Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Blaðsíða 34
42
r ,,,
FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991.
Afmæli
i
Unnur Stefánsdóttir
Unnur Stefánsdóttir verkefnis-
stjóri, Kársnesbraut 99, Kópavogi,
erfertugídag.
Starfsferill
Unnur fæddist í Vorsabæ í Gaul-
verjabæjarhreppi og ólst þar upp.
Að loknu bamaskólanámi nam hún
í Héraðsskólanum á Laugarvatni,
1965-1968, Húsmæðraskóla Suður-
lands 1969-1970, íþróttaháskólanum
í Sönderborg í Danmörku sumarið
1971, Fóstruskóla íslands 1971-1974
og lauk síðan framhaldsnámi við
Fóstruskóla íslands í uppeldisfræði
og stjórnun 1983-1984. Hún hefur
setið námskeið í félagsmálum og
stjórnun, m.a. hjá Stjórnunarskól-
anum.
Með námi stundaði Unnur almenn
bústörf á búi foreldra sinna og síð-
an, eftir fóstrunámið, uppeldis- og
stjórnunarstörf á leikskólanum
Álftaborg 1974-1975, á eigin heimili
1975-79, hjá Félagsmálastofnun
Kópavogs 1979-1982 og hjá Umferð-
arráði sumrin 1983-1985. Hún starf-
aði hjá dagheimilum Ríkisspítal-
anna 1984-1988 og er nú verkefna-
stjóri í heilbrigðisráðuneytinu við
framkvæmd manneldis- og neyslu-
stefnu ogfleira.
Unnur var í ungmennafélaginu
Samhyggð og héraðssambandinu
Skarphéðni frá tólf ára aldri. Þá
keppti hún fyrir landslið FRÍ í 400
og 800 m hlaupi á árunum 1982-
1988. Hún starfaði í nemendafélagi
Héraðs- og húsmæðraskólans á
Laugarvatni, var formaður nem-
endafélags Fóstruskóla íslands
1973-1974, ritari Fóstrufélags ís-
lands 1974-1976, meðstjórnandií
Árnesingafélaginu í Reykjavík
1979-1985, formaður Freyju, félags
framsóknarkvenna í Kópavogi,
1982-1985, varaformaður og síðan
formaður Landssambands fram-
sóknarkvenna frá 1983, á sæti í mið-
stjórn, landsstjóm og framkvæmda-
stjórn Framsóknarflokksins frá
1985, er fyrsti varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins á Suðurlandi frá
1987 og hefur verið fulltrúi Fram-
sóknarflokksins í nefndum sem
semjafrumvörp um jafnréttismál,
æskulýðsmál, ferðamál og umhverf-
ismál. Unnur var formaður íþrótta-
ráðs Kópavogs 1984-1986 og hefur
verið í varaframkvæmdastjórn ÍSÍ
frá hausti 1990 og er formaður
nefndar er vinnur að umbótum í
kvennaíþróttum fyrir ÍSÍ.
Fjölskylda
Unnur giftist 21. september 1972
Hákoni Sigurgrímssyni, f. 15. ágúst
1937, framkvæmdastjóra Stéttar-
sambands bænda. Foreldrar Hákon-
ar eru Sígurgrímur Jónsson, b. í
Holti í Stokkseyrarhreppi, og kona
hans, Unnur Jónsdóttir. Synir Unn-
ar og Hákonar eru Finnur, f. 21. júlí
1975, og Grímur, f. 8. mars 1977.
Systkini Unnar eru: Helgi, f. 26. apríl
1945, b. og vörubílstjóri á Vorsabæ
II, kvæntur Ólafíu Ingólfsdóttur;
Ragnheiður, f. 1. júlí 1946, íþrótta-
kennari á Akureyri, gift Tómasi Búa
Böðvarssyni slökkviliðsstjóra;
Kristín, f. 18. september 1948, handa-
vinnukennari á Hurðarbaki í Vill-
ingaholtshreppi, gift Ólafi Einars-
syni b.; Sveinbjörg, f. 17. ágúst 1956,
tækniteiknari í Borgarnesi, gift
Hans Lind Egilssyni mjólkureftir-
litsmanni.
