Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990, Skák Þeir Kasparov og Karpov eru enn einu sinni sestir aö tafli, nú i New York. Heimsmeistaraeinvígið í skák: ,, Þetta er ein sú besta skák sem ég hef séð" - er haft eftir kunmim skákmeistara um 2. einvígisskák þeirra Kasparovs og Karpovs Sigur Kasparovs í 2. einvígis- skákinni við Karpov aðfaranótt flmmtudags hlýtur að ylja sönnum unnendum skáklistarinnar um hjartarætur. „Þetta er ein sú besta skák sem ég hef séð,“ hafði Reut- ers-fréttastofan eftir kunnum skákmeistara og undir þau orð má taka af heilum hug. Kasparov tefldi skákina afar fallega frá upphafi til enda. Mikilvægur sigur í einvíginu og frá listrænum sjónarhóli meist- araverk. Þetta er fimmta einvígi Karpovs og Kasparovs um heimsmeistara- titilinn, sem mörgum finnst vera dálítið mikið af því góða. En þeir eru þó fleiri sem fylgjast með af meiri áhuga en nokkru sinni fyrr. Er þessir tveir yfirburðamenn skákborðsins etja kappi má ávallt búast við einhveiju skemmtilegu. Þótt svo jafnir menn geri eðlilega mörg jafntefli sín í milli, eru það perlur, eins og 2. einvígisskákin nú, sem halda áhugamönnum við efn- ið. Það þarf tvo til aö tefla góða skák. Treystirá „gömlu lummurnar" Önnur skákin leiðir hugann að ólíkum undirbúningi þeirra félaga fyrir einvigið. Eins og fyrri daginn verður ekki annað sagt en að heimsmeistarinn, Kasparov, sé frjórri og betur undirbúinn. Hann er enda þekktur fyrir frábæra byij- anaþekkingu, sem byggist ekki á því að læra „teóríuna" utanbókar, eins og margir ungir skákmenn reyna gjaman, heldur að finna nýj- ar hugmyndir og aðferðir. Á hinn bóginn treystir Karpov enn á „gömlu lummumar“ og af 2. skákinni að dæma hefur hann fátt nýtt fram að færa. Hann tefldi þar sama afbrigði og hann studdist við í áskorendaeinvígjunum við Jóhann Hjartarson í Seattle í fyrra og Timman í Kuala Lumpur. Það ber vott um mikið sjálfstraust aö leggja aftur sömu spihn á borðið. Kasparov hefur gefist ráðrúm til að skoða stöðuna á rannsóknar- stofunni, með sínum haukfránu augum. Afraksturinn kom í ljós á fimmtudag. Þeir tefla 24 skákir, fyrri hluti einvígisins fer fram í New York, sá síðari í Lyon í Frakklandi. Heims- meistaranum, Kasparov, nægir jafntefli í einvíginu, 12- 12, til að halda heimsmeistaratitlinum. Með sigrinum í 2. skákinni hefur hann þvi í raun náð tveggja vinninga forskoti. Líkurnar á því að honum takist ætlunarverkið hafa vissu- lega aukist en vitaskuld er allt of snemmt að afskrifa Karpov, sem heröist gjarnan ef á móti blæs. Hann hefur svo sem áður náð að snúa stöðunni sér í hag, t.d. í ein- víginu 1986 í London og Leningrad, er Kasparov vann fyrstu skákina en Karpov komst yfir með því aö vinna þá fjórðu og þá fimmtu. Lokatölur þar urðu þó 13-11 Kasparov í vil. í síöasta einvígi, í Sevilla fyrir þremur árum, skildu þeir jafnir, 12-12, og Kasparov hélt titlinum. Byggðist á innsæi og tilfinningu Eins og frægt er orðið hefur Kasparov lýst yfir því í viðtölum að hann telji tölvur eiga meiri möguleika á skáksviðinu heldur en konur. Tölvurnar eiga þó enn sitt- hvað eftir ólært. Með taflmennsku sinni í 2. skákinni var ekki laust viö aö Kasparov tækist aö sýna fram á yfirburði mannsandans yfir tölvunni. Flétta heimsmeistarans í miðtafhnu var byggð á innsæi fremur en nákvæmum útreikning- um. Hárfint stöðumat og