Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990. 35 Guðmundur vakti talsverða athygli skólafélaga sinna enda tíðkaðist þá ekki að menn settust á skólabekk á fullorðinsárum í sama mæli og nú. Guðmundur er kvæntur Jónínu Láru Einarsdóttur bankamanni og eiga þau þrjá syni, 20,18 og 9 ára. Var trúaður en ekki kristinn Eftir það lá leiðin í guðfræðideild Háskóla íslands. Fékk hann ungur köllun til prestsstarfa? „Ég átti mjög góða og trúaða ömmu, Sigríði Gísladóttur, sem hélt mjög að mér kristinni trú. Hitt er svo annað mál að ég var ekki kristinnar trúar þegar ég settist í guðfræðideild þótt ég héldi það. Eins og flestir, trúði ég á Guð en gerði mér ekki grein fyrir því að trú á Jesúm Krist skiptir öllu máli. Á þessu er mikill munur. Þetta kemur kannski best fram í Jó- hannesarguðspjalli 3.16. „Því svo elskaði Guð heiminn'að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“ í þessum orðum felst að hver sá sem trúir á Jesúm Krist, hann hefur eilíft líf. Þeir sem ekki trúa á Jesúm glatast. Þessi munur varö mér ljós í guð- fræðideildinni. Það tók mig þrjú ár af fimm í guðfræðideild að eignast Jesúm að persónulegum frelsara mínum. Mér þykir því ekkert undar- legt þótt margir eigi erfitt með að setja Jesúm Krist á oddinn í sínu lífi. Rótin að þessu ástandi svo margra er fyrst og fremst nýguðfræðinni um að kenna sem boðuð var hér á landi á fyrri hluta þessarar aldar. Hún varð meðal annars til þess að það hefur orðið feimnismál meðal þjóð- arinnar að tala um djöfulinn. Nýguð- fræðin taldi að djöfullinn væri ekki til og það var talað um „helvítispré- dikara“ í frekar niðrandi merkingu fyrir það eitt að nefna myrkrahöfð- ingjann á nafn. Illskan var aðeins talin vera þekkingarskortur. Það skyldi að upplýsa fólk og þekkingin átti að útrýma öllu illu. Ef helvíti væri ekki til þá þyrftum við ekki frelsara. Satan er raun- verulegur rétt eins og Jesús og hann birtist okkur t.d. í dag 1 nýaldar- hreyfmgunni og okkur stafar hætta af honum,“ segir Guðmundur af miklum sannfæringarkrafti. „Okkur er nauðsynlegt að þekkja óvininn. En Jesús er sá sem alltaf öllu máli skiptir. Prédikaó hjá öðrum söfnuðum Guðmundi hefur verið boðið að prédika hjá kristnum hreyfingum og söfnuðum innan og utan þjóðkirkj- unnar. Ég hef prédikað hjá Hjálp- ræðishernum, KFUM á Akranesi, Ungu fólki með hlutverk, Orði lífs- ins, hvítasunnumönnum, Veginum, og kaþólsku kirkjunni. Þetta gera prestar ekki almennt vegna þess að þeim finnst að það muni trufla ímynd þjóðkirkjunnar. Þessir söfnuðir eru auðvitað alhr kristnir. Orðið sértrú- arsöfnuður fer svolítið fyrir brjóstið á mörgum en hvað þýðir þetta orð? Er hægt að tala um hvítasunnuhreyf- inguna sem sértrúarsöfnuð þegar vitað er að hún er miklu stærri og fjölmennari í heiminum en lúterska kirkjan?“ segir Guðmundur. Vegna tengsla sinna við Orö lífsins tengdist Guðmundur komu bandarísks sjón- varpsprédikara hingað til lands fyrir rúmu ári. Sá heitir Lester Sumrall og boðar fagnaöarerindið meðal ann- ars gegnum sjö sjónvarpsstöðvar og safnar fé til bágstaddra kristinna safnaða í þriðja heiminum. Er sjón- varpið góður miðih til þess að boða fagnaðarerindiö? „Já, það er ég viss um,“ segir Guö- mundur. „Þjóðkirkjan hefur mikið verið að velta þessum málum fyrir sér þó lítið hafi orðið úr framkvæmd- um enn. Það er ljóst að við höfum dregist aftur úr, því miður. Rödd kirkjunnar heyrist ekki mikið í fjöl- miðlum samanborið við þá kynningu sem nýaldarhreyfingin hefur fengið um langt skeið. Kirkjan þarf að nálg- ast fólk meir-a gegnum fjölmiðla. Það er hægt að nota fleiri aðferðir en messumar til boðunarstarfs þó að Séra Guðmundur Örn Ragnarsson farprestur, sem nú þjónar Seltirningum, hefur vakið athygli fyrir skeleggar prédikanir. DV-myndir BG nessan verði að sjálfsögðu alltaf mið- punktminn. Það er ótal leiðir hægt að fara á þessu sviði.“ Lög um fóstur- eyðingar í andstöðu við kristna trú - Nú hafa þær raddir stundum heyrst að það væri nauðsynlegt að stofna kristilegan stjómmálaflokk. Hvað finnst þér? „Það sem máh skiptir er að boða Jesúm Krist sem frelsara allri þjóð- inni og öllum heiminum. Við þurfum ekki stjómmálaflokk til þess. í stjómmálaflokkum ættu að vera kristnir menn sem gæta þess að lög séu í samræmi við kristna trú en það em þau ekki alltaf. Skýrasta dæmið um lög, sem ganga gegn kristnum boðskap, em lög um fóstureyðingar. Fóstur er lifandi mannvera frá getnaði. Kristnir menn geta ekki líflátið ófædd böm.“ - Hefur það umrót, sem orðið hefur í kringum söfnuðinn á Seltjamar- nesi, haft mikil áhrif á þig? „Ég hef sannfærst enn betur um að ég hef breytt eins og mér ber skylda til samkvæmt Guðs orði. í Tímóteusarbréfi 4: 2-3 stendur: „Prédika þá orðið, gef þig að því í tíma og ótíma. Vanda um, ávíta, áminn með öhu langlyndi og fræðslu. Því þann tíma mun að bera er menn þola ekki hina hehnæmu kenning. Heldur hópa þeir að sér kennurum eftir eigin fýsnum símnn tíl þess að heyra það sem kitlar eyrun.“ Þannig talar ritningin tU mín um þá atburði sem em að gerast í dag,“ segir Guð- mimdur Öm að lokum. -Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.