Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Síða 5
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991.
5
Fréttir
Ullarsölusamningar Álafoss:
Sovétmenn ræða um
kaup fyrir 800 milHónir
- fyrirtækið skuldar 2,5 milljarða og tapaði á þriðja milljarð á þrem árum
Fulltrúar Álafoss hafa að undan-
fórnu staöið í stífum samningavið-
ræðum við Sovéska samvinnusam-
bandið um kaup á ullarfatnaði fyrir
á annað hundrað milljónir á þessu
ári. Einnig eru samningar langt á veg
komnir við Rússnesku innkaupa-
stofnunina um sölu á ullarvörum
fyrir um 650 milljónir næstu tvö ár-
in. Alls er Álafoss því að semja um
sölu á ullarvörum til Sovétríkjanna
fyrir hátt í 800 milljónir króna.
Ólafur Ólafsson, forstjóri Álafoss,
segist mjög ánægður með gang
samningaviðræðnanna og segist
vera bjartsýnn á áframhaldandi við-
skipti við Sovétríkin. Hann segir að
í viðskiptaviðræðum Sovétmanna og
íslendinga í janúar síðastliðnum hafi
náðst samningar um greiðslu skuld-
ar upp á 215 milljónir vegna ullar-
vörukaupa sovéskra ríkisfyrirtækja
á síðasta ári.
„Þeir samþykktu að skuldajafna
viðskiptin við okkur með olíufarmin-
um sem kom hingað til lands um
miðjan janúar og er á gjalddaga 15.
febrúar næstkomandi. Um leið og
íslensku olíufélögin hafa gert upp
skuld sina við Sovéska viðskipta-
bankann, samkvæmt skilmálum,
fáum við fullnaðargreiðslu frá bank-
anum.“
Hvað varðar samninginn við Rúss-
nesku innkaupastofnunina sagði Ól-
afur að stefnt væri að undirskrift
hans í lok mánaðarins. Hann segir
að fyrir sölunni liggi rússnesk ríkis-
ábyrgð, undirrtituð af forsætisráð-
herra lýðveldisins, og bankaábyrgð
frá Rússneska ríkisbankanum.
Að sögn Ólafs er samningurinn við
Sovéska samvinnusambandið í eðli-
legum farvegi. Hann segir fulltrúa
Álafoss nú vera stadda í Moskvu til
að ræða um verðþróun, vörugæði,
afhendingartíma og greiðslur og þó
komið sé fram í febrúar þá sé það
síður en svo óeðlilegt. Máli sínu til
stuönings bendir hann á að á síðasta
ári hafi fyrst verið gengið frá sam-
bærilegum samningi í febrúar.
Ljóst er að miklir hagsmunir eru í
húfi fyrir Álafoss um að þessir samn-
ingar takist. Mikið tap hefur verið á
rekstri fyrirtækisins á undanförnum
árum og skuldirnar miklar. Á síðasta
ári nam tapið um 250 milljón krónum
og á árunum 1988 og 1989 nam tapið
samtals ríflega 1,9 milljörðum, upp-
fært til verðlags í dag. Heildarskuldir
fyrirtækisins eru taldar nema um 2,5
milljörðum.
„Áfkoman batnaði milli ára um
hálfan milljarð króna, fyrst og fremst
vegna bættrar frammistöðu allra
rekstrareininga og mikillar lækk-
unar kostnaðar. Það er skoðun okkar
að rekstur Álafoss eigi rétt á sér. Við
erum hins vegar með gríöarlega
mikla vaxtabyrði vegna skulda sem
eru afleiðing mikils taps á undan-
förnum árum. Við sjáum hins vegar
fram á aukin umsvif og ætlum okkur
til dæmis að ráða 40 manns til fram-
leiðslustarfa á Akureyri nú eftir
helgina. í kjölfarið mun róðurinn
léttast," segir Ólafur.
Þess má geta að alls eru um 370
menn í vinnu hjá Álafoss, þar af 192
á Akureyri, 15 í Hveragerði og 160 í
Mosfellsbæ.
-kaa
Sumarhús að Kársstöðum, sem reist var sl. sumar, er gjörónýtt.
DV-mynd Ingibjörg
Kársstaðir 1 Álftafirði:
Eins og eftir
loftárás
Ingibjörg Hinriksdóttir, DV, Stykkishólmi:
Nú er ljóst að skemmdirnar sem
urðu á bænum Kársstöðum í
Helgafellssveit í óveðrinu sem reið
yfir landið á sunnudag eru allveru-
legar. Nýtt sumarhús, sem reist var
síðasta sumar, er gjörónýtt og lítur
út eins og eftir loftárás. Húsið hefur
lyfst af undirstöðum og færst um
a.m.k. heilan metra. Annar gafl
hússins er alveg farinn úr og efri
hluti hins gaflsins. Milliveggir eru
horfnir sem og innbú sumarhúss-
ins.
