Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1991, Side 28
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022
MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 1991.
Mikið hvassviðri var á Vestfjörö-
um, Snæfellsnesi og Austurlandi í
morgun. Tveir bílar fóru út af Hóla-
vegi, skammt fyrir utan Höfn í
Hornafirði, í miklu hvassviðri gær. i
Hvalfirði mældist vindhraði 60-70
hnútar í morgun, eða um 12 vindstig.
Að sögn vegaeftirlitsmanna var
ófært um FJarðarheiði og Vatnsskarð
eystra vegna stórhríðar. Skafrenn-
ingur var á Öxnadalsheiði og mjög
hvasst og hálka til Siglufjarðar.
Nánast allt innanlandsflug lá niðri
í morgun. í kjölfar viðvörunar frá
Veðurstofunni um mikla ísingu og
ókyrrð í háloftunum frestuðu Flug-
leiðir öllu innanlandsflugi sínu fram
eftir degi. Sama gerði Arnarflug inn-
anlands nema hvaö flogið var til
Vestmannaeyja klukkan átta í morg-
un. Á Veðurstofu íslands fengust þær
upplýsingar í morgun að ekki væri
búist við miklum breytingum á veör-
inu í dag né á morgun. -ÓTT/KAA
Föruni eftir viku
- segir Stefanía Reinharðsdóttir Kahlifeh, ræðismaður Islands 1 Jórdaníu
„Auðvitað vonar maður í lengstu ingar eru á líklegum átakasvæð- Stefanía og tvær aðrar íslenskar Stefania sagði að enginn vöru-
lög að ekki komi til styrjaldar en um, 11 í Jórdaníu en aörir í Saudi- konur eru búsettar í Amman í skortur væri i Amman og i fljótu
ef ekki verður róttæk breyting til Arabíu og arabísku furstadæmun- Jórdaníu og giftar jórdönskum bragði virtist striðsógnin ekki hafa
batnaðar á allra næstu dögum umAbuDhabi,BahrainogQatar. mönnum. Eiginmenn þeirra hafa bein áhrif á þjóðlííið. „Á yfirborð-
munum við fara frá Jórdaníu eftir „Við hér í Jórdaníu erum bókuð nú allir hlotið islenskan rikisborg- inu gengur allt sinn vanagang en
viku,“ sagði Stefanía Reinharðs- með flugi þann níunda og erum öll ararétt en fjölskyldurnar þrjár eru undir niöri kraumar gífurleg og
dóttir Kahlifeh, ræðismaður ís- reiðubúin að fara þá. Það er heldur ellefumanns. ógnvekjandi spenna. Það sem
landsí Jórdaníu,íviðtaliviðblaða- ekki seinna vænna að koma sér á Stefanía telur útilokaö að fleiri menn óttast mest hér er hættan á
mann DV. brott því Iofthelgi Saudi-Arabíú íslendingar séu í Jórdaníu. Hins því að ísrael dragist inn í hemað-
íslensk stjómvöld hafa hvatt alla verður lokað þann tólfta og eftir vegar veit hún af eirrni íslenskri arátökin og ráðist þá á Jórdaníu.
íslendinga sem búa á líklegum þann dag leggst niður allt farþega- konu í Katar sem þar er gift Palest- Auðvitað vona allir það besta en
átakasvæðum í Mið-Austurlöndum flug á þessum slóðum enda neita ínumanni. Hefur Stefanía reynt að útlitiö er óneitanlega mjög svart
aö hverfa á brott þaðan fyrir 15. tryggingafélög að bera ábyrgð á násambandiviökonunaaöundan- eins og allir sjá.“
janúar næstkomandi.Um 20 íslend- flugvélum eftir það.“ , förnu en án árangurs. -KGK/HLH
Tveir menn og bam:
Fundusteftirleit
Tveir menn og drengur fundust í
jeppa um 300 metra frá veginum uppi
á Fjarðarheiöi um eittleytið í nótt.
Mennirnir fóru frá Egilsstöðum um
hádegisbilið og ætluðu aö vera
komnir aftur til byggða um kvöld-
matarleytið. Þeir ætluðu inn á Gagn-
heiði en villtust á leiðinni.
Leit að þeim hófst um klukkan ell-
efu í gærkvöldi. Þrátt fyrir mjög
slæmt skyggni fundu leitarmenn
jeppann mjög fjótlega. -ÓTT
Hitaveitan:
Kalt í baðinu
„Kvartanir vegna kaldra húsa hafa
minnkað mjög mikið. Það voru á
milli 40 og 50 kvartanir yfir áramót-
in. Mest var kvartað á milli klukkan
þrjú og sex á gamlársdag þegar þjóð-
in fór í bað. Ekkert hús var hins veg-
ar kalt heldur hafði hiti minnkað,"
sagði Halldór Jónasson hjá Hitaveitu
Reykjavíkur í morgun.
