Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Qupperneq 16
16
FÖSTUÐAGUft '18r JANÚAR 19910-
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON
Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGOLFUR P. STEINSSON
Rltstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SÍMI (91 )27022 - FAX: (91)27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr.
Verð í lausasölu virka daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr.
Burt með reglugerðina
Það framtak Stöðvar tvö að ná samningum við CNN
sjónvarpsstöðina er meiriháttar viðburður. íslendingar
hafa getað fylgst með þróun stríðsins við Persaflóa í
beinni útsendingu og upphfað þennan heimssögulega
atburð stig af stigi. Sjónvarpsáhorfendur fá jöfnum
höndum upplýsingar um atburðarásina og nýjustu tíð-
indi frá Bagdad, Jersúsalem, Pentagon og Saudi-Arabíu.
Frá fyrstu hendi og jafnóðum. Frásagnir fréttamann-
anna þriggja á níundu hæð hótelsins í miðri höfuðborg
írak eru einstakar. Skýringar sérfróðra manna eru á
reiðum höndum, blaðamannafundir í Hvíta húsinu, við-.
brögð hermanna, aðstandenda og stjórnmálamanna
víða um heim. Allt er þetta lifandi á skjánum hjá þeim
sem hafa aðgang að útsendingum Stöðvar tvö. Betri
þjónustu er ekki hægt að hugsa sér.
í þann mund sem heimurinn opnast þannig fyrir-
augunum á íslendingum og þeir fá að fylgjast með sögu-
legum styrjaldarátökum í íjarlægum löndum, kveður
sér hljóðs svokölluð útvarpsréttarnefnd, sem veifar
reglugerð framan í þjóðina og'kemst að þeirri niður-
stöðu að þessar útsendingar séu ólöglegar.
Niðurstaðan er með öðrum orðum sú að íslendingum
sé óheimilt að taka íjarskiptatæknina í þjónustu sína
og fylgjast með því sem er að gerast í útlöndum, nema
þá upp á gamla móðinn. Ástæðan er einkum sú að
móðurmálinu stafar hætta af beinum útsendingum! Það
verður að texta heimsfréttirnar til að þær megi komast
til skila!
Hér er kannski ekki við útvarpsréttarnefndina að
sakast. Henni er vorkunn. Hún þarf að vinna samkvæmt
þeirri reglugerð, sem útvarps- og sjónvarpsrekstri er
sett. En það breytir hins vegar ekki þeirri fjarstæðu sem
í henni felst. Vitleysan er ekkert betri fyrir það þótt hún
standi í reglugerð.
Fáránleiki málsins kemur fram í því að íslendingar
geta og hafa lengi getað hlustað á erlendar útvarpsstöðv-
ar ótruflaðar. Hér á landi færist það í vöxt að einstakl-
ingar og heilu íbúðasamstæðurnar fái sér útbúnað til
að komast í samband við gervihnetti sem senda frá sér
dagskrár á erlendum tungumálum. En þegar styrjaldir
brjótast út og okkur hér á hjara veraldar gefst kostur
á því að fá milliliðalausar fréttir af þeim atburðum, þá
er helst að skilja að reglugerðir banni þjóðinni að fylgj-
ast með þeim.
Það er eðlilegt og sjálfsagt að vernda íslenska tungu.
Móðurmálið er einn af hornsteinum sjálfstæðisins. Ef
við glötum málinu þá glötum við þjóðerninu.
Hitt verða menn þó að hafa í huga að íslenskan verð-
ur aldrei varðveitt með bönnum og boðum. Hún verður
ekki vernduð með því að meina ís'lendingum að hlusta
á og skilja erlend mál. Bæði vegna þess að íslenskan
þarf ekki á því að halda og eins af hinu að slík bönn
eru ekki framkvæmanleg.
