Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 38
50 LAUQARDACUK 13. OKTÖBER 1990. Afmæli Garðar Finnsson Garöar Finnsson, veiðieftirlitsmað- ur hjá Sjávarútvegsráðuneytinu, Álfheimum 19, Reykjavík verður sjötugur á morgun. Starfsferill Garðar er fæddur á Kaldá í Ön- undarfirði og ólst upp á Kaldá og í Flatey. Hann var skipstjóri á Flat- eyri og ísafirði á ýmsum bátum 1940-1952 og lauk meira flskimanna- prófi í Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1949. Garðar var skip- stjóri hjá Haraldi Böðvarssyni hf. á Akranesi 1962-1969 og var með eigin útgerð í Reykjavík 1970-1976. Hann hefur verið veiðieftirhtsmaður hjá Sjávarútvegsráðuneytinu frá 1976. Fjölskylda Garðar kvæntist 12. febrúar 1944 Guðnýju Marenu Matthíasdóttur, f. 17. nóvember 1920, vinnur í aðal- banka Landsbankans í Rvík. For- eldrar Guðnýjar eru: Matthías Ás- geirsson, skattstjóri á ísafirði og kona hans Sigríður Gísladóttir. Böm Garðars og Guðnýjar eru: Sig- ríður f. 8. september 1944, hár- greiðslumeistari á Seltjarnarnesi, gift Kristni Jónssyni, slökkviliðs- manni; Steinunn, f. 5. febrúar 1946 hjúkranarfræðingur á Seltjamar- nesi gift Bjarna Lúðvíkssyni, íjár- málstjóra SH; Matthías, f. 24. mars 1949, heilbrigðisfulltrúi á Selfossi, kvæntur Þórhildi Karlsdóttur, snyrtifræðingi; Finnur Gísli, f. 20. mars 1952, fiskifræðingur í Rvík, kvæntur Kristbjörgu Olfsdóttur, skrifstofustjóra; Bjarni Hermann, f. 3. október 1953, stýrimaður í Rvík, kvæntur Helgu Pétursdóttur, ritara og Garðar Sigurbjörn, f. 13. nóvem- ber 1955, rafmagnstæknifræðingur á Seltjarnarnesi, kvæntur Sigrúnu Bjömsdóttur, fjölmiðlafræðingi og fréttamanni hjá RÚV. Systkini Garðars eru: Jóhannes, f. 26. júní 1917, d. 15. febrúar 1974, skrifstofumaður og sjómaður á Akranesi, kvæntur Bjarnfríði Léós- dóttur, fyrrv. alþingismanni; Jó- nína, f. 18. desember 1921, gift Grími Sveinssyni, póstfulltrúa í Rvík og Gróa, f. 24. september 1924, gift Ól- afi Bjömssyni, lofskeytamanni í Hafnarfirði. Ætt Foreldrar Garðars vom: Finnur Torfi Guðmundsson, f. 29. septem- ber 1892, d. 21. ágúst 1936, skipstjóri og útgerðarmaöur á Flateyri og kona hans Steinunn Jóhannesdótt- ir, f. 15. nóvember 1989, d. 24. janúar 1975. Finnur var sonur Guðmundar b. á Görðum í Önundarfirði, Jóns- sonar og konu hans Gróu, systur Finns í Hvilft í Önundarfirði, föður Hjálmars, fyrrv. forstjóra Áburðar- verksmiðjunnar, Sveinbjamar hag- fræðings, Ragnheiðar, fyrrv. skóla- stjóra, Sveins, framkvæmdasljóra Fiskimálasjóðs, Jóhanns tannlækn- is, Maríu, hjúkrunarfræðings, Mál- fríðar hjúkrunarfræðings, Kristínar Fenger sjúkraþjálfara, ogGunn- laugs bónda ogfyrrv. alþingis- manns í Hviift í Önundarfirði. Gróa var dóttir Finns, b. í Hvilft Magnús- sonar, b. í Hvilft, bróður Ásgeirs, alþingismanns á Þingeyrum, foður Jóns, b. og skálds á Þingeyrum og afa Ásgeirs, rithöfundar frá Gottorp. Annar bróðir Magnúsar var Torfi, alþingismaður á Kleifum. Þriðji bróðir Magnúsar var Guðmundur, b. á Kleifum. Systir Magnúsar var Ragnheiður, móðir Guðlaugar, konu