Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Side 21
IJiUGARDAGUR 13.. OKTÓBER 1990. Ný karlmannatíska: Brjóstvöðvar úr sílikoni Sviðið er veisla meðal þotuliðsins í Los Angeles. Myndavélar blossa og taktföst tónlist drekkir samræöum. Fallegar stúlkur og glæsilegir piltar hlykkjast um mannþröngina mis- munandi fáklædd en allt í topptísk- unni. Hópur kvenna stendur á svöl- unum og slúðrar um snyrtivönn- og sæta stráka. Þetta er pjáturborgin Hollywood og fegrunaraðgerðir af ýmsu tagi eru hér stöðutákn og ekk- ert feimnismál. Ung kona í níðþröng- um svörtum kjól snarar öðru brjóst- inu upp úr kjólnum og segir með stolti: „Ég lét stækka þau. Komdu við þau og finndu hvað þau eru ekta.“ Þetta er ekki kafli úr einhverri ljós- blárri skáldsögu heldur raunsæ lýs- ing á því sem þykir við eiga meðal fallega fólksins í kvikmyndaborg- inni. En geta menn gert sér í hugar- lund karlmann í hlutverki stúlkunn- ar hér að ofan. Sjáið þið fyrir ykkur íturvaxið vöðvafjall með massívan bijóstkassa sem sviptir frá sér Ar- mani skyrtunni og segir: „Komdu við þá og finndu hvað þeir eru ekta.“ Þrjú hylki í hvem kassa Þetta er heldur ekki skáldsaga. Það færist sífellt í vöxt að karlmenn láti setja sílikon í bijóstkassann til þess að vöðvamir sýnist stærri. Þessi að- gerð, sem byggir á því að þremur sílikonhylkjum er komið fyrir efst á bijóstkassanum, er „tiltölulega ör- ugg.“ Hitt er svo annað mál að þó kon- umar í glimmerborginni gorti af plastbijóstunum og tali opinskátt um aðgerðimar gegnir ekki sama máli um karlana. Hjá þeim er þetta mikið feimnismál. Það er útbreidd skoðun að stóran bijóstkassa eigi menn að fá með því að stritast við lóð og lyft- ingar en ekki með fegrunaraðgerð- um. En í þessari borg auglýsa lýta- læknar á risavöxnum spjöldum við aðalgötuna og með heilsíðulitauglýs- ingum í glanstímaritum. „Hvers vegna að eyða peningum í bíla og föt þegar ÞÚ ert það eina sem fólk tekur eftir.“ Brian Novack lýtálæknir sem starfar í Hollywood fullyrðir að inn- an fárra ára verði aðgerðir af þessu tagi á bijóstkassa karla orðnar eins algengar og brjóstastækkanir kvenna em í dag. „Ég stækkaði einn náunga um dag- inn sem var með gjörsamlega innfall- inn bijóstkassa. Aður fór hann aldrei nokkum tíma úr skyrtunni en nú spókar hann sig á ströndinni án nokkurrar feimni," segir dr. Novack. „Þegar ég komst að því að þetta væri hægt þá hugsaði ég mig ekki tvisvar um,“ segir 35 ára gamall tón- listarmaður í Los Angeles sem ekki vill láta nafns síns getið vegna þess að hann hefur ekki einu sinni sagt foreldrum sínum eða unnustunni frá stækkuninni. Kostar aðeins 6.500 dollara „Ég vildi ekki fá kassa eins og Schwarsenegger en ég vildi vera þreknari og vöðvafylltari og náttúm- legri. Eftir aðgerðina er ég ekkert feiminn við að fara úr að ofan á svið- inu.“ Að lækna sviðshræðslu af þessu tagi kostar litla 6.500 dollara eða rösklega 400 þúsund krónur íslensk- ar. Annar, sem heldur ekki vildi koma fram undir nafni, er ungur verðbréfasali sem fékk hugmyndina og stuðriing við hana frá unnustunni sem haföi pumpað sílikoni í bijóstin á sér. Hann telur að þessar aðgerðir eigi eftir að njóta vaxandi vinsælda. Framtíðin er óljós og hver veit nema að innan fárra áratuga verði heilastækkun orðin sjálfsagt og auð- sótt mál. Hver veit, enda allt í lagi meðan það er eins og það sé ekta. -Pá Eru þeir ekta eða hvað? UU MÁUUT UtmSUTm Sjálfstæðisflokkurinn þarf nýjan þingmann sem þekkir vel til atvinnulífs og verðmætasköpunar Lára Margrét á ijölþættan náms- og starfsferil að baki, bæði hérlendis og erleridis. * Hún er þekkt fyrir einstakan dugnað og frum- kvæði og þau málefni sem hún tekur að sér komast heil í höfn. Sérþekking hennar á atvinnulífi, efnahagsmálum og heilbrigðismálum sýnir best og sannar að hún er kjörin til starfa á Alþingi íslendinga. Sri/HIIUJKHí Við opnum kosningaskrifstofu með kaffí og p1 rnnil/víPí'ÍÍ rtn fVi»jrhvaoí q kökum sunnudaginn 14. október kl. 15:00 að i I UliltVYíCUl ug 1 ii nyggjct Hafnarstræti 20, 4. hæð (lyfta). — ráða úrslitum. Skrifstofan verður síðan opin frá kl. 16:00 til 22:00 á virkum dögum og frá kl. 14:00 til 20:00 um helgar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.