Foreldrar Unnar eru Stefán
Jasonarson, f. 19. september 1912,
b. í Vorsabæ, og kona hans, Guð-
finna Guðmundsdóttir, f. 3. sept-
ember 1912. Stefán er sonur Jason-
ar, b. á Arnarhóli í Flóa, Eiríkssonar
og konu hans, Helgu ívarsdóttur, b.
í Vorsabæjarhjáleigu, Guðmunds-
sonar, b. í Vorsabæjarhjáleigu,
Gestssonar, b. í Vorsabæ, Guðna-
sonar, langafa Oddnýjar, langömmu
Vals Arnþórssonar bankastjóra.
Dóttir Oddnýjar var Soffia, amma
Magnúsar Thoroddsen. Þá var Gest-
ur langafi Kristínar, langömmu
Kristjáns, föður Magnúsar, dósents
í sálfræði við HÍ. Bróðir Gests var
Guðmundur, langafi Jóns, föður
Guðmundar, píanókennara í Kópa-
vogi. Móðir Guðmundar Gestssonar
var Sigríður Sigurðardóttir, systir
Bjarna Sívertsens riddara.
Guðfinna var dóttir Guðmundar,
b. í Túni í Hraungerðishreppi,
, Bjarnasonar, b. í Túni, Eiríkssonar.
Móðir Bjarna var Hólmfríður Gests-
dóttir, systir Guðmundar í Vorsa-
bæjarhjáleigu.
Móðir Guðfmnu var Ragnheiður,
amma Svavars Sigmundssonar ís-
lenskufræðings, Jónsdóttir, b. á
Skeggjastöðum í Flóa, Guömunds-
sonar, b. á Skeggjastöðum, bróður
Björns, langafa Agústs Þorvalds-
sonar, alþingismanns á Brúnastöð-
um. Guðmundur var sonur Þor-
valds, b. í Auðsholti, Bjömssonar,
bróður Knúts, langafa Hannesar
þjóðskjalavarðar, Þorsteins hag-
stofustjóra og Jóhönnu, ömmu Æv-
Unnur Stefánsdóttir.
ars Kvarans og Gísla Alfreðssonar
þjóðleikhússtjóra. Annar bróðir
Þorvalds var Jón í Galtafelli, faðir
Höllu, langömmu handknattleiks-
mannanna Geirs, Arnar og Silvíu
Hallsteinsbarna í Hafnarfirði.
Móðir Ragnheiðar var Guðrún
Bjarnhéðinsdóttir, b. í Þjóðólfshaga
í Holtum, Einarssonar og konu
hans, Guðrúnar Helgadóttur, b. á
Markaskarði, Þórðarsonar, bróður
Tómasar, langafa Tómasar, föður
Þórðar, safnvarðar að Skógum.
Móðir Guðrúnar var Ragnheiður
Árnadóttir, b. í Garðsauka, Egils-
sonar, prests í Útskálum, Eldjárns-
sonar, bróður Hallgríms, langafa
Jónasar Hallgrímssonar skálds og
Þórarins, langafa Kristjáns Eld-
járns.
Til hamingiu með
afmælið 18. janúar
75 ára 50ára
Jón Einarsson, Neðridal, Biskupstungnahreppi. Sigurður Kristinsson, Skólavegi 26, Fáskrúösfirði. Sigurður Tryggvason, Kópavogsbraut 86, Kópavogi. Sólveig Kristjánsdóttir, Fjólugötu 13, Reykjavík. Jóhann Stefánsson, Sunnubraut 7, 'Höfn í Homafirði. Guðný Kristjánsdóttir, Vitastig 10, Hafnarfirði.
40ára
60 ára Hrafnkell Guðmundsson, Austurgerði2, Kópavogi. l>órður Harðarson, Þórunnarstræti 103, Akureyri. SigurbjörgJóhannesdóttir, Grundargarði 1, Húsavík.
Marlies E. Ámason, Sörlaskjóli 19, Reykjavík. Steinþór Kristjánsson, Fossheiði3, Selfossi.
Sigurveig Gunnarsdóttir
Ásmundur Uni
Guðmundsson
Ásmundur Uni Guðmundsson,
Suðurgötu 124, Akranesi, er varð
sextugur þriðjudaginn 15.1. sl. held-
ur upp á afmælið í húsi slysavarna-
deildarinnar við Sunnubraut, laug-
ardaginn 19.1. klukkan 14-17.00.
