Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Síða 22
30
FÖSTUDÁgUR 18. JANÚAR 19ðí.
Fréttir
Notalegt að vera nálægt gosi
Eysteinn Tryggvason, sérfræöing-
ur hjá Norrænu eldfjallastöðinni, var
í hópnum sem fór meö flugvél Land-
helgisgæslunnar í gærkveldi aö
Heklu. Hann sá ekki úr lofti gosiö
árið 1980 en gat sér til aö þetta gos
væri svipað.
„Þó hagar þetta gos sér dálítið
,öðruvísi, alla vega rennur hraun-
straumurinn í aöra átt,“ sagði Ey-
steinn þegar hann var spuröur um
fyrstu niöurstööur úr feröinni. í
framhaldi af því var hann spuröur
um líklegt tjón af völdum gossins.
Hann taldi erfitt aö spá í þá stöðu
núna. Gosið gæti staðiö í nokkra
daga, líkt og 1980, eöa lengur, eins
og 1970 eöa 1947. Venja Heklu væri
þó sú aö gos væru kröftugust í upp-
hafi og því ekki líkur á að þaö yröi
meira.
„Ef gosið heldur áfram mjög lengi
mun þessi hraunstraumur valda ein-
hverju tjóni en nú er talsvert langt í
það. Eins og er rennur hraunið.yfir
eldra hraun en haldi gosiö lengi
»áfram getur hraunstraumur fariö
niður á láglendi, norðan viö Næfur-
holt, væntanlega á svipuöum stað og
- segir Eysteinn Tryggvason hjá Norrænu eldfjallastöðinni
hraunið náði hjá gamla Næfurholti
áriö 1845.“
Þegar Eysteinn var spuröur um
tegund og efni í gosinu svaraði hann
því til aö ekki væri hægt að segja til
um efnasamsetninguna því að sýni
þyrfti að taka til efnagreiningar og
fleiri rannsóknir þyrfti aö gera í því
sambandi. „í svona yfirflugi getur
maöur ekki staöfest neitt um gerö
hraunsins. En Hekluhraun eru yfir-
leitt þykk apalhraun. Hekla hefur
svolítið sérstaka efnasamsetningu.
Úr henni rennur ekki venjulegt bas-
alt heldur millistig á milli basalts og
súrs bergs, andesít, eins og þaö er
kallað,“ sagði Eysteinn en bætti viö
að nú væri hér aðeins um getgátur
aö ræöa.
„Rannsóknir byrja í framhaldi af
fyrsta gosdegi og vísindamenn taka
til viö að rannsaka gosið áfram.
Hraun eru kortlögð, hvar þau leita
fram, hversu þykkt hraunið er og
hve mikið bætist við á hverjum
degi.“
Gosum fylgja eitraðar gufur. Hvað
með slíkt nú?
„Heklugos eru fræg fyrir það að í
þeim er mikil flúoreitrun. Það er
sjálfsagt eitrun núna en frekar mein-
laus á þessu stigi máls. Annars vegar
vegna snjóalaga og hins vegar vegna
þess að engar skepnur eru á beit.
Eitrun er langverst á vorin þegar
gróður er í sem örustum vexti. Þetta
er því æskilegur árstími fyrir gos og
næstum því engin hætta á að tjón
hljótist af.“
Nú er stutt á milli gosa þessa síðustu
áratugi. Kunnið þið einhverja skýr-
ingu á því?
„Ekki aðra en þá að þegar langt er
á milli gosa standa þau lengur og eru
meiri. Þegar stutt er á milli gosa
standa þau stutt. Það er þekkt með
mörg eldfjöll að þau gjósa miklum
gosum eftir löng hlé.“
Hvernig finnst þér að horfa á gos?
„Mér finnst það fallegt og ég hef
gaman af þvi að horfa á gos. Það er
ekkert varið í að lifa ef aldrei gerist
neitt. Þetta er eitt af því sem gefur
lífinu gildi að upp koma óvæntar
uppákomur. Sumir eru hræddir við
gos en mér finnst yfirleitt notalegt
að vera í nálægð við þau.“
-JJ
Eysteinn Tryggvason, sérfræðingur hjá Norrænu eldfjallastööinni, og Páll
Halldorsson. flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, við komuna til Reykjavíkur
i gærkvöldi. DV-mynd S
Hraunstraumurinn úr Heklu, séður ur lofti, er Ijósmyndari DV flaug yfir i gærkvöidi.
DV-mynd Brynjar Gauti
Jarðfræðingar Veðurstofunnar óvænt staddir hjá Heklu:
Við vorum bara í eftirlits-
ferð þegar gosið byrjaði
- sagði Kristj án Ágústsson j arðeðlisfræðingur
Hópur fræðinga frá Veðurstofunni
fór í gær inn til Heklu í þeim tilgangi
að athuga jarðskjálftamæli sem ný-
lega var settur þar upp. Þeir voru
hins vegar ekki fyrr komnir inn í
Haukadal, rétt fyrir neðan Næfur-
holt, en Hekla tók að gjósa.
