Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1990, Blaðsíða 2
Fréttir
MÁM:í)AGUR ö. NÓVEBFBER1990.
Mikil leit að 25 ára gömlum Tálknfirðingi á 9,9 tonna bát í gær:
Samband rofnaði þegar
brot reið yf ir bátinn
kom fram heill á húfi 1 Ólafsvík eftir hrakninga 1 Látraröst
Gísli Marteinsson, 25 ára gamall
Tálknfiröingur, kom fram heill á
húfl í Ólafsvík um áttaleytiö í gær-
kvöldi en hans var saknað á bátnum
Sverri BA, 9,9 tonna trillu af gerðinni
Gáski 1000 í gær. Röskur tugur báta,
varöskipiö Ægir og þyrla Landhelg-
isgæslunnar leituðu aö Gísla á
Breiöafirði og við Látrabjarg fram á
kvöld í gær.
Báturinn fékk brot á sig í Látra-
röstinni. Rúöa brotnaði í stýrishús-
inu og flæddi sjór yfir stjórntækin
og talstöðina. Kollegi Gísla, á Ingþóri
Helga, sem hafði farið í samfloti með
honum frá Tálknafirði, hafði misst
sjónar af Sverri BA og talstöðvar-
samband við bátinn rofnaöi skyndi-
lega þegar brotið reið yfir.
„Ég fór rétt fyrir hádegiö áleiðis til
Ólafsvíkur. Ingþór Helgi lagði af stað
rétt á eftir. Hann var búinn að ná
mér í Röstinni. Þar var ég síðan kom-
inn inn í stórbrot áður en ég vissi
af. Ef ég hefði vitaö hvernig þetta var
hefði-ég snúið við. En ég varð að
halda áfram. Svo kom brot og mið-
glugginn brotnaði í stýrishúsinu.
Sjórinn fór í vistarverurnar og yfir
öll tækin og ég missti strax allt tal-
stöðvarsamband. Maðurinn á Ing-
þóri Helga hafði verið í stöðugu sam-
bandi við mig og var að tala við mig
þegar þetta gerðist. En svo heyrði
hann ekkert svar frá mér eftir að
brotið kom á bátinn," sagði Gísh í
samtali viö DV stuttu eftir að hann
kom í land í gærkvöldi.
„Ég þurfti að skáskjóta mér inn
með Látrabjargi til að fá næði til aö
negla fyrir gluggann. Mér tókst að
spenna plötu fyrir,“ sagði Gísli. Hann
sagði að ekki hafi verið mjög hvasst
við Látrabjarg þar sem brotið reið
yfir. Hins vegar verður sjór mjög
ókyrr við Látrabjarg þegar vindur
blæs á móti sterkum straumnum.
„Ég lagði ekki í að fara til baka og
dólaði því í rólegheitunum suðureft-
ir. Þetta var barningur á móti hjá
mér suður að miðjum Breiðafirði.
Þetta var svo ágætt þaö sem eftir
var.“ Gísli sagðist ekkert hafa orðið
var við bátana og þyrluna sem voru
að leita af honum. „Ég hefði skotið
upp neyðarflugeldi ef ég hefði bara
vitað af þyrlunni", sagði hann.
Gísli verður háseti á Sverri BA í
vetur en hann ætlar að róa frá Ólafs-
vík með fóður sínum Marteini Gísla-
syni sem er eigandi bátsins. GísU var
meðal annars að flytja bjóð frá
Tálknafirði til Ólafsvíkur í þessari
ferð. Hann reiknar með að það taki
rafvirkja um þrjá daga að gera við
skemmdirnar. Talstöð, radar, dýpt-
armælir, lóran og miðstöð blotnuðu
þegar brotið kom inn um gluggann.
-ÓTT
Alþýðubandalagiö á Reykjanesi:
Ólaf ur fær
sætiGeirs
þátt í ríkisstjórn v» semjum ekki
hætt að skipta kjömum fulltrúum út á miðju kjörtímabili
„Þaö var samþykkt á landsfundi
KvennaUstans aö skipta ekki út
kjörnum fuUtrúum KvennaUstans í
sveitarstjómum eöa á Alþingi á
miðju kjörtímabili nema brýna
nauðsyn bæri til, sagði Elín Stephen-
sen kvennaUstakona.
Þar með er aflögð sú regla að
kvennalistakonur sitji ekki lengur
en 6 ár á þingi eða í bæjar- og sveitar-
stjómum.
Landsfundur Kvennalistans var
haldinn um helgina í Hrafnagilsskóla
í Eyjafirði og sóttu fundinn tæplega
100 konur alls staðar af að landinu.
Húsnæðismál voru mjög til umræðu
á fundinum og var mörkuð ný af-
staða í þeim málaflokki sem felur
meðal annars í sér að hækka beri
vexti í almenna húsnæðislánakerf-
mu.
Fundurinn telur að nauðsynlet aö
hækka vexti á húsnæöislánum og
loka þegar í stað almenna húsnæðis-
lánakerfmu frá 1986 en hlúa þess í
staö að húsbréfakerfmu.
Fundurinn tók einnig afstöðu til
þátttöku í ríkisstjóm og segir í álykt-
un þar að lútandi: „Það er kominn
tími til þess að skapa á íslandi þjóð-
félag jafnréttis, öryggis og velsældar,
til þess höfum við allar forsendur.