Allir þurfa að nota
ENDURSKINSMERKI!
UMFERÐAR
RÁÐ
Sigurveig Gunnarsdóttir kaffi-
stofueigandi, Vesturvangi 9, Hafn-
arfirði, er fímmtug í dag.
Sigurveig er fædd á Árnarnesi í
Kelduhverfi í N-Þingeyjarsýslu og
ólst upp á Arnarnesi til sextán ára
aldurs.
Sarfsferill
Sigurveig útskrifaðist fram-
reiðslumaður úr Hótel- og veitinga-
skóla íslands vorið 1967. Hún vann
í þjónustu á Hótel Loftleiðum, Hótel
Sögu, Leikhúskjallaranum og víðar.
Sigurveig var veitingastjóri á Hótel
Loftleiðum í átta mánuði 1978'og á
Hótel Esju 1978-1981. Hún var hótel-
stýra á Hótel Eddu í Flókalundi
sumrin 1981-1987 og hefur rekið
Kaffistofuna Lóuhreiður, Laugavegi
59, ásamt manni sínum frá haustinu
1985. Sigurveig annast daglegan
rekstur kaffistofunnar.
Fjölskylda
Sigurveig giftist 25. septemebr
1965 Birgi Jónssyni, f. 4. október
1940, verktjóra hjá íslenska álfélag-
inu. Foreldrar Birgis eru: Jón Katr-
ínusson, d. 1987, sjómaðúr, og Lilja
Sigurðardóttir, hún býr í Hafn-
arfirði hjá syni sínum, Reyni Frið-
finnsyni. Börn Sigurveigar af fyrra
hjónabandi eru: Sigurveig, f. 17. maí
1958, gift Hrafni Heimissyni, stýri-
manni í Hafnarfirði, og eiga þau
þrjú börn og Hjörtur Leonard, f. 17.
janúar 1960, sölumaður hjá Heklu
hf., sambýliskona hans er Sunna
Sveinsdótir og eiga þau eitt barn.
Börn Sigu'rveigar og Birgis eru:
Oddrún Lilja, f. 1. mars 1966, iðju-
þjálfanemi í Árhúsum, sambýhs-
maður hennar er: Birkir Einarsson,
tæknifræðinemi og Gunnar Arn-
grímur, f. 23. apríl 1974, messi á
varðskipinuTý.
Bræður Sigurveigar eru: Sigurð-
ur, f. 24. maí 1931, sjómaður á Húsa-
vík, kvæntur Þorbjörgu Theódórs-
dóttur; Jóhann, f. 29. júní 1932, b. á
Víkingavatni, kvæntur Auði Lárus-
dóttur; Björn, f. 5. apríl 1934, for-
stöðumaður tölvudeildar Seðla-
bankans, kvæntur Jóhönnu Skapta-
dóttur bókasafnsfræðingi; Gunnar,
f. 18. maí 1935, bílstjóri á Kópaskeri,
og Jón, f. 13, febrúar 1943, bílstjóri
á Húsavík, kvæntur Þórunni Jóns-
dóttur.
Ætt
Foreldrar Sigurveigar eru: Gunn-
ar Jóhannesson, f. 13. júní 1896 d.
23. nóvember 1978 b. í Árnanesi og
kona hans, Sigurveig Björnsdóttir,
f. 8. júní 1908, d. 10. desember 1946.
Gunnar var Jóhanns, b. í Árnanesi,
Jóhannssonar, b. á Geirbjarnar-
stöðum, Bjarnasonar. Móðir Gunn-
ars var Sigurveig Árnadóttir, b. á
Bakka, Bjömssonar. Móðir Árna
var Arnþrúður Jónsdóttur, b. í
Möðrudal, Sigurðssonar, afa Metú-
salems sterka, langafa Ragnars
Halldórssonar, hjá ÍSAL. Móðir Sig-
urveigar var Rannveig Gunnars-
dóttir, b. á Skógum, Sigurðssonar.
