Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Side 2
2 LAUGAipAGUR 19. JANÚAR 1991. Fréttir Sif litla var að horfa út um þennan glugga á bænum Selsundi þegar hún sá „rauð og falleg ský' varð fyrst vör við eldgosið i Heklu í gær. “. Litla hnátan DV-mynd GVA Sif Þorsteinsdóttir, 5 árá, sem sá Heklugosið fyrst: Eg sá eldgosið - það var rautt - ætla samt ekki að fara nær flallinu Sif Þorsteinsdóttir úr Ólafsvík var í heimsókn hjá afa og ömmu i Selsundi þegar dró til tíðinda hjá henni. Svava Guðmundsdóttir og Sverrir Haralds- son eru ábúendur á bænum sem er næsta byggða ból við Heklu. „Eg man ekki alveg hvaö þetta heit- ir. Jú, annars, það var svona rautt. Ég sá eldgosiö. Fyrst kíkti ég út um gluggann og sá rautt á himninum. Svo fór ég út og fór hinum megin við húsið. Þá sá ég mikinn eld í fjallinu. Ég sagði afa og ömmu hvað ég sá,“ sagði Sif Þorsteinsdóttir, 5 ára stúlka úr Ólafsvík, sem varð fyrst vör við eldbjarmann frá gosinu í Heklu þeg- ar klukkan var 18 mínútur yfir fimm síðdegis í gær. Stúlkan hafði verið nokkra daga í góðu yfirlæti hjá afa sínum og ömmu á bænum Selsundi í 14 kílómetra fjarlægð frá Heklu þegar dró til tíö- inda hjá hnátunni. Sif litla stóð uppi á stól í eldhúsglugganum hjá ömmu sinni og afa í gær þegar hún veitti því athygli hvernig skýin fyrir ofan hraunbakkann fyrir utan voru „rauð og falleg". Sif sagði að sér hefði þótt gaman að verða fyrst til að sjá eldgosið: „Ég ætla að segja mömmu frá þessu. Þetta var flott. Ég fer samt ekki nær fjallinu - má það ekki. Þá geri ég það ekki,“ sagði Sif. Sverrir Haraldsson bóndi, afl stúlkunnar, sagðist varla hafa trúað því þegar heimilisfólkið hefði sagt sér að Hekla væri farin að gjósa: „Stelpan var varla komin til okkar í síöustu viku þegar hún fór að spyrja um myndir frá eldgosum. Það var allt tint til til að sýna henni. Síðan varð hún fyrir þessari reynslu og skemmtilegu tilviljun að uppgötva eldgos fyrst af öllum," sagði Sverrir Haraldsson. -ÓTT DV Bifreiðar í hundraða- tali streymdu að Heklu - mesta furöa hve fá óhöpp uröu Forvitnir áhugamenn tóku þegar við sér eftir að gos í Heklu var til- kynnt og byrjaði strax þungur straumur bifreiða á vettvang til að fylgjast með hamfórunum. Slæm færð, mikil hálka og töluverð snjó- koma virtist lítið draga úr áhuga fólks á að berja ósköpin augum. Þeg- ar mest var, kringum og eftir mið- nætti, skiptu bifreiðar hundruðum á gosstað. Góður föstudagur um verslunarmannahelgi Lögreglan á Hvolsvelli lýsti ástand- inu þannig að umferðin hefði verið lík því sem gerist á góðum fostudegi um verslunarmannahelgi. Veður var mjög breytilegt í nánd við Heklu í allan gærdag og fram undir morgun. Gekk á með éljum en gerði hið besta veöur á mOli. Þegar flest var af forvitnum áhorf- endum, í kringum miðnætti, var veð- ur hvað best. Menn kunnu auðsjáan- lega vel að meta þá dýrð sem fyrir augu bar. Vindáttin var suðvesúæg á þessum tíma. Laust eftir klukkan 1 eftir miðnætti fór vindátt að breyt- ast til suðausturs. Lögreglan greip þá til þess ráðs að loka Rangárvalla- vegi rétt sunnan við Gunnarsholt fyrir bílaumferð, og stuttu síðar Landveginum við bæinn Þúfu. Lokunin var gerð á grundvelli þess að búist var við versnandi veðri auk þess sem fyrirsjáanlegt var að gjóskulög myndu berast yfir helstu útsýnissvæði til Heklu. Þegar síðast fréttist um klukkan 6 í morgun hafði gjóskubeltið náð alla leið aö Tröll- konuhlaupi. Þegar leið fram undir morgun var vindátt orðin austlæg og spáð var norðlægri átt. Norðlæg átt ber gjósku til suðurs sem er ekki talið mjög eftir- sóknarvert þar sem gjóskan bærist þá miklu frekar yflr ræktað land og byggð. ( Þrjú umferðaróhöpp Nokkur umferðaróhöpp urðu í gærkvöldi en lögreglan á Hvolsvelli telur mestu mildi aö þau urðu ekki fleiri miðað við umferðarþunga. Um klukkan 10.30 í gærkvöldi varð árekstur þriggja jeppabifreiða. Jeppabifreið var að reyna að komast að góðum útsýnisstað við Heklú- braut á veginum við Skjólkvíar en rann til í halla á tvær aðrar sem á eftir henni komu. Við Landvegamót ultu tvær bif- reiðar í hálkunni, sú fyrri klukkan 21.27 og sú síðari klukkan 00.04. Eng- in alvarleg slys urðu á fólki í þessum