Torfa í Ólafsdal og ömmu Torfa Ásgeirssonar hagfræðings og Torfa, fyrrv. tollstjóra og ríkissátta- semjara, Ásgeirs, sagnfræðings og Snorra skálds, Hjartarsonar. Magnús var sonur Einars, b. og dbrm. í Kollafjarðarnesi, Jónssonar, b. í Miðdalsgröf í Steingrímsfirði, Brynjólfssonar, á Heydalsá, Guð- mundssonar, af ætt Einars, prófasts og skálds í Heydölum. Móðir Magn- úsar var Þórdís Guðmundsdóttir, smiðs að Seljum, Torfasonar. Móðir Gróu var Sigríður Þórarinsdóttir, Garðar Finnsson. b. á Vöðlum, Jónssonar, b. í Unaös- dal. Steinunn var dóttir Jóhannesar, b. á Hesti í Önundarfirði, bróður skipstjóranna Bjarna Hermanns og Sæmundar, Kristjánssona og konu hans Jónínu Sveinsdóttur frá Ósi í Bolungarvík. Garðar tekur á móti gestum í Fé- lagsheimili Fóstbræðra, Langholts- vegi 109, Rvík á afmælisdaginn kl. 17-18.30. Hildur Kristjánsdóttir Hildur Kristjánsdóttir, hjúkrunar- fræðslustjóri á Landspítalanum, Vesturbergi 123, Reykjavík, verður fertugámorgun. Starfsferill Hildur er fædd á Húsavík en ólst að mestu upp í Reykjavík til ársins 1958, í Svíþjóð næstu þrjú árin og á Patreksfirði til 1966 en flutti þá til Reykjavíkur. Hildur lauk gagnfræðaprófi í Hér- aðsskólanum að Laugum í Suður- Þingeyjarsýslu 1966, lauk ljós- mæðraprófi í Ljósmæðraskóla ís- lands 1979 og hjúkrunarprófi í Nýja hjúkrunarskólanum 1986 auk þess sem hún var í námi í KHI1988-1990. Hildur vann við afgreiðslu- og skrifstofustörf 196&-1977, var ljós- móðir á Fæðingardeild Landspital- ans 1979-1981 og við afleysingar þar 1981,1982,1986 og 1987. Hún hefur verið stundakennari við Ljós- mæðraskóla íslands frá hausti 1986 og hjúkmnarfræðslustjóri á Landspítalanum frá ársbyrjun 1988. Fjölskylda Hildur giftist 24. maí 1969 Ingibirni Tómasi Hafsteinssyni, f. 2. júlí 1944, kaupmanni. Foreldrar Ingibjörns era: S. HafsteinnTómasson, d. 1966, og kona hans Guðný Huld Stein- grímsdóttir. Börn Huldu og Ingi- bjarnar eru: Hafsteinn, f. 17. október 1970, nemi, sambýlikona hans er Þóranna R. Ólafsdóttir, f. 25. júlí 1971, nemi; Kristján Örn, f. 14. ágúst 1973; Ingibjöm, f. 7. febrúar 1981 og Guðný Hulda, f. 12. apríl 1981. Syst- kini Hildar eru: Halldór, f. 29. maí 1952, forstjóri í Hafnarfirði, kvænt- ur Jennýju Ágústsdóttur, tann- lækni; Sigurður, f. 23. febrúar 1955, bamalæknir 1 Svíþjóð, kvæntur Önnu Daníelsdóttur, tannlækna- nema; Hjalti, f. 23. nóvember 1958, heilsugæslulæknir í Vestmannaeyj- um, kvæntur Vera Björk Einars- dóttur, hjúkranarfræðingi og Guð- rún Þura, f. 28. janúar 1966, lög- fræðinemi í Rvík, gift Marinó Njáls- syni, fjármálastjóra í Rvík. Ætt Foreldrar Hildar eru: Kristján S. Sigurðsson, f. 14. nóvember 1924, yfirlæknir í Keflavík og kona hans Valgerður G. Halldórsdóttir, f. 20. apríl 1929. Föðursystur Hildar era rithöfundamir Jakobína og Fríða. Foreídrar Kristjáns voru Sigurður Sigurðsson, b. í Hælavík og síðar símstöðvarstjóri á Hesteyri, og kona hans, Stefanía Halldóra Guðnadótt- ir. Sigurður var sonur Sigurðar, b. á Læk, Friðrikssonar, b. í Rekavík bak Höfn, Einarssonar, b. á