Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Síða 4
4.
FÖSTUDAGUR 18í JANÚARU9&Í.I r
Fréttir
Aðstoöarlæknar segja upp störfum:
Við getum fengið nóg
að gera annars staðar
- segir Kristján Oddsson, formaður Félags unglækna
Aðstoöarlæknar, um 110 talsins,
samþykktu einróma á félagsfundi
nýlega að segja störfum sínum laus-
um frá og nieð 1. febrúar. Uppsagnar-
frestur er 2 mánuðir þannig að upp-
sagnirnar tækju gildi 1. apríl. Kristj-
án Oddsson, formaður Félags ung-
lækna, segir að ástæða uppsagnanna
sé að ríkið komi á engan hátt til
móts við læknana í kjaradeilu þeirra.
- Hvað getið þið gert ef þið hættið
störfum?
„Aðstoöarlæknar geta fengið nóg
að gera. Svíar bjóða til dæmis á
hverju ári útskriftarárgangnum
stöður. Þeir senda meira að segja
menn hingað til íslands til að reyna
aö fá aðstoðarlækna til Svíþjóðar.
Það er líka hægt að fara vestur um
haf og út á landsbyggðina. Þannig
að það yrðu engin vandræði að fá
vinnu,“ segir Kristján.
- Hvaða áhrif munu uppsagnir ykk-
ar hafa ef til kemur?
„Spítalarnir munu þá eingöngu
geta sinnt bráðaþjónustu. Sérfræð-
ingar geta náttúrlega sinnt bráða-
þjónustu en það leggjast af allar að-
gerðir, öll göngudeildarþjónusta,
glasafijóvganir og hjartaaðgerðir.
Starfsemin lamast að mestu leyti. En
þess ber að geta að þetta er algert
örþrifaráö hjá okkur,“ segir Kristján.
Læknadeilan hefur verið hjá ríkis-
sáttasemjara undanfarið og að sögn
Kristjáns hefur ekkert gengið né rek-
ið.
„Þrátt fyrir ótal tilslakanir af okk-
ar hálfu hefur nákvæmlega ekkert
komið frá ríkinu. Við höfúm boðið
upp á skipulagsbreytingar og hag-
ræöingar á sjúkrahúsunum þannig
að kostnaður við þessar aðgerðir yrði
enginn. Ég get ekki séð að það sé
brot á þjóðarsátt, sagði Kristján
Oddsson."
-ns
Stjórnarandstæðingar afhenda Guðmundi J. framboðslista siiin í Dagsbrún.
Mótframboðið í Dagsbrún:
Klárir í slaginn og fá félagaskrá í dag
- eru með flugeldasýningar, segir Guðmundur J.
Mótframboðið til stjórnar Dags-
brúnar skilaði framboðslista sínum
ásamt lista með 120 meðmælendum
inn á skrifstofu félagsins í gær.
Framboðsfrestur rennur út í dag
klukkan 17 og mun kjömefnd þá fara
yfir framkomna framboðs- og með-
mælendalista og gera grein fyrir fyr-
irkomulagi kosninganna.
Kosningarnar fara fram eftir viku
og til tals hefur komið að láta kosn-
ingarnar standa yflr í þrjá daga.
Framboðsfundur verður haldinn á
miðvikudaginn þar sem fulltrúar
beggja framboðanna munu kynna
sjónarmið sin.
Að sögn Guðmundar J. Guðmunds-
sonar, formanns Dagsbrúnar, mun
kjörnefnd afhenda mótframboðinu
kjörskrá félagsins á fundi sínum í
dag ef það veröi úrskurðað löglegt
og gilt. Hann segir enga ástæðu til
að ætla annað en svo verði. Komi
hins vegar í ljós að einhverjr með-
mælendanna reynist ekki fullgildir
verði umboðsmönnum framboðsins
gefinn kostur á að skila inn nýjum
nöfnum á meðmælendaskrána.
„Það hafa veriö miklar flugelda-
sýningar hjá þessu svokallaða mót-
framboði. Eg hef hins vegar ekki vilj-
að leggjast niður á það plan að fara
að karpa um einhver formsatriði við
þessa menn. í þeirra hópi eru miklir
mannkynsfrelsarar sem hafa taliö
sig geta túlkað lög félagsins að eigin
geðþótta og hefur málflutningur
þeirra dregið dám af því.“
-kaa
Rögnvaldur Símonarson sem kærði til Jafnréttisráðs:
Þetta er ekki jaf nrétti
- og þetta getur heldur ekki verið konum í hag
„Eg get ekki fallist a aö þetta sé
jafnrétti og ég á erfitt með að sætta
mig við niðurstöðu meirihluta Jafn-
réttisráðs. Úrskurðurinn er heldur
ekki konum í hag því ég tel það mik-
ið jafnréttismál fyrir þær að feður
taki meiri þátt í uppeldi bamanna.
Eins er það að konur hafa lengi
sagt að þær séu ekki ráðnar vegna
þess að þær eru konur og atvinnu-
rekendur beri það fyrir sig aö þurfa
að borga þeim full laun í fæðingar-
orlofi. Ef úrskurðurinn hefði veriö í
hina áttina hefðu atvinnurekendur
getað átt von á því að karlmenn gætu
líka farið í fæðingarorlof á fullum
launum og þá væru þeir ekkert að
hugsa um hvort þeir réðu karlmann
eða konu,“ segir Rögnvaldur Símon-
arson iöjuþjálfi.
