Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Page 20
20
FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991.
fþróttir
Arnór ánægður
hjá Bordeaux
- allt verður gert til að bjarga félaginu, segir Arnór
Sport-
stúfar
í gær var dregið til undanúr-
slita í ensku deildabikarkeppn-
inni í knattspyrnu þó aðeins eitt
lið, Leeds, sé búið að tryggja sér
sæti þar. Leeds mætir sigurveg-
aranum úr leik Manchester Un-
ited og Southampton, og síðan
eigast við sigurvegaramir í við-
ureignum Chelsea og Tottenham,
og Coventry og ShefField Wednes-
day.
Tryggvi setti met
á móti í Noregi .
Tryggvi Sigmannsson setti um
síðustu helgi nýtt íslandsmet með
loftskammbyssu á alþjóðamóti í
skotfimi í Stavanger í Noregi.
Hann fékk tvívegis 566 stig og
bætti eigið met um eitt stig. Hann
hafnaði í áttunda sæti á mótinu
en sigurvegarinn, Jerzý Píitrzak
frá Póllandi, fékk 578 og 588 stig,-
Skotsamband íslands hefur til-
kynnt þátttöku fyrir Tryggva í
heimsmeistaramótinu í loft-
skammbyssu sem haldið verður
í Stavanger í apríl og líkur eru á
að hann taki einnig þátt í Eyja-
leikunum í sumar.
„Það er alltaf sama sagan, við er-
um að fá á okkur klaufamörk og þar
af leiöandi að missa niður unna leiki
í jafntefli eða tap. Það er mín skoðun
að varnarleikurinn er ekki nógu
sannfærandi en liðið nær oft að leika
skínandi vel úti á vellinum. Liðið
hefur verið mikið í fréttum vegna
slæmrar fjárhagsstöðu og kemur það
óneitanlega niður á leik liðsins,"
sagði Arnór Guðjohnsen, leikmaður
franska liðsins Bordeaux, í samtali
við DV í gær.
Bordeaux gerði á sunnudag jafn-
tefli á heimavelli við Metz og fékk
Arnór ágæta dóma fyrir leik sinn.
Hann var með allan leikinn, lék
hægra megin á miðjunni og vann
vel. Bordeaux er sem stendur í 12.
sæti og hefur liðinu ekki gengið jafn-
illa um áratuga skeið. Þess ber þó
að geta að mjög lítill munur er á lið-
unum, mörg eru í einum hnapp og
með tveimur sigrum í röð er lið kom-
ið í hóp efstu liöa.
„Ég er mjög ánægður
hjá Bordeaux"
„Ég er samt sem áður mjög ánægður
hjá Bordeaux og er hægt og sígandi
að nálgast mitt besta leikform. Það
var fundur með leikmönnum í gær
og kom þá fram að forráðamenn liðs-
ins ætla að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að forða félaginu frá
gjaldþroti. Þessa dagana eiga þeir í
viöræðum við lánardrottna og ríkir
bjartsýni um að takist megi að ná
samningum viðþá. Bordeaux er stór-
klúbbur og ég er viss um að félagið
verður það áfram í framtíðinni. Leik-
menn fá alltaf laun sín greidd á rétt-
um tíma enda er stefna félagsins að
standa í einu og öllu við gerða samn-
inga,“ sagði Arnór.
„Nýi forsetinn
mjög áhugasamur“
Arnór sagði ennfremur að nýi forset-
inn, sem hóf störf fyrir nokkru, væri
mjög áhugasamur og ætlaði hann að
koma félaginu á réttan kjöl. Sá væri
mikill peningamaður en til marks
um það kom hann á fót gleraugna-
verslun á unga aldri í Bordeaux en
í dag ætti hann um 350 gleraugna-
verslanir víðs vegar um Evrópu.
í versta falli getur hin slæma fjár-
hagsstaða Bordeaux komið liðinu
niður í 2. deild. Um þetta atriði sagði
Arnór: „Það kom fram á fundinum í
gær að samningsbundnir leikmenn
geta farið hvert sem þeir vilja ef liðið
verður dæmt niður í 2. deild. En eins
og ég hef áður sagt er ég bjartsýnn á
að þessi mál fái farsælan endi.“
-JKS
Kynningum á Hannover
frestað vegna stríðsins
Fyrirhuguöum kynningum á
íþróttaaðstöðu í Hannover í
Þýskalandi, á vegum Samyinnu-
ferða/Landsýnar og Úrvals/Út-
sýnar, sem halda átti í Reykjavík
á mánudag og þriðjudag, hefur
verið frestað um sinn. Astæðan
er sú aö Þjóöverjarnir komast
ekki til landsins þar sem flugvell-
inum í Hannover héfur verið lok-
að fyrir almennri umferð vegna
hergagnaflutninga í tengslum við
Persaflóastríðið.