Homi, Sigurðssonar, b. á Horni, Pálssonar, b. í Reykjarfirði á Ströndum, Bjömssonar, ættföður Pálsættar- innar. Móðir Sigurðar Sigurössonar var Kristín Arnórsdóttir, b. í Reka- vík, Ebenezerssonar, b. á Dynjanda, Ebenezerssonar, b. í Efri-Miðvík, Jónssonar, bróður, sammæðra, Gríms Thorkelíns, leyndarskjala- varðar og prófessors. Móðursystir Kristjáns var Ingi- björg, móðir Þórleifs Bjarnasonar, námsstjóra ogrithöfundar. Stefanía var dóttir Guðna, b. í Hælavík, Kjartanssonar, b. á Atlastöðum, Ól- afssonar. Móðir Kjartans var Soffia Jónsdóttir, b. á Steinólfsstöðum, Einarssonar, og konu hans, Guð- rúnar Lárentínusardóttur, b. á Hóh í Bolungarvík, Erlendssonar, sýslu- manns á Hóli, Ólafssonar, bróður Jóns fomfræðings (Grannavíkur- Jóns). Valgerður er dóttir Halldórs, b. í Garði í Mývatnssveit, bróður Þuru, skálds í Garði og Jóns, læknis á Kópaskeri afa Ólafs Jóhanns Ólafs- sonar, rithöfundar og aðstoðarfor- stjóra SONY-fyrirtækisins í Banda- ríkjunum. Annar bróðir Halldórs var Björgvin, faðir Þorgríms Starra í Garði. Halldór var sonur Árna, b. í Garði við Mývatn, bróður Amfríð- ar, langömmu Kristínar Halldórs- dóttur, formanns Ferðamálaráðs. Árni var sonur, Jóns, b. í Garði, Jónssonar, b. í Garði, Marteinsson- ar, b. í Garði, Þorgrímssonar, b. í Baldursheimi, Marteinssonar. Móð- ir Jóns Jónssonar í Garði var Helga Jónsdóttir, b. á Gautlöndum, Mar- teinssonar, bróður Jóns í Garði. Móðir Áma var Guðrún, systir Jóns, langafa Kristjáns Eldjáms for- seta, föður Þórarins Eldjáms rithöf- undar. Guðrún var dóttir Þorgríms, b. í Hraunkoti í Aðaldal, Marteins- sonar, bróður Jóns í Garði. Móðir Guðrúnar var Vigdís Hallgríms- dóttir, b. í Hraunkoti, Helgasonar, ættfoður Hraunkotsættarinnar. Móðir Halldórs Ámasonar var Guðbjörg Stefánsdóttir, b. í Haga- nesi við Mývatn, Gamalíelssonar og konu hans, Bjargar Helgadóttur, b. á Skútustöðum, ættfóður Skútu- staðaættarinnar, Ásmundssonar, b. í Baldursheimi, Helgasonar, bróður Hallgríms í Hraunkoti. Móðir Bjarg- Hildur Kristjánsdóttir. ar var Helga Sigmundsdóttir, b. í Vindbelg, Ámasonar. Móðir Sig- mundar var Kristveig Marteins- dóttir, systir Þorgríms í Baldurs- heimi. Móðir Helgu var Steinvör Guðmundsdóttir, systir Ásu, ömmu Jóns Þorsteinssonar, prests í Reykjahlíð, ættfoður Reykjahlíðar- ættarinnar. Móðir Valgerðar Guðrúnar var Sigríður Jónsdóttir, b. á Vatnsleysu í Skagafirði, Kristvinssonar. Meiming Mikllla sanda Það er auðséð á öllu að Björn Birnir hstmálari hefur sótt bæði menntun og innblástur í annan menningar- heim en jafnaldrar hans sem era sömu megin í mynd- hstinni. Meðan jafnaldramir rækta formin og yfir- borðið í takt við hin evrópsku viðhorf er Bjöm Bimir innvígður í bandaríska afstrakthst, einkum þá sem tekur mið af víðáttum miðvesturríkja, en hún er stund- um flokkuð undir afstrakt-impressjónisma. Þar er hvorki sparaður striginn né málningin til þess að skapa takmarkalaus verk, gegnsýrð andrúmslofti eða hugblæ sem engin yfirborðsteikning nær utan um. Það hefur tekið Bjöm Bimi