„Þetta var náttúrlega svolitið
spennandi en maður var dálítið
hræddur líka. Við vissum ekki alveg
hvað þetta væri, hvert hraunið og
askan færu. Við vorum að vísu búnir
að heyra að það væri einhver
skjálftavirkni við Heklu en við vor-
um staddir þarna alveg óvart,“ sagði
KristjánÁgústssonjarðeðlisfræðing-
ur í gærkvöldi.
Kristján sagöi um miðnætti að ekki
væri hægt að segja hvort gosið væri
að minnka en mökkurinn væri minni
en fyrr um kvöldið. Kristján sagðist
giska á að hraunrennslið væri um 2
kílómetrar að lengd. -ns
Mikil f lugumferð vegna Heklugossins
Mikið var um að fólk tæki sér flug-
vélar á leigu í gærkvöldi til að freista
þess að fljúga yfir Heklu og sjá gosið.
»Það voru hins vegar mikil él og élja-
bakkar og lítið sást yfir svæðið.
Þegar DV flaug austur úr sást ekki
mikið til eldgossins en hins vegar
sást greinilega að eldurinn var mik-
ill svo og reykur. Flugvélar flugu
allt um kring og um tima var nánast
eins og verið væri að rúnta um mið-
bæinn. Einstaka sinnum birti til og
sáust þá gífurlegir eldar að sögn sjón-
arvotta.
-ns
Áhrif amikið en
ekki skemmtilegt
- sagöi Guörún Larsen hjá Raunvísindastofnun
Klukkan um hálfellefu í gærkvöldi
lenti flugvél Landhelgisgæslunnar á
Reykjavíkurflugvelli með þá jarðvís-
indamenn sem flugu austur að
Heklu. Guðrún Larsen hjá Raun-
vísindastofnun var einn þeirra vís-
indamanna sem könnuðu ástandið.
„Skyggni var mjög slæmt og það
gekk á með éljum. Við sáum þrjár
gossprungur. Ein þeirra ec suðvest-
anvert í fjallinu og frá henni rennur
nokkuð langur hraunstraumur til
norðvesturs með stefnu líklega að
Glerhaus. Melfell heitir líka annað
kennileiti þarna," sagði Guðrún.
„Norðaustan og austan til í fjallinu
voru svo tvær sprungur. Mér virtist
mest hraunframleiðsla vera í
sprungunni sem er norðaustast. Sú
sprunga er ekki víðs fjarri þeim stað
sem gaus í 1980. Sprungan að suð-
vestan er líka nálægt stað sem í gaus
1980. Síðan var miðhluti fjallsins eig-
inlega hulinn skýjum og þar virtist
enn vera þeytigos í gangi ájjeim tíma
sem við stöldruöum við. I þeytigosi
myndast gjóska eða eldfjallaaska
sem fellur þá fyrir norðan eins og
vindar núna. í hinum sprungunum
eru flæðigos með kvikustrókum og
frá þeim rann hraun. Ekki gátum við
metið hæðina á strókunum. Einn
hraunstraumur liggur frá suövest-
ustu gosstöövunum sem rennur í
vestnorðvestur. Hraunin frá hinum
stöðvunum eru fyrir austan fjallið."
Guðrún sá ekki gosið 1980 úr lofti
en taldi þetta gos þó svipað miðað
við kort. Um framhaldið sagði Guð-
rún að erfitt væri að spá en benti á
að 1980 stóð gosið mjög stutt. „Þetta
Guðrún Larsen við komuna til
Reykjavíkur í gærkvöldi.
DV-mynd S
gæti þess vegna staðið í nokkra daga
frekar en vikur. Gosin 1980-og 1981
hafa yfirleitt verið talin eitt og hið
sama. Þetta eru stutt goshlé, það er
rétt en það má minna á að á 13. öld
uröu gos 1206 og 1222. En utan þess-
ara tima hefur liðið lengra á rnilli."
Hvernig finnst þér að upplifa svona
'atburö?
„Áhrifamikið en ekki skemmti-
legt,“ sagði Guðrún Larsen hjá Raun-
vísindastofnun er hún kom af gos-
stað.
-JJ
Umferð við Heklu:
Tveir bílar ultu og margir
höf nuðu utan vegar
Mikill fjöldi bifreiða var á vegun-
um í nágrenni við Heklu seint í gær-
kvöldi. Mikill snjór er á vegunum og
færi vont. Framan af kvöldi reyndi
lögreglan að hindra illa búna bíla í
að fara inn á sveitavegina en seinna
lokaði hún nánast alfarið veginum
upp Landsveit og vegurr) við Galta-
læk, Búrfell og Gunnarsholt i átt að
Heklu.
Aö sögn lögreglunnar á Hvolsvelli
var lítið um óhöpp þrátt fyrir mikla
umferð og lélegt færi. Þó valt bíll á
Suðurlandsvegi og annar á Landvegi
en ekki urðu nein meiðsli á mönnum.
Allmargir bílar höfnuðu utan vegar
í hálkunni og lentu margir í erfiðleik-
um við að koma þeim aftur upp á
veg. Þrír lögreglubílar voru á ferð-
inni í nágrenni við Heklu laust eftir
miðnætti í nótt og aðstoðuðu aöra
vegfarendureftirbestugetu. -kaa