Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Blaðsíða 14
14 Spumingin FÖSTUDAGUR 18, JANÚAR 1991. Viðskiptasið- m : - jmt m m ■ : ay . ferði i lagi! Páll Pálsson skrifar: Sagt er aö nýbyggðar íbuðir seljist treglega og verðlækkun verði viðvarandi um einhvern óákveðinn tíma. Ég las einkemt- ilega frétt nýlega um verðlækkun á íbúöum og álit fasteignasala eins sem sagöi verðlækkunina viöbrögð við markaðnum. Ég er mjög sammála um þetta atriði. - Að á meðan markaðurinn ekki ieyfir hátt verð og full affóll þarf að bregðast við því eins og þegar verið er að selja hverja aðra vöru. Svo sagði fasteignasaiinn að er þetta sveiflaðist yfir á einhvern annan veg í framtíðinni og lítiö framboö væri og mikil eftisspurn þá „tækju menn hærra verð og full affóÚ“. - Sem sé, þegar útséö er aö menn hafa eitthvað meira á milli handanna þá á að keyra verðið aftur upp í topp. Þetta er nú viðskiptasiðferði í lagi! Sérernú hvert öryggið Anna Guðmundsdóttir hringdi: í skoðanakönnun, sem nýlega hefur veriö birt, fer Ríkisútvarpið heldur betur halloka fyrir hinum frjálsu fjölmiðlum. Meirihluti að- spurðra vill ráða sjálfur hvort hann greiðir fyrir sjónvarp. Það er því ekki nokkur forsenda fyrir ríkið að halda úti ríkisútvarpi - og alls ekki sjónvarpi. í neyðartilvikunum sem RÚV klifar sífellt á þegar það á í vök að verjast um tilverurétt sinn er ekkert á aö byggja, þ.e. að útvarp náist til landsbyggðarinnar allr- ar. Nýlega tilkynnti RÚV í sífellu að hvorki sendingar útvarps eða sjónvarps RÚV næðust til Norð- urlands eða Austurlands vegna truflana. - Þetta er auðvitað óþol- andi og eins gott að láta af þessum fáránlega og rándýra rekstri eins fljótt og verða má. Flautiðerbara plat? Gísli Ólafsson hringdi: Ég trúi ekki öðru en viö hér í höfuðborginni a.m.k. séum orðin hvekkt á að heyra sífellt í flautum Almannavarna og vera jafnoft til- kynnt aö hér sé um bilun að ræða. - Ýmist fer flautan í gang af sjálfs- dáðum eða það er verið að prófa hana og kanna hvort hún virkar rétt. Hvenær vitum .við þegar flautað er í alvöru, og hvaö gerum við þá? Ég hef ekki séð neinar leiðbein- ingar um það hvert við eigum að flýja þegar og ef stóra stundin rennur upp, að við verðum að yfirgefa heimili eða vinnustaði okkar. - í alvöru talað: Er ekki kominn tími til að ábyrgir aðilar boði til allsheijarfundar almetm- ings gegnum sjónvarp til að leið- beina fólki um fyrstu aðgerðir Almannavarna í neyðartilvikum? Ekkivantar hortugheitin Sigurður Kristinsson skrifar: Þær ríða ekki við einteyming kröfugerðirnar á hendur hinu opinbera hér á landi. Nú hefur 14 manna hópur fólks sem kallar sig „ættingja og vini‘' íslendinga sem búa á hugsanlegum átaka- svæðum við Persaflóa sent öllum ráðherrum íslensku ríkisstjórn- arinnar bréf þar sem ráðherrarn- ir eru gerðir persónulega ábyrgir vegna afleiðinganna sem stríð kann að hafa á ættingjana. Skyldi þetta vera ný baráttuað- ferö kosningamaskínu Alþýðu- bandalagsins þar sem bréfiö er svo sent á póstfaxi til allra fjöl- miðlanna til að ýta frekar á ráð- herrana? En m.ö.o: Hefur einhver beðið íslendinga að fara til dvalar í Austurlöndum nær? - Ekki vantar samt hortugheitin! Lesendur Baldur Ólafsson deildarstjóri: Nei, ég hef ekki haft aðstæður til þess. Váleg tíðindi frá tryggingafélögum Hækkun iðgjalda aðeins 15% - og rör í veggjum undanskilin! Anna Kristjánsdóttir skrifar: Ég er ein þeirra sem staldra við er ég heyri þau válegu tíðindi sem nú berast frá tryggingafélögunum. Það er búið að ákveða hækkun'á iðgjaldi fasteignatrygginga á bilinu 40-48,5%. Þetta nær náttúrlega engri átt þótt Tryggingaeftirlitið sé búið að fara yfir útreikninga