talsverðan tíma að ná tökum á myndhst af þessu tæi. Raunar hóf hann ekki að mála fyrr en tiltölulega seint á ævinni. Fyrir nokkr- um áram vora málverk hans enn með varfæmislegu, aht að því akademísku yfirbragði, eins og hstamaður- inn treysti sér ekki alveg til að gefa sig á vald náttúra- öflunum. Fullmótun Með sýningu sinni í Listhúsinu við Vesturgötu kem- ur Björn Bimir hins vegar fram sem fuhmótaður af- strakt-impressjónisti. Á sýningunni, sem hstamaður- inn nefnir „Myndir af sandinum", era fimm umfangs- mikil málverk, auk tólf smærri mynda, þar sem spilað er upp á nær ótakmarkaða dýpt og viðáttu með býsna farsælum árangri. Aðferð Bjöms er sú að leggja saman margar slæður akrýlhtar og fikra sig síðan í átt til einhvers sem nefna mætti „innri byggingu“. Hér gæt- Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson ir hann sín hins vegar á því að setja hrynjandi mynd- anna ekki of fastar skorður heldur leyfir hann hlutun- um aö geijast vítt og breitt um strigann. Með örfáum stóram dráttum, kannski einni eða tveimur skáhnum, stílhr hann árangurinn síðan af, virkjar náttúrukrafta ásamt með tilfahandi hugdettum. Innilegri og kvikari Akrýlhtir era auðvitað eins og gerðir fyrir svona vinnubrögð þar sem þeir blandast vel og þoma fljótt. Um leið eiga þeir tíl að draga úr áhrifamætti víð- feðmra mynda, gera þær þyrrkingslegri - harðari - en þær eiga skUið. Ohuhtir hafa til að bera mun meiri dýpt og glóö en akrýU. Mér hst til dæmis vel á þá við- leitni Björns Birnis að mála með olíuhtum á þykkan pappír. Þar er annars konar túlkun á ferðinni, inni- legri og kvikari en í akrýlmyndunum. Ætti ekki að vefjast fyrir hstamanninum að flylja þessa túlkun yfir á stærri dúka. Sýningu Björns Bimis í Listhúsinu lýkur þann 14. október. -AI Til hamingju með afmælið 13. október GunnlaugMagnúsdóttir, Atlastööum, Svarfaðardalshreppi. Axel Þórðarson, Birkivöllum 14, Selfossi. Erna Marteinsdóttir, Fomastekk 12, Reykjavík. 75 ára Jón Þ. Stefónsson, Logafold 44, Reykjavik. Magnús Jónsson, Seljanesi,! Guðbjörg Guðlaugsdóttir, Víkurbraut 26, Grindavik. ' Jóhannes Ginarsson, Hilinar Arinbjömsson, Lindarbrekku, Skeggjastaöa- Hafnarbraut 20, Höfn í Homafirði. hreppi. Guðmundur Jóhannesson, Lárus Gamalíeisson, Baröastöðum, Staðarsveit. Hjahabraut33,Hafnarfirði. ------------------------------- Magnús Ingjaldsson, . : AA áwn Kleppsvegi 76, Reykjavík. .. “____________ 70 ára Eyjólfur Jónsson, Naustahiein9, Garðabæ. Guðni Jónsson, ■ 'ý:. ; Logafold 22, Reykjavík. 60 ára Andrzej Stanislaw Konarzewski, Karmehtaklaustrinu, Hafnarfirði. ElsaBjartmarsdóttir, Austurvegi 11, ísafirði. Sigfríð G. Þormar, Fljótaseli 8, Reykjavík. Kristinn Jörundsson, Víðihlíð 8, Reykjavík. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Kjartansgötu 15, Borgarnesi. Pálmi Björn Jakobsson, Garðarsbraut 45B, Húsavík. Oddný Dóra Jónsdóttir, Helga María Ólafsdóttir, Aratúni 6, Garðabæ. Lindarhvammi 2, Hafnarfirði. Halidór S. Guðmundsson, Hjallabraut94, Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.