Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1990, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafnarfjörður:
Lögreglan
vaktar
Reiknistof-
una hf.
Lögreglan stóð vörð við Reiknistof-
una hf. við Flatahraun í Hafnarfirði
í morgun. Karlmaður kom í fyrir-
tækið í gær og hótaði starfsmönnum
lífláti. Auk þess hótaöi hann að
sprengja staðinn upp. Maðurinn
sagðist ætla aö koma aftur í dag.
Atburðurinn hefur verið kærður til
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Að sögn Gylfa Sveinssonar er hér
ekki um að ræða einu hótunina sem
starfsmenn fyrirtækisins hafa fengið
og sé full ástæða til að taka hana
aivarlega. Reiknistofan hf. hefur út-
búið svokallaða svarta lista með
nöfnum' þeirra íslendinga sem fá
dóm vegna vanefnda. Þrátt fyrir að
listarnir hafl verið lengi fyrir hendi
„virðist vera kynt undir óánægjunni
núna,“ segir Gylfi Sveinsson.
-ÓTT
Akureyri:
Fimm bílar
i
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Fimm bíla árekstrar eru sem betur
fer ekki algengir á Akureyri fremur
en annars staðar en einn slíkur varð
þó þar í gærdag.
Ökumaður bifreiðar stöðvaði við
gangbraut á Hörgárbraut og skipti
engum togum að fjórar bifreiðar sem
komu á eftir.skullu allar saman og á
bifreiðinni sem hafði stöðvað við
gangbrautina. 11 ára stúlka, sem var
farþegi í einni bifreiðinni, var ílutt á
sjúkrahús en bifreiðarnar eru ekki
mikið skemmdar.
Maður slas-
aðist í
Straumsvík
Maður á sextugsaldri slasaðist i
kerskála í álverinu í Straumsvík í
gærkvöldi. Hann stjórnaði lyftara og
var stórt kar á göfflunum. Karið seig
síðan niður á gólf án þess að maður-
inn veitti því athygli. Við höggið skall
maðurinn fram í rúðu lyftarans.
Hann fékk einnig hnykk í bakið.
Maðurinn var þó ekki talinn alvar-
lega slasaður. -ÓTT
LOKI
Erekki réttaðfara að
þurrka rykið af gömlu
ástarbréfunum.
Allt að þrjár
milljónir f ást
fyrir hvort bréf
Nokkur bréf sem send voru frá
Reykjavík til Kaupmannahafnar
árið 1870 fundust nýlega í tösku
sem geymd hefur verið á háalofti i
Danmörku i meira en eitt hundrað
ár. Um er að ræða einkabréf sem
send hafa verið dönskum manni,
herra Thomsen, í Kaupmannahöfn.
Að sögn viðmælanda DV, hjá
uppboðsfyrirtækinu Skovgaards
Auktioner í Kaupmannahöfn, eru
stóldingafrímerki á tveímur ís-
lensku bréfanna sem gerir þau
mun verðmætari en önnur bréf
sem fundust í töskunni, frá Noregi
og Færeyjum.
Á uppboði geta fengist allt að 300
þúsund danskar krónur fy rir hvort
skildingabréfanna eða sem nemur
um þremur milljónum íslenskra
króna. Bréfm eru reyndar ekki
stimpluð í Reykjavik heldur við
komuna til Kaupmannahafnar en
þangað komu þau með skipi. Hjá
Skovgaards Auktioner var DV tjáð
að íslenskur stimpill hefði aukið
verðgildi skildirfgabréfanna um-
talsvert enda hefði þá veriö um
meiriháttar viðburð í heimi frí-
merkjasafnara að ræða.
Ekki fengust nákvæmar upplýs-
ingar um hvar bréfin hefðu fundist
eða hver sendi þau. Það mun fyrst
verða upplýst að afloknu uppboð-
inu 13. nóvember næstkomandi.
í töskunni voru um 20 bréf frá
íslandi, Noregi og Færeyjum og
hafa þau vakíð mikla athygh
áhugasamra safnara. Þrátt fyrir
meira en eitt hundrað ára veru í
töskunni á háaloftinu þykja bréfm
mjög vel með farin.