Konur eiga næsta leik og Kvennalist-
inn ætlar aö taka til í stjórnkerfmu.
Með þátttöku sinni í stjórnmálum er
Kvennalistinn að leita eftir umboði
frá kjósendum til aö vinna að gagn-
gemm umbótum konum og þjóðfé-
laginu til hagsbóta. Af því leiðir að
KvennaUstinn sækist eftir þátttöku í
ríkisstjórn. Hins vegar viljum við
vera ábyrgar gangvart kjósendum
okkar og sýna þeim þá virðingu að
láta ekki af grundvallar stefnumið-
um okkar þó í boði séu ráðherrastól-
ar.
Aðild íslendinga að EB var sömu-
leiðis rædd nokkuð en KvennaUstinn
hafnar aðUd að bandalaginu aö svo
komnu máli þar sem það er í and-
stööu viö hagsmuni kvenna.
Að sögn Elínar voru landbúnaðar-
mál einnig nokkuð í brennidepli á
fundinum en ekki tókst aö móta
stefnuna í þeim málaflokki sökum
þess að fundarkonur vildu gefa sér
betri tíma til að móta heUdstæða
stefnu í landbúnaðarmálunum.
-J.Mar
upp á lækkun
„Viö munum ekki semja upp á
lækkun olíuverðstengingarinnar.
Við höfðum samið við Farmanna- og
fiskimannasambandið og þeir feUdu
þann samning. Þeir hafa boðað verk-
faU og þeir verða að taka afleiðingum
gerða sinna og svipta þar með fjölda
verkafólks atvinnunni fyrir jólin,“
sagöi Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna.
„Sjómenn hafa fengið meiri hækk-
anir en alhr aðrir launþegar á þessu
ári. Afurðaverð hjá sjómönnum hef-
ur hækkað um 30 prósent síðan um
síðustu áramót og þó af því gangi
núna átta prósent er þaö ekkert til
að kvarta undan. Sjómenn eru ráðn-
ir upp á hlutaskipti þeir eru því ekki
eins og venjulegir launþegar. Þeir
eiga hluta af aflanum með okkur og
þar með hluta af kostnaðinum."
- Býstu þá við að deUan endi stál
í stál og það komi tU verkfalls?
„Það eru þeir sem setja stál í stál,
við höfum samiö við þá. Stjórn Far-'
manna- og fiskimannasambandsins
gat ekki komið samningi í gegn sem
þeir skrifuðu undir. Þeir verða þvi
að leysa sín mál á eigin heimavelli
en ekki hjá okkur.
Maður yrði náttúrlega að búast við
að þeir aílýstu verkfalli sem er boðaö
með jafnveikum bakgrunni og þetta
er. Það tóku fáir sjómenn þátt í at-
kvæðagreiðslu um samningin og
hann var feUdur með litlum mun “
sagði Kristján. -J.Mar
„Konur eiga næsta leik“ var yfirskrift iandsfundarins.
DV-mynd gk
Landsfundur Kvennallstans um helgina:
Tilbúnar að taka
Kristján Ragnarsson um olíuverðstenginguna:
„Það er leyndarmál sem aUir vita
að Ólafur Ragnar Grímsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, mun skipa
fyrsta sætið á lista flokksins í Reykja-
,nesi í komandi kosningum," sagði
einn af áhrifamönnum flokksins á
Reykjanesi, í samtali við DV.
Ölafur Ragnar kvaðst hins vegar
ekki ræða það viö fjölmiðla hvort
hann hygðist skipa fyrsta sætið á
hsta flokksins í kjördæminu.
Aðalfundur kjördæmisráðs Al-
þýðubandalagsins á Reykjanesi var
haldinn síðastliðinn laugardag. Á
fundinum var skipuð 7 manna kjör-
nefnd sem mun ákveða framboösmál
flokksins í Reykjaneskjördæmi.
„Alþýðubandalagsfélögin í
Garðabæ og MosfeUsbæ skoruðu á
fundinum á Ólaf Ragnar að taka
fyrsta sætið á framboöslistanum. En
þessum tillögum var vísað tU kjör-
nefndar. Það er svo í verkahring
nefndarinnar að fjalla um framboðs-
mál flokksins og ákveöa hvort hún
efnir til prófkjörs eða hvort hún stUl-
ir upp framboðslista. Kjömefndin
hefur fullt umboð frá kjördæmisráð-
inu aö ákveöa hvor leiðin veröur far-
in,“ segir Valþór Hjörleifsson.
Að sögn alþýðubandalagsmanna á
Reykjanesi hefur ekkert annað nafn
en Ólafs Ragnars boriö á góma tU aö
Geir Gunnarsson lysir því yfir að
hann ætli að draga sig í hlé.
DV-mynd Hanna
skipa fyrsta sætið á lista flokksins á
Reykjanesi og ríkir fullkomin eining
um að hann taki sætið. Um hverjir
munu skipa sætin þar fyrir neðan
er hins vegar aUt á huldu. Framboðs-
mál hafa verið í óvissu vegna þess
að menn vissu ekki hvað Geir Gunn-
arsson myndi gera en hann lýsti því
yfir á fundinum á laugardag að hann
ætlaðiaðdragasigíhlé. -J.Mar