Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990. 13 Franch Michelsen var einn þeirra sem komu með strandferðaskipinu Esjunni frá Petsamo 15. október 1940. DV-mynd Brynjar Gauti Petsamofarþegar hittast: Vorum spennt að komast heim - segir Franch Michelsen einn farþeganna með Esjunni Blöðin birtu daglega miklar fréttir af Esjunni eftir heimkomuna, einnig ferðasöguna og fengu loks fréttir utan úr heimi þar sem Þjóðverjar gerðu víðreist. Margir þekktir íslendingar voru meðal farþega á Esjunni í þessari hættuför. „Hugmyndin að hittast vaknaði við búðarborðið hjá mér þegar Guð- mundur Jónasson frá Siglufirði kom inn í verslun mína ög við tók- um tal saman um að nú væru fimmtíu ár liðin frá þessari sögu- frægu ferð. Við vorum herbergis- félagar í Stokkhólmi þegar viö bið- um eftir að Esjan kæmi til Pets- amo. Bróðir Guðmundar, Ragnar, var einnig í ferðinni. Ég hafði sam- band við nokkra sem ég mundi eft- ir og fékk hvatningu til að gera eitt- hvað í málinu. Það varð úr að ég sendi utanríkisráðherra bréf og hann hefur boðið okkur Petsamo- farþegum til síðdegiskaffis í Borg- artúni 6 á mánudag en þá eru ein- mitt fimmtíu ár frá því við stigum á land eftir þessa örlagaríku ferð,“ segir Franch Michelsen úrsmiður og einn Petsamofarþega í samtali við helgarblaðið. Franch sagðist ekki vita hversu margir enn væru á lífi af þeim 258 farþegum og 33ja manna áhöfn strandferðaskipsins Esjunnar sem kom til íslands fyrir fimmtíu árum. „Ég hef ekki nákvæma nafnaskrá en hef þó orðið mér úti um tvær skrár sem einn um borð, þá ungl- ingur, tók saman að gamni sínu en hann safnaði eiginhandaráritun- um. „Best væri ef.Petsamofarþegar gætu haft samband við mig í síma 33024, Friðgeir Ingimundarsson í síma 83461, Friðgeir Grímsson í síma 32223 eða Árna Jónsson í síma 36710 í dag og boðað komu sína,“ segir Franch ennfremur. Frægir íslendingar um borð Margir merkir íslendingar voru meðal Petsamofarþega og má þar nefna Jón Engilberts listamann, dr. Brodda Jóhannesson, Lárus Páls- son leikara, Jón Þórarinsson list- málara og Skúia Skúlason ritstjóra svo einhverjir séu nefndir. Far- þegar voru á öllum aldri allt frá 3ja mánaða upp í 63 ára. „Ég var að koma frá Kaupmanna- höfn þar sem ég hafði dvalið í þijú ár. Fyrsta árið var ég í danska úr- smiðaskólanum, Thecnologisk Institut, og síðan fór ég að vinna í konunglega hirðhúsinu hjá Karl Jonsen á Strikinu. Reyndar var ég að hætta hjá honum og var á leið til Berlínar þar sem ég hafði fengið vinnu og dvalarleyfi hjá einu þekktasta verkstæði en átti eftir að fá leyfi til að fara inn í landið.“ Franch, sem er fæddur og uppal- inn á íslandi en Dani í fóðurætt, segir að flestir yngri íslendinganna hafi verið í námi á Norðurlönd- unum eða í Þýskalandi. „Það voru einnig allmargar stúlkur um borð sem höfðu verið í vinnu svo sem saumakonur og hjúkrunarkonur. Allir vildu komast heim vegna ástandsins. Sendiráðin stóðu fyrir að smala fólki saman og íslend- ingafélögin hjálpuðu til. Það voru mjög margir Islendingar t.d. í Kaupmannahöfn á þessum tíma.“ Löng bið Franch segir að heimleiðin hafi verið góð fyrir allflesta en mikið gekk á áður en af henni gat orðið. Islendingar, sem búsettir voru í Danmörku, fóru með ferju yfir til Málmeyjar og síðan með lestinni til Stokkhólms þar sem þær fregnir bárust að Þjóðverjar hefðu tekið Esjuna. íslenska ríkisstjórnin hafði löngu áður gert samstarfssamning við Þjóðveija og Bretaum heimferð íslendinganna og því kom stöðvun skipsins mönnum mjög á óvart. Skipinu var snúið til Þrándheims en þegar áhöfnin sagðist hafa leyfi fyrir ferð sinni skutu Þjóðveijar fyrir framan stefnið og því var ekki um annað að ræða en hlýða. íslendingarnir, sem safnað hafði verið saman í Stokkhólmi, fengu tilkynningu um hertöku skipsins og var því ófyrirsjáanlegt hvort af ferðinni til íslands yrði. Þeir fengu hótel og biðu í heila viku með farar- sljórum. „Það voru allir blankir, höfðu eytt síðustu aurunum í Kaupmannahöfn, þannig að hver fékk fimm krónur sænskar sem hétu sporvagns- og sígarettupen- ingar. Það var allnokkur peningur, að minnsta kosti fannst mér það sem reykti ekki. Eftir vikudvölina í Stokkhólmi kom tilkynning um að við ættum að leggja í hann og fórum við með lest norður alla Svíþjóð í einni lotu og yfir til finnsku landamæranna, upp til Rovaniemi sem er höfuð- borgs Lapplands en þar enduðu brautarteinar. Þá tóku við stórir bílar sem áttu að flytja fólkið til Petsamo, sem var nyrsta borgin í Finnlandi, en tilheyrir Rússum nú. Mig minnir að ferðalagið hafi tekið hálfan annan sólarhring en ipjög lítið var stöðvað á leiðinni enda engin hótel. Þetta var erfitt ferðalag fyrir marga, sérstaklega fjölskyl- dufólkið. Eg man t.d. eftir hjónum með fjögur ung böm.