Bandaríska skíða-
fólkið farið heim
Bandarískir keppendur í heims-
bikarkeppninni á skíðum, sem
hafa dvalið og keppt á meginlandi
Evrópu að undanförnu, héldu
heimleiðis í gærmorgun. Þeir
hættu við þátttöku í mótum
heimsbikarsins um helgina
vegna stríðsástandsins við Persa-
flóa, þar sem þeir óttuðust um
öryggi sitt.
Örnólfur í Þrótt
Örnólfur Oddsson,
knattspyrnumaðurinn
reyndi frá ísafirði, er
genginn til liðs við 2.
deildar lið Þróttar úr Reykjavík.
Örnólfur lék á árum áður með
KR, ísafirði og Víkingi í 1. deild
en hefur síðustu tvö árin verið
leikmaður og þjálfari, fyrst hjá
BÍ á ísafirði og síðan hjá Einherja
á Vopnaflrði. Þróttarar hafa
einnig fengið til sín Kristin B.
Gunnarsson, sem var í röðum
KR-inga síðasta sumar en lék áö-
ur með Þrótti.
KA fær liðsauka
Þórarinn Valur Árnason, sem lék
með Reyni frá Árskógsströnd í
3. deildinni síðasta sumar, er
genginn til liðs við 1. deildar lið
KA. Hann fetar í fótspor Páls V.
Gíslasonar sem einnig er farinn
frá Reyni yfir í KA.
íslandsmótið innanhúss
Um helgina verður keppt í 3. og
4. deild í meistaraflokki karla á
íslandsmótinu í innanhússknatt-
spyrnu í íþróttahúsi Seljaskóla í
Reykjavík.
Sigurliðin í riðlum 3. deildar
vinna sér sæti’í 2. deild en neðstu
lið riðlanna falla í 4. deild. Sigur-
liðin í riðlunum sex í 4. deild leika
til úrslita um fjögur sæti í 3. deild.
Keppni í 4. deild hefst klukkan
17.30 í dag og stendur til 23.40.
Hún heldur áfram í fyrramálið
klukkan 9 og lýkur klukkan 19. í
3. deild er keppt á sunnudag frá
klukkan 10 til 19.
Slæmt ástand hjá
frönskum fétögum
Krístján Bernburq, dv, Beiqíu’ ' andi forseti félagsins á ^ höíði ar fjárhæðir og ekki nóg með það
—........ . ■......—_ sér fangelsisdóm. Eins og staðan því framkvæmdastjóri félagsins
Hinn nýi forseti Bordeaux, Affl- er í dag benda allar likur til að fé- ásamt auglýsingastjóra hafa verið
efo, er nú búinn að reka fram- lagið verði gert upp i lok keppnis- dæmdir til fangelsisvistar. Lið
kvæmdastjóra félagsins Didier tímabilsins og verði því að leika í Nantes er ekki laust við hneyklsi
Couécou og virðist með öllu óráðiö 2. deild. því félagið skuldar 500 milljónir
með framtíð félagsins en skuldir Það er ekki bara lið Bordeaux íslenskra króna og liö Brest 350
Bordeaux hljóða upp á á 2,4 millj- sem á við slæma íjárhagsstöðu að milljónir.
aröa íslenskra króna og fyrrver- stríða. Lið Toulon skuldar gifurleg-
Úlfar íþróttamaður
Hafnarfjarðar
• Úlfar Jónsson golfleikari, íþrótta-
maður Hafnarfjarðar 1990.
Úlfar Jónsson golfleikari var á
laugardaginn útnefndur íþróttamað-
ur Hafnarfjarðar fyrir árið 1990, í
hófi sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hélt ásamt íþróttaráði bæjarins.
