Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1991, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 1991.
Utlönd
DV
Nýárskveðjur kínverska kommúnistaflokksins:
Haldið ykkur við sósíalismann
- harðlínumenn með töglin og hagldimar
Jiang Zemin, ieiðtogi kínverska kommúnistaflokksins, heldur ræðu í lok
miðstjórnarfundar flokksins á sunnduag. Leiðrogar kina boða áframhanld
komúnisma. Símamynd Reuter
Þúsundir Albana flúðu land um áramótin:
Lýðræðisflokkurinn
boðar fjöldaf undi
Um 650 Albanir, sem flestir til-
heyra gríska minnihlutanum í Al-
baníu, létu sér fátt um finnast þó
þeir yrðu að vaða kúlnaregn landa-
mæravarða og snjóskafla og flúðu til
Grikklands á sunnudag. Um áramót-
in flúðu samtals um þrjú þúsund
manns sömu leiö. Frá því snemma í
desember hafa samtals um fimm
þúsund manns flúiö Albaníu. í frétta-
skeytum er sagt að þetta fólk hafl
valiö að kjósa með fótunum og vísað
til fyrstu lýðræðislegu kosninga í
landinu í áratugi en þær verða
haldnar 10. febrúar næstkomandi.
Lýðræðisflokkurinn, sem stofnaö-
ur var 12. desember, vill seinka áætl-
uðum kosningum þar sem talsmenn
flokksins telja hann ekki í stakk bú-
inn að takast á við fjögurra áratuga
kommúnistastjórn í tveggja mánaða
kosningabaráttu. Mikil ólga hefur
verið í Albaníu vegna komandi kosn-
inga og þá beinst gegn kommúnista-
stjóminni. Fjölmennir mótmæla-
fundir vegna dagsetningar kosning-
anna fóru fram víðs vegar í Albaníu
um áramótin en dagsetningunni hef-
ur enn ekki verið breytt.
Alía forseti boðaði umtalsverðar
breytingar í átt til lýðræðis í ára-
mótaávarpi sínu og hvatti fólk til að
sýna þolinmæði meðan lýðræði væri
að þróast í Albaníu. Alía fordæmdi
óróa síðastliðins mánaðar og varaöi
Albani við því að frekari órói myndi
stefna lýðræðisþróuninni í hættu.
Forystumenn Lýðræðisflokksins
hafa beðið fólk um að sýna stillingu
og hafa boðað marga fjöldafundi
vegna kosninganna víðs vegar um
landið.
Þróunin í Albaníu síðastliöinn
mánuð hefur létt höftunum af ferða-
frelsi gyðinga sem hvergi hafa kom-.
ist síðastliðin 25 ár. Samkvæmt frétt-
um ísraelska útvarpsins hafa 350
gyöingar áætlað að flytjast til ísrael
í ár en fjöldi fjölskyldna mun þegar
hafakomiðtilísrael. Reuter
„Haldið ykkur við sósíalisma, vin-
nið hörðum höndum og veitið vest-
rænum áhrifum kröftuga mót-
spyrnu,“ var jólakveðja kínverska
kommúnistaflokksins til kínversku
þjóðarinnar eins og hún birtist í leið-
ara Dagblaðs alþýðunnar á nýárs-
dag.
í leiðaranum var ítrekað að þjóðin
yröi að halda sig við fjóra megin-
þætti kínversks kommúnisma. Það
væri að vinna gegn borgaralegum
lýðræðisöflum, gegn „friðsamleg-
um“ áætlunum fjandsamlegra stór-
velda gegn kommúnisma og innræta
þjóðernisást og sósíalíska meðvit-
und.
Á sama tíma og harða línu var að
fá um nýja árið í Dagblaði alþýðunn-
ar voru mýkri tónar á ferðinni í nýár
sávarpi Yang Shangkun forseta sem
útvarp var til Kínveija erlendis á
gamlársdag.
Þar kom fram stefna stjórnvalda
sem lýsir sér í eftirsókn eftir erlend-
um fjárfestingum en um leið harð-
línukommúnisma heima fyrir. Sagði
Shangkun að Kínverjar héldu áfram
að opna veröldinni dyr sínar og vinir
víðs vegar um heiminn væru vel-
komnir að heimsækja Kína. Shang-
kun viðurkenndi að stjórnvöld hefðu
átt við ýmsa erfiðleika að etja og er
talið að þar hafi hann meðal annars
átt við stúdentauppreisnirnar sum-
arið‘1989. Hann lofaði þó styrka
stjórn Jiang Zemin flokksritara.
Frá því kommúnisminn hóf að falla
í Evrópu og Sovétríkjunum hafa
stjórnvöld í Kína litið á Mikhail Gor-
batsjov sem svikara við málstað
kommúnismans. Sex daga funda-
höldum miðstjórnar kínverska
kommúnistaflokksins lauk á sunnu-
dag og þar var samþykkt vinna
áfram undir merkjum kommúnisma.
Þá var samþykkt fimm ára efna-
hagsáætlun sem kínverskir hagfræð-
ingar hafa lýst sem málamiðlun milli
endurbótasinna og íhaldsaflanna í
flokknum. Áætlunin þykir þó bera
þess greinileg merki að harðlínu-
menn háfa töghn og hagldirnar í
flokknum.
