Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1991, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 1991.
5
Fréttir
Héraðsskógar:
Verkef ni 90
landeigenda
í 6 hreppum
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum;
Stöðugt er unnið að framgangi
skógræktarátaks á Héraði. Síðastlið-
ið vor voru lögð drög að 40 ára kostn-
aðaráætlun fyrir Héraðsskóga. Á
þessu árabili er áformað að klæða
allt nýtanlegt skógræktarland á
Fljótsdalshéraði skógi og hefjast
framkvæmdir af fullum krafti á vori
komanda. Á árinu 1990 er áformað
að vinna fyrir 35 milljónir og þar sem
verkefnið fékk 35 milljóna króna
framlag á nýsamþykktum fjárlögum
er full ástæöa til að ætla að áætlun
standist.
Að sögn Helga Gíslasonar verk-
efnsstjóra var mikil undirbúnings-
vinna í gangi árinu 1990 svo og var
byrjað að planta. Alls voru góður-
settar 180.000 plöntur í 50 ha. lands
á 20 jörðum og ræktunaráætlanir eru
langt komnar á 13 býlum. Gróður-
kort voru gerð af öllu svæðinu, girtir
á annan tug kilómetra og grisjaðir
30 ha. af skógi. í september var stofn-
að almenningshlutafélag um bygg-
ingu gróðrarstöðvar. Það er nú orðið
ijölmennasta hlutafélag á Héraði
með um 115 hlutaíjáreigendum.
Hlutafé nemur orið 27,3 milljónum
króna. Þar af eiga bændur og samtök
þeirra um 11 milljónir og aðrir ein-
staklingar um 1,2 milljónir króna.
Af þessu má sjá að víðtæk sámstaða
eru um skógræktarátakið.
Að jafnaði unnu 5 menn við úti-
vinnu á árinu, girðingar og grisjun.
Nýskógur plantaður um 1970 er á
nokkrum jörðum í Fljótsdal og þar
unnu bændur yfirleitt sjálflr við
grisjunina.
Hafrannsóknarskipin þrjú, Dröfn, Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson,
Ijósum prýdd í Reykjavikurhöfn. En Árna og Bjarna er ekki til setunnar
boðið. Þeir fara i dag til loðnuleitar með sex loðnubátum.
DV-mynd Brynjar Gauti
Dagatal þýsks stórfyrirtækis:
Myndir teknar á íslandi
Þýska fyrirtækiö Rohde & Schwarz,
sem framleiðir ýmsan rafeindabún-
að fyrir mörg stórfyrirtæki í heimin-
um, hefur gefið út dagatal fyrir árið
1991 sem er sérstakt fyrir það að
MPRESSIONEN
'SLANO
íslandsdagatalið. DV-mynd GVA
myndirnar eru allar teknar á íslandi.
Ragnar Finnbogason, starfsmaður
Rohde & Schwarz, segir að ísland
hafl orðið fyrir valinu vegna þess
krafts sem býr í einfaldleika lands-
ins. „Stjórnendur fyrirtækisins vildu
með þessum myndum koma á fram-
færi einfaldleika landsins sem á að
vera í samræmi við hönnun þeirra
tækja sem þeir framleiða. Myndirnar
eru svart/hvítar og það er mikill ein-
faldleiki á yfirborðinu á myndunum
og hann á að tákna sama einfaldleika
tækjanna en samt sést að undir býr
kraftur."
Dagataliö er einungis gefið út í 1000
eintökum og verður sent til sérstakra
viðskiptavina fyrirtækisins. Mynd-
irnar voru teknar síðastliðið sumar
og við hverja mynd er hending úr
ljóðum frægra þýskra skálda, svo
sem Goethe, Schillers og Wagners.
Kaupf élagið 95 ára
Magnús Ólafeson, DV, Húnavatnssýslum;
Kaupfélag Húnyetninga varð 95 ára
16. desember síðastliðinn. í tilefni af
afmælinu var félagsmönnum veittur
afsláttur í verslunum félagsins og
þar var mikil verslun fyrir jólin. A
starfstíma sínum hefur Kaupfélagiö
markað stór spor í sögu Austur-
Húnavatnssýslu og átt mikinn þátt í
framfórum í héraðinu. Löngum hef-
ur félagið verið stærsti atvinnurek-
andinn hér um slóðir, aðalverslunar-
hús félagsins er á Blönduósi en auk
þess rekur það útibú á Skagaströnd.
Heildarumsetning félagsins er um
700 milljónir á ári og starfsmenn eru
á milli 70 og 80. Kaupfélagsstjóri er
Guðsteinn Einarsson en stjórnar-
formaður Ingvar Þorleifsson, Sól-
heimum.
Kennslustaðir: Auðbrekka 17, Kópavogi og
„Hallarsel“ við Þarabakka 3 í Mjódd.
Kennum alla samkvæmisdansa: suðurameríska,
standard og gömlu dansana.
Einnig barnadansa fyrir yngstu kynslóðina.
Einkatímar eftir samkomulagi.
Innritun og upplýsingar dagana 2.-5. janúar
kl. 15-23 í síma 64 11 11.
Kennsluönnin er 18 vikur, og lýkur með balli.
VfSA
E I
\ Samkort
/
FID Betri kennsla - betri árangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
c.(y\.o-
~igA-1—
HUGSUM FRAM A VEGINN
A
yUMFERÐAR
RÁÐ
ORÐSENDING
TIL KORTHAFA
Samið hefur verið við TRYGGINGAMIÐSTÖÐINA HF.,
Aðalstræti 6, Reykjavík, um að annast korthafa-
tryggingar félagsins frá og með 1. janúar 1991
Þetta gildir um allar ferðatryggingar VISA fyrir handhafa
Almennra korta, Farkorta og Gullkorta.
Nýir tryggingaskilmálar eru í prentun og munu verða
sendir öllum korthöfum innan tíðar. Þá munu
skilmálarnir einnig liggja frammi hjá Trygginga-
miðstöðinni hf., á skrifstofu VISA ÍSLANDS, í
bönkum/sparisjóðum og hjá ferðaskrifstofunum.
Bótaskyld tjón sem korthafar hafa orðið fyrir á árinu
1990 ber að tilkynna SJÓVÁ-ALMENNUM tryggingum hf,
en TRYGGINGAMIÐSTÖÐINNI hf. eftir það.
Reykjavík, 29. desember 1990
VISA
VISA ÍSLAND
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík s. 91-671700