Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990. Sælkerinn Stórmerkileg bók - og það matreiðslubók Matreiðslubækur hafa hingað til ekki talist til heimsbókmenntanna. Þetta er þó ekki alveg satt og rétt því að bækur Brillat-Savarin teljast til heimsbókmenntanna og raunar eru verkin íleiri. Það er hins vegar athyglisvert að rannsóknir hafa sýnt að mjög margir lesa mat- reiðslubækur sem afþreyingarbók- menntir. Fyrir nokkrum dögum kom út á vegum Bókaútgáfu Iðunnar Mat- reiðslubök Iðunnar eftir Anne Willan. Bók þessi er án efa merk- asta bók um matargerð sem komið hefur út á íslensku. Hún nefnist á frummálinu The encyclopedia of cocery and cooking techniques og segir þessi titill meira um innihald bókarinnar en sá íslenski. Nokkuð hefur verið fjallað um þessa bók í erlendum blöðum og tímaritum. Hefur hún sums staðar verið kölluð merkasta bók um matreiðslu sem komið hefur út á þessari öld. Bók- inni er skipt í nokkra kafla en þeir eru: Kryddjurtir, Krydd og bragðefni, Súpur og soð, Sósur, Mjólk, Ostur og egg, Fita og olía, Fiskur, Skel- dýr, Fuglar, Kjöt og kjötvörur, Grænmeti, Sveppir, Kornmeti og belgjurtir, Pasta, Mjöl, Brauð og deig, Bökur, Sætabrauð og smá- kökur, Kökur og krem, Sykur og súkkulaði, Kaldir eftirréttir og ís, Ávextir og hnetur, Geymsla mat- væla, Matreiðsla í örbylgjuofni, Matreiðsluáhöld, Ýmis matargerð- arhugtök. Eins og þessi upptalning sýnir er fjallað um nær aUt sem varðar matargerð og það mjög ítar- lega því að bókin er í stóru bröti og er 528 blaðsíður. Helsti styrkur þessarar bókar er hve nákvæm og vönduð umfjöllun- in er. Margir þeirra sem eru dug- legir að matreiða og búa til góðan mat kunna ekki réttu handtökin, hafa ekki næga þekkingu á hráefn- inu og kunna ekki réttu aðferðim- ar. Þama er munurinn á góðum atvinnumatreiðslumanni og áhugamanni. Fyrir áhugamanninn er þessi bók því algjör nauðsyn og atvinnumaðurinn getur haft ómet- anlegt gagn af henni. Þegar lagaður er góður matur byggist matreiðslan á fjölda smáat- riða sem öll skipta jafnmiklu máh. í þessari merku bók er einmitt ítar- lega fjallað um smátriðin sem skipta svo miklu máli. Bókin er fagurlega myndskreytt og eru myndir af hráefninu sem fjallað er um og einnig em aðferðirnar sýnd- ar með myndum. Sem dæmi um hve nákvæm umfjöllunin er er í kaflanum um kjöt og kjötvörur sýnd réttu tökin við að brýna hnífa. Höfundur þessa verks er Anne Willan sem er fædd og uppalin í Englandi en hefur aðállega starfað í Bandaríkjunum. Wihan hefur skrifað nokkrar matreiðslubækur og bækur um matargerðarlist. Hún hefur verið með þætti í sjónvarpi og skrifað um mat í blöð og tíma- rit. Anne Willan stofnaði og rekur matreiðsluskólann Ecole de Cuis- ine La Varenne í París en skóh þessi nýtur mikilla vinsælda vest- anhafs og austan. Eins og fram hefur komið er þessi bók ekki eig- inleg matreiðslubók, enda þótt í henni séu mataruppskriftir. Upp- skriftimar gegna fremur því hlut- verki að sýna hvað við er átt þegar fjallað er um hin ýmsu matvæli. Bókin er fyrst og fremst kennslu- bók í matreiðslu og allt sem henni viðkemur en hún er einnig bæði skemmtileg og fræðandi. Jafnvel þeir sem ekki hafa gaman af matar- gerð hafa ánægju af að lesa hana. Eiginlega er ekki hægt að segja neitt misjafnt um þessa bók. Ef það Umsjón: Sigmar B. Hauksson er eitthvað þá er það nafnið „Mat- reiðslubók Iðunnar“ því þegar fólk heyrir orðið matreiðslubók dettur því ósjálfrátt í hug bók með matar- uppskriftum. Bók þessi er í raun alfræðibók um matvæli og mat- reiðslu. Umfjöllunin um matvæli og matreiðsluaðferðir eða tæknina er eitt það besta sem Sælkerasíðan hefur séð um dagana. Fyrir nokkrum áratugum þóttu bækur Helgu Sigurðardóttur algjör nauðsyn á hverju heimili, nú er það án efa Matreiðslubók Iðunnar. Flest áhugafólk um matreiðslu mun væntanlega útvega sér þessa bók en hún ætti einnig aö vera til í eldhúsum veitingahúsanna. Já, og hvers vegna ekki úm borð í hveiju fiskiskipi? íslenskur ritstjóri bókarinnar er Hhmar B. Jónsson og hefur honum farist verkið vel úr hendi eins og við var að búast. Útgáfa þessarar bókar er aðstandendum hennar til sóma. Til hamingju. Matreiðslubók Iðunnar er merkasta bók um matreiðslu sem komið hef- ur út á íslandi fram til þessa. Fjölskyldu- - skemmtun alens o$ október og nóvember kl. 13-18. Það eralltafþurrt hjá okkur þó að rigni alia leiðina. Nú eru sildveiðar hafnar og senn kemur ný síld í fiskbúðirnar. Góð sinn- eps- síld Nú eru síldveiðar hafnar og brátt verður hægt að fá ferska síld í öll- um betri fiskbúðum. Hér kemur uppskrift að góðum síldarrétti sem mjög auövelt er að útbúa. Það sem þarf er 500 g fersk og falleg síldarfl- ök, afhreistruð eða roðlaus. Þáergerður lögur: llvatn 1 dl 12% edik 1 msk. salt Blandið löginn vel saman og látið flökin liggja í honum í 10 klst. Þá er gerð sinnepssósa: 2 /2 dl sinnep 1 dl mataroha 2 msk. vínedik Vi dl sykur 2tsk.salt '/2 tsk. hvítur pipar lmsk.fíntsaxaðdill Leysið saltið og sykurinn upp í vínedikinu og hrærið síöan fyrst sinnepinu saman viö og svo ol- íunni. Sósan er krydduö með sykri, salti, pipar og dilli. Látið vökvann renna af flökunum og setjið þau út í löginn. Sfldin er tilbúin á borðið eftir2dagaíkæh.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.