Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990. KeiluboöP jt } r M. JL Vf Vr • ;:í 100 kr. leikurinn frá kl. 12-17 mánud. - föstud. Keiiusalurinn Öskjuhlíð S. 621599 Laus staða Laus er til umsóknar staða sérfræðings í íslenskri málfræði við íslenska málstöð. Verkefni einkum á sviði hagnýtrar málfræði, málfarsleg ráðgjöf og fræðsla og ritstjórnarstörf. Til sérfræðings verða gerð- ar sams konar kröfur um menntun og til lektors í íslenskri málfræði. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og náms- feril og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavík, fyrir 9. nóvember nk. Menntamálaráðuneytið, 11. október 1990 INNANHÚSS- ARKITEKTÚR í frítíma yðar með bréfaskriftum Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota. Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir, vegg- klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús- gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl. Eg óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ Nafn ......................... Heimilisfang ....................... Akademisk Brevskole Jyllandsvej 15 • Postboks 234 2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark EinHell 220/25 W/1 Loftpressa ásamt verkfærasetti Kr. 25.974,- Skeljungsbúðin SíÖumúla33 símar 603878 og 38125 Hinhliðm Ekkert er leiðinlegt - segir Ólöf Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri íslenska dansflokksins Ólöf Þórarinsdóttir tók við sem framkvæmdastjóri ís- lenska dansflokksins 4. september en í næstu viku verö- ur fyrsta frumsýning eftir að hún tók við. Það er Pétur og úlfurinn sem dansflokkurinn ætlar að sýna fyrir alla fjölskylduna undir stjóm bresks danshöfundar. Að sögn Ólafar er hér um að ræöa mjög skemmtilega sýningu. Ólöf hefur verið við nám í Seattle í Bandaríkjunum und- anfarin íjögur ár en hún lauk mastergráðu í Non Profit eða stjóm í opinberu fyrirtæki sem ekki er rekið með hagnaðarvon, t.d. á sviði lista eða líknarmála. Hún segir að stjórn íslenska dansflokksins sé mjög áhugavert starf þó hún sé enn að koma sér inn í málefni flokksins og hvað hafl verið að gerast í listalífinu á íslandi á undan- fömum árum. Það er Ólöf sem sýnir hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Ólöf Þórarinsdóttir. Fæðingardagur og ár: 3. október 1952. Maki: Óm Öskarsson. Börn: Anna, 15 ára. Bifreið: Ef þú hefðir spurt mig fyrir nokkrum dögum heföi ég sagt strætó en ég var að kaupa mér Fiat Ritmo, árg. 1986. Starf: Framkvæmdastjóri íslenska dansflokksins. Laun: Samkvæmt launataxta opinberra starfsmanna. Áhugamál: Það er margt sem ég hef áhuga á, t.d. almenn- ar listir og einnig að vera með fjölskyldunni. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Þar sem ég er nýkomin heim frá námi er ég ekki enn komin inn í allt þetta sem í boði er og hef ekki spilað í lottóinu. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Góð spurning. Mér fmnst satt að segja mjög skemmtilegt í vinnunni og að stefna að einhverju í sambandi við hana. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Úffl Mér finnst bara ekkert neitt sérstaklega leiðinlegt þessa stundina, nema þá kannski helst að þurfa að eiga við þflaða þíla og koma þeim í viðgerð. Uppáhaldsmatur: Ég er grænmetisæta svo það er ekkert kjöt á mínum matseðli en fiskur er það besta sem ég fæ. Uppáhaldsdrykkur: Ætli ég verði ekki að segja te. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Ég fylgdist með íslenska handþoltaiandsliðinu þegar það lék í Seattle fyrir stuttu og hafði svakalega gaman af. Þaö er mjög gott lið. Uppáhaldstímarit: Times. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð fyrir utan eigin- manninn? Ég hef núlítið pælt í því en ég man þó eftir frönskum sólódansara, Michael, sem ég sá í ballettinum í Seattle. Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórninni? Ég get lítið dæmt um hana vegna fjarveru minnar og get því ekki svarað spumingunni. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Reyndar eru þær margar en þó einna helst tvær konur, Isabella AUi- ende og Benazir Bhutto, fyrrum forsætisráðherra í Pa- Ólöf Þórarinsdóttir. DV-mynd Brynjar Gauti kistan. Uppáhaldsleikari: Flosi Ólafsson. Uppáhaldsleikkona: Meryl Streep hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér. Uppáhaldssöngvari: Jose Carreras. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Gorbatsjov. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Grettir. Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég hef lítið fylgst með sjón- varpinu hér síðan ég kom en í Bandaríkjunum horfði ég mest á Public TV sem hafði upp á að bjóða menningar-, fræðslu- og vísindaefni. Þetta var mjög góð fróðleiksstöð. Ertu hlynnt eða andvíg veru varnarliðsins hér á landi? Nú eru þeir tímar að ég tel ekki þörf á her. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás eitt. Uppáhaldsútvarpsmaður: Ég veit ekki neitt um útvarps- menn en mér þótti Magnús Bjarnfreðsson alltaf góður. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Ég hef ekki afruglara og horfi því meira á Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ég hef fylgst með fréttum á báðum stöðvunum og mér leist vel á fréttamann sem heitir Árni Þórður Jónsson en ég man ekki á hvorri stöð- inni hann er. Uppáhaldsskemmtistaður: Ég fer ekki á svoleiðis staði og það vekur furðu mína hversu mjög þeim hefur ijölgað á skömmum tíma. Uppáhaldsfélag í íþróttum: ÚÍA. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtiðinni? Ég stefni að því að gera mitt besta hjá íslenska dansflokknum. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég átti ekkert sumarfrí þar sem ég sat og skrifaði mastersritgerð í Seattle. -ELA Uppáhaldsmatur Meiri háttar rjómanýru - að hætti Erlu Hrundar Friðfínnsdóttur, húsmóður á Akureyri Sláturtíðin stendur nú sem hæst og vafalaust einhveijar húsmæður sem langar í uppskrift að góðum rétti úr innmat. Helgarblaðinu barst upp- skrift að ijómanýrum frá Akureyri. Bréfið hljóðaði svo: „Þegar ég stóð í röð til að fá keypt slátur ákvað ég að senda ykkur þessa gómsætu upp- skrift að rjómanýrum. Alveg lostæti, namm, namm.“ Það er Erla Hrund Friðfinnsdóttir sem sendir okkur uppskriftina sem lítur vel út en hún er svona. Rjómanýru 800 g nýru 1 stk. paprika 150 g nýir sveppir 3 msk. hveiti 1 dl mysa 1 dl mjólk Hrla Hrund Friðfinnsdóttir. DV-mynd gk, Akureyri 1 dl rjómi salt og pipar smjörlíki til steikingar Aóferðin Paprika og sveppir steikt á pönnu, fært á disk. Síðan eru nýrun steikt og sveppum og paprikunni bætt á pönnuna aftur. Þá er pannan tekin af straumnum, hveitinu sáldrað yfir og mysu, mjólk og ijóma hellt yfir og hrært saman, kryddað með salti og pipar eftir smekk. Soðiö í sjö til tíu mínútur og hrært í öðru hveiju á meðan. Borið fram með soðnum kartöflum og hrísgrjónum. Verði ykkur að góðu. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.