Verðgildi þeírra er misjafnt en
fyrir verðminnstu bréfin ætti að
fást u.þ.b 100 þúsund íslenskar
krónur.
-hlli
Veðrið á morgun:
Víða næt-
urfrost
A morgun verður austlæg átt
um vestanvert landiö en fremur
hæg norðvestlæg eða breytileg átt
um landið austanvert. Dálítil él á
annesjum norðaustanlands en
skúrir suðvestanlands þegar líð-
ur á daginn, annars þurrt að
mestu og víða nokkuð bjart veð-
ur. Hiti 1-5 stig að deginum en
víöa næturfrost.
„Við verðum að sækja þessa hluti
fyrir dómstólum vegna þess að við ,
teljum að þeir hafi brotið það sem
stjórnarskráin á að verja. Stjórnar-
skráin á að verja frelsi félagasam-
taka og rétt manna og við teljum að i
með bráðabirgðalögunum hafi þeir ■
brotið þennan rétt. Auðvitað verðum ■
við bara að sækja það fyrir dómstól-
um,“ sagði Páll Halldórsson, formað-
ur Bandalags háskólamenntaðra rík-
isstarfsmanna, en í dag verður lögð '
fram stefna á ríkisstjórnina fyrir ,
dómstólum.
Þar verður þingfest mál BHMR þar j
sem þess verður krafíst að bráða-
birgðalögin verði dæmd ógild. Krafa ,
BHMR veröur byggð á því aö ríkis-
stjórnin hafi brotið fjórar greinar i
stjórnarskrárinnar. Það eru 2., 28.,
67. og 73. grein stjórnarskrárinnar.
Það er fjármálaráðherra sem verður j
stefnt fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
Einnig verður send kæra til Al-
þjóðlegu vinnumálastofnunarinnar j
sem verður byggð á ákvæðum um
samningsrétt og félagafrelsi.
• ' -SMJ
Álitsgerð um álmálið: ' a
Talin koma úr W
innsta kjarna
Alþýðu-
bandalagsins
Þau eru mörg og ólik mannanna störfin. Öll munu þau vera miklvæg en meðan fjölmargir fá varla á sig rykkorn
á venjulegum vinnudegi eru aðrir sem nánast vaða alls kyns óhreinindi upp í háls. Ef ekki kæmu til vönduð hlifð-
arföt væri sjálfsagt ekki verandi í óhreinindunum til lengdar. Þannig er það sennilega með hann þennan sem var
að vinna við sandblástur þegar small í myndavélinni. DV-mynd GVA
Alit ótilgreinds hagfræðingahóps
um álmálið, sem greint var frá í frétt-
um Sjónvarpsins á sunnudag, hefur
valdið umræðum og deilum. DV hef-
ur leitað til hagfræðinga og sérfræð-
inga til að fá uppgefið hverjir stóðu
að álitsgerðinni.
Að mati flestra sem DV hefur leitað
til mun „álitsgerðin" vera ættuð úr
innsta kjarna Alþýðubandalagsins
en sem kunnugt er er þar mikil and-
staða gegn álverinu. í þessu sam-
bandi hafa einkum verið nefnd nöfn
Ragnars Árnasonar, fyrrum ráðgjafa
Hjörleifs Guttormssonar í iðnaðar-
ráðuneytinu, Finnboga Jónssonar
framkvæmdastjóra, en hann á sæti í
stjórn Landsvirkjunar, Birgis
Björns, hagfræðings og fram-
kvæmdastjóra BHMR, Sigurjóns Pét-
urssonar og Inga R. Helgasonar.
Hvorki Ragnar né Finnbogi vildu
kannast við að hafa samið álitið er
DV bar þetta undir þá. Þeir vildu þó
hvorki játa né neita hvort þeir hefðu
nýverið átt í viðræðum við ofan-
greinda aðila.
-kaa
■h
ALÞJÓÐA
LIFTRY GGINGARFÉLAGIÐ HF.
LA(>MULI 5 - RF.YKJAVÍK
slmi 681644
4