Framfarirnar í fjarskiptatækninni eru slíkar að það
er ekki á valdi okkar né annarra að halda þeim frá
okkur. í upplýstu þjóðfélagi er það og óðs manns æði,
afturhald og þröngsýni, að trúa því að almenningur
sætti sig við forpokaðar reglugerðir, höft og bönn, þegar
kemur að tækninýjungum. Að því er varðar þessa furðu-
legu deilu um CNN sjönvarpsstöðina kemur til greina
að gera kröfu um skrifaðan eða lesinn íslenskan texta
með niðursoðnu efni í sjónvarpsstöðvum en það er frá-
leitt með öllu að banna beinar útsendingar frá heims-
sögulegum viðburðum þótt ekki fylgi íslenskur texti.
Ellert B. Schram
Útlagar frá Kúvæt, staddir i Dubai, lesa fréttir um fyrirhugaóa frelsun lands síns.
Sauðafellsför
gegn Saddam
Þaö þarf ekki að efast um enda-
lokin í því stríði sem nú er hafið
við Persaflóa. Yfirburöir Banda-
ríkjamanna í lofti eru svo algerir
að það hefur komið þeim sjálfum á
óvart. Það er sérstaklega sú ótrú-
lega nákvæmni, sem flugherinn
virðist búa yfir, sem gerir þessar
loftárásir ólíkar öllum fyrri loft-
árásum í fyrri stríðum. Ýmiss kon-
ar tölvutækni, fjarstýrðar sprengj-
ur og sprengjur, sem stýrt er meö
sjónvarpsbúnaði, hafa lamað loft-
varnir íraka strax í upphafi og
einnig, aö því er virðist, fiarskipta-
búnað þeirra og þar með hæfni
þeirra til að stjórna herjum sínum
og samhæfa hemaðaraðgerðir.
Svo virðist jafnvel sem lofthem-
aðurinn einn muni verða svo
áhrifaríkur að landherimir verði
einangraðir, sviptir birgðaflutn-
ingaleiðum og eftir að íraski flug-
herinn er úr leik verði landhernum
tvístrað svo úr lofti að eftirleikur-
inn á landi verði bæöi auðveldari
og umfram allt ekki nærri eins
mannskæður og ráö var fyrir gert.
En reyndar var alltaf vitað að
bandaríski flugherinn hefði yfir-
burði. Eina von Saddams Husseins
til að veita mótspyrnu hefur alltaf
verið að búa um sig í víghreiðrum
og skotgröfum á sama hátt og í
stríöinu við írani. Það á eftir aö
koma í ljós hversu áhrifaríkar loft-
árásirnar verða gegn landhernum
og það er engan veginn tímabært
að afskrifa íraska herinn. Á það
mun þó ekki reyna næstu daga;
Bandaríkjamenn ætla að halda
upptekum hætti með hernað í lofti.
En úrshtin í vopnaviðskiptum eru
þegar ráðin.
Tyrkland
Samt var það svo, þegar ég sat í
fyrrinótt límdur við fréttir CNN-
sjónvarpsins, að sú frétt, sem vakti
mesta athygli mína, var frétt frá
Tyrklandi þess efnis að tyrkneska
þingið hefði verið kallað saman til
að taka afstöðu til þess hvort lýsa
ætti yfir stríði við írak. Ástæðan
fyrir því að Tyrkir, sem hingað til
hafa ekki viljað vera virkir í hern-
aðarbandalaginu gegn Saddam
Hussein, vilja nú skerast í leikinn
er metingur þeirra við írani um
tilkall til landsvæða í írak eftir að
Saddam hefur verið gjörsigraður.
Tyrkir ætla að tryggja stöðu sína
áður en íranir koma með sínar
landakröfur á hendur írak. Þetta
er í hnotskurn það sem getur gerst
í kjölfar þessa stríðs. Sigur á írak
mun ekki tryggja friðinn í Mið-
Austurlöndum; hernaðarlegur
ósigur íraka mun skilja eftir tóma-
rúm sem nágrannamir, Tyrkland,
íran og Sýrland, munu keppast um
að fylla. Þau landamæri, sem eru
upphafið að öllu saman, þau landa-
KjaUarinn
Gunnar Eyþórsson
fréttamaöur
mæri sem Bretar drógu upp um að
skilja Kúvæt frá írak, Jórdaníu og
Palestínu frá Sýrlandi og úthluta
Sýrlandi og írak hluta af Tyrk-
landi, verða ekki tryggð meö því
að koma á einhvers konar banda-
rísku vemdarríki í Kúvæt heldur
þvert á móti.
