sérlega hentugt þegar vandmeðfarin ullarteppi skulu hreinsuð, þ.a.m. austurlenskar mottur. SKUFUR Sími: 678812 REYNIÐ VIÐSKIPTIN FROMM BINDIVELAR Fyrir verksmiðjur og skip, til að binda bretti, bagga, kassa ofl. Vélin er hengd upp, sem hefur marga kosti: ❖ Hún er lauflétt og auðveld í notkun. ❖ Tekur ekkert gólf pláss, en er þó alltaf í seilingarfjarlægð. ❖ Engin hætta á að óhreinindi eða salt fari ofan í suðu hausinn, eins og á borðvélum. * O.fl....o.fl....o.fl... Hægt að hengja upp fyrir mismunandi stöður sbr. 1, 2 og 3 Hér fyrir neðan. Sjón er söguríkari. Heimsækið okkur á sjávarútvegssýninguna. Kynningarverð. Við gefum 15% afslátt sé pöntun staðfest á sjávarútvegssýningunni. krókhálsi 6 sími 67 1900 og ólst upp eftir það hjá móðursyst- ur sinni, Vilborgu Jónsdóttur, og manni hennar, Benedikt Eyjólfs- syni, að Þorvaldsstöðum í Skriödal í Suður-Múlasýslu. Stefán stundaði nám við Alþýðu- skólann á Eiðum 1922-23, var í einkaskóla Benedikts Blöndal í Mjóanesi á Fljótsdalshérði 1923-24 og við nám í Samvinnuskólanum í Reykjavík 1926-27. Hann stundaði verslunarstörf við Kaupfélag Austur-Húnavatnssýslu á Blönduósi 1928-30 en hóf þá störf við Skattstofu Reykjavíkur. Stefán vann eitt sumar við endurskoðun- ardeild fjármálaráðuneytisins en var skrifstofustjóri Skattstofu Reykjavíkur 1940-75 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þó sinnti hann almennum skrifstofu- störfum til ársins 1977. Stefán var kjörinn í varastjórn Starfsmannafélags ríkisstofnana 1939. Hann hefur starfað í Lions- hreyfmgunni frá 1952 og er spjald- skrárritari Lionsklúbbs Reykjavík- ur. Þá var hann kjörinn endur- skoðandi Loftleiða hf. frá 1944-73 og var kjörinn endurskoöandi Flugleiða hf. þar til kjör endur- skoöenda var þar aflagt. Stefán kvæntist 7.10.1932 Láru Pálsdóttur, f. 6.12.1908, d. 10.5.1953, símamey, en hún var dóttir Páls Tómassonar stýrimanns og Önnu Jóhannsdóttur húsmóður. Páll var bróðir Magnúsar Kjaran stórkaup- manns. Önnur kona Stefáns var Anna Pétursdóttir, f. 30.3.1917, húsmóðir, en þau slitu samvistum. Þriöja kona Stefáns er Sigríður Svava Fanndal, f. 5.9.1913, húsmóð- ir, dóttir Sigurðar Fanndal, kaup- manns á Siglufirði, og Soffiu Gísla- dóttur Fanndal, húsmóður. Börn Stefáns og Láru Pálsdóttur eru Hrafnhildur Elín, f. 21.5.1941, húsmóðir, gift Kenneth Cummings en þau eru búsett í Orlando á Flórída í Bandaríkjunum og eiga þrjú börn og sex barnabörn; Björn, f. 28.10.1943, flugumferðarstjóri, búsettur í Garöabæ, kvæntur Hrefnu Jónsdóttur og eiga þau fjög- ur börn og eitt barnabarn; Páll Magnús, f. 16.3.1949, læknir, bú- settur í Reykjavík, kvæntur Hildi Sigurðardóttur og eiga þau fjóra syni. Systkini Stefáns: Sigurlaug, f. 3.6. 