Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990. 19 Ólyginn sagði. . . Ronald Reagan yngri, sem er eins og nafnið bend- ir til alnafni og sonur fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur fengið nýja vinnu. Ronald yngri, eða Skipper eins og hann var kallaður heimafyrir, mun annast umsjón með sjónvarpsþætti um methafa af ýmsu tagi. Skipper er reyndar lærður ballettdansari en festi ekki yndi í þeirri atvinnu- grein og reyndi fyrir sér sem sjónvarpsmaður með ágætum árangri, fyrst í þættinum Góðan daginn Ameríka. Faðir hans er reyndar methafi á sinn hátt því hann undirritaði dýrasta sendi- bréf sem hefur verið skrifað af lifandi manni. Það var selt á upp- boði fyrir 12.500 dollara. Móðir Ronalds yngri, leikkonan Jane Wyman, var aðih að lengsta kossi sem sýndur hefur veriö á hvíta tjaldinu og varði í þtjár mínútur og fimm sekúndur. Neil Young er þekktur ellihippi og þekktur raulari sem forðum söng sig inn í hjörtu milljóna manna með lög- um eins og Heart of Gold. Hann er ekki alveg af baki dottinn og nýjasta plata hans, Ragged Glory, hefur hlotið mikið lof annarra elhhippa sem nú eru orðnir mús- íkgagnrýnendur. Ahs hefur Yo- ung gefið út 25 plötur á þeim ald- arfjórðungi sem hann hefur feng- ist viö það. Hann hefur ekki gleymt uppreisnarandanum sem einkenndi þlómabörnin því þegar hann gerði myndband við eitt laga sinna lagði hann sig í fram- króka við að gera grín að stór- stjörnum samtímans. Þaö fór ekki sem skyldi og í staðinn fyrir hneykslan og reiði fékk hann verðlaun fyrir téð myndband. Oliver Reed er breskur leikari sem jafnan hefur haft gaman af því að ganga fram af félögum sínum og aðdá- endum. Hann var staddur í afar finu samkvæmi í London nýlega þar sem verið var að fagna því að sendir hafa verið út 500 þættir af þáttaröðinni This is your life. Reed hefur trúlega þótt veislan heldur daufleg því hann efndi til áfloga við Patrick nokkum Mow- er. Fuhtrúar gulu pressunnar komust þama í feitt en öðram veislugestum var lítt eða ekki skemmt yfir framferði Ohvers. Sviðsljós Drangeygef- ur talstöðvar Þórhallur Asmundssan, DV, Sauðárkróki Kiwanisklúbburinn Drangey á Sauð- árkróki gaf nýlega björgunarsveit- inni Skagfirðingasveit tvær talstöðv- ar, sérhannaðar FR-stöövar fyrir björgunarsveitir, og aíhenti fyrri stöðina fyrir landsmót hestamanna í sumar en þá seinni ásamt gjafabréfi á dögunum en andvirði stöðvanna var um 100 þúsund krónur. Að sögn Ólafs Jónssonar, formanns styrktamefndar Drangeyjar, hefur lengi staðið til að klúbburinn styrkti björgunarsveitina. Við athugun kom í ljós að bílar stöðvarinnar voru nær talstöðvarlausir. Ólafur Jónsson afhendir gjafabréfið. Honum á vin'stri hönd er Björn Svav- arsson, varaformaður Skagfirðingasveitar, en Björn Jónsson, forseti Dran- geyjar, honum á hægri hönd. Það reynir á að byrja í skóla, undirbúum bömin vel MUNDU EFTIR OSTINUM Hann eflir einbeitinguna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.