Þess má loks geta að kínversk
stjórnvöld hafa ákveðið áð gefa heild-
arverk Lenins út á ný. Reuter
Argentína:
Kröftug mótmæli vegna
náðunar herf oringja
Kröftug mótmæh áttu sér stað í
Argentínu um helgina vegna náðun-
ar Menems forseta á herforingjum
þeim er voru við völd í Argentínu frá
1976-1983. Mótmælin voru þau mestu
í 18 mánaða valdatíð Menems for-
seta. Mótmælin náðu einnig út fyrir
landsteinana en náðanir Menems
hafa víðs vegar verið kahaðar háð-
ung gagnvart réttarvitund fólks.
Menem náðaði 7 fyrrverandi her-
foringja og lögreglustjóra á laugar-
dag, menn sem talið er að hafi líf að
minnsta kosti 9 þúsund manns á
samviskunnni auk pyntinga og ann-
arra óhæfuverka á tímum herstjórn-
arinnar. Meðal hinna náðuðu voru
tveir fyrrverandi forsetar Argentínu,
þeir Jorge Vidale og Roberto Viola,
tveir fyrrverandi lögreglustjórar Bu-
enos Aires og einn fyrrumyflrmaður
vinstri skæruliða, Martin Firmenich.
Enginn hinna náðuðu hefur setið
lengur í fangelsi en sjö ár en þeir
fengu allir langtíma- eða lífstíðar-
fangelsisdóma.
Menem hefur vísað gagnrýni vegna
náðananna á bug og bent á svipaðar
náðanir fasista á Ítalíu og Baska á
Spáni máli sínu til stuðnings. Ein
krötugasta gagnrýnin kom einmitt
frá þessum löndum.
Þó náðanirnar hafi vakið upp óhug
meðal almennings í Argentínu er
þeim fangað innan hersins. Er ein-
mitt tahð að náðanir herforingjanna
séu meðal annars geröar í þeim til-
gangi að friða herinn og ókyrr öfl
innan hans en herinn hefur staðið
fyrir sex valdaránum í Argentínu á
þessari öld.
Reuter
Aðstandendur einhverra hinna 9 þúsund manna sem hurfu á tímum herstjórnarinnar í Argentinu á „ógnarárun-
um“ 1976-1983 láta óánægju sína með náðanir herforingjanna í Ijós á sunnudag. Simamynd Reuter
Afbrot sovéskra hermanna 1 Þýskalandi:
Herforingi rekinn
eftir vopnastuld
Maharishi Yogi:
íhugun leysir
Persaflóadeiluna
Indverski jóginn Maharishi Ma-
hesh Yogi, sem upphaflega kynnti
innhverfa íhugun fyrir Vestur-
landabúum, hefur lýst því yfir aö
hann hafi lausnina á deilunni. við
Persaflóa innan seilingar. Hann segir
að ef að minnsta kosti 7 þúsund
manns við háskóla sinn í Iowa í
Bandaríkjunum íhugi í einu muni
það leiöa til friðsamlegrar lausnar
deilunnar við Persaflóa.
Talsmaður Maharishi segir eðlilegt
að fólk hafi vantrú á mætti fólks sem
situr með krosslagðar fætur og lokuð
augu. Hins vegar hafi komið í ljós
sannanir fyrir því að alþjóðadeilur
og stríð væru einmitt í lágmarki á
sama tíma og stórfundir áhugafólks
um íhugun ættu sér stað.
Um þrjár milljónir manna víös veg-
ar um heiminn iðka innhverfa íhug-
un. Reutcr
Boris Snetkov, herforingi yfir her-
sveitum Sovétmanna í austurhluta
Þýskalands, hefur veriö rekinn úr
embætti sínu vegna liðhlaups og af-
brota sovéskra hermanna þar und-
anfariö.
145 sovéskir hermenn í Þýskalandi
hafa hlaupist undan merkjum. Þar á
meðal er hösforingi sem sakaður er
um að hafa stolið þremur skrið-
drekasprengjum og tveimur eld-
flaugum og hlaupist á brott ásamt
konu sinni, börnum og yfirmanni
birgðastöðvar sovéska hersins. Þaö
voru þessi afrkek liðsforingjans sem
fylltu mælinn eftir mikil afbrot og
liðhlaup undanfarnar vikur og
leiddu til þess að Snetkov, yfirherfor-
ingi herja Sovétmanna í austurhluta
Evrópu og einn af hæstsettu herfor-
ingjum Sovétmanna, var settur af.
Liðsforinginn fingralangi á yfir höfði
sér dóm fyrir liðhlaup, landráð og
vopnastuld.
49 sovésku hermannanna sem
hlaupist hafa á brott hafa leitað póli-
tísks hæhs en ekki er vitað hvort
þeir eru allir frá Þýskalandsher-
deildunum.
Talsmaður sovéska hersins segir
afbrot sovéskra hermanna mikil en
sögur af vopnastuldi þeirra í þeim
tilgangi að selja þau stórlega ýktar.
Hefði mikið af vopnunum náðst aft-
ur.
Sovésku herveitimar snúa aftur
frá Þýskalandi 1994.
Reuter