1896, d. 16.1.1929, húsmóðir í Vest- mannaeyjum, gift Þorsteini John- son, kaupmanni og bíóstjóra og eignuðust þau eitt barn; Árni Stef- Stefán Jón Björnsson. án, f. 14.4.1898, d. 31.3.1978, trygg- ingafræðingur, kvæntur Sigríði Björnsdóttur og eignuðust þau tvö börn; Þórarinn, f. 27.6.1903, d. 24.12. 1967, skipherra, var fyrst kvæntur Láru Hafstein og eignuðust þau tvö börn en seinni kona hans var Rut Björnsson; Ólafur Austfjörð, f. 29.4. 1912, d. 22.2.1958, skrifstofumaður, kvæntur Ingibjörgu Þorsteinsdótt- ur og eignuðust þau einn son. Foreldrar Stefáns: Björn Árna- son, f. 22.12.1870, d. 4.8.1932, bóndi og hreppstjóri frá Þverá, og kona hans, Þórey Jónsdóttir, f. 16.12. 1868, d. 22.3.1914, húsmóðir og kennari. Sigurður Karlsson Sigurður Karlsson brunavörður, Bjarkargötu 14, Reykjavík, er sex- tugurídag. Sigurður fæddist við Bjarkargöt- una í Reykjavík og hefur átt þar heima alla tíð. Hann lauk prófi og öðlaðist meistararéttindi í rafvirkj- un og rafvélavirkjun árið 1952 og starfaði við þær greinar til ársins 1962. Auk þess starfaði hann í vara- Uði slökkviliðsins í Reykjavík frá 1948. Sigurður hóf síðan fullt starf hjá slökkviliðinu 1962 og hefur starfaöþarsíðan. Kona Sigurðar er Líney Hulda Gestsdóttir, f. 2. nóvember 1935, hjúkrunarkona, 6n foreldrar henn- ar voru Gestur Sölvason og Krist- jana Steinunn Ingimundardóttir. Systkini Sigurðar voru tvö en þau eru bæði látin. Þau voru Guðmund- ur f. 31. ágúst 1919, d. 13. mars 1979, brunavörður og blaðamaður, var kvæntur Önnu Guðnýju Jónsdóttur og eignuðust þau fiögur börn, og Anna Kristín, f. 4. júlí 1929, d. 15. janúar 1987, skrifstofumaður, var gift Kristni P. Michelsen og eignuö- ust þaufiögurbörn. Foreldrar Sigurðar voru Karl Óskar Bjarnason, f. 16. október 1895, d. 25. mars 1960, varaslökkviliðs- stjóri í Reykjavík, og kona hans, Kristín Lovísa Sigurðardóttir, f. 23. mars 1898, d. 31. október 1971, al- þirigismaður í Reykjavík. Móðursystir Sigurðar var Ólafía, móðir Sveins Björnssonar stór- kaupmanns. Karl Óskar var sonur Bjama, b. á Valdastöðum í Kjós, síð- ar trésmiðs í Reykjavík, bróður Jak- obínu, móður Lofts ljósmyndara, Gísla gerlafræðings og Guðríðar, móður Guðmundar Vignis Jósefs- sonar gjaldheimtustjóra. Önnur systir Bjarna var Ingibjörg, amma Sigurjóns Rist vatnamælinga- manns. Þriðja systir Bjarna var Katrín, amma Birgis Þorgilssonar, feröamálastjóra. Bjarni var sonur Jakobs, b. á Valdastöðum, bróður Björns á Bakka viö Reykjavík, afa Bjargar, ömmu Birgis ísleifs Gunn- arssonar alþingismanns. Móðir Bjarna var Guðbjörg Guðmunds- dóttir ljósmóðir. Móðir Karls Óskar var Sólveig ljósmóðir Ólafsdóttir, b. á Hhði í Reykjavík, Magnússon- ar, í Örfirisey, Olafssonar. Móðir Sólveigar var Helga Þorláksdóttir, b. á Löngumýri í