Hemaðarsigur á írak mun hræra
svo upp í þessum suðupotti að ár
eða áratugir munu líða áður en
ólgan hjaðnar og enginn veit hvaða
stefnu þau deilumál, sem þá koma
upp, munu taka. Það eitt er víst að
ef sterkasta ríkið á þessu svæði
verður eyðilagt er þar meö farið
það mótvægi sem þrátt fyrir allt
hefur veriö nauðsynlegt gegn
þrýstingi frá íran annars vegar og
Israel hins vegar. Veikari ríkin,
sem hingað til hafa sætt sig við og
jafnvel viljað lúta forystu íraka,
munu reyna að hrifsa til sín eins
mikið af rústum ríkis Saddams
Husseins og þau geta. Öll valda-
hlutfóll munu raskast á svæðinu,
engum til góðs nema ísraelsmönn-
um.
Niðurlæging og píslarvætti
Bandaríkjaforseti sagði í ávarpi
sínu í stríðsbyrjun að hann vildi
ekki eyðileggja írak og það vill
hann sjálfsagt ekki, meðal annars
af þessum ástæðum. En hernaðar-
legur ósigur íraks þýðir meira en
það að Saddam Hussein hefur verið
niðurlægður. Jafnvel þótt komist
verði hjá því að ganga algjörlega
frá írökum og eyðileggja með öllu
þann hernaðarmátt, sem þeir í
raun og veru þurfa, sem er miklu
minni en núverandi hernaðarmátt-
ur, er niðurlæging Saddams Huss-
eins niöurlæging annarra araba
líka.
Þótt þess sjáist ekki merki nú, á
meðan hernaðaraðgerðir standa
sem hæst, getur Saddam enn orðið
píslarvottur og sameiningartákn.
Það var haft eftir Jitsak Rabin,
fyrrum hershöfðingja og forsætis-
ráöherra ísraels, í fréttum CNN að
ef Saddam gæti haldið út árásir
Bandaríkjamanna í tíu daga til
hálfan mánuð myndu hann og fleiri
arabar líta á það sem sigur.
Saddam stendur einn gegn öllum
heiminum; aðdáendur hans, sem
eru margir, munu virða hann fyrir
það eitt að veita mótspyrnu í
nokkra daga eða vikur. Ef Saddam
lifir þetta af og heldur völdum get-
ur hann enn snúið ósigri á vígvell-
inum upp í pólitískan sigur. Það
er því ekki nóg fyrir bandamenn
að endurreisa til auðæfa sinna fiöl-
skyldumar þrjár sem eiga Kúvæt;
þetta er ekki síður persónulegur
refsileiöangur gegn Saddam Huss-
ein, eins konar Sauðafellsför.
Varanlegur friður
Það er vandséð hvernig hægt er
að ganga endanlega milli bols og
höfuðs á Saddam nema með því aö
hemema sjálft írak ef svo fer, sem
engan veginn er útilokað, að al-
menningur í írak haldi tryggð við
hann og sameinist gegn óvininum
undir merkjum Allah.
Bush forseti talar um í ávarpi
sínu að koma á varanlegum friöi í
þessum heimshluta eftir að írak
hafi verið refsað svo rækilega að
það verði aldrei aftur ógnun við
nágranna sína. En varanlegur frið-
ur vinnst aldrei ef ekki er tekið af
alvöru á grundvallarmálum, fyrst
og fremst ofríki ísraelsmanna.
Eftir þessa herför kann Bush að
neyðast til aö ganga í það mál. En
þverstæöan er að takist að ná ein-
hverju samkomulagi um þau mál
fyrir atbeina Bandaríkjanna er það
þrátt fyrir allt Saddam sem hefur
síðasta orðið; innrásin í Kúvæt
hefur þá knúið fram þá hugarfars-
breytingu sem til þurfti.
Gunnar Eyþórsson
„Ef Saddam lifir þetta af og heldur
völdum getur hann enn snúið ósigri á
vígvellinum upp 1 pólitískan sigur.“