Móðir Gunnars var Rannveig
Skíða-Gunnarsdóttir, b. á Ærlæk,
Þorsteinssonar, og konu hans, Vil-
borgar Þorvarðardóttur, systir
Jóns, langafa Hjartar, langafa Ólafs
Ragnars Grímssonar, og ættföður
Reykjalínsættarinnar.
Móðursystkini Sigurveigar á lífi
eru Ámi tónskáld og Björg, organ-
isti í Lóni. Sigurveig var dóttir
Björns, b. í Lóni, Guðmundssonar,
b. í Lóni, bróöur Árna í Lóni, sem
var giftur Önnu, systur Bjargar,
konu Guðmundar. Þeirra sonur vár
Árni píanóleikari, faðir Kristjáns
menntaskólakennara og rithöfund-
ar, og afi Magneu Matthíasdóttur
rithöfundar. Guðmundur var sonur
Kristjáns, b. á Víkingavatni. Systir
Kristjáns var Kristjana, móðir
Sveins Víkings rithöfundar. Bróðir
Kristjáns var Óli, faðir Árna Óla
rithöfundar og afi Geirs Kristjáns-
sonar rithöfundar. Kristján var son-
ur Árna, umboðsmanns á Árnanesi,
Þórðarsonar, b. á Kjarna í Eyjafirði,
Pálssonar, ættfóður Kjarnaættar-
innar. Meðal barna Þórðar vora
Páll, afi Friðriks Friðrikssonar
æskulýðsleiðtoga, Björg, langamma
Rögnvaldar Sigurjónssonar píanó-
leikara, Þórdís, langamma Sæ-
mundar, fóður Þorsteins stjörnu-
fræðings, Þorbjörg, langamma Vil-
hjálms Hjálmarssonar, fyrrv.
menntamálaráðherra, Kristbjörg,
langamma Ragnars Halldórssonar,
stj órnarformanns ÍSAL, oglngi-
björg, langamma Ingibjargar, móð-
ur Siguijóns Péturssonar borgar-
ráðsmanns. Móðir Kristjáns var
Jóhanna, Skíða-Gunnarsdóttir syst-
ir Rannveigar og Gunnars, langafa
Gunnars Gunnarssonar skálds.
Móðir Guðmundar í Lóni var Sig-
Sigurveig Gunnarsdóttir.
urveig Guðmundsdóttir, b. í Ær-
lækjarseli, Árnasonar. Móðir Sigur-
veigar var Ólöf, systir Bjargar,
ömmu Jóns Sveinssonar, Nonna.
Önnur systir Ólafar var Guðný,
móðir Kristjáns Fjallaskálds. Ölöf
var dóttir Sveins, b. á Hallbjarnar-
stöðum, Guðmundssonar. Móðir
Björns var Björg, systir Petrínu,
ömmu Kristjáns Eldjárn forseta.
Önnur sysfir Bjargar var Oddný,
langamma Jóns Sen, fv. konsert-
meistara Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, og Signýjar Sen, móður Er-
lends Jónssonar heimspekilektors.
Petrína var dóttir Hjörleifs, prests á
Skinnastað, Guttormssonar og konu
hans, Guðlaugar Björnsdóttur, syst-
ir Önnu, langömmu Ragnars Hall-
dórssonar, sjórnarformanns ÍSAL.
Bróðir Guölaugar var Stefán, afi
Stefaníu Guömundsdóttur leik-
konu, móður Önnu Borg.
Móðir Sigurveigar var Bjarnína,
Ásmundsdóttir, b. á Auðbjargar-
stöðum, Jónssonar. Móðir Ásmund-
ar var Ása Jónsdóttir, b. í Ytri-
Tungu á Tjörnesi, Semingssonar,
bróður Marsibilar, móður Bólu-
Hjálmars. Móðir Bjarnínu var
Kristbjörg Arngrímsdóttir, systir
Jóhanns á Geirbjamarstöðum.
Kristbjörg var dóttir Arngríms, b. á
Fellseli, Bjarnasonar, bróður Ein-
ars, langafa Valtýs Péturssonar list-
málara. Systir Arngríms var Margr-
ét, móöir Tómasar Johnson, ráð-
herra í Kanada. Önnur systir Arn-
gríms var Kristín, móðir Magnúsar
Kristjánssonar ráðherra.
Sigurveig er að heiman.