Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Page 3
FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991.
3
Fréttir
Fjögur í gæsluvaröhaldi:
Ávísanafals
upp á tæpa
eina milljón
- notuðul3stolintékkheftiyílrjólahátíðamar
Þrír karlmenn og ein kona sitja nú
í gæsluvarðhaldi í Síðumúlafangels-
inu vegna stórfellds tékkamisferlis
sem þau stunduðu um jólahátíðarn-
ar. Fólkið komst yflr 13 tékkhefti með
ólögmætum hætti og skrifaði út ávís-
anir úr þeim fyrir samtals tæpa eina
milljón króna. Mun fleiri tengjast
þessu máli - þar á meðal unghngar.
Ávísanamisferlið var að mestu
stundað þegar jólaverslunin stóð
sem hæst. Tékkheftin voru meðal
annars afrakstur innbrota og veskja-
þjófnaða. Fólkið fór síðan í verslanir,
skrifaði út tékka úr stolnu heftunum
og notaði þá í viðskiptum. Tékkarnir
voru flestir að upphæð 7-10 þúsund
krónur. Fólkið keypti hins vegar vör-
ur fyrir mun lægri krónutölu en upp-
hæð ávísananna var. Því fékkst
nokkur þúsund króna afgangur í
hvert skipti.
Megniö af tékkunum var gefiö út í
verslunum eða á þjónustustöðum.
Falsararnir létu vera að fara með
ávísanimar í banka enda hefði mis-
ferlið þá líklega komist upp strax.
Að sögn RLR má ætla að afrakstur
þeirra peninga sem fólkið náði út
hafi meðal annars farið til áfengis-
og fíkniefnakaupa.
Að sögn Jóns Snorrasonar, deildar-
stjóra hjá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins, era mál sem tengjast ávísana-
misferli mjög tímafrek og dýr fyrir
þjóðfélagið. Að jafnaði vinna fimm
rannsóknarlögregumenn daglega við
shk mál. Jón segir að varlega áætlað
sitji að jafnði 25 afbrotamenn í fang-
elsi vegna tékkafalsmála. Kostnaður
vegna eins fanga nemur 2,4 milljón-
um króna á ári.
„Við teljum að tékkafalsmálum
myndi fækka að minnsta kosti um
helming ef fólki yrði ekki heimilað
að skrifa út nema fyrir þá upphæð
sem það kaupir fyrir. Ástæðan fyrir
því að afbrotamenn fara út í þetta
er að svona lagað er einfaldlega
mögulegt. Einnig er alveg ljóst að
mynd á bankakorti myndi fækka
tékkafalsmálum enn frekar,“ sagði
Jón Snorrason hjá RLR.
-ÓTT
HELGARFERÐIR I JANUAR FEBRUAR OG MARS
Skemmtiskrepp um helgi
kostar ekki mikið...
...með Flugleiðum.
BALTIMORE/
Washington og Baltimore eru borgir sem hafa allt að hjóða sem íslendingar vilja.
Prábær hótel, risastórar Kringlur, einn besta tengiflugvöll Bandaríkjanna,
veitingastaði, þekktar byggingar, heillandi umhverfi, söfn og skemmtigarða.
Það er hægt að gera góð kaup í Washington og Baltimore og
dollarinn verður ekki lægri. • ■
PÖSTUDAGUR TIL MÁNUDAGS
LOMBARDY/ WASHINGTONDG
TVEIR í HERB. KR. 33.580 Á MANN
FLUGLEIÐIR
Þjónusta alla leið
Söluskrifstofur Flugleiða:
Lækjarqötu 2, Hótel Esju oq Krinqlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 6 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugíeiða, hjá
ífstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum
■
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1 -3, Reykjavík, sími 686633