tilfinning sagði honum að þrátt fyrir að hðs- munur væri honum heldur í óhag, Skák Jón L. Árnason ætti hann sigurstranglega stöðu. Riflum upp lok skákarinnar en vegna þrengsla í fimmtudagsblað- inu gafst ekki tóm til að dvelja viö leikina. Lítum á stöðuna er Kasp- arov (hvítt) á að leika sinn 36. leik: H A é . i i i ■ . i W& 4 * & ABCDE FGH 36. Df2! Svarta drottningin stendur vel á miðborðinu en með þessari tilfær- ingu tekst Kasparov að hrekja hana burt. Nú er hrókur á a7 í uppnámi og ef t.d. 36. - Hb7, yröi svarið 37. Hc5 og drottningin verður að víkja. Karpov á því ekki margra kosta völ. 36. - De7 37. Dd4 Rg8 (?) Svartur vairð að gæta að máthót- uninni á h8 en ljóst er þó að eftir þennan leik er taflið tapað í fáum leikjum. Bent hefur verið á 37. - f6 sem betri vamarmöguleika, sem má til sanns vegar færa, en einnig í því tilviki má sýna fram á vinningsleið fyrir hvítan: 38. Hd6! gxf5 (ef 38. - Kg7 er 39. HxfB! DxfB 40. e5! bráð- drepandi - takið eftir að hrókurinn á a7 er einnig í uppnámi) 39. e5! fxe5 40. Dd2 og þar eð 40. - Dg7 er svarað með 41. Hxh6+! Dxh6 42. Bxf5 + Kg7 43. Hg3 + og drottningin fellur, stendur eftir 40. - Rf7 en þá má rekja taflið áfram meö 41. Bxf5+ Kg7 42. Hg3+ KÍ8 43. Hdg6 Dc5 44. Hg8 + Ke7 45. H3g7 og svart- ur er varnarlaus. Nú strandar 45. - Rd5 eða 45. - Kf6 á 46. Hxf7 + ! Kxf7 47. Dg5 og til að afstýra máti á g7 verður svartur að láta drottn- inguna. 38. e5! Rd5 39. fxg6 + fxg6 40. Hxc6! Einföld og áhrifarík leið - 40. Bxg6+ hefðieinungisflæktmáhn. 40. - Dxd8 41. Dxa7+ Rde7 42. Hxa6 Ddl+ 43. Dgl Dd2 44. Dfl Og Karpov gafst upp. Fallegasta skákin Að mínum dómi er 2. skákin ein fallegasta og best teflda skákin í einvígjum þeirra Kasparovs og Karpovs og er af nógu af taka, því að hún var sú 122. í rööinni! En auðvitað er ógjörningur að bera saman fallegar skákir, því að sitt sýnist hveijum. Hér er skák sem margir telja eina þá bestu sem nokkru sinni hefur verið tefld. Sjálfur segir Kasparov um hana: „Slíkra skáka er minnst um langan tíma, sérstaklega af sig- urvegaranum sjálfum, sem hefur bókstaflega lagt brot úr sál sinni aö veði til að framfylgja áætlun sinni.“ Og bætir síöar við: „Gildi glæsilegrar vinningsskákar eykst í hlutfalli viö styrkleika mótheijans. Það sem er eftirtektarvert er að þessi sigur vannst í einvígi um heimsmeistaratitunn gegn slíkum yfirburðamanni sem Karpov er.“ Hér á hann við 16. skákina frá ein- víginu í London og Leningrad 1986. Það er lesandans að dæma hvort 2. skákin í New York stenst saman- burð við þessa: Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Garrí Kasparov 16. einvígisskákin, Leningrad 1986 Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rb5 d6 6. c4 Rf6 7. Rlc3 a6 8. Ra3 d5 9. cxd5 exd5 10. exd5 Rb4 11. Be2 Bc5! 12. 0-0 0-0 13. Bf3 Bf5 14. Bg5 He8 15. Dd2 b5 16. Hadl Rd3! 17. Rabl? h6 18. Bh4 b4! 19. Ra4 Bd6 20. Bg3 Hc8 21. b3 g5! 22. Bxd6 Dxd6 23. g3 Rd7! 24. Bg2 Df6 B M S » 7 m i 6 á m á 5 & íí 3 A A 2 A * &A& , 4Ö s AB CDEFGH 25. a3 a5 26. axb4 axb4 27. Da2 Bg6! 28. d6 g4! 29. Dd2 Kg7 30. f3 Dxd6 31. fxg4 Dd4+ 32. Khl Rf6 33. Hf4 Re4 34. Dxd3 Rf2 + 35. Hxf2 Bxd3 36. Hfd2 I I Á tir ^Á W A A ÉL A CM iá ^ 2 & ABCDEFGH 36. - De3! 37. Hxd3 Hcl!! 38. Rb2 Df2! 39. Rd2 Hxdl+ 40. Rxdl Hel + Og Karpov gafst upp. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.