Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990.
9
dv Meiming
Mickey Rourke muldrar sig gegnum
hlutverkið í Villt 1».
Bíóborgin: Villt líf: ★
Sjálfstæðisfólk ; — | á j
Hef opnað prófkjörsskrifstofu í Sigtúni 7 þar sem ég og stuðningsmenn mínir starfa að kjöri
mínu í prófkjöri sjálfstæðisrhanna í Reykjavík
dagana 26. og 27. okt. nk.
Kosningastjóri er Sigurjón Ásbjörnsson og \
verður skrifstofan opin frá kl. 9-22 alla daga
til kjördags. Verið velkomin. Sími 29600. - 3
Eyjólfur Konráð Jónsson
Blaut-
leg
Þyrni-
rósar-
saga
Kvikmyndin Wild Orchid sem nú
er sýnd í Bíóborginni er gerð af sömu
framleiðendum og færðu heiminum
9 1/2 viku hér um árið. Enda er ekk-
ert til sparað í auglýsingum að minna
á þá ágætu mynd.
Staðreyndin er sú að með því er
verið að plata fólk í bíó því þessi
kvikmynd á ekkert skylt við 9 1/2
viku utan það að Mickey Rourke
leikur aðalhlutverkið. Honum ferst
það reyndar mjög illa úr hendi en
það má sjálfsagt að einhverju leyti
kenna handritinu um sem er algjört
kjaftæði og varla heil brú í því. Mic-
key muldrar sig í gegnum myndina
Kvikmyndir
Páll Ásgeirsson
án þess að vera nokkurn tíma sann-
færandi.
Myndin lýsir ævintýrum ungrar
sveitastúlku sem fær vinnu sem lög-
fræðingur og er í snatri send til Ríó
með annarri konu. Sú kemur á
stefnumóti hennar við dularfullan
milljónamæring. Sveitastúlkan á við
erfiðleika að etja þyí púrítanískt upp-
eldi hennar sættir sig ekki við það
frjálslega viðhorf til heimsins lysti-
semda sem tíðast í Ríó. Útkoman er
dálítið ilautleg Þyrnirósarsaga með
fógru hrasilísku landslagi, kjöt-
kveðjuhátíðarsenum og dynjandi
samba- og lambada tónlist í bak-
grunninum. Vegna ónýts handrits er
myndin mjög langdregin og minnir
á köflum meira á lélegt tónlistar-
myndband en alvöru kvikmynd.
Leikarar reyna eftir megni að
standa sig. Jacqueline Bisset er ágæt
í hlutverki eldri lögfræöingsins og
Carre Otis gerir sveitastúlkunni
prýðileg skil að eins miklu leýti og
það er hægt.
Leikstjórinn Zalman King, sem
jafnframt er handritshöfundur, hef-
ur sagt að persónan sem Mickey
Rourke leikur sé sú athyglisverðasta
sem sést hefur á hvíta tjaldinu síðan
Marlon Brando lék í Síöasta Tangó í
París. Sennilega skortir Zalman
sjálfsgagnrýni eða þá að hann hefur
aldrei séð Brando í umræddri mynd.
Wild Orchid - bandarísk.
Leikstjórn og handrit: Zalman King
Aðalhlutverk: Mickey Rourke, Jacqueline
Bisset og Carre Otis.
Páll Ásgeirsson
GÍÍLTiG BiS ENOE JANUftR 1991
Quelle kynnir nýjan sérlista fyrir konur sem þurfa stór númer í fatnaði. Stærð-
ir upp í 54, einnig sérstakar K-stærðir fyrir þær sem eru undir 164 cm á
hæð. Fallegur og góður fatnaður frá Þýskalandi.
Listinn er ókeypis en greiða þarf burðargjald ef hann er póstsendur.
duelle
STÆRSTA PÓSTVERSLUN EVRÓPU
VERSLUN OG AFGREIÐSLA, HJALLAHRAUN 8, HAFNARFJÖRÐUR
SI'MI 91-50200
MODE
BIS GRÖSSE
MANGHES
sögar
GRÖSSER
ÖBER1N
K-GRÖSSEN
54 - NÝR LISTIMEÐ STÓRUM NÚMERUM!