óhöppum. ÍS Alþjóðaráð Rauða krossins um Persaflóastríðið: Kallar á stærstu neyð- aráætlun seinni tíma allt að 6,4 miILjörðum króna í líknar- og hjálparstarf í neyðaráætlun sem Alþjóðaráð Rauða krossins hefur gert til að bregðast við afleiðingum stríðsins fyrir botni Persaflóa er gert ráð fyrir að ef mál þróast á versta veg þurfl að aðstoöa tugi þúsunda stríðsfanga og jafnvel milljónir flóttamanna. Ráðið hefur í undirbúningi að reisa að minnsta kosti 10 sjúkraskýli með samtals 1000 sjúkrarúmum í ná- grenni við átakasvæðin, einkum í Saudi-Arabíu og íran. Einnig ætlar ráðið að taka að sér almenna heilsu- gæslu á sjálfu átakasvæðinu. Auk þessa hyggst ráöið koma upp flótta- mannabúðum utan átakasvæðanna þar sem hægt verður að hlúa að 300 þúsund manns í einu. í frétt frá Alþjóðaráðinu segir aö á vegum þess sé starfsfólk í 11 löndum ■ nálægt átakasvæðinu, þar á meðal í írak. Ráðið gerir ráð fyrir að þörf verði fyrir jafnvel á þriðja þúsund manns, þar af um 1200 lækna og hjukrunarfræðinga. Sagt er að um 100 sendifulltrúar ráðsins séu þegar í viðbragðsstöðu í Genf, tilbúnir að takast á viö þau verkefni sem upp kunna að koma á átakasvæðinu. -kaa Fyrrum yflrmaður Rauða krossins í Svíþjóð: Ræða þarf aðstoð við óbreytta borgara - ekki bara særða hermenn „Maðiír hefði búist við að alþjóð- legar hjálparstofnanir hefðu skipu- lagt hvað gera á fyrir óbreytta borg- ara sem verða fórnarlömb stríðsins við Persaflóa. Það er mest talað um undirbúning fyrir móttöku særðra hermanna og stríðsfanga." Þetta segir fyrrum yfirmaður Rauða krossins í Svíþjóð, Anders Wijkman. Hann bætir því við að Al- þjóða Rauði krossinn í Genf hafi að vísu skipulagt aðhlynningu almenn- ings en bendir á að Rauði krossinn sé lítil stofnun. Wijkman spyr hvað stjórnir þeirra landa, sem heyi stríðið gegn írak, geri. Fullyrðir hann að þær hafi ekki einu sinni rætt vandann. Þrengt að fjölmiðlum við Persaf lóa Eftir langvarandi viðræður full- trúa fjölmiðla við yfirstjóm banda- ríska hersins í Pentagon gaf her- stjórnin í síðustu viku út „endanleg- ar“ reglur varðandi starf fjölmiðla- fólks á átakasvæðum við Persaflóa. Þær reglur þykja með öllu óaðgengi- legar og hefur verið mótmælt harð- lega af fulltrúum stóru sjónvarps- stöðvanna og stórblaða og tímarita í Bandaríkjunum. Þykja reglurnar vera mun strangari en þarf til að vemda öryggi hermanna og leynd yfir hemaðaraðgerðum. Þykja yfir- völd ritskoða gróflega starfsemi frjálsra fjölmiðla. í tímaritinu Time segir að starf- semi blaða- og fréttamanna verði undir ströngu eftirliti hersins á öll- um stigum. Vinnsla frétta frá átökpm verður aðeins leyfð blaða- og frétta- mönnum er starfa í dilkum eða „po- ols“ sem skipulagðir em af heryfir- völdum. Þannig má sjá sjónvarps- fréttamyndir á CNN merktar „pool video“.‘Þeir sem voga sér út á átaka- svæði á eigin spýtur verða strax fluttir frá átakasvæðinu. Þetta fyrirkomulag er alveg and- stætt því sem viðgekkst í Víetnam- stríðinu, Kóreustríðinu eða seinni heimsstyrjöldinni. Þá gátu frétta- og blaðamenn, á eigin ábyrgð, verið meðal hermanna í átökum. Dilkar voru þar sjaldgæfir, Fréttir sendar frá Persaflóasvæðinu verða hins veg- ar að fara í gegnum athugun heryfir- valda og geta orðið taflr vegna ágreinings er kann að rísa vegna efn- is þeirra. Fréttir af fóllnum banda- rískum hermönnum eða skemmdum á hertækjum fást til að mynda ekki nema eftir yflrlýsingu Pentagon þar um. Þar til ræður „heyrst hefur“. En það eru ekki aðeins bandarískir blaða- og fréttamenn sem búa við tcikmarkanir, heldur einnig franskir og breskir. Bretar halda því fram að strangt aðhald með fréttaflutningi af Falklandseyjastríðinu hafi haft af- gerandi áhrif á úrslit þess. Bresk yfirvöld halda því fram að til að fá almenning með sér veröi stríðsrekst- ur að fara fram „í friði“. Ráðamenn í Pentagon segjast ekki aðhyllast þetta sjónarmið Bretanna en ef marka má fyrrnefndar reglur viðist það hins vegar vera tilfellið. Fjölmargir Bandaríkjamenn trúa því nefnilega statt og stöðugt að stríðið í Víetnam hafi ekki tapast í frum- skóginum heldur á síðum blaðanna og sjónvarpsskjánum. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.