Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Qupperneq 15
FÖSTUDAGÚR 18. JANÚAR 1991.
Í5
Menning
Meistari Mikines
Aldrei þessu vant kom engin bók
um íslenska myndlist út á landinu
fyrir jólin. En myndlistin var ekki
alveg fyrir borö borin á jólavertíð-
inni, því á útmánuðum tók prent-
smiðjan Oddi að sér vinnslu á veg-
legri bók um færeyska listmálar-
ann Sámal Joensen-Mikines fyrir
Emil Thomsen, hugsjóna- og fram-
kvæmdamann í Þórshöfn.
Strangt til tekið var þessi bók
ekki í almennri dreifmgu hér á
landi um hátíðarnar; fékkst held
ég í nokkrum eintökum í tveimur
hókaverslunum. Engu að síður er
hún svo mikill viðburður í fær-
eyskri - og raunar norrænni -
myndlistarsögu að hún verðskuld-
ar fyllstu athygli hér á landi. Þar
fyrir utan setti Mikines mark sitt
á fleiri en einn íslenskan listmál-
ara.
Bókin um Mikines er yfir 250 síð-
ur, gefm út bæði á færeysku og
dönsku, og inniheldur 106 litmynd-
ir frá fimmtíu ára ferli listamanns-
ins. Höfundur er Bárður Jákups-
son, hstmálari og forstöðumaður
Listaskálans í Þórshöfn.
Kjarval Færeyinga
Mikines er stundum nefndur
Kjarval Færeyinga og er sú samlík-
ing ekki alveg út í hött. Að minnsta
kosti naut hann svipaðrar ástsæld-
ar meðal Færeyinga og Kjarval
gerði meðal íslendinga, þó svo
hann væri búsettur í Kaupmanna-
höfn mestan hluta starfsævi
sinnar.
í myndlist sinni var Mikines hins
vegar af allt öðru sauðahúsi en
Kjarval, þungbrýndur expressjón-
isti og mannlífstúlkandi af nor-
ræna skólanum. Einmitt þess
vegna leikur hann stærra hlutverk
í stuttri sögu færeyskrar myndhst-
ar heldur en Kjarval gerir í okkar
myndhst.
Mikines var nefnilega ekki ein-
asta frumkvöðull, heldur lagði
hann rótfasta hefð í norrænni
myndlist upp í hendurnar á eftir-
komendum sínum; gerði þeim
þannig kleift að fjalla hik-'og mihi-
liðalaust um færeyskan veruleika.
Kjarval var vissulega frumkvöð-
ull og uppörvun yngri listamönn-
um á íslandi, en lokaði dyrum svo
kirfúega á eftir sér að myndlist
hans gat ekki orðið öðrum til eftir-
breytni, ef frá eru taldar nokkrar
landslagsstemmur hans.
Margar vistarverur
En í húsi norræns expressjón-
isma eru margar vistarverur. Miki-
nes fór á millum þeirra, stundum
í léttum og litríkum dansi við fær-
eyska náttúru, stundum í örvænt-
ingarfullri leit að innstu rökum
sömu náttúru, stundum uppfuhur
með trú á hetjuskap manneskjunn-
ar, en jafn oft meðvitaður um
hamsleysið innra með henni.
Við skoðun á hinum mörgu tíma-
bilum í list Mikines koma nokkrir
norrænir áhrifavaldar óhjákvæmi-
lega upp í hugann, Höst, Rude,
Weie, Munch, Söndergaard og
fleiri. Tvennt er það þó sem oftast
nær auðkennir myndir Mikines,
móðufullt litrófið (sem endurómar
til að mynda í málverkum Jóhann-
esar Geirs) og dramatísk innhfun-
in. Mikines er fyrirmunað að fjalla
S.J. Mikines
1932.
Mynd af tístrami,
Hugleiðingar höfundar
Síðan er áhtamál hvort ekki hefði
mátt feha upplýsingar í eftirmála
um lífsferil Mikines inn í megin-
texta, þar sem þær skýra einatt til-
urð og inntak verkanna öllu betur
en hugleiðingar höfundar um ein-
stakar myndir - með fullri virðingu
fyrir framlagi hans. Einnig hefði
ég viljað sjá fleiri teikningar og
vatnslita- og krítarmyndir eftir
listamanninn.
En þessar athugasemdir breyta
því ekki að í heild sinni eykur þessi
bók stórlega við þekkingu okkar
og skilning á einum mikilhæfasta
fulltrúa norrænnar myndlistar á
þessari öld.
Bárður Jákupsson: Mikines, 255 bls.
Útg.: Emil Thomsen, Tórshavn, 1990
Prentun: Oddi, Reykjavík
/l
\y\
n
o
Veitingastaður
í miðbæ Kópavogs
222E
Tilboó helgarinnar
Aspargussúpa og nautafille
bearnaisé med grœnmeti og bakaóri kartöflu
kr. 980,-
2s=
Hamraborg 11 - sími 42166
Bókmenntir
Aðalsteinn Ingólfsson
hlutlaust um veruleika sinn, held-
ur sekkur hann sér á kaf í hann,
samsamast honum af ástríðu. Hug-
takið „firringu“ hefði hann örugg-
lega ekki skilið.
Áhrifarík portrett
Nú er ég ekki dómbær á það hvort
málverkin í bókinni gefa „rétta"
mynd af list Mikines. En ég er
sannfærður um að með annars
konar uppröðun verkanna hefði
mátt átta sig betur á eðli listarinn-
ar. Myndum er nefnilega hvorki
raðað eftir nákvæmri tímaröð né
viðfangsefnum málarans, heldur
skarast þessi tvö viðhort í samsetn-
ingunni, fremur tilviljunarkennt,
að því best verður séð.
Til dæmis eru portrettmyndir
Mikines mjög sér á parti í list hans
og þróast greinilega á annan hátt
en landslagsstemmurnar. Því hefði
fariö vel á því að hafa þær saman.
Þess í stað koma tvær portrett-
myndir, önnur frá 1940, hin frá
1949, inn í myndröð frá Mykines-
byggð, frá 1947-50 (bls. 149-50).
Ósamræmis af þessu tæi gætir á
öðrum stöðum í bókinni.
Hins vegar má alveg taka undir
með höfundi, er hann flokkar por-
trettmyndir Mikines, til dæmis
Konumynd frá 1934, mynd af H.A.
Djurhuus, 1934, og af Guttormi
Eysturoy, 1949, meðal áhrifarik-
ustu verka sinnar tegundar í nor-
rænni mýndlist - og þótt víðar
væri leitað.
Launamiðum ber að skila
í síðasta lagi 21. janúar
Allir sem greitt hafa laun á árinu 1990
eiga nú að skila launamiðum
á þartil gerðum eyðublöðum til skattstjóra.
Skilafrestur rennur út 21. janúar.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
i 5
SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL...BALTIMORE/
MSHINGM
Söluskrifstofur Flugleiða:
Lækjarqötu 2, Hótel Esju og Krinqlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 6 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söfuskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum
HELGARFEHÐ
FÖSTUDAGUR TIL MÁNUDAGS
LOMBARDY WASHINGTON DC
TVEIR í HERB. KR. 33.S20 Á MANN
FLUGLEIÐIR
Þjónusta alla lelð