Rögnvaldur kærði til Jafnréttis-
ráðs vegna þess að þegar hann tók
fæðingarorlof síðastliðið sumar, fékk
hann ekki full laun heldur var bent
á Tryggingastofnun ríkisins þar sem
hann er opinber starfsmaður. Jafn-
réttisráö klofnaði í afstööu sinni en
meirihlutinn komst að þeirri niður-
stööu að það bryti ekki í bága viö
jafnréttislög að borga konum full
laun í fæðingarorlofi en ekki karl-
mönnum. Minnihlutinn komst hins
vegar að þeirri niðurstöðu að karl-
menn ættu að njóta sömu kjara og
konur hvað þetta varðar og að önnur
kjör til handa karlmönnum bryti í
bága viö lög um jafna stöðu og jafnan
rétt kvenna og karla.
„Ég er þess vegna mjög ósáttur við
niðurstöðuna -og finnst forsendur
meirihlutans vera hæpnar,“ segir
Rögnvaldur. „Ég á eftir að skoða það
hvort ég fari með málið fyrir dóm-
stóla og ætla aö hafa samband við
feður sem ég veit að hafa beðið eftir
þessum úrskuröi. Það væri kannski
ástæða fyrir mig að fara með þeim í
málið.“
Árni Gunnarsson, varaformaður
Jafnréttisráös lagði fram bókun sem
segir að þótt hann telji málið ekki
vera brot á jafnréttislögum telji hann
vafaatriði svo mörg að nauðsynlegt
sé að fá úrskurö dómstóla í málinu.
Rögnvaldur segir þessa bókun og það
að ráðiö klofnaði í afstööu sinni, gefa
tilefni til að fara með máliö lengra.
-ns
Uppsagnir aöstoðarlækna:
Þaðertil nógaf
sérfræðingum
- segir Örn Smári Amaldsson
„Ef til þessara uppsagna kemur og
menn sjá fram á að aðstoðarlækn-
arnir hverfl til útlanda verða menn
aö byggja starfsemi spítalanna upp
eingöngu á sérfræðingum. Eins og
verið hefur undanfarin ár, þegar
auglýst er eftir sérfræðingum, hafa
margir verið um hverja stöðu. Það
eru margir íslenskir læknar erlend-
is,“ segir Örn Smári Arnaldsson, for-
maður læknaráðs Borgarspítalans,
um áhrif uppsagna aðstoðarlækna.
„Það gæti orðið tímabundið slæmt
ástand, kannski í einhverja mánuði,
þannig að það væri lægð hvað mann-
skap varðar. Menn verða þá að af-
greiða það eins og hægt er. Það eru
það margir sérfræðingar hérna að
þeir klára alveg alla bráðaþjónustu,
en þeir sem bíða eftir aðgerðum geta
þurft að bíða eitthvað lengur. En síð-
an þegar aftur fer að fyllast í sköröin
fer ástandið aftur að batna. Hins veg-
ar er það ekkert sjálfgefið að læknar
vilji koma til starfa þar sem þeir vita
að deila hefur veriö. Læknar í störf-
um erlendis veigra sér þá kannski
við því að koma. Þá gæti vandinn
orðið langvarandi."
-ns
Sérfræðingar á Borgarspítala:
Ætla að standa
vaktir áf ram
Sérfræðingar á Borgarspítalanum
ætla að standa vaktir aðstoöarlækna
áfram eins og þeir hafa gert undan-
farið. Talað haföi veriö um að þeir
myndu hætta að standa þessar vaktir
í gærkvöldi en svo mun ekki hafa
orðið.
Fundur verður í dag hjá Sérfræð-
ingafélagi íslands þar sem staðan í
kjaradeilu aðstoðarlækna verður
væntanlega rædd.
-ns
Eftirlit með fíkniefnainnflytjendum hert:
Tekinn með 90 grömm
amfetamíns innvortis
- fimmtatilfelliðáskömmumtlma
23 ára Reykvíkingur var hand-
tekinn á Keflavíkurflugvelli á
þriðjudag þegar í ljós kom við rönt-
genmyndatöku að hann heföi fíkni-
efni innvortis. Það voru tollverðir
sem komu upp um innflutninginn.
Við rannsókn kom í ljós að maður-
inn hafði gleypt umbúðir með 90
grömmum af örvunarefninu am-
fetamíni. Að sögn Reynis Kjartans-
sonar, hjá flknefnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík, hefði maðurinn
verið í mikilli hættu ef umbúðirnar
heföu sprungið inni í honum.
Við yfirheyrslur sagðist maður-
inn hafa keypt efnið í Hollandi.
Hann kom hins vegar með flugvél
til íslands frá Lúxemborg. Maður-
inn hefur ekki komið áður við sögu
fíkniefnadeildarinnar
Reynir sagði í samtali við DV að
þetta væri fimmta tilfellið á
skömmum tíma sem fíkniefni
finnast innvortis í fólki þegar það
kemur með flugvél í gegnum Kefla-
víkurflugvöll. Ástæðuna fyrir því
að umræddur maður var settur í
röntgenmyndatöku, þrátt fyrir að
hann hefði ekki tengst fíkniefnum
áöur, sagði Reynir aö „þar hefði
tilfinning" ráðið ferðinni.
„Það bendir allt til að töluvert sé
um þetta. Eftirlit verður þvi hert
einmitt með svona innflutningi í
framtíðinni," sagði Reynir Kjart-
ansson.
-ÓTT