Úlfar Jónsson náði frábærum ár-
angri í íþrótt sinni á árinu. Hann
varð íslandsmeistari í karlaflokki
auk þess sem hann var í sigursveit
Keilis sem varð íslandsmeistari í
sveitakeppni. Hann tók þátt í Evr-
ópumeistaramótinu í golfi þar sem
hann stóð sig frábærlega vel og varð
eftir það valinn í Evrópulið karla sem
keppti við Bretland. Þá keppti Úlfar
á heimsmeistaramótinu og náði mjög
góðum árangrií einstaklings- og liða-
keppni.
Þá heiöraði bæjarstjórn íþrótta-
menn fyrir góðan árángur og fram-
farir og hlutu þessir viðurkenningar:
Arnþór Ragnarsson, SH, fyrir sund,
Linda Steinunn Pétursdóttir, Björk,
flmleikar, Hörður Magnússon, FH,
knattspyrna, Jón Amar Ingvarsson,
Haukum, körfuknattleikur, Héðinn
Gilsson, FH, handknattleikur, Guð-
undur Karisson, FH, frjálsar íþróttir,
Karl Viggó Vigfússon, Haukum, kar-
atet Gunnar Kjartansson, Skotfélagi
Hafnarfjarðar, skotfimi, Lilja María
Snorradóttir, SH, íþróttir fatlaðra,
og Snorri Karlsson, SH, íþróttir fatl-
aðra.
-GH
Akureyri:
Guðmundur kjörinn
íþróttamaður Þórs
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Guðmundur Benediktsson, knatt-
spyrnumaðurinn ungi og stórefni-'
legi, hefur verið kjörinn „íþrótta-
maður Þórs“ á Akureyri fyrir árið
1990.
Guðmundur stóð sig frábærlega á
síðasta ári, bæði með Þór í 3. fl. og
2. fl. og ekki .síður með drengja- og
unglingalandsliðunum og þá lék
hann í fyrsta skipti í meistaraflokki
og er yngsti leikmaður sem það hefur
gert hér á landi.
Um leið voru útnefndir bestu kepp-
endur annarra deilda félagsins. Jó-
hann Sigurðsson var körfuknatt-
leiksmaður, Haukur Eiríksson
skíðamaður og Kristinn Hreinsson
handknattleiksmaöur hlutu þær við-
urkenningar. Ragnar Sverrisson,
verslunarmaður í JMJ, gaf öll eign-
arverðlaun varðandi kjörið og hann
gaf einnig á síðasta ári veglegan far-
andgrip sem veittur var í fyrsta
skipti nú.
• Guðmundur Benediktsson,
íþróttamaður Þórs.
• Karl Guðlaugsson, ÍR-ingur, brýst hi
Snæfells, og skorar fallega körfu.
Bookc
■ &
sexti
- en dugöi ekki til þ ví
Nýliðar Snæfells unnu mikilvægan
sigur á ÍR, 88-93, í geysilega spennandi
leik í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
gærkvöldi. Leikurinn var æsispennandi
nær allan leiktímann og tjölmargir
áhorfendur voru vel með á nótunum.
Franc Booker, bandaríski leikmaður-
inn í Mði ÍR, skoraði alls 60 stig í leiknum
og án hans heföu ÍR-ingar tapað leiknum
stórt. Booker hefur leikiö þtjá leiki meö
ÍR-ingum. í fyrstaleiknum skoraði hann
54 stig, í öðrum 55 og eins og áður sagði
skoraþi kappinn 60 stig í gær. Af þeim
voru 15 þriggja stiga körfur, aldeilis frá-
bær leikmaður hér á ferðinni.
Snæfell byrjaði leikmn betur, komst í
5-11, en ÍR-ingar söxuðu á forskotið og
náðu að komast yfir í fyrsta sinn eftir 8
mínútna leik, 18-16. Snæfell hafði þó
frumkvæðið en ÍR-ingar þó alltaf
skammt undan og í leikhléi var staðan
47-52 Snæfelli í vil.
ÍR-ingar skoruöu íyrstu fimm stigin í
síðari hálfleik og jöfnuðu metin, 52-52.
Þá kom góður kafli hjá leikmönnum
Snæfells og Möið náði mest 10 stiga for-
skoti og svo virtist sem Snæfell ætlaði
aö stinga af. Franc Booker var á öðru
málí, hann skoraði hverja körfuna á
fætur annarri og þegar tæpar tvær min-
útur voru til leiksloka jafnaði hann met-
in, 88-88, með glæsilegri þriggja stiga
körfu. Snæfell haföi betur á síðustu mín-
útunum, skoruöi 5 síöustu stigin í leikn-