Svínadal, Skúla- sonar. Meðal móðursystkina Sigurðar, samfeðra, má nefna Þorgrím, pró- fast á Staðastað, Önnu, forstöðu- mann Kvennasögusafns íslands, Sigurmar Ásberg, borgarfógeta í Reykjavík, og Valborgu, fyrrv. Sigurður Karlsson. skólastjóra Fóstruskólans. Kristín Lovísa var dóttir Sigurðar, skólastjóra á Hvítárbakka í Borgar- firði, Þórólfssonar, b. á Skriðnafelli á Barðaströnd, Einarssonar, skip- stjóra og b. á Hreggsstöðum á ■ Barðaströnd, Jónssonar, b. á Hreggsstöðum, Einarssonar. Móðir Jóns var Ástríður Sveinsdóttir, systir Guðlaugs, langafa Páls, lang- afa Ólafs Ólafssonar landlæknis. Móðir Kristínar Lovísu var Anna Guðmundsdóttir, skipstjóra í Hafn- arfirði, Ólafssonar, og konu hans, Kristínar Lovísu Árnadóttur. Aðalsteinn Helgason Aðalsteinn Helgason, fyrrv. bóndi að Króksstöðum í Eyjafirði, nú til heimilis að Mjósundi 13, Hafnar- firði, verður áttræður á morgun. Aðalsteinn fæddist að Króksstöð- um og ólst þar upp. Hann tók viö búi foreldra sinna og var bóndi að Króksstöðum til ársins 1980. Þá flutti hann til Ytri-Njarðvíkur þar sem hann stundaði fiskvinnslustörf um sjö ára skeið en flutti síðan til Hafnarfiarðar þar sem hann býr enn. Aðalsteinn kvæntist 1948 Arnfríði Pálsdóttur, dóttur Páls Vigfússonar og Maríu Stefánsdóttur. Böm Aðalsteins og Arnfríðar eru Helgi Pálmar, f. 3.4.1948, bifreiðar- stjóri, kvæntur Ragnheiði Bene- diktsdóttur sjúkraliða og eiga þau tvö börn, Sigríði og Benedikt; Smári Pálmar, f. 23.3.1950, viðgerðarmað- ur, kvæntur Gerði Garðarsdóttur verkstjóra og eiga þau þrjú börn, Garðar, Amfríði og Haildóru Björk; Sölvi Halldór, f. 14.1.1954, plötu- smiður, kvæntur Lindu Valiente og eiga þau eina dóttur, Palmolive; Guörún Ragna, f. 16.2.1955, verk- stjóri, gift Jóhannesi Sigurðssyni skipstjóra og eiga þau fiögur börn, Hinrik Sigurð, Steinunni Örnu, Söru Föng og Arnfríði Sædísi; Berg- þór Páll, f. 2.2.1962, kvæntur Hólm- fríði Dóru Kristjánsdóttur skrif- stofumanni og eiga þau tvö börn, Aðalstein Erni og Önnu Sif. Aðalsteinn átti sex systkini og er ein systir hans á lífi, Sigríður, hús- móðir á Akureyri. Hin voru Sig- tryggur Jón gullsmiður, Jónína og þrír bræöur sem allir dóu ungir, Sölvi, SöM og Einar. Foreldrar Aðalsteins voru Helgi Helgason, bóndi á Króksstöðum, og kona hans, Halldóra Sölvadóttir. Helgi var sonur Helga Kolbeins- sonar, b. að Litla-Eyrarlandi og síð- an að Kaupangi, og konu hans, Al- dísarEinarsdóttur. Systir Halldóru var Jónína, amma Sigurðar Sigurðarsonar dýralækn- Aöalsteinn Helgason. is. Halldóra var dóttir Sölva, b. í Kaupangi í Eyjafirði, Magnússonar, b. í Nesi í Loðmundarfirði, Einars- sonar. Móðir Halldóru var Anna Steinunn Einarsdóttir frá Brú á Jökuldal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.