Áð sögn Halldórs bárust kvartanir
um áramótin víðs vegar að úr borg-
inni. „Kvartanir úr Hafnarfirði og
Garðabæ hafa snarminnkað." -JGH
Sex teknir
Sex „góðkunningjar" lögreglunnar
voru staðnir að innbrotum í Reykja-
vík í nótt. Á þriðja tímanum höíðu
þrír menn brotist inn í íbúð við Vita-
stig. Þeir voru gripnir á vettvangi og
færðir í fangageymslur.
Sömu leið fóru þrír aðrir nokkru
síðar en þeir menn brutust inn á
hárgreiðslustofu við Grettisgötu og
voru einnig staðnir að verki.
-ÓTT
LOKI
Kaldir kallar hjá ríkis-
sjónvarpinu að bjóða
u p p á d j ú pf ry st ska u p!
Rósa Jónasdóttir með nýfæddan son sinn á nýársdag. Hann fæddist klukk-
an 1.12 á nýársnótt og er tyrsta barn ársins 1991. DV-mynd Brynjar Gauti
Fyrsta bam ársins fæddist á Landspítalanum:
Honumlááað
komaíheiminn
- segir móöirin, Rósa Jónasdóttir, sem á eitt barn fyrir
„Eg átti alls ekki von á að hann
yrði fyrsta barn ársins. Það var búið
að tímasetja fæðinguna þann 6. jan-
úar en hann var snemma á ferðinni,
lá greinilega á að koma í heiminn.
Við komum á Fæðingardeildina á
gamlársdagsmorgun og rétt eftir
miðnætti var hann kominn," sagði
Rósa Jónasdóttir, móðir fyrsta barns
ársins, í samtali við DV.
Fyrsta barn ársins varð strákur.
Hann fæddist klukkan 12 mínútur
yfir eitt á nýársnótt og gekk fæðingin
mjög vel. Þetta er myndarlegur ný-
ársstrákur, vó 14 merkur og mældist
53 sentímetrar á lengd.
Fyrsta barn ársins á stóran bróður,
Hlyn Kristján, sem aðeins er 14 mán-
aða gamall. Pabbi fyrsta barnsins
heitir Árni Geir Jónsson.
Þegar DV-menn heilsuðu upp á
barnið og móður voru afi og amma
í heimsókn og hrifningin leyndi sér
ekki. Amma hafði á orði aö fyrir
hátíðarnar hefði verið sagt í gamni
meðal íjölskyldunnar að ef barnið
fæddist ekki á sjálfum jólunum yrði
það örugglega fyrsta barn ársins. Og
það varð úr.
-hlh
Varðskipið Ægir í nótt:
Flutti tvo sjúkl-
inga í f árviðri
Varöskipið Ægir tók sjúklinga frá
Þingeyri og Súgandafirði og sigldi
með þá áleiðis til ísafjarðar í nótt. Á
Þingeyri er hjúkrunarfræðingur en
þar er enginn læknir.
Þetta er í annað skiptið á fimm
dögum sem varðskip þarf að flytja
sjúklinga frá Þingeyri. TF-SIF þyrla
Landhelgisgæslunnar'fór í sjúkra-
flug vestur á laugardag en hún bilaði
þegar þangað var komiö. Kom þá
varðskip í staðinn og flutti sjúkling-
ana til Isafjarðar.
Þegar DV fór í prentun var komið
fárviðri, um 9-10 vindstig, á þeim
slóðum í ísafjarðardjúpi sem Ægir
var kominn með sjúklingana áleiðis
til ísafjarðar. Ekki hefur verið flug-
veður frá Þingeyri og eina leiðin til
að ferðast með fólk á milli staða er
með snjóbíl. -ÓTT
Veörið á morgun:
Hvassviðri
eða stormur
Á morgun verður norðaustlæg
átt, víöa hvassviðri eða stormur
norðvestanlands en hægari ann-
ars staðar. Éljagangur eða snjó-
koma, einkum norðanlands og
austan. Frostlaust suðaustan-
lands en annars 0-5 stiga frost,
kaldast norövestanlands.
/SMV
£ C 72177 \
SMIÐJUKAFFI
SBHDUM FRÍTT HUM
0PNUM KL. 11 VIRKA DAGA
OG KL. 6 UM HELGAR