“ Skipaö til Englands Franch segir að íslendingamir sem vom í Kaupmannahöfn hafi lagt í hann 25. september, daginn fyrir sextugsafmæli Kristjáns X. „Það var búið að skreyta borgina hátt og lágt eins og finast getur orðið þegar við lögðum upp í ferða- lagið en það átti eftir að taka lengri tíma en við bjuggumst við.“ Loks komust Islendingarnir, 258, á áfangastað þar sem Esjan beið þeirra. „Við fórum um borð og það var siglt af stað í ágætisveðri. Ann- an daginn tók ég eftir að skipið stefndi ekki í rétta átt. Ég hafði verið lengi í skátastarfi og kunni vel á kompásinn. Þá fór ég í báts- manninn, sem var frændi minn, en hann hélt að við værum bara að fara heim. Eg var harður á að svo væri ekki og hann leit því inn í kortaklefa og bölvaði duglega þeg- ar hann sá að stefnan var sett á England. Þá hafði komið skipun frá herstjóminni á íslandi um að skip- ið færi til Kirkwall í eftirlit. Þeir höfðu sent menn til Englands á móti skipinu sem var þó á leið til íslands. Þessir menn komu þó aldr- ei því þeir höfðu fengið sér nokkra sterka í London og misstu af skip- inu.“ Töfrabrögö og gamanmál Franch segir að margt hafi verið gert til skemmtunar um borð til að halda mannskapnum í góðu skapi. Þess á meðal voru töfrabrögð sem hann sjálfur sýndi. Veðrið var þó mjög ókyrrt þegar að sjónhverfing- unum kom þannig að Franch var bundinn við barinn meðan hann galdraði smátrix. „Aðalskemmti- kraftar skipsins voru Lárus Páls- son leikari og Skúli Skúlason rit- stjóri. Ég held að 'stríöið hafi ekki hrætt fólk svo mikið á leiðinni nema í einu tilviki þegar menn - töldu sig hafa séð til kafbáts. Yngri mennirnir voru þó mjög hugaðir enda töldu allir að stríðið væri að verða búið. Allir vildu þó komast heim til íslands og hitta ættingja og vini enda höfðu menn engar fréttir fengið af ástandinu. Ég varð t.d. ekki mikið var viö stríðið i Kaupmannahöfn. Þó var leiðinlegt með myrkvunina. Það mátti ekki einu sinni hafa ljós á reiðhjóli. Ég var eitt sinn á leið eft- ir Vesterbrogade og heyrði að fólk dró fæturna til að láta heyra í sér. Ég var dauðhræddur um að ganga á einhvern svo ég keypti mér vind- il til að hafa einhverja birtu og til að finna skráargatið þegar ég kæmi heim.“ Ekki allir í land „Þegar við loks komum að ytri höfninni í Reykjavík 15. október voru allir orðnir mjög spenntir en þá fengum við ekki að fara í land. Þá var herstjórnin alveg vitlaus yfir að eftirlitið væri ekki fram- kvæmt af þeim mönnum sem þeir sendu til Énglands. Skúli ritstjóri sagði mér löngu síðar að herstjóm- in hefði verið svo reið að hún hugð- ist senda skipið aftur til Englands með alla innanborðs. Ýmsar spum- ingar voru lagðar fyrir fólkið eins og hvað þaö hafi verið að gera úti, hvort það hafi þekkt Þjóðverja og sérstaklega voru stúlkurnar spurð- ar hvort þær hafi átt vingott við þýska hermenn.“ Samskipti manna um borð í Esj- unni voru með mestu ágætum og að minnsta kosti tvö pör urðu til á þessari tíu daga siglingu. Franch segist vita til þess að önnur hjónin a.m.k. séu farsællega gift ennþá. Esjan var eina skipið á stríðsár- unum sem sent var eftir íslending- um sem búsettir vom erlendis og þótti ferðin mikil hættuför. Skip- stjórinn í ferðinni var Ásgeir Sig- urðsson og sagði hann ferðasöguna í Morgunblaðinu eftir heimkom- una. Blöðin skrifuðu öll mikið um þessa ferð Esjunnar. Einnig vom farþegar mikið spurðir um ástand- ið úti í heimi. Vísir birti viðtal við dr. Brodda Jóhannsson, sem kom með Esjunni, en hann hafði verið í þrjú ár í námi í Munchen í Þýska- landi. Eiginkona SveinsBjömsson- ar, þá sendiherra, var um borð en Sveinn átti talsverðan þátt í því að af ferðinni varð. Öllu var þó ekki lokið þrátt fyrir að skipiö væri komiö til Reykjavik- ur því sjö menn fengu í fyrstunni ekki að fara frá borði. Þeir voru síðan fluttir í varðskipið Ægi þar sem þeir máttu dúsa nokkra daga enn. Fréttir birtust um það í nokkra daga að farþegamir væru í haldi en íslensk stjómvöld reyndu að fá þá lausa. Fjórum farþegum var síðan sleppt en herstjómin hafði uppi hugmyndir um að senda þrjá þeirra aftur til Bretlands, þaö vom tveir sjómenn sem komu um borð í Esjuna í Þrándheimi og Bjami Jónsson læknir. Þá má geta þess að herstjórnin krafðist fjögur hundmð.þúsund króna tryggingar fyrir landvist tveggja farþega. Það ætti því að vera glatt á hjalla á mánudag þegar margir þessara far- þega hittast á ný, sumir hveijir eft- ir fimmtíu ár. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.