Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1990, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990.
3
Fréttir
Lögregla á Selfossi lagði hald á skotvopn:
Veiða í leyf isleysi
... alla daga
^ÉlI^ARNARFLUG
INNANLANDS hf.
Reykjavikurflugvelli - sími 29577
Lögreglu á Selfossi var þrisvar
sinnum tilkynnt um óvarlega með-
ferð skotvopna um helgina.
Á fostudag var tilkynnt um menn
sem voru að skjóta á endur nálægt
bænum Skúfslæk í Villingaholts-
hreppi. Lögreglan fór á vettvang og
lagði hald á eina byssu þar sem eig-
andinn gat ekki sýnt fram á að hann
hefði byssuleyfi.
Síðdegis á laugardag barst kvörtun
frá heimamönnum í Öndverðarnesi
í Grímsnesi um aö þar væru menn
aö skjóta úr byssum í heimildar-
leysi. Byssumennirnir voru sagðir
vera á tiltekinni bifreið. Þeir lögðu á
flótta og höfðu þeir komist undan
þegar lögreglan kom á staðinn.
Á sunnudag var síðan tilkynnt um
aðila sem miðuðu byssu að fólki á
gangi í Hveragerði. Ekki er vitað um
hvers kyns vopn var að ræða enda
náðist ekki til þeirra sem tilkynnt
var um.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
hefur veriö töluvert um kvartanir á
þessum árstíma vegna manna sem
hafa verið að skjóta á fugla í heimild-
arleysi.
Einnig hefur komið fyrir aö byssu-
menn hafa fengið leyfl til að skjóta á
Torfþökur á Eyrarbakkavegl:
Taldi sig sjá kvik-
f énað og end-
aði úti í skurði
- mikiðumumferðaróhöppíÁrnessýslu
Óvenjumörg umferðaróhöpp
urðu í Árnessýslu um hélgina. A
laugardagskvöldið endaði bifreið
úti í skurði við Eyrarbakkaveg.
Ökumanninum hafði skyndilega
fundist að eitthvað kvikt væri á
veginum í myrkrinu. Hann
sveigði frá en missti við það
stjórn á bílnum með fyrrgreind-
um afleiðingum. í ljós kom að það
sem ökumaður taldi vera kvik-
fénað voru toríþökur sem höfðu
fallið á veginn af vörubílspalli.
Ökumanninn sakaði ekki en bíll
hans er töluvert skemmdur. Lög-
reglan segir að miki'll misbrestur
sé á því að vörubílstjórar gangi
nægilega vel frá farmi þegar ekið
er á milli staða.
A föstudagskvöld mjaðmar-
grindarbrotnaði 18 ára gamall
ökumaður vélhjóls. Hann lenti í
árekstri við bíl á Selfossi. Slysið
varð á mótum Eyrarvegs og Þór-
istúns. Slysið var ekki tilkynnt
til lögreglu fyrr en einum sólar-
hring síðar. Málið er í rannsókn.
Sama kvöld var bifreið ekið á
hross á Suðurlandsvegi á móts
við Bitru í Hraungerðishreppi.
Hrossið drapst en engin slys urðu
á mönnum. Bíllinn skemmdist
hins vegar mjög mikið. Tvö önn-
ur umferðaróhöpp urðu á svæði
lögreglunnar á Selfossi um helg-
ina en í þeim urðu engin meiðsl
á fólki.
-ÓTT
þá stundum komið til deilna á milli
landeigenda innbyröis. -ÓTT
landi ákveðinna bæja en síðan fært
sig yfir á aðrar landareignir. Hefur
Komið og skoðið
okkar mikla
húsgagnaúrval
Gott vevð
góðir gveiðsluskilmálar
******
Opið
laugardaga til kl. 17
sunnudaga kl. 14-17
TMHÚSGÖGN
SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822
Vegna mikillar sölu á nýjum bifreiðum og uppítök-
um á þeim eldri eigum við óvenjumikið og gott
úrval af notuðum bifreiðum sem seldar verða á
uppítökuverði (kostnaðarverði) nokkra næstu
daga.
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ: Verð áður ognú
Dodge Aries ’88 850 þús. 725 þús.
Dodge Aries ’87 760 þús. 650 þús.
Plymouth Reliant ’87 820 þús. 690 þús.
Ford Sierra 1600 ’86 570 þús. 490 þús.
Oldsm. Sierra ’86 860 þús. 710 þús.
Peugeot 405 GR '89 1190 þús. 990 þús.
Lada Sport ’88 560 þús. 480 þús.
JÖFUR HF
Opíð
Mánud.-föstud. 9-18
Laugardag 13-17
NYBYLAVEGI 2, KOPAVOGI, SIMI (91) 42600