Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 24
36 LAUGARDAGUR 13. OJÍTÓBER 1990. Vísur _____________________ Úr Alþingisrímum 1899-1901 Nú á dögum er talaö um Kvos en kringum síðustu aldamót var höfuð- staður landsins lítið annað en fiski- þorp með lágum byggingum og nokkrum smábryggjum niður af ströndinni þar sem uppskipunarbát- amir lentu sem færðu varninginn heim. Einstaka stórmenni steig þar í land, útlendir höfðingjar og ferða- menn, að ónefndum embættismönn- um sem sendir voru á konungsfund í Danmörku. Nú þurftu þeir að segja sínum yfirboðurum eða undirmönn- um í höllinni við Austurvöll frá er- indislokum. Svo segir í Alþingisrímum sem nú skal sagt frá. Út við grænan Austurvöll, sem angar lengi á vorin, stendur væn og vegleg höll, vonin mænir þangað öll. Þar sátu konungskjömir embætt- ismenn og fylking presta og stór- bænda sem kosnir vom til setu ár eftir ár með nokkrum atkvæðum. Þar voru hjaðningavígin háð, nokk- uð með líkum hætti og nú - og þó öðruvísi. Hér er ekki rúm til að segja ítarlega frá þessari frægu rímu sem raunar var ekki nema kver í fyrstu og varla enn þegar hún var endurút- gefin 1951. Fæstir menn á landi voru hafa orö- ið oftar skotspænir skálda og hag- mæltra manna á ísa köldu láði en þeir sem setið hafa bekki Alþingis. Kom þú svo með Fróðafrið, fógur tímans stjarna. Skín þú broshýr vöggu við vorra ungu bama. Tvær bækur hafa komið út á okkar öld sem beinlínis eru kenndar við þá miklu stofnun: Alþingisrímurnar Vísnaþáttur 1899-1901 og Þingvísur 1872-1945 sem , Jóhannes úr Kötlum tók saman. Lengi var ekki vitað hver eða hveijir vom höfundar Alþingisrímn- anna. En í formála fyrir útgáfu Menningarsjóðs 1951, sem hinn merki fræðimaður, Vilhjálmur Þ. Gíslason, sá um, kveður hann upp úr með það að Guðmundur skáld Guðmundsson, 1874-1919, og vinur hans, Valdimar Ásmundsson, rit- stjóri Fjallkonunnar, 1852-1902, hafi ort rímumar. Reyndar var það Jónas frá Hriflu sem ritaði þennan merka formála. Efni úr þeim tveimur bókum, sem ég nefni hér að ofan, hef ég áður fyr- ir löngu birt í þáttum mínum en þar er engin þurrð. Alberti^var hinn frægi íslands- málaráðherra sem um skeið var mestur valdamaður í Danmörku á sinni tíð, næstur kónginum, en end- aði sem tukthúsfangi í ríki sínu, ákærður fyrir fjársvik. Nú vitnum við í vísur rímnanna. Höfunda er ekki getið: Allir mæna á Albertí, Ás hins nýja siðar. Ætla að renni upp á ný, öld hins nýja friðar. Valtýr Guðmundsson, þingmaður og ráðherraefni, keppinautur Hann- esar Hafstein og fleiri stórmenna, ætlaði sér mikinn hlut: Glæsimenni Valtýr var, af virðum flestum bar hann, þó um hann þytu örvamar, aldrei smeykur var hann. Orðahremmsur þutu þétt, þrumdi í mælskutólum. Stjómarskútan leið fram létt, líkt og vagn á hjólum. Guðlaugur Guðmundsson, sýslu- maöur Skaftfellinga, var einn af skörungum þingsins. Gramt var Lauga í geði þá, gráðugur valköst hlóð hann. Meir en fyrr var biksvört brá, blóð í kálfa vóð hann. Bleki spúðu berserkir, beittir pennar flugu, málaoddar eitraðir inn í hjörtun smugu. Sungu lengi sverðin blá seggjum dánarlögin, dundu í lofti og þutu þá þungu reiðarslögin. Jón úr Vör, Fannborg 7, Kópavogi EINDAGI STAÐGREIÐSLUFJÁR ER 15. HVERS MÁNAÐAR Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Eindagi staðgreiðslufjárer 15. hvers mánaðar. Munið að gera skil tfmanlegai RSK RÍKISSKATTSTJÓRl Heimurinn og ég Maöurinn. Minningin. Bítill Bróður- kærleikur - orð, orð, orð Heimurinn fór ekki varhluta af því að hann átti afmæli á þriðju- daginn. Engan veginn. Heimurinn minntist hans sem einu sinni söng, stuttkhpptur, slag- ara um stelpur og aðrar dásemdir jarðneska lífsins. Heimurinn minntist hans sem síðar frelsaðist, safnaði hári og boð- aði meðbræðrum sínum bróður- kærleik. Orð. Orð. Orð. Orð Hann söng: Allt sem þú þarfnast er ást. Hann söng: Stríðinu lýkur ef þú vilt það. Hann söng: ímyndaðu þér ef allir lifðu sáttir. Orð. Orð. Orð. Orð Ég man þú söngst í ímyndunar- slagaranum: „Þú mátt kalla mig draumóra- mann. En ég er ekki sá eini. Kannski slæstu einhvem tímann í hópinn og eining mun ríkja í heim- inum.“ Kannski. Þú varst umfram allt dægurlaga- söngvari; mannlegur maður, sem Umsjón: Þorsteinn J. Vilhjálmsson samdir almennilega dægurlaga- slagara en langaði líka heil ósköp til að breyta heiminum. Sjáðu hvernig hann er í dag. „Lífið er mjög stutt og það er enginn tími fyrir eitthvert múður,“ söngst þú. Ég er sammála því. Þess vegna hyggst ég snúa sjálf- um mér til betri vegar áður en ég byija að breyta heiminum. Orð Orð. Orð. Orð. Svo oft til einskis nýt. Opið virka daga kl. 17-22 og um helgar kl. 13-19 Símar 38560 og 38561 Skrifstofa stuðningsmanna GUÐMUNDAR HALLVARÐSSONAR er að Síðumúla 22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.