tryggingafélaganna. En það er líka ekki sama hver hækk- unin er. Það er t.d. munur á 5-10%, og 40-50% hækkun. Sú síðari er ekki í neinu samræmi við aíkomu al- mennings í landinu. Það er jú almenningur sem á hús eða íbúðir, a.m.k. að nafninu til. Og hver vill ekki verja sig áfóllum ef eitthvað fer úrskeiðis og óhapp hend- ir og viðgerðar er þörf? Og það gerir maður með því að tryggja eign sína. Nú segja tryggingafélögin sem svo að maður þurfi ekki að sæta 40-48,5% hækkun ef maður tekur á sig 28 þús. króna eigin áhættu, þá sé „boðið" upp á 15% iögjaldshækkun. - Eða ef maður undanskilji vatnstjón af völd- um röra í veggjum, þá verði hækkun- in sömuleiðis ekki nema 15%. Það er lítil trygging í því. Þrátt fyrir þessar gífurlegu hækk- anir segjast tryggingafélögin ekki notfæra sér alla þá útreiknuðu hækkunarþörf, sem þau hafi rætt um að fá samþykkta hjá Tryggingaeftir- litinu og tekið tillit til „ríkjandi að- stæðna" í þjóðfélaginu. - Hvað skyldi þá Hafliði allur hafa orðið dýr ef „ríkjandi aðstæður" hefðu ekki ríkt? En nú ríkir „sátt" í djúpum dal, „þjóðarsátt" og ég get engan veginn séð að þessum tíðindum frá trygg- ingafélögunum sé ætlað að koma til móts við það ímyndaða hugtak. Það er auðvitaö ekkert annað en ímynd- un í fyrsta lagi, að hér sé einhver þjóðarsátt ríkjandi, og í öðru lagi er það ekkert annað en ímyndun, að fólk geti almennt tekið þessa ið- gjaldahækkun fasteignatryggingar á sig. En hvað segja nú forystumenn launþegasamtakanna sem hafa verið að kæra lúsarhækkun á einhverjum kornflexpökkum eða öðrum óþarfa gerviþörfum sem seldar eru í mat- vöruverslunum? Halldóra Matthíasdóttir mötuneytis- mær: Nei, ég sef á næturnar og vinn á daginn. Sjómenn og útgerðarmenn örvænta: Verða að taka sönsum Kristján Ólafsson skrifar: Nú er komin ákvöröun um að framlengja loðnuveiðibannið. Lík- legast er þó að ekki verði um frekari loðnuveiði að ræða á þessari vertíð. Mér hefur fundist einkennilegt aö það skuli þurfa sérstaka fundi með sjómönnum og útgerðarmönnum þótt svo fari að loðnuveiði verði ekki leyfð í bih. Enginn útgerðarmaður getur verið svo grunnhygginn aö reikna fyrirfram með svo og svo mik- illi loðnuveiði eða veiði á nokkurri annarri tegund fiskjar. Sjávarafli hefur alltaf verið svipull og hann er aldrei mælanlegur fyrirfram. - Það eru því heldur kaldar kveðjur til almennings þegar útgerðarmenn segja sem svo að úthluta verði þeim flokki fiskiskipa sem stunda loðnu- veiðar öðrum veiðiheimildum. Þetta þýðir nefnilega þaö að þau skip sem stunda aðrar veiðar en loðnu eigi þá að láta af sínum kvóta, og þannig verður ekki bara loðnubrestur, held- ur líka brestur í öðrum tegundum veiða og þar með tekjumissir fyrir mun fleiri sjómenn. - Fiskifræðingar verða að fá að eiga síðasta orðið í þessum málum. Þótt erfitt sé að segja til um ná- kvæmar stofnstærðir á loðnu og öör- um fisktegunum eru þessar fiski- rannsóknir nú það eina sem viö höf- um sem haldreipi gegn því að ekki sé gengið blint í hvern fiskstofninn á fætur öörum og hann svo til „þurrk- aöur upp“. - Sjómenn og útgerðar- menn verða einfaldlega að taka söns- um og sætta sig við stjórnun á fisk- veiðum eins og hverium öðrum at- vinnuvegi landsmanna. Fundað um niðurstöður rannsókna á loðnustofni. Kristján Sigurðsson rafvirki: Nei, ég er ekki með myndlykil. Hallfríður Stefánsdöttir ökukennari: Já. Mér finnst alveg sjálfsagt að leyfa þessar útsendingar. Ólafía Thorlacius húsmóðir: Nei. En þetta er hræðilegt ástand í heiminum og ég vona að það gangi yfir sem allra fyrst. Einar Gunnarsson bílstjóri: Ég kíkti aðeins á þær fyrsta kvöldiö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.