Geymsluskúr á Kársstaðalóðinni
hreinlega sprakk fyrir framan
augu íbúanna og splundraðist í all-
ar áttir. Gunnar Guðmundsson,
bóndi á Kársstöðum, sem var á leið
út til þess að færa nokkra bfla sem
stóðu í grennd við húsið, horföi á
þar sem skúrinn virtist lyftast upp
og sundrast síðan. í húsinu var
byggingarefni sem hann hugðist
nota við byggingu nýs íbúðarhúss
á Kársstaðajörðinni. Við spreng-
ingu skemmdust fjórir bflar. Einn-
ig jafnaðist gamla íbúðarhúsið við
jörðu en það var þó mjög illa farið
fyrir.
Bærinn Kársstaðir stendur í
botni Álftaijarðar og er innsti bær-
inn í Helgafellssveit. Þar er oft mjög
sviptivindasamt, enda eru há fjöll
á þrjá vegu. Faðir Gunnars bónda
á Kársstöðum, Guðmundur Gísla-
son, sagðist í samtali við DV ekki
muna eftir öðru eins veðri og gekk
yfir á sunnudaginn.
Rafmagn fór af bænum og komst
ekki aftur á fyrr en aðfaranótt
þriðjudags. Þá hafði rafmagnsvei-
tunni borist liösauki norðan úr
Húnavatnssýslu, undir stjórn
Braga Reynis Axelssonar. Raf-
magniö fór hins vegar aftur af á
þriðjudagsmorguninn, enda var þá
orðið allhvasst.
Á bænum Hólum í Helgafellssveit
urðu engar skemmdir á mann-
virkjum en hins vegar fauk þar
heyhleðsluvagn sem er í eigu
Gunnars Guðmundssonar, bónda á
Kársstöðum.
Hafnamefnd Grindavikur:
Flutninqaskip taki haf nsögumann
Hafnarnefnd Grindavíkur sam-'
þykkti á fundi í vikunni að fara fram
á það við samgönguráðuneytið að
flutningaskip yrðu skylduð til að
taka hafnsögumann í Grindavikur-
höfn í framtíðinni. Það mun síöan
verða háð samþykki ráðuneytisins
hvort tilmælin komast í framkvæmd.
Bjarni Þórarinsson, hafnarstjóri í
Grindavík, sagðist reikna með að ef
tilmælin yrðu samþykkt yrði auglýst
eftir hafnsögumanni. Sjópróf vegna
norska skipsins Miröndu, sem ný-
lega tók niðri fyrir utan Grindavík-
urhöfn, hafa ekki farið fram en þau
veröa haldin í Noregi. Eins og fram
hefur komið vildi skipstjórinn ekki
fá aðstoð hafnsögumanns, þegar Mir-
anda yfirgaf höfnina fyrir skömmu,
með þeim afleiðingum að skipið tók
niðri í svokallaðri innsiglingar-
rennu.
Að sögn Jóns Eysteinssonar, bæj-
arfógeta í Grindavík, hefur lögregla
lokið viö framburðarskýrslur sem
unnar voru eftir að Miranda sökk
skammt vestur af Sandgerði. Gögnin
verða bráðlega send til Noregs.
Kristján Guðmundsson hjá rann-
sóknarnefnd sjóslysa sagði við DV
að þætti hennar væri lokið vegna
Miröndu þar sem ekki væri um ís-
lenska hagsmuni að ræða. -ÓTT
V-g.Vt 6vAz.accA^
Sdiviarz
SEGÐU HONUM
AÐ ÞÚ HAFIR
EKKI LÆRT
HEIMA!
- # I u iTAfl fttiiMnn fiu j
\\1nel9rgofuen
COP
As an undercovér cop...he’s in a class by himself.
FRUMSÝNING Á FYRSTU ALVÖRUGAMANMYNDINNI
1991
FÖSTUDAGINN 8. FEBRÚAR ! LAUGARÁSBÍÓI
Frábær gaman- og spennumynd þar sem Schwarzenegger sigrar bófaflokk með
hjálp leikskólakrakka.
Með þessari mynd sannar jötunninn það sem hann sýndi í „TWINS", að hann
getur meira en hnyklað vöðvana. v-
Leikstjóri: Ivan Reitman (TWINS).
Aðalhlutverk: Schwarzenegger og 30 klárir krakkar á aldrinum 4-7 ára.
Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11.10.
